Morgunblaðið - 14.05.2012, Qupperneq 7
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MAÍ 2012
Robin vanPersie varð
markakóngur
ensku úrvals-
deildarinnar með
30 mörk. Wayne
Rooney kom hon-
um næstur með
27 mörk og Ser-
gio Agüero gerði
23. Van Persie lék frábærlega á
leiktíðinni og átti stærstan þátt í því
að Arsenal náði 3. sætinu og tryggði
sér þar með sæti í Meistaradeild
Evrópu á næstu leiktíð, þó ekki hafi
hann skorað í 3:2 sigrinum á WBA í
gær. Arsenal varð að vinna leikinn
en lenti 2:1 undir í fyrri hálfleik.
Varnarmennirnir André Santos og
Laurent Koscielny náðu hins vegar
að tryggja liðinu sigur.
Tottenham, sem var í titilbaráttufram yfir áramót, endaði í 4.
sætinu stigi á eftir Arsenal. Emm-
anuel Adebayor skoraði 17. mark
sitt á leiktíðinni og Jermain Defoe
bætti við öðru í 2:0 sigri á Fulham í
gær. Tottenham þarf nú að treysta
á að Bayern München vinni Chelsea
í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á
laugardag því annars fær Chelsea
sætið í Meistaradeildinni á næstu
leiktíð.
Bolton hefði getað haldið sér í úr-valsdeildinni með sigri á Stoke
á útivelli í gær en mátti sætta sig
við 2:2 jafntefli og endaði því stigi á
eftir QPR. Mark Davies og Kevin
Davies komu Bolton í 2:1 undir lok
fyrri hálfleiks en Jonathan Walters
jafnaði metin úr víti korteri fyrir
leikslok. Bolton komst nærri því að
ná sigurmarki í lokin en varð að bíta
í það súra epli að falla úr úrvals-
deildinni eftir 11 ára veru þar. Grét-
ar Rafn Steinsson gat ekki leikið
með Bolton vegna meiðsla.
Í fyrsta sinn fráárinu 2002 féll
enginn af nýlið-
unum þremur
niður úr ensku
úrvalsdeildinni í
ár. Swansea end-
aði frábæra leik-
tíð í 11. sæti eftir
1:0 sigur á Liver-
pool þar sem
Danny Graham skoraði sitt 12.
mark á leiktíðinni. Gylfi Þór Sig-
urðsson lék þar allan leikinn. Nor-
wich endaði með jafnmörg stig, 47
talsins, í 12. sætinu eftir 2:0 sigur á
Aston Villa í lokaumferðinni. Villa-
menn enduðu því aðeins tveimur
stigum frá fallsæti.
Newcastle endaði í 5. sæti eftir3:1 tap gegn Everton í gær en
það er besti árangur liðsins síðan
árið 2004. Liðið leikur því í Evr-
ópudeildinni á næstu leiktíð og var
aðeins 4 stigum frá mögulegu
Meistaradeildarsæti. Newcastle var
stigi á undan Chelsea sem vann
Blackburn 2:1 í síðasta leik sínum
fyrir úrslitaleik Meistaradeild-
arinnar.
Fólk sport@mbl.is
ENGLAND
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Baráttan um enska meistaratitilinn
á þessari leiktíð hefur verið brjál-
æðislega jöfn og skemmtileg en
„handritshöfundarnir“ áttu enn al-
mennileg tromp á hendi fyrir loka-
umferðina. Þegar 90 mínútur voru
búnar af leik Manchester City og
QPR var QPR 2:1 yfir en Manchest-
er United að vinna Sunderland 1:0
og allt útlit fyrir að United landaði
sínum 20. meistaratitli. Er nema von
að einhverjir svekktir stuðnings-
menn City hafi verið farnir af Eti-
had-vellinum með tár á hvarmi?
