Morgunblaðið - 30.04.2012, Page 7

Morgunblaðið - 30.04.2012, Page 7
ÍÞRÓTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. APRÍL 2012 Allt útlit er fyrir að Roy Hodgson verði ráðinn næsti þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu og stýri því liðinu á Evrópumeistaramótinu í Úkraínu og Póllandi í sumar. Enska knatt- spyrnusambandið hefur fengið leyfi WBA til að ræða við stjórann. Stuart Pearce, þjálfari U21-landsliðs Englands, hefur stýrt A-lands- liðinu síðan Fabio Capello sagði upp störfum í byrjun febrúar í kjölfar þess að knattspyrnu- sambandið tók fram fyrir hendurnar á honum og svipti John Terry fyrirliðastöðunni. Eftir að Capello hætti bjuggust flestir við því að Harry Redknapp, stjóri Tottenham, yrði ráðinn í hans stað. Hodgson, sem hefur gert góða hluti með WBA síðan hann var rek- inn frá Liverpool í janúar í fyrra, fær hins vegar þetta tækifæri til að láta gamlan draum rætast. „Roy er eini stjórinn sem við höfum rætt við og við erum enn innan tímaramm- ans sem við settum okkur þegar Capello fór,“ sagði David Bernstein, stjórn- arformaður enska knatt- spyrnusambandsins. Hodgson hefur áður stýrt þremur lands- liðum: Sviss, Sameinuðu arabísku furstadæm- unum og Finnlandi. sindris@mbl.is Hodgson fær að láta draum rætast Roy Hodgson Barcelona frestaði meistarafagnaðarlátum Real Madrid um nokkra daga með mögn- uðum 7:0 útisigri á Rayo Vallecano í gær- kvöldi í fjórðu síðustu umferð spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu. Real hafði unnið Sevilla 3:0 fyrr um daginn og hefði Barcelona tapað hefðu Madridingar getað tekið fram kampavínið og fagnað titlinum. Nú munar hins vegar enn sjö stigum á liðunum þegar þrjár umferðir eru eftir. Madridingar þurfa þó ekki að bíða lengi með fagnaðarlætin því þeir geta tryggt sér titilinn með sigri á Athletic Bilbao þegar liðin mætast í Baskahéraði á miðvikudagskvöld. Andstæðingarnir þar eru þó engir aukvisar enda komnir í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Cristiano Ronaldo skor- aði eitt marka Real í gær og hefur þar með gert 43 mörk í 35 leikjum í deild- inni á þessari leiktíð sem er ótrúlegur árangur. Lio- nel Messi er hins vegar ekki síðri og hann skoraði tvívegis í sigrinum hjá Barcelona í gærkvöldi og jafnaði því Ronaldo í baráttu þessara tveggja bestu knattspyrnumanna heims um að landa markakóngstitlinum. sindris@mbl.is Titlinum fagnað í Baskahéraði? Cristiano Ronaldo ENGLAND Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Ég er búinn að eiga mjög erfitt ár. Það eina sem maður getur gert er að leggja hart að sér og þá mun maður uppskera. Núna get ég fagnað,“ sagði brosmildur Fernando Torres eftir að hafa skorað fyrstu þrennu sína í búningi Chelsea í gær í mögn- uðum 6:1 sigri á QPR í ensku úrvals- deildinni. Jafnvel hellisbúar heimsins eru meðvitaðir um það hve illa hefur gengið hjá spænska framherjanum síðan hann var keyptur til Lundúna frá Liverpool fyrir 50 milljónir punda í janúar í fyrra. Hann skoraði eitt mark fyrir Chelsea í deildinni á síðustu leiktíð og hafði skorað þrjú í deildinni í vetur fyrir leikinn í gær. Hæfileikar á borð við þá sem prýða Torres hverfa hins vegar ekki svo glatt. Með frammistöðu eins og í gær sýndi kappinn að hann getur tekið við því mikla hlutverki sem Di- dier Drogba hefur haft síðustu ár. Lengi hefur verið beðið eftir að Tor- res springi út að nýju líkt