Morgunblaðið - 11.07.2012, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 2012
Ísöld 4
Dýrin úr Ísaldar-teiknimyndunum
snúa aftur í fjórðu myndinni um
ævintýri þeirra. Sem fyrr er íkorn-
inn Scrat að eltast við gómsæta
hnetu en í hamaganginum kemur
hann af stað landrekinu mikla og
myndun heimsálfa. Fyrir vikið
verða loðfíllinn Manni, letidýrið
Lúlli og sverðtígurinn Dýri
strandaglópar á borgarísjaka og
rekur þá langt frá heimkynnum sín-
um. Þeir reyna að komast aftur
heim og lenda þá miklum ævintýr-
um. Leikstjóri myndarinnar er
Mike Thurmeier.
Rotten Tomatoes: 52%
Magic Mike
Nýjasta kvikmynd leikstjórans Ste-
vens Soderberghs. Í henni segir af
karlkyns fatafellu, Mike Mart-
ingano, sem hefur átt góðu gengi
að fagna í faginu og kunna konur
vel að meta tilburði hans. Mike
kynnist nýliða í faginu, The Kid og
tekur hann í læri. Mike ætlar sér
hins vegar að hasla sér völl á öðrum
vettvangi. Í aðalhlutverkum eru
Channing Tatum, Alex Pettyfer,
Matthew McConaughey og Olivia
Munn.
Rotten Tomatoes: 77%
Ted
Hér segir af John nokkrum Bennet
og bangsanum hans sem er lifandi.
Bennet óskaði sér þess í æsku að
bangsinn hans myndi lifna við og
varð að ósk sinni. Nú er Bennet
hins vegar kominn á miðjan aldur
og býr enn með bangsanum sem
hefur mikil áhrif á einkalíf hans,
ekki síst vegna þess að bangsinn er
bæði frakkur og kjaftfor. Leikstjóri
myndarinnar er Seth MacFarlane
og í aðalhlutverkum Mark Wa-
hlberg, Mila Kunis og Seth Mac-
Farlane.
Rotten Tomatoes: 68%
Bíófrumsýningar
Lifandi bangsi, fáklæddir
karlmenn og ísöld
Stripl Úr kvikmyndinni Magic Mike sem segir af karlkyns fatafellum.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Forsaga Bítlamálsins er að sögn Sig-
urðar Eybergs Jóhannessonar,
saxafónleikara og söngvara Hinna
guðdómlegu Neanderdalsmanna, sú
að hljómsveitin hafi upphaflega sam-
ið nýtt lag við texta Bítlalagsins
„Help“. „Ekki var vanþörf á þar sem
lag Bítlanna sjálfra er arfaslakt,“
segir Sigurður og glottir stríðn-
islega. „Úr varð þetta fína lag með
Bítlatextanum „Help“ en þegar leið
að útgáfu plötunnar Fagnaðar-
erindið, sem hefur verið í vinnslu í
nærri 20 ár, hugðumst við fá leyfi til
að notast við Bítla-textann. Allir sem
við töluðum við hér á landi sögðu að
slíkt væri nærri því ómögulegt enda
er vel haldið utan um allt efni Bítl-
anna og ekki hver sem er sem fær að
nota þeirra efni.“
Notuðu ekki texta Bítlanna
Mikill tími fór í það hjá hljóm-
sveitinni að nálgast einhvern sem
gat gefið þeim leyfi til að nota texta
Bítlanna við nýja lagið, að sögn Sig-
urðar. „Eftir að hafa verið vísað á
hverja umboðskrifstofuna á fætur
annarri, fékkst á endanum síma-
númerið hjá Sir Paul McCartney og
hann veitti leyfi fyrir að nota text-
ann, enda hæstánægður með lagið.
Þó með því skilyrði að hann og John
heitinn yrðu titlaðir höfundar texta
og líka lags, án þess að nokkuð yrði
minnst á Hina guðdómlegu Nean-
derdalsmenn.“ Sigurður segir að í
hljómsveitinni séu of miklir töffarar
til að fallast á slíka skilmála. Því varð
úr að hljómsveitin gerði nýjan texta
við eigið lag sem nefnist „Hjálp“.
Aðspurður hvers vegna ekki hafi
komið út plata fyrr frá Neanderdals-
mönnum segir Sigurður að þeir hafi
hreinlega verið að byggja upp
spennu meðal aðdáenda hljómsveit-
arinnar. „Frá því við hófum að spila
saman, í kringum 1991 að mig minn-
ir, hefur þessi plata verið í smíðum.
