Monitor - 04.10.2012, Qupperneq 4
4 MONITOR FIMMTUDAGUR 4. OKTÓBER 2012
Í gær fóru fram á Faktorý fyrstu tónleikarnir í upphitunartónleikaröð Símans fyrir Airwaves-
hátíðina en Síminn ætlar að bjóða fólki á tónleika öll miðvikudagskvöld í október fram að
hátíðinni. Listamennirnir sem koma fram á tónleikaröðinni stíga einnig á stokk á Airwaves
og eru því í raun að hita upp fyrir sjálfa sig. Ásgeir Trausti og Snorri Helgason riðu á vaðið í
gærkvöldi við mikinn fögnuð viðstaddra. Monitor tók létt spjall við þá félaga.
Hita upp fyrir sjálfa sig
Snorri Helgason er heldur betur orð-
inn sjóaður í Airwaves-þátttöku
Skemmtilegra
og skemmtilegra
Nýlega byrjaðir þú að taka upp
demó fyrir þriðju sólóplötuna
þína. Eru komin einhver mark-
mið með hana?
Já og nei. Það er komin nokkuð
skýr mynd á það hvað ég ætla
að gera. En ég er ekki farinn að
taka upp alvöru grunna alveg
strax. Ég er í smá-tækjaveseni, ég
þarf að fá einhverja hljóðnema
lánaða og svona. En ég fór og hitti
Sindra Má úr Sin Fang um daginn
og við vorum eitthvað að reyna
að skipuleggja þetta en hann
pródúseraði síðustu plötu. Hann
verður reyndar svolítið á kantin-
um í þessari plötu því hann er að
fara að eignast sitt annað barn í
lok október. Annars verðum við
Guðmundur Óskar, bassaleikari,
mestmegnis að gera þetta í stúdíó-
inu hjá okkur og köllum til vini til
að gera þetta svona hægt og rólega
yfi r veturinn og ef allt gengur eftir
þá myndi ég halda að platan yrði
klár næsta vor.
Ertu að róa í sömu átt eða að
prófa eitthvað nýtt?
Ég veit í raun og veru ekki hvaða
átt það er. Þetta er náttúrlega allt
byggt í kringum kassagítarinn en
þetta verður aðeins öðruvísi en
hin platan og hljóðheimurinn gæti
orðið stærri á þessari.
Þú hefur spilað á öllum Airwaves-
hátíðunum síðan 2006 svo þetta
verður þín sjöunda hátíð. Er alltaf
jafn gaman á Airwaves?
Já, það verður alltaf skemmti-
legra og skemmtilegra. Umgjörðin
verður alltaf skemmtilegri og
það er meira spennandi í gangi.
Hátíðin er alltaf að vaxa og skipu-
leggjendur breyta smáatriðum hér
og þar og því verður þetta alltaf
betra og betra.
Hvað ætlar þú sjálfur að sjá?
Ég sé voðalega sjaldan eitthvað
á Airwaves. Ég er sjálfur að spila
svo mikið og á þönum svo ég sé
aldrei neitt nema í besta falli vini
mína. En ég væri geðveikt til í að
sjá Dirty Projetors ef ég næði því
einhvern veginn en það verður
bara að koma í ljós.
Ásgeir Trausti er á allra vörum
þessa dagana og verður efl aust
áfram enda semur hann bara góð lög
Allt mjög
nýtt fyrir mér
Hvað ert þú búinn að...
...spila tónlist í margar mínútur
síðasta mánuðinn? 12345 mínútur
samkvæmt nýjustu útreikningum.
...fá mörg áhorf á Youtube-mynd-
bönd með þér síðan í júní? Ef ég
tek öll myndböndin til samans þá
er ég líklega búinn að fá svona 300
þúsund áhorf.
...gefa margar eiginhandaráritan-
ir síðustu 2 vikurnar? Ég er búinn
að gefa akkúrat nokkrar.
Þú ert mikið að spila þessa dag-
ana. Gefst nokkur tími til að huga
að áframhaldandi lagasmíðum?
Já já. Það er alltaf tími ef maður
er jafn skipulagður og ég. Ég er
rosalega skipulagður.
Þetta er í fyrsta sinn sem þú spil-
ar á Airwaves. Er mikil tilhlökk-
un? Það er mikil tilhlökkun hjá
mér, já. Ég hef aldrei spilað áður
og hef heldur ekki farið á Airwaves
svo þetta verður allt mjög nýtt
fyrir mér.
Margir erlendir tónlistarkonungar
verða mættir á Airwaves. Er
stefnan sett á erlendan markað?
Sjáum bara hvað gerist.
Ætlar þú sjálfur að sjá eitthvað
á Airwaves? Já, ég hlakka til að
sjá SíSý Ey og svo er hellingur af
artistum sem væri gaman að sjá.
ÁSGEIR
TRAUSTI
Fyrstu sex:
010792.
Uppáhaldsgítar:
Martin OM28V.
Sími: iPhone4s.
Lag á heilanum
núna: Redemp-
tion Song.
Tónlist er: Allt.
SNORRI
HELGA
Fyrstu sex: 010684.
Uppáhaldsgítar:
Martin-gítarinn minn.
Sími: Gamall Black-
berry-sími sem er
eiginlega alveg
ónýtur.
Lag á heilanum
núna: Tipp Topp
með Prinspóló.
Tónlist er: Spegill
lífsins.