og hann gerði í rauðu Liverpool-treyjunni, og sjálfstraust kappans ætti að hafa aukist duglega síðustu vikuna með þrennunni og markinu sem „Ma- dridingurinn“ skoraði á Camp Nou þegar liðið tryggði sér sæti í úrslita- leik Meistaradeildarinnar. Torres skoraði síðast þrennu í 6:1 sigri Liverpool á Hull haustið 2009. „Leiktíðin hefur verið erfið“ „Síðasta þrennan mín kom fyrir löngu svo ég er ánægður með að hafa náð henni. Þegar ég kom fyrst til Englands virtist allt svo auðvelt og gekk vel, og ég skoraði nánast daglega. Þessi leiktíð hefur hins veg- ar verið erfið en núna gengur bet- ur,“ sagði Torres sem er 28 ára gam- all og lék með Atlético Madrid til ársins 2007 þegar hann hélt til Liv- erpool. „Hann hefur alltaf lagt sig allan fram fyrir liðið og skilað stoðsend- ingum. Við erum lið og það skiptir ekki máli hver skorar. En ég gleðst með honum í dag og það er gaman að hann hafi skorað þrennu. Sjálfs- traustið eykst með sigrum og hjá framherjum einnig með mörkum. Liðið virðist allt fullt sjálfstrausts,“ sagði knattspyrnustjórinn Roberto Di Matteo sem hefur blásið miklu lífi í tímabilið hjá Chelsea. Næst á dagskrá hjá liðinu er bik- arúrslitaleikur við Liverpool á laug- ardag og nú má allt í einu reikna með að Torres reynist þar sínum gömlu félögum erfiður ljár í þúfu. Þá er ljóst að meiðsli Davids Villa hafa minni áhrif en ella á gengi spænska landsliðsins á EM í sumar haldi Tor- res uppteknum hætti. Chelsea er sem áður segir komið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þar sem það mætir Bayern München á heimavelli síðarnefnda liðsins. Landi Chelsea Evrópumeistaratitlinum fær það sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en það myndi jafn- framt þýða að aðeins þrjú efstu lið úrvalsdeildarinnar kæmust þangað, en ekki fjögur eins og venjulega. Van Persie með 28 mörk Tottenham er nú í 4. sætinu með 62 stig eftir 2:0 sigur á Blackburn í gær. Rafael van der Vaart skoraði sitt tíunda mark á leiktíðinni og Kyle Walker bætti við öðru úr glæsilegri aukaspyrnu. Newcastle er í 5. sæti, jafnt Tottenham að stigum, eftir óvænt risatap á útivelli fyrir Wigan 4:0 á laugardaginn. Arsenal er í 3. sæti með 66 stig eftir jafntefli við Stoke á laugardag, þar sem Robin van Persie skoraði sitt 28. mark á leiktíðinni, en Chelsea er í 6. sæti með 61 stig nú þegar þrjár umferðir eru eftir. Torres vaknaður til lífsins  Fernando Torres fagnaði fyrstu þrennunni fyrir Chelsea vel eftir afar erfitt ár  Bikarúrslitaleikur við gömlu félagana í Liverpool er næstur á dagskrá Reuters Kátur Fernando Torres skorar hér fyrsta mark sitt af þremur í gær framhjá Paddy Kenny markverði QPR. Leikjadagskráin » Arsenal á eftir leiki við Nor- wich (ú) og WBA (h). » Tottenham á eftir leiki við Bolton (ú), Aston Villa (ú) og Fulham (h). » Newcastle á eftir Chelsea (ú), Everton (ú), Man. City (h). » Chelsea á eftir leiki við New- castle (h) og Blackburn (h). Gylfi Þór Sig-urðsson var valinn besti mað- ur Swansea í leiknum gegn Wolves á Liberty Stadium þar sem Sir Alex Fergu- son, stjóri Man- chester United, var á meðal áhorfenda. Swansea fór illa að ráði sínu. Liðið komst í 3:0 og 4:1 en lokatölur urðu 4:4. Gylfi lagði upp eitt mark og átti þátt í öðru og þá munaði minnstu að hann skoraði en hann þrumaði boltanum í stöngina í seinni hálfleik. Enskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Manchester United væri að undirbúa 10 milljón punda tilboð í Gylfa en sem kunnugt er hann samningsbundinn þýska lið- inu Hoffenheim.    