Við hittumst reglulega til að semja
tónlist og taka upp lög og fyrst til að
byrja með var allt tekið upp á forláta
kassettutæki sem fengið var að láni
frá Helga Víkings, trommuleikara í
Keflavík. Það tæki þótti okkur svo
gott við upptökur að það fór ekki á
eftirlaun fyrr en rétt eftir aldamótin
þegar við nútímavæddumst og fór-
um að nota nýrri tækjabúnað við
upptökur.“ Kassettutækinu hefur
líklega aldrei verið skilað en Sig-
urður telur að það sé niðurkomið hjá
Þresti Jóhannessyni, söngvara og
gítarleikara hljómsveitarinnar.
Á nýju plötunni, Fagnaðarerindið,
er helst að finna „alternative pön-
krokk“, að sögn Sigurðar „Eitt sinn
sögðumst við spila kántrírokk en
núna er þetta blandað af pönkuðum
lögum og inni á milli er efni í rólegri
og ljúfari kantinum.“
Flóðgáttir hafa opnast
Sigurður segir ekki jafn langt að
bíða eftir næstu plötu enda hyggjast
Neanderdalsmenn byrja á nýrri
plötu strax í sumar. „Nú hafa opnast
flóðgáttir og landinn mun ekki fá frí
frá okkur á næstunni.“
Fagnaðarerindi er þó ekki enn
komin í verslanir en stefnt er að því
að hún verði seld í öllum helstu
plötuverslunum landsins og á netinu.
Fengu leyfi hjá Paul McCartney
Hinir guðdómlegu Neanderdalsmenn gefa út sína fyrstu plötu í tuttugu ár Áætla að byrja
á nýrri plötu strax í sumar Sir Paul McCartney veitti leyfi fyrir því að nota lagatexta „Help“
Guðdómlegir Neanderdalsmenn spila fyrst og fremst fyrir sjálfa sig en líka aðra sem vilja njóta tónlistarinnar.
TED Sýnd kl. 5:50 - 8 - 10:15
ÍSÖLD 4 3D Sýnd kl. 4 - 6
THE AMAZING SPIDERMAN 3D Sýnd kl. 10:20
INTOUCHABLES Sýnd kl. 4 - 8 - 10:20
MADAGASCAR 3 3D Sýnd kl. 4
Vinsælasta
mynd
veraldar!
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
MANNI, DÝRI OG LÚLLI ERU
MÆTTIR AFTUR Í STÆRSTU
FJÖLSKYLDUMYND SUMARSINS!
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
MYNDIN SEM
ALLIR ERU
AÐ TALA UM!ÍSL TEXTI
HHHH
-FBL
HHHH
-MBL
HHHH
-TV, KVIKMYNDIR.IS
HHHH
-VJV, SVARTHÖFÐI
- TV, KVIKMYNDIR.IS
- VJV, SVARTHÖFÐI
MYNDIN SEM ALLIR
ERU AÐ TALA UM!
SMÁRABÍÓ
HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS
GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
ÍSÖLD 3D KL. 6 L
TED KL. 8 - 10 12
SPIDERMAN 3D KL. 8 - 10.30 10
INTOUCHABLES KL. 6 12
ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL.5.50 L
TED KL.5.40 - 8 – 10.20 12
SPIDER-MAN 3D KL 6 - 9 10
STARBUCK KL. 8 L
INTOUCHABLES KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
WHAT TO EXPECT KL 10.25 L
ÍSÖLD 4 3D ÍSL.TAL KL.3.30 - 5.50 L
ÍSÖLD 4 3D ENSK. ÓTEXTUÐ KL. 8 L
ÍSÖLD 4 2D ÍSL.TAL KL. 3.40 - 5.50 L
TED KL. 3.30 - 8 - 10.20 12
SPIDER-MAN 3D KL. 5 - 8 - 10.50 10
SPIDER-MAN 3D LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.50 10
SPIDER-MAN 2D KL. 10.10 10
WHAT TO EXPECT KL. 8 L
PROMETHEUS 3D KL. 10.25 16
HLUTI AF
HVERJUM
SELDUM
BÍÓMIÐA
ALLAN JÚLÍ
- rennur til
Barnaheilla
VINSÆLASTA MYND VERALDAR!
MANNI, DÝRI OG LÚLLI ERU MÆTTIR AFTUR :)