Monitor - 04.10.2012, Síða 3
FYRIR TYLLIDAGINN
Langar þig að gera
þér dagamun,
lyfta þér á
kreik? Ertu í
leit að flottum
stað fyrir
stefnumótið?
Keiluhöllin í
Egilshöll er ekki bara
skemmtileg viðbót við keilustaða-
flóru höfuðborgarsvæðisins, heldur
er hún einfaldlega bara rosalega
flottur afþreyingarstaður fyrir alla
fjölskylduna.
Í GOGGINN
Við Dalveg í Kópavogi stend-
ur kebabstaðurinn Kebab
Center sem hefur upp
á helþéttan matseðil af girni-
legum kebabréttum að bjóða.
Monitor hvetur áhugamenn um
gott kebab til að prufukeyra staðinn
enda vilja sumir jafnvel meina að
þarna sé hægt að fá besta kebab
landsins.
FYRIR SÁLINA
Þó svo að úti
blási kaldir
vindar sem
kunni ef til vill
að angra lesendur
þegar þeir fara á fæt-
ur á morgnana, þá mælir Monitor
með því að lesendur sjái það já-
kvæða í haustinu. Því er gráupplagt
að skella sér í haustgöngutúr til að
virða fyrir sér alla haustlitadýrðina,
það er svo gott fyrir sálina.
Í gær hófust Góðgerðardagar NFSu en þetta er í fyrsta skipti sem slíkir
dagar eru haldnir í Framhaldsskóla Suðurlands. Stór þáttur í dagskránni
er Áskorun til góðs sem fer einfaldlega þannig fram að nemendur skora
hver á annan að gera nánast hvað sem er í þágu góðs málefnis. Áskorun-
inni fylgir svo áheit og geta aðrir nemendur bætt við krónum fyrir hverja
áskorun. Á morgun, föstudag, verða svo áskoranirnar framkvæmdar. Það
er því mikil eftirvænting hjá nemendum FSu enda eiga þeir von á að sjá
drengi sem hafa aflitað á sér hárið eða farið í tvöfalda brúnkumeðferð. Þá
geta þeir einnig búið sig undir að sjá stúlkur með brjóstahöld á hausnum
og heyra í stelpum sem syngja allt sem þær segja.
Félagarnir Hermann Guðmundsson og Hjörtur Leó Guðjónsson gerðu
samkomulag í desember í fyrra um að klippa ekki á sér hárið í ár. „Þetta
var bara skyndiákvörðun í heimsku okkar. Við gerum ekki mikið af
gáfulegum hlutum,“ segir Hjörtur Leó aðspurður hvernig það hafi komið
til. En nú, 10 mánuðum síðar, þurfa þeir félagar að stytta samkomulagið
um tvo mánuði enda fjöldinn allur búinn að skora á þá að klippa hvor
annan. „Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvað ég geri við Hermann en ég
er með ýmsar hugmyndir. Ég er búinn að fara á stofuna hér á Selfossi og
fá að skoða bækur og svona,“ segir Hjörtur en Hermann segist einfaldlega
ætla að klippa hár Hjartar í „funky style.“
Hjörtur er með hjartað í buxunum yfir þessu öllu saman en Hermann
er sá rólegasti. „Þetta verður ekki neitt miðað við það að hafa ekki farið
í klippingu í heila 10 mánuði,“ segir Hermann. Hjörtur útskýrir að hann
kvíði því í raun mest ef Hermann færi að vanda sig of mikið en Hermann
hræðist krúnurökun. „Ég er nefnilega með svo beyglað höfuðlag,“ segir
Hermann og hlær.
Nú þegar hafa drengirnir safnað myndarlegum áheitum fyrir komandi
klippistörf og þá hafa aðrir nemendur skólans einnig verið duglegir. Allt
mun þetta svo renna til góðs málefnis en málefnið sem varð fyrir valinu
þetta árið eru Börn í neyð. „Það er virkilega góð stemning í skólanum fyrir
þessu og ég vona að þetta verði árlegt héðan í frá. Svo skemmir ekki fyrir
að skólinn er litríkur og líflegur og allur skreyttur blöðrum,“ segir Hjörtur
glaðbeittur að lokum.
Þeir Hermann Guðmundsson og Hjörtur Leó Guðjónsson hafa hvorugur farið í
klippingu síðan í desember. En á morgun ætla þeir að klippa hvor annan enda
samnemendur þeirra búnir að heita á þá í tilefni af Góðgerðardögum NFSu.
Hvað eru margir íslenskir Evróvisjón-titlar í Efst
í huga Monitor? Eru þetta allir frá upphafi?
fyrst&fremst
Vikan á
Bubbi
Morthens
Góða nótt hvísl-
aði garðurinn.
1. október kl. 22.36
Margrét Erla
Maack
á bestu foreldra
í heimi. (nei þau
voru ekki að
gefa mér neitt)
1. október kl. 22:34
MONITOR MÆLIR MEÐ...
MONITOR@MONITOR.IS Ritstjóri: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Lísa Hafliðadóttir (lisa@monitor.is) Umbrot: Monitorstaðir
Auglýsingar: Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.is) Forsíða: Styrmir Kári Erwinsson (styrmirkari@mbl.is)
Myndvinnsla: Ingólfur Guðmundsson Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569 1136
Efst í huga Monitor
Je ne sais quoi
Á mánudaginn næsta rennur út fresturinn til að senda lag
í undankeppni Evróvisjón. „Til
hamingju, Ísland,“ gætu sumir hugsað því nú
gefst þjóðinni tækifæri til að láta ljós sitt skína.
