Morgunblaðið - 28.06.2012, Síða 20
Spennandi lausn!
230 volt í bílinn12V í 230V
bílar
Audi hefur í smíðum sérstaka S-línu af
Q5 jeppanum vinsæla. SQ5 er með
8 stiga sjálfskiptingu, fjögur púst-
rör og til staðalbúnaðar teljast
m.a. 20 tommu álfelgur. Jeppinn
kemur á markað næsta vor.
„Hin nýju lög þýða að raf- og vetnisbílar munu nálgast bíla knúa hefðbundu eldsneyti í verði. Raf-
magnsbílar hafa verið rándýrir og ekki samkeppnishæfir. Þá hefur drægi þeirra verið takmarkað og
ekki dugað nema kannski 100 og 200 km. Með nýrri tækni er þetta að lagast og það með öðru gerir
rafbílana meira aðlaðandi,“ segir Stefán Ásgrímsson hjá FÍB.
Alþingi samþykkti á dögum að fella niður virðisaukaskatt af rafbílum og vetnisbílum. Ísland er ann-
að landið í heiminum til að stíga þetta skref, næst á eftir Noregi. Lögin kveða á um að virð-
isaukaskattur af raf- og vetnisbílum sem kosta innan við sex milljónir falli nið-
ur. Einhver tími mun hins vegar líða þar til rafbílar fara að koma til landsins.
Gísli Gíslason, stjórnarformaður fyrirtækisins Northern Lights Energy,
sem hefur í nokkur ár unnið að rafbílavæðingu á Íslandi, segir að
eftir þetta hafi verið haft samband og pantanir staðfestar á
bílum sem koma til landsins næsta vetur.
Á þessu ári verða framleiddir um 150 þúsund rafbílar í heiminum. Á
næsta ári er reiknað með að framleiðslan verði um 500 þúsund rafbílar. Gísli
segir að það geti liðið nokkur misseri þangað til þeir sem panta bíl í dag fá bílinn af-
hentan. Þeir sem hafi verið búnir að panta fái hins vegar
bíla næsta vetur.
Nýsamþykkt lög fella niður virðisauka af raf- og vetnisbílum
Gerir bílana meira aðlaðandi
Rafbílarnir eru fram-
tíðin að mati kunnugra.
Þ
etta er lúxusrúta og í
samræmi við þá stefnu
okkar að bjóða farþegum
okkar þægindi og örugg-
ar ferðir,“ segir Marinó Pálmason.
Stjórnendur Bílasmiðjunnar
ehf., dótturfélags Dráttarbíla,
fengu á dögunum afhenta frá
Brimborg nýja Volvo 9500-rútu.
Bíllinn tekur 52 farþega auk öku-
manns og er vel búinn að öllu leyti.
Bíllinn verður gerður út undir
merkjum Grand Travel sem er ný
eining í rekstri Dráttarbíla sem
feðgarnir Pálmi Sigurðsson og
Marinó Pálmason reka. Þeir hafa
gert út vörubíla og vinnuvélar í
mörg ár en nú bætast fólksflutn-
ingarnir við.
Framúrstefnubíll
Bíllinn nýi er framleiddur í Pól-
landi; vélin er níu lítra, 380 hestöfl
og togkraftur mikill. Yfirbygging er
úr ryðfríu stáli og áli þannig að
hún ætti að standast tímans tönn.
Gírar bílsins eru tólf og gírkassinn
rafstýrður og þannig byggður að
líkindi eru við sjálfskipt ökutæki.
Bíllinn er á loftfjöðrum að framan
og aftan auk þess sem hægt er að
lækka innstig. Hljóðkerfið er vand-
að, tveir 17 tommu sjónvarpsskjáir
eru í bílnum sem og kaffiaðstaða,
salerni og fleira.
„Framúrstefnan í þessum bíl er
vökvabremsa á gírkassanum sem
gerir það að verkum að bremsurn-
ar verða lítið notaðar, ofhitna ekki
né fara úr virkni. Þú kemur varla
við bremsupedalann á þessum bíl
nema rétt þegar þú staðnæmist.“
Marinó segir að rútubílaútgerð-
in sé viðleitni Dráttarbíla til að
hafa eggin í fleiri körfum. Með
fjölgun ferðamanna til landsins
þurfi fleiri fólksflutningabíla og þá
sé endurnýjun flotans aðkallandi
mál. „Okkur hefur verið mjög vel
tekið á markaðnum og höfum full-
an hug á að hasla okkur völl
þarna,“ segir Marinó.
Fjárfest í framtíðinni
Að sögn Kristins Más Emils-
sonar, framkvæmdastjóra hjá
Brimborg, hafa nokkur fyrirtæki
keypt nýjar rútur að undanförnu.
„Nokkur fyrirtæki þurfa að end-
urnýja bíla sína; á þessu ári hafa
alls átján stærri rútur verið ný-
skráðar. Það er greinilega vaxt-
arbroddur um þessar mundir í
þjónustu við ferðamenn og því
fjárfesta menn með framtíðina í
huga,“ segir Kristinn sem reiknar
með að þessi þróun haldi áfram.
sbs@mbl.is
Dráttarbílar í rútuútgerð
Fengu nýjan
framúrstefnubíl
Bjartsýnir bílamenn. Á myndinni eru Pálmi Sigurðsson, til vinstri, og
Marinó Sigurðsson og á milli þeirra er Ólafur Árnason frá Brimborg.
Miklar rigningar hafa verið í Evrópu undanfarnar
vikur og Englendingar hafa ekki farið varhluta af
vætunni. Hér má sjá ástand vega í Englandi um
þessar mundir þar sem bílstjórar þeysast um í rign-
ingunni. Hér sést hvar Mazda Coupe Sport klífur
polla á veginum utan Winchfield í Hampshire.
AFP
Blautir vegir í Englandi