En leikmenn City hafa sýnt á leik-
tíðinni að þeir gefast aldrei upp og
þeir sem fóru of snemma fengu að
heyra gríðarleg fagnaðarlæti þegar
Edin Dzeko jafnaði metin í uppbót-
artíma og ekki síður þegar Sergio
Agüero skoraði sigurmarkið í kjöl-
farið. Það mark kom úr 44. skottil-
raun City í leiknum, sem er til vitnis
um yfirburði liðsins í leiknum, en
það eru einmitt 44 ár síðan liðið varð
Englandsmeistari síðast.
Í fyrsta sinn í sögu úrvalsdeild-
arinnar réðust úrslitin á markatölu
en þar munaði átta mörkum á lið-
unum. Mikilvægi leiksins í upphafi
leiktíðar, þegar City vann magnaðan
6:1 sigur á Old Trafford, er því enn
meira en áður. City-menn munu
hugsa aftur til fleiri leikja með bros
á vör, eins og þegar liðið náði 3:3
jafntefli við Sunderland þrátt fyrir
að vera 3:1 undir í lokin og þegar lið-
ið vann Tottenham 3:2 í blálokin.
„Misstum aldrei trúna“
Leikurinn við QPR er samt sá
sem mun lifa lengst í minningunni.
Ekkert gekk að skora þrátt fyrir
þunga sókn allan leikinn, og
heimskupör Joey Barton virtust
ekkert hjálpa til. Barton fékk rautt
spjald hálftíma fyrir leikslok fyrir að
gefa Carlos Tévez olnbogaskot og
sparkaði aftan í Agüero og skallaði
til Vincent Kompany á leið sinni af
vellinum. Ömurleg framkoma. Tíu
leikmenn QPR komust samt í 2:1 en
meistararnir sýndu úr hverju þeir
eru gerðir í lokin.
„Ég vil vinna meira. Ég er hungr-
aður. Þessi tilfinning er ólýsanleg en
ég vil upplifa þetta aftur,“ sagði fyr-
irliðinn Vincent Kompany sem var
kjörinn besti leikmaður deildarinnar
og er svo sannarlega vel að því kom-
inn eftir magnaða leiktíð í hjarta
varnarinnar hjá City.
„Við misstum aldrei trúna. Lífið
er of stutt til að kasta svona tæki-
færi bara frá sér. Við gerðum það
næstum því en við eigum þetta al-
gjörlega skilið. Við vissum að Man-
chester United væri að vinna en ein-
beittum okkur alltaf bara að okkar
leik því við urðum að vinna. Þessi
leiktíð er búin að vera ótrúleg og
þegar titillinn vinnst með svona
hætti þá er bara ekki hægt að lýsa
því. Ég er svo innilega ánægður fyr-
ir hönd allra sem að félaginu
standa,“ sagði Kompany.
Roberto Mancini er orðinn að lif-
andi goðsögn í hugum City-manna.
Ítalski stjórinn hefur þurft að glíma
við alls konar vandræði, reyna að
halda stjórn á vandræðagemlingum
á borð við Carlos Tévez og Mario
Balotelli, láta sálfræðihernað sir
Alex Ferguson ekki hafa áhrif á sig,
og þannig mætti áfram telja. Hann á
allt hrós skilið fyrir sinn þátt í að
búa til meistaralið sem getur orðið
algjört stórveldi á komandi árum.
„Fimm mínútum fyrir leikslok
hélt ég að við myndum ekki ná sigri
en við áttum það skilið og að vinna
deildina. Við vorum á toppnum í 20
umferðir. Það var gríðarlega mik-
ilvægt fyrir okkur að landa þessum
titli. Manchester City á núna bjarta
framtíð fyrir sér,“ sagði Mancini.
