Morgunblaðið - 17.04.2012, Blaðsíða 27
94, starfaði í sumarvinnu og með
skóla við 03 upplýsingar um síma-
númer, sem nú er 118, á árunum
1994-97, starfaði við leikskólann
Laufskála hjá Reykjavíkurborg á ár-
unum 1997-98 og starfaði hjá Vinnu-
málastofnun á árunum 1999-2006.
Hringsjá – athvarf til mennta
Helga hóf störf hjá Hringsjá árið
2006, var þar fyrst náms- og starfs-
ráðgjafi, en hefur verið starfandi for-
stöðumaður við stofnunina frá hausti
2011.
Hringsjá er náms- og starfsend-
urhæfing fyrir þá sem vegna veik-
inda, slysa eða annarra áfalla hafa
hætt störfum tímabundið, en vilja
byggja sig upp og komast aftur út á
vinnumarkaðinn.
Margir nemendur Hringsjár hafa
þurft á stuðningi að halda, andlegum
og/eða líkamlegum, en þar er eimitt
lögð áhersla á að nemendum líði sem
best svo að þeir geti einbeitt sér og
séu í stakk búnir til að byggja sig
upp og takast á við hin hversdags-
legu verkefni líðandi stundar.
Helga hefur starfað í Gigtarfélagi
Íslands og sat í framkvæmdastjórn
þess um skeið. Þá sat hún í siðanefnd
Félags náms- og starfsráðgjafa.
Engin dellukella
Þegar Helga er spurð um áhuga-
mál hlær hún og spyr á móti hvort
ekki liggi beinast við að svara eins og
fegurðardrottningarnar: „ferðalög,
bókmenntir og mannleg samskipti“.
Staðreyndin er nú samt sú að
þetta eru líklega hennar helstu
áhugamál. Hún hefur áhuga á starfi
sínu sem hefur í för með sér stöð-
ugan lestur, fyrirlestra og jafnvel
ráðstefnur á hennar sérsviði um
mannlífið. Hún sinnir fjölskyldunni
og þegar hún vill slaka á verður hún
bókmenntalega sinnuð án þess að
eiga þar eitthvert tiltekið sérsvið.
Hún er samt engin dellukerling á til-
teknu sérsviði, segist vera ópólitísk,
stundar ekki fallhlífastökk og syng-
ur ekki í kórum.
Fjölskylda
Helga giftist 25.8. 2001 Inga Torfa
Sigurðssyni, f. á Ísafirði 14.3. 1964,
stýrimanni og húsasmíðameistara
sem nú starfar sem stýrimaður.
Hann er sonur Sigurðar Ragnars
Brynjólfssonar, f. 21.6. 1943, d. í jan-
úar 1979, stýrimanns, og Guðbjargar
Torfadóttur, f. 4.6. 1944, búsettrar í
Reykjavík.
Börn Inga Torfa frá því áður eru
Íris Ósk Ingadóttir, f. 2.10. 1988,
nemi en unnusti hennar er Egill Vic-
torsson og eiga þau tvö börn; Reynir
Viðar Ingason, f. 9.9. 1990, há-
skólanemi.
Börn Helgu og Inga Torfa eru Ey-
steinn Ingi, f. 27.11. 2001, og Hera
Björg, f. 28.8. 2003.
Systkini Helgu eru Hrund Ey-
steinsdóttir, f. 17.1. 1969, for-
stöðukona við fullorðinsfræðslu í
Þýskalandi; Jenna Huld Eysteins-
dóttir, f. 26.2. 1976, í sérfræðinámi í
húðlækningum í Gautaborg í Sví-
þjóð; Bjarni Kristinn Eysteinsson, f.
18.10. 1977, sérfræðingur hjá Síman-
um, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Helgu eru Eysteinn
Bjarnason, f. 20.9. 1943, fyrrv. bóndi
í Eskiholti II í Borgarhreppi í Borg-
arfirði, og Katrín Ragnheiður
Hjálmarsdóttir, f. 2.10. 1945, sér-
kennari. Þau eru nú búsett í Reykja-
vík.
Úr frændgarði Helgu Eysteinsdóttur
Elíeser Sigurðsson
útg.m. á Seyðisf.