Heiðar Helgu-son gat ekki spilað með sínum mönnum í QPR í gær þegar liðið steinlá fyrir Chelsea á Brúnni. Nárameiðslin sem hafa verið að angra Heiðar frá því í janúar tóku sig upp en hann hef- ur lítið komið við sögu hjá Lund- únaliðinu á árinu 2012 en hann er samt markahæsti leikmaður liðsins.    Grétar Rafn Steinsson var sömu-leiðis fjarri góðu gamni í liði Bolton sem gerði 2:2 jafntefli við Sunderland á Leikvangi ljóssins. Grétar var ekki í leikmannahópi Bolton vegna meiðsla en Kevin Dav- ies skoraði bæði mörk Bolton-liðsins.    Chelsea hefurnáð sam- komulagi við þýska liðið Wer- der Bremen um kaup á þýska landsliðsmann- inum Marko Mar- in. Hann er 23 ára gamall og leikur í stöðu miðjumanns. Marin er búinn að semja við Chelsea um kaup og kjör og kemur hann til félagsins í sumar. Mörg félög hafa verið á hött- unum eftir Marin sem hefur verið nefndur hinn þýski Lionel Messi. Hann hefur leikið 16 landsleiki fyrir Þýskaland og er talið að Chelsea greiði 7-8 milljónir evra fyrir leik- manninn.    Antonio Cassano skoraði sittfyrsta mark fyrir AC Milan í gær frá því hann sneri aftur inn á völlinn eftir hjartaaðgerð í nóvember á síðasta ári. Cassano skoraði fyrsta mark Mílanóliðsins í 4:1 sigri á móti Siena í ítölsku A-deildinni. Þetta var hans fyrsta mark síðan í október. Svíinn Zlatan Ibrahimovic skoraði tvö marka AC Milan í leiknum. Ju- ventus vann sinn áttunda leik í röð þegar það lagði Novara, 4:0, og er Ju- ventus með fimm stiga forskot á AC Milan þegar þrjár umferðir eru eftir. Fólk sport@mbl.is Southampton fylgir Reading upp í ensku úrvalsdeildina í knattspyrnu en það varð ljóst eftir að liðið vann stórsigur á Coventry, sem var þeg- ar fallið úr 1. deildinni, 4:0, í loka- umferðinni. Southampton var síð- ast í úrvalsdeildinni 2005 eða fyrir sjö árum og allt varð hreinlega vit- laust á St Mary’s þegar flautað var til leiksloka. Stuðningsmenn félags- ins þustu inn á völlinn þar sem þeir knúsuðu og kysstu hetjur sínar. „Margir hafa lagt mikið af mörk- um og unnið gott starf hér,“ sagði Nigel Adkins knattspyrnu- stjóri Southamp- ton skömmu eftir að liðið tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni að ári. Þá sagði stjórinn að leik- mennirnir væru grunnurinn að þessum árangri. „Þeir eiga skilið allt hrósið. Þeir eins og allir aðrir síðan ég tók við, hafa lagt sig alla fram.“ Aron Einar Gunnarsson lék allan tímann fyrir Cardiff sem lagði Crystal Palace að velli, 2:1, eftir að hafa lent undir. Cardiff endaði í sjötta sæti deildarinnar og mætir West Ham í umspili um eitt laust sæti í úrvalsdeildinni en í hinni við- ureigninni mætast Blackpool og Birmingham. „Við mætum mínu gamla liði, West Ham, í umspilinu. Ég held að sú reynsla sem mínir leikmenn gengu í gegnum í úrslitaleiknum á móti Liverpool í deildabikarkeppn- inni á Wembley komi til að hjálpa liðinu í þessum tveimur leikjum,“ sagði Malky Mackay, stjóri Cardiff eftir leikinn. Reading varð deildarmeistari en liðið tapaði fyrir Birmingham í lokaumferðinni, 2:0, þar sem Brynj- ar Björn Gunnarsson lék síðustu 20 mínúturnar. gummih@mbl.is Southampton í hóp þeirra bestu  Southampton fylgir Reading upp í úrvalsdeildina  Aron og félagar mæta West Ham Aron Einar Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.