Ferguson: Stórkostlegt afrek
Manchester United virtist vera að
landa titlinum þegar sex umferðir
voru eftir en þá kom tap gegn Wig-
an, 4:4 jafntefli við Everton þar sem
gestirnir skoruðu tvö mörk á loka-
mínútunum, og svo 1:0 tapið gegn
City í þriðju síðustu umferð. United
hefur þurft að glíma við ýmis
skakkaföll á leiktíðinni en kastaði
titlinum frá sér í lokin og landaði því
ekki stórum titli á þessari leiktíð.
„Fyrir hönd Manchester United
langar mig að óska grönnum okkar
til hamingju. Það er stórkostlegt af-
rek að vinna úrvalsdeildina því þetta
er erfiðasta deild í heimi og það lið
sem nær því á það alltaf skilið,“
sagði Alex Ferguson.
„Þetta var sárt en við höfum upp-
lifað margt gott og slæmt þessi 25 ár
mín hér og yfirleitt hafa það verið
frábær augnablik. Við höfum unnið
deildina þrisvar á síðustu fimm árum
og vorum hársbreidd frá því nú,“
bætti hann við.
Björt og blá framtíð
Man. City varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í 44 ár eftir lygilega dramatík
Í fyrsta sinn réðust úrslit á markatölu Mancini orðinn lifandi goðsögn
AFP
Sigurgleði Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, lyftir enska meistarabikarnum, fyrstur fyrirliða félagsins síðan Tony Book gerði það árið 1968.
Dortmund varð í fyrra-
kvöld þýskur bikarmeistari
í þriðja sinn og í fyrsta
skipti í 23 ár þegar liðið
vann öruggan sigur á Bay-
ern München, 5:2, í úrslita-
leik sem fram fór á Ólymp-
íuleikvanginum í München.
Pólverjinn Robert Lew-
andowski var maður leiks-
ins en hann skoraði þrennu
fyrir Dortmund sem á dög-
unum fagnaði þýska meist-
aratitlinum. Japaninn
Shinji Kagawa og Mats
Hummels gerðu sitt markið
hvor fyrir Dortmund.
Arjen Robben skoraði
fyrra mark Bayern úr víta-
spyrnu og jafnaði metin í
1:1 og Franck Ribéry skor-
aði síðara mark liðsins og
minnkaði muninn í 4:2.
Um næstu helgi mætir
Bayern Chelsea í úrslita-
leik Meistaradeildarinnar
og fer leikurinn fram á
heimavelli liðsins, Allianz
Arena.
gummih@mbl.is
Dortmund fór illa með Bayern
Fyrirliði Sebastian Kehl lyftir
bikarnum eftir sigur Dortmund.
Pastor Maldonado hjá Williams fór með glæsi-
legan sigur af hólmi í spænska kappakstrinum í
Barcelona. Er það jómfrúsigur hans í form-
úlu-1 og fyrsti sigur Williams frá því Juan
Pablo Montoya vann brasilíska kappaksturinn
2004. Umskipti Williams milli ára eru ótrúleg
því það var algjört botnlið í fyrra.
Maldonado hóf keppni af ráspól en missti
Fernando Alonso á Ferrari fram úr sér á
fyrstu metrunum. Um miðbik kappakstursins –
við önnur dekkjaskipti – vann hann sig fram úr
Alonso og tók forystuna á ný á vel útfærðri
herfræði.
Undir lokin ógnaði Alonso honum aftur; dró
Maldonado uppi en komst ekki fram úr.
Reyndar gerði hann ekki
beinlínis tilraun til þess
enda báðir á frekar slitnum
dekkjum þar sem þeir kusu
báðir að sleppa dekkjaskipt-
um á lokakaflanum til að
leggja ekki sigurinn upp í
hendurnar á Kimi Räikkö-
nen hjá Lotus.
Alonso náði aftur forystu í
stigakeppninni um heims-
meistaratitil ökumanna;
deilir henni reyndar með Sebastian Vettel hjá
Red Bull. Nánar á mbl.is/sport/formula.
agas@mbl.is
Glæsilegur fyrsti sigur Maldonados
Pastor
Maldonado