Þorgerður Albertsdóttir
frá Skálum
Katrín Þorvarðardóttir
húsfr. á Hellissandi
Jóhann Þórarinsson
stýrim. á Hellissandi
Helga Eysteinsdóttir
húsfr. á Kolsstöðum
Guðmundur Auðunsson
f. á Skálpast. í Lundar.dal
Guðbjörg Aradóttir
húsfr. á Skálpastöðum
Helga
Eysteinsdóttir
Eysteinn Bjarnason
fyrrv. b. í Eskiholti II
Katrín R. Hjálmarsdóttir
sérkennari
Jensína Á. Jóhannsdóttir
húsfr. í R.vík.
Hjálmar B. Elíesersson
skipstj. í R.vík.
Kristín Guðmundsdóttir
húsfr. í Eskiholti
Bjarni Sveinsson
b. í Eskiholti
Sveinn Finsson
f. á Kolsstöðum í Dölum
Jóhann Hjálmarsson
skáld
Ásmundur Sveinsson
myndhöggvari
Júlílus
Þórarinsson
Jón Júlíusson
kaupm. í Nóatúni
Guðmundur Júlíusson
kaupm. í Melabúðinni
Útivistarkona Helga í essinu sínu á
góðum degi í Gjánni í Þjórsárdal.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2012
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
KROM 53x80 cm
• Aluminum / Ál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
90 ára
Bergljót Loftsdóttir
85 ára
Dómhildur Gottliebsdóttir
Jón Ragnar Sigurjónsson
Svanhildur Óladóttir
80 ára
Erla Magnúsdóttir
Íris Sigvaldadóttir
Júlíus Jónasson
Þórólfur Daníelsson
75 ára
Fjóla Jórunn
Jóhannesdóttir
Ólafía Lára Lárusdóttir
70 ára
Einar Sigfússon
Guðlaug Jónsdóttir
Heiðbjört Guðmundsdóttir
Helgi Guðmundsson
Ingibjörg Sigfúsdóttir
Laufey Óskarsdóttir
Nanna Sigríður
Baldursdóttir
Sesselja Sólveig
Bjarnadóttir
Sigrún Steinunn
Sigurðardóttir
60 ára
Elsa Hafsteinsdóttir
Eyrún Pétursdóttir
Guðný Helga Gunn-
arsdóttir
Hallgrímur Jónasson
Ingunn Guðlaug Jónsdóttir
Magnús Snædal
Rósbergsson
Sigurlína Jóhannsdóttir
Skúli Magnússon
50 ára
Andrew Gosling
Birgir Smári Jóhannesson
Guðrún Kristjánsdóttir
Haraldur Haraldsson
Helgi Ómar Pálsson
Hildur Magnúsdóttir
Hrund Sigurhansdóttir
Ingimundur Helgason
Jakob Jóhannsson
Ragnar Ingi Vernharðsson
Sigfríður Björnsdóttir
Sigþór Valdimar Elíasson
Sveinbjörn Imsland
Una Þóra Ingimarsdóttir
40 ára
Ástbjörg Jónsdóttir
Bergljót Halldórsdóttir
Birgir Hilmarsson
Bjarni Ellert Ísleifsson
Davíð Hermann Brandt
Hjördís Líney Pétursdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Konráð Sigurðsson
Marian Granco
Ragnheiður G. Eyjólfsdóttir
Svafar Vilhjálmur Helgason
Vilborg Jónsdóttir
Þórdís Sigurjónsdóttir
30 ára
Laura Carolina
Acosta Gomez
Snæbjörn Halldór
Snæbjörnsson
Til hamingju með daginn
90 ára Siggi fæddist að
Stóru-Reykjum í Hraun-
gerðishreppi. Hann öðl-
aðist meistararéttindi í
rafivirkjun 1958 og vann-
við rafvirkjun til 1997.
Eiginkona Jóhanna
María Þorvaldsdóttir, f.
1934, húsfreyja. Börn
þeirra eru fimm talsins.
Foreldrar Gísli Jónsson,
f. 1877, oddviti og hrepp-
stjóri á Stóru-Reykjum,
og María Þ. Jónsdóttir, f.
