Morgunblaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.09.2012, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2012 8 VIÐSKIPTI Við leysum málin á einfaldan hátt www.iss.is Starf vetrarins er komið á fullt hjá Opna há- skólanum í Háskólanum í Reykjavík. Kamilla Reynisdóttir er þar verkefnastjóri og segir hún aðsóknina með besta móti í haust. „Allar lengri námslínur eru farnar af stað og að vanda fjölbreytt úrval af styttri opnum nám- skeiðum í gangi allan veturinn. Fullbókað er á margar námsbrautir og greinilega mikill áhugi á því sem er í boði.“ Opni háskólinn er deild innan HR helguð sí- menntun og stjórnendaþjálfun. Kamilla segir úrvalið verða fjölbreyttara með hverju árinu en námskeiðin eru öll mótuð í samráði við leið- andi sérfræðinga á hverju sviði. „Í dag eru sérstaklega vinsælar ýmsar sérhæfðari náms- brautir. Nám í verkefnastjórnun og PMD- stjórnendanám eru mjög vel sótt og eins tölu- verður áhugi á námi í markþjálfun,“ segir hún. Námskeiðið Ábyrgð og árangur stjórn- armanna varð til í kjölfarið á umræðu um veikleika og vankanta í störfum stjórna fyr- irtækja hér á landi. „Þar er farið mjög vel í saumana á ýmsum þáttum, s.s. lagalegri ábyrgð stjórnarmanna, en einnig litið á við- skiptasiðferði og þætti er lúta að stjórnun og fjárhagslegum þáttum sem koma á borð stjórnarmanna.“ Kamilla segir stöðugan straum fagfólks á þetta námskeið og að vænta megi þess að margar konur bætist við nem- endahópinn á næstunni. „Í september á næsta ári taka gildi lög um kynjahlutfall í stjórnum og má þegar greina að konur eru farnar að sækja í auknum mæli í þetta tiltekna nám- skeið.“ Eftir stutta niðursveiflu strax eftir hrun segir Kamilla að símenntun og stjórn- endaþjálfun hafi sótt aftur í sig veðrið. Fyr- irtæki eru almennt mjög vel meðvituð um gildi þess að viðhalda þjálfun og þekkingu starfsmanna og sömuleiðis eru margar stéttir hreinlega háðar því að viðhalda og bæta við þekkinguna með reglulegum hætti. „Háskól- inn í Reykjavík hefur m.a. byggt upp öflugt nám á sviði tölvunarfræði og verkfræði og við sjáum marga úr þeim greinum snúa aftur til okkar á skólabekk í Opna háskólanum,“ segir Kamilla. „Í tæknigreinum gildir það alveg sér- staklega að stöðugt verður að viðhalda og dýpka þekkinguna með símenntun en það sama á líka við í auknum mæli um aðrar stétt- ir enda þróunin æ hraðari og samkeppnin æ harðari.“ ai@mbl.is Svipmynd Kamilla Reynisdóttir Margar námsbraut- ir þegar fullbókaðar Morgunblaðið/Golli Eftirspurn Kamilla segir það eiga við æ fleiri starfsstéttir að stunda þarf símenntun reglu- lega til að halda í við þróunina og dragast ekki aftur úr á sínu sérfræðisviði. Fleiri starfsstéttum en leikurum leyfist að mæta málaðar í framan í vinnuna. Hér getur að líta fallhlífasveit úr mexíkanska hernum sem fagn- aði því um liðna helgi að Mexíkó hefði verið full- valda í 202 ár. Myndin var tekin í Mexíkóborg sem er höfuðborg landsins og er ein sú fjölmenn- asta í heimi. Hagkerfi landsins er það 14. stærsta í heimi, sé litið til landsframleiðslu, samkvæmt upplýsingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Vinnustaður Mexíkanski herinn AFP Björn Jónsson hefur verið ráð- inn nýr fram- kvæmdastjóri hjá Ísfugli, en félag- ið var nýlega keypt af Jóni Magnúsi Jóns- syni, eiganda Reykjabúsins, sem er stærsti innlagnaraðili til Ís- fugls. Helga Lára Hólm, fráfarandi framkvæmdastjóri, sagði við eig- endaskiptin að hún myndi fljótlega láta af störfum, en hún hefur ásamt manni sínum stýrt félaginu í 22 ár. Björn er menntaður viðskipta- fræðingur frá Háskóla Íslands og var áður framkvæmdastjóri hjá Kötlu í 2 ár. Það áður var hann framkvæmdastjóri hjá Kraftvélum í tæp 3 ár og frá 1999 til 2007 var hann framkvæmdastjóri Miðlunar. „Ég er mjög spenntur að takast á við verkefnið. Þetta er rótgróið fyrirtæki með traustan rekstur og býður upp á mörg tækifæri,“ sagði Björn í samtali við mbl.is. Björn Jónsson ráðinn til Ísfugls Tveir nýir stjórnendur hafa verið ráðnir til starfa hjá Orku- veitu Reykjavík- ur (OR). Birna Bragadóttir er tekin við starfi starfsþróun- arstjóra OR. Birna er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur unnið hjá Icelandair undanfarin 12 ár, síðast sem staðgengill for- stöðumanns flugþjónustudeildar. Sæmundur Friðjónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður upp- lýsingatækni hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hann er með BSc- gráðu í tölvunarfræðum frá Há- skóla Íslands og MSc-próf í stjórn- un frá UPF í Barcelona, og kem- ur til OR úr starfi sem deildarstjóri upplýsingakerfa hjá Vodafone. Talsverðar breytingar hafa orð- ið á mannahaldi Orkuveitunnar síðustu misseri. Starfsfólki hefur fækkað úr 607 í 423. Nýir starfsmenn Orkuveitunnar Birna Bragadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.