Morgunblaðið - 14.05.2012, Page 5
g
Morgunblaðið en segir líkamlega form-
ið geta komið fljótt eftir barnsburð.
„Það er vissulega mjög erftt að byrja
aftur vegna þess að hugurinn er svo
langt á undan fótunum. Maður er við
það að hrasa í hvert skipti sem maður
ætlar að rjúka af stað. Ef maður er
ákveðinn í því snúa aftur á völlinn þá er
þetta tiltölulega fljótt að koma en það
er nokkuð einstaklingsbundið. Auka-
kílóin þarf að hrista af sér og það er
heljarinnar vinna en alltaf þess virði,“
sagði Hrafnhildur.
Hjálpaði mér í gegnum
sorgarferlið
Síðasta sumar var það ekki í kort-
unum að Kristín myndi vera með í vet-
ur. Hún kom hins vegar inn í liðið af
fullum krafti í haust eftir að að henni
var kveðinn mikill harmur þegar hún
missti tvíbura á síðasta þriðjungi með-
göngunnar.
„Þetta er mjög sérstakt ár og mjög
erfitt. Það hjálpaði mér mjög mikið í
gegnum allt ferlið að vera í handbolt-
anum og með félögum mínum sem
standa með manni og reka mann fram
úr rúminu. Úrslitarimman byrjaði á
styrktarleik og það var ótrúlegt fyrir
mig í mínu sorgarferli að fylla húsið af
fólki. Ég vil meina að sá leikur hafi
hjálpað til við að fá áhorfendur á næstu
leiki því fólk áttaði sig á því hvað það er
gaman að fara á leiki. Það er því mjög
sérstakt að uppskera svona vel og spila
jafn mikið og ég hef gert í jafn lélegu
formi. Eftir að hafa gengið í gegnum
svona þá er geggjað að landa öllum doll-
unum. Mig hafði aldrei dreymt um
það,“ sagði Kristín og benti á að leik-
menn sem komnir eru með fjölskyldu
hafi í mörgum tilfellum meiri ánægju af
boltanum. Þá upplifi leikmenn það sem
forréttindi að geta æft og keppt með
vinkonum sínum en leikmenn sem
yngri eru taki boltanum sem sjálfsögð-
um þætti tilverunnar oft og tíðum.
Morgunblaðið/Eggert
meistaratitill Valskvenna í röð var í höfn.
raliðinu
imm mæður í liðinu og eiga allar tvö
ndbolta en ekki sjálfsagðan hlut
ÍÞRÓTTIR 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012
Vodafonehöllin að Hlíðarenda, odda-
leikur kvenna um Íslandsmeistaratit-
ilinn, laugardag 12. maí 2012.
Gangur leiksins: 1:0, 1:3, 3:3, 3:5,
5:5, 9:6, 11:8, 12:8, 12:10, 14:10,
14:12, 17:13, 19:14, 20:15, 23:17,
23:19, 24:21.
Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir
8/1, Þorgerður Anna Atladóttir 6,
Karólína Bæhrenz Lárudóttir 5,
Dagný Skúladóttir 3, Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir 1, Ragnhildur Rósa
Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Guðný Jenný Ásmunds-
dóttir 12/2 (þar af 6 aftur til mót-
herja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 6,
Elísabet Gunnarsdóttir 6/3, Sig-
urbjörg Jóhannsdóttir 4, Guðrún
Þóra Hálfdánsdóttir 3, Sunna Jóns-
dóttir 2.
Varin skot: Guðrún Ósk Maríasdóttir
14 (þar af 4 aftur til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og
Svavar Pétursson. Ágætir.
Áhorfendur: 1.811.
Valur sigraði 3:2 og er Íslands-
meistari 2012.
Valur – Fram 24:21
HólmfríðurMagn-
úsdóttir, lands-
liðskona í knatt-
spyrnu, skoraði
öll þrjú mörk
Avaldsnes á laug-
ardaginn þegar
liðið vann
Kongsvinger, 3:0,
á útivelli í norsku 1. deildinni. Hún
hefur þar með skorað sex mörk og
Kristín Ýr Bjarnadóttir fjögur af 11
mörkum liðsins í fyrstu fimm umferð-
unum. Þetta var fjórði sigur liðsins
sem er á toppi deildarinnar með 12
stig.
Kristinn Stein-dórsson og
Guðjón Baldvins-
son skoruðu sitt
markið hvor og
Kristinn lagði auk
þess upp mark
fyrir Halmstad
sem vann 3:2-
sigur á Jönköping
í sænsku B-deildinni á laugardaginn.
Halmstad er með 10 stig eftir sex
leiki og er í efri hluta deildarinnar en
liðið féll úr úrvalsdeildinni síðasta
haust. Guðjón hefur skorað fjögur
mörk og Kristinn tvö í fyrstu sex um-
ferðunum, af þeim níu mörkum sem
liðið hefur skorað til þessa.
Fyrstudeildarlið Þórs í knatt-spyrnu hefur fengið sænskan
framherja, Robin Strömberg, lán-
aðan frá sænska úrvalsdeildarliðinu
Mjällby. Strömberg er tvítugur að
aldri og hefur verið í röðum Mjällby í
þrjú ár. Hann spilaði sex leiki með lið-
inu í úrvalsdeildinni á síðasta ári, einn
þeirra í byrjunarliði. Strömberg gæti
spilað sinn fyrsta leik með Þór á mið-
vikudaginn þegar Akureyrarliðið
mætir KF í 2. umferð bikarkeppn-
innar á Ólafsfjarðarvelli.