Því miður hefur okkur nú ekki alltaf gengið vel
en flestir sem fara út reyna að senda skilaboð til
annarra Evrópuríkja. „Mundu eftir mér,“ segja
keppendur með augunum þegar þeir horfa í
myndavélarnar á sviðinu. En auðvitað vonast þeir
síðan líka til þess að fá góðar móttökur á Íslandi
þegar þeir koma aftur heim.
Ég les í lófa þínum, kæri lesandi, að þú eigir það til að hugsa hvað þetta sé fullkomið líf.
Það er auðvitað frábært að þú getir hugsað það
og auðvitað vonum við að lífið verði fullkomið
í að minnsta kosti nokkra daga næsta vor hjá
íslensku þjóðinni og að við vinnum Evróvisjón
í eitt skipti fyrir öll. Þá loksins myndi rætast
draumurinn hennar Nínu og það myndi birta yfir
andliti hennar. Hana hefur allar nætur dreymt
um fyrsta sætið í keppninni.
Það sem enginn sér er það að á bak við hvert lag liggur mikill undirbúningur. Atriðin verða
yfirleitt til hægt og hljótt en við sjáum þau
auðvitað bara þegar allt er klappað og klárt. Það
er samt svo magnað að það er alveg sama hvort
Evrópa segi nei eða já við lögunum sem sendum
inn því alltaf erum við tilbúin til að senda eitt lag
enn og vekja þannig athygli á því hve tónelsk við
erum.
Tell me,“ sagði einn útlendingur við mig eitt sinn og hélt áfram: „Is it true?“ svona eins
og hann væri að fá staðfestingu á því hvort við
værum tónelsk eða ekki. Hann sagði mér að
hugsa mig vel um og kafa ofan í hjartað mitt til
að fá svar við þessu. „Open your heart,“ sagði
hann. Það hafði samt greinilega gengið erfiðlega
hjá honum að fá svarið við spurningunni því
hann virtist vera eilítið pirraður á því að fá ekki
svar frá mér strax. „I‘m all out of luck,“ sagði
hann við mig. En það samt eins og hann væri
alveg viss um ást okkar á tónlist því hann sagði:
„If I had your love for music, I would probably
be listening to music every day.“ Hann þakkaði
mér fyrir spjallið, kveikti á tónlist í eyrunum og
byrjaði að dansa. Það reyndist því miður vera
hans hinsti dans því hann dó stuttu seinna og
er núna „in Heaven,“ eins og hann hefði orðað
það sjálfur. Ég vissi svarið ekki þá en segi honum
hér með að svarið er já. Núna, elsku útlendingur,
núna þá veistu svarið.
Ég er auðvitað enginn Sókrates og get því ekki verð með neinar heimsspekilegar pælingar
um Evróvisjón-keppnina. En ég vona samt að
Gleðibankinn verði stútfullur næsta vor þegar
Ísland stígur á svið í Malmö.
Sjú-bí-dú,
Jón Ragnar
3 FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012 MONITOR
Atli Fannar
Bjarkason
Nú verður
flutt örsagan
„Gróðurhúsaá-
hrifin eru bull“
eftir Atla Fannar Bjarkason:
Í dag er mánudagurinn 1. okt-
óber. Klukkan er tuttugu mínútur
gengin í tíu. Það er kvöld. Fyrir
minna en tíu mínútum sá ég
mann keyra Porsche með
blæjuna niðri. 1. október kl. 21:24
Kristmundur
Axel YM
Blood makes
you related.
Loyalty makes
you family.
3. október kl. 8:52
Gerum ekki mikið af
gáfulegum hlutum
Valdimar
Gudmundsson
Hundurinn minn
er hræddur við
ruslatunnu.
Eðlilegt.
1. október kl. 12:37
ÞESSIR VERÐA EKKI SVONA
HÁRPRÚÐIR Á MORGUN
Jóhanna Guð-
rún Jónsdóttir
Ég er svo
heppin, ég á
yndislegasta
kærasta í
heiminum :) Ég er búin að vera
lasin í nokkra daga og Davíð er
búin að vera svo duglegur að
hugsa um mig. Eldar svaka mat
fyrir mig á kvöldin og þjónar mér
allan daginn, ekki slæmt ?
3. október kl. 16:34
HJÖRTUR LEÓ
Fyrstu sex: 091094.
Besta greiðslan: Allt sleikt aftur.
Besta hárefnið: Vaxið frá Paul
Mitchell er að gera góða hluti núna.
Flottasta hárið í Hollywood:
Matthew McConahey
Flottasta hárið á Íslandi: Baltasar
Kormákur
Fsu er snilld því að: Hér er yndis-
legt að vera og frábært félagslíf.
HERMANN
Fyrstu sex: 310194
Besta greiðslan: Stuttur
fabio.
Besta hárefnið: Scwarscoff.
Flottasta hárið í Hollywood:
Kendra Wilkinson
Flottasta hárið á Íslandi:
Óli Stef. Ég elska skallann
á honum.
Fsu er snilld því að:
Himinninn er blár.