1885, húsfreyja.
Siggi
Gíslason
30 ára Ragnhildur lauk
MA-prófi í umhverfis- og
auðlindafræði og stundar
doktorsnám í lýðheilsu-
fræði og rannsókn á sam-
bandi loftmengunar og
heilsu fólks í Reykjavík.
Maður Marinó Fannar
Pálsson, f. 1981. Dóttir
þeirra: Ágústa Líf, f. 2008.
Dóttir hans: Rakel Júlíana,
f. 2005.
Foreldrar Guðbjörg
Sveinsdóttir, f. 1949, og
Finnbjörn Gíslason, f. 1947.
Ragnhildur G.
Finnbjörnsdóttir
Björn Hallgrímsson, forstjóriog stjórnarformaður H.Benediktssonar, fæddist í
Thorvaldsenstræti 2 við Austurvöll,
17. apríl 1921. Það hús lét Páll Mel-
sted sagfræðingur byggja árið 1878,
undir Kvennaskólann, sem hann og
kona hans, Þóra Melsted, stofnuðu
fjórum árum fyrr. Eftir að Kvenna-
skólinn flutti suður á Fríkirkjuveg
eignuðust húsið foreldrar Björns,
Hallgrímur Benediktsson, stór-
kaupmaður, alþm. og bæjarfulltrúi í
Reykjavík, og k.h., Áslaug Zoëga
húsfreyja.
Í þessu sögufræga húsi fæddust
einnig systkini Björns; Ingileif
stjórnarformaður og Geir, forsætis-
ráðherra, borgarstjóri og seðla-
bankastjóri.
Sjálfstæðisflokkurinn var síðan
með starfsemi sína í húsinu um skeið.
Þar hafa nokkrar kynslóðir Reykvík-
inga dansað og húsið hefur gengið
undir ýmsum heitum, svo sem Sjálf-
stæðishúsið, Sigtún og nú síðast
NASA.
Hallgrímur var af fjölmennustu
ráðherraætt landsins, Reykjahlíð-
arætt, en Áslaug, kona hans, var
dóttir Geirs Zoëga rektors og Bryn-
dísar Sigurðardóttur frá Flatey, af
ætt Boga Benediktssonar, fræði-
manns á Staðarfelli.
Björn lauk prófi frá Verzlunar-
skóla Íslands 1939 og var við fram-
haldsnám og störf í Bandaríkjunum
1942-46. Hann var fulltrúi hjá H.
Benediktssyni hf. 1946-52, forstjóri
Ræsis hf. 1952-54 og forstjóri H.
Benediktssonar hf. lengst af frá 1954.
Auk þess var hann stjórnarformaður
fyrirtækisins um árabil og sat í stjórn
ýmissa annarra fyrirtækja sem stór-
fjölskylda hans hafði átt hluta í eða
komið að, s.s. Nóa-Síríusar hf.,
Hreins hf., í stjórn Steypustöðv-
arinnar hf., Skeljungs og Ræsis hf.
Björn var mikill öndvegismaður,
samviskusamur, heiðarlegur, glað-
sinna og vingjarnlegur í viðmóti.
Þessi eiginleika áttu þau systkinin öll
sameiginlega.
Eiginkona Björns var Emilía Sjöfn
Kristinsdóttir sem lést 2003, dóttir
Kristins, kaupmanns í Geysi, og eign-
uðust þau fjögur börn.
Björn lést 20. september 2005.
Merkir Íslendingar
Björn Hall-
grímsson
30 ára Berglind lauk
BSc-prófi í viðskiptafr.
frá HR og starfar hjá
Guðm. Tyrfingssyni ehf.
Maður Grétar Ingi Árna-
son, f. 1971, varðstjóri.
Dóttir Sigurlína Rósa
Helgadóttir, f.2006.
Foreldrar Jóna Jóns-
dóttir, f. 1949, og Hörð-
ur Hafsteinsson, f.
1949. Fósturfor. Pétur
Eiríksson, f. 1951 og
Þórunn Erla Guð-
mundsd. f. 1950
Berglind
Harðardóttir
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111