SelfyssingurinnÞórir Ólafs-
son skoraði fjög-
ur mörk fyrir lið
sitt Vive Kielce á
laugardaginn þeg-
ar það vann Wisla
Plock 28:25 í
fyrsta leik úr-
slitaeinvígis lið-
anna um pólska
meistaratitilinn í handknattleik.
Vinna þarf þrjá leiki til að landa
meistaratitlinum. Þórir og félagar
hafa þegar fagnað bikarmeistaratitl-
inum á tímabilinu.
Jón Heiðar Gunnarsson og félagarhans í Pays d’Aix tryggðu sér um
helgina sæti í frönsku A-deildinni í
handknattleik og leikur liðið í deild
þeirra bestu í fyrsta sinn í sögu fé-
lagsins á næstu leiktíð. Pays d’Aix
tryggði sér sigur í B-deildinni með
stórsigri á Angers, 42:24. Jón Heiðar,
sem kom til félagsins fyrir tveimur
árum frá FH, hefur leikið stórt hlut-
verk í varnarleik liðsins. Jóni stendur
til boða að spila áfram úti en hann er
á heimleið af fjölskylduástæðum og
hefur í hyggju að spila í N1-deildinni
á næstu leiktíð.
KristjánHelgason
vann öruggan sig-
ur á Þorra Jens-
syni, 9:1, í úrslita-
leik Íslands-
meistaramótsins í
snóker á laug-
ardaginn. Hæsta
skor Kristjáns í
leiknum var 96 í 8. ramma. Hann hef-
ur átt góðu gengi að fagna í vetur og
gerði meðal annars 147 í einu af stiga-
mótunum. Kristján og Þorri verða
fulltrúar Íslands á Evrópumeist-
aramóti áhugamanna í Lettlandi í
næsta mánuði en sigurvegari þess
móts kemst inn á atvinnumanna-
mótaröðina.
Fólk sport@mbl.is
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Segja má að Kristín Guðmunds-
dóttir hafi skorað mikilvægasta
mark Vals í úrslitarimmunni gegn
Fram þegar hún knúði fram fram-
lengingu í öðrum leik liðanna með
marki undir lok venjulegs leiktíma.
Valur vann þann leik og jafnaði þar
með rimmuna 1:1 eftir að hafa tapað
fyrsta leiknum á heimavelli. Í kjöl-
farið náði Valur undirtökunum í
rimmunni.
„Þegar allt er undir þá held ég það
sé bara hausinn og reynslan sem
skiptir máli. Maður fékk á tilfinn-
inguna í oddaleiknum að Frömurum
hafi fundist of langt í land og þær
voru fljótar að brotna. Mér fannst
þær vera það líka í þriðja leiknum.
Ég held bara að við séum með aðeins
sterkari haus og hef sagt það undan-
farin ár. Við sem eldri erum stígum
fram og tökum af skarið. Á heildina
litið held ég að Valsliðið sé sterkara
andlega og það er það sem skiptir
mestu máli undir lok leikja. Ef and-
legur styrkur er til staðar þá finnur
maður einnig síður fyrir þreytunni,“
sagði Kristín þegar Morgunblaðið
ræddi við hana að oddaleiknum lokn-
um.
Tveggja sólarhringa yfirlega
Hrafnhildur Skúladóttir var
markahæst með 8 mörk í odda-
leiknum. Hún tók af skarið snemma í
leiknum, eins og hún gerir svo oft
þegar spennustigið er hátt, og það
skilaði 5 mörkum af 11 í fyrri hálf-
leik. „Ég var búin að liggja yfir
þessu í tvo sólarhringa og var of-
boðslega ákveðin í því að mæta öflug
til leiks. Ég vissi að ég þyrfti að taka
af skarið og vissi að ég þyrfti að
halda áfram að skjóta þó öll skotin
myndu ekki enda í markinu, enda er
það sjaldnast þannig. Með þessu
skapa ég líka pláss fyrir aðra leik-
menn,“ sagði Hrafnhildur sem sagð-
ist ekki muna eftir öðrum eins
mannfjölda á Hlíðarenda. „Þetta var
magnað og forréttindi að fá að taka
þátt í svona leik þar sem sett er
áhorfendamet í húsinu. Ég bjóst
aldrei við svona svakalega mörgum.
Fyrir tveimur árum voru Valur og
Haukar í úrslitarimmu í karlaflokki
og þá mættu ekki svona margir.“
Á mbl.is/sport/handbolti er að
finna myndbandsviðtöl við Stefán
Arnarson, Dagnýju Skúladóttur,
Guðnýju Jenný Ásmundsdóttur og
Ragnhildi Rósu Guðmundsdóttur úr
Val og Elísabetu Gunnarsdóttur úr
Fram.
Þær eldri
stíga fram og
taka af skarið
Andlegur styrkur skiptir mestu máli
Morgunblaðið/Eggert
Erfitt ár Ekki var fyrirséð að Kristín myndi spila með Val í vetur.
Morgunblaðið/Eggert
Stöðug Guðný Jenný sýndi stöð-
ugleika í úrslitarimmunni.