Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Page 3

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2012 3 SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Lögfræðingur Upplýsingar veitir:Þórir Þorvarðarson thorir@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 14. október nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is ásamt upplýsingum er greina frá menntun og starfsreynslu. Öryrkjabandalag Íslands auglýsir eftir lögfræðingi á skrifstofu bandalagsins í 50% starf. Ráðið verður í starfið til reynslu í sex mánuði með möguleika á framlengingu. Starfið felst einkum í eftirfarandi þáttum: • Ráðgjöf til öryrkja og aðstandenda um réttindi fatlaðra/öryrkja. •Samskipti við stofnanir er varða hagsmunamál öryrkja. • Eftirlit með réttindum og hagsmunamálum öryrkja. • Túlkun laga og reglugerða. • Álitsgerðir og umsagnir um lagafrumvörp í samstarfi við stjórn og starfsfólk ÖBÍ. • Upplýsingagjöf og greinaskrif. • Önnur verkefni sem snerta málaflokkinn. Hæfniskröfur: • Krafist er meistaragráðu í lögfræði. • Haldgóð reynsla og þekking á málefnum fatlaðra og réttindum öryrkja er æskileg. • Þekking á stjórnsýslurétti, almannatryggingum, lífeyrissjóðs- réttindum og alþjóðlegum mannréttindasamningum er kostur. • Góð íslenskukunnátta er áskilin. Færni í ensku og einu Norður- landamáli er æskileg. • Umsækjandi þarf að búa yfir skipulagshæfileikum, vönduðum vinnubrögðum, geta tekið frumkvæði og unnið sjálfstætt. Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum eru nauðsynleg. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) er heildarsamtök fatlaðra og eru aðildarfélög þess 33 talsins. Hlutverk bandalagsins er m.a. að koma fram fyrir hönd fatlaðra gagnvart opinberum aðilum í hverskyns hagsmunamálum er snerta réttindi þeirra. Einnig veitir bandalagið upplýsingar og ráðgjöf fyrir fatlaða og aðstandendur. Þá tekur ÖBÍ þátt í erlendu samstarfi við félaga- og heildarsamtök fatlaðra. Nánari upplýsingar um starfsemina eru á heimasíðu www.obi.is. Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði og trúnaðarmenn hjá Rio Tinto Alcan í Straumsvík harma í álykt- un sem þeir sendu frá sér í vikunni uppsagnir sem fyrirtækið hefur gripið til. Sjö fastráðnir menn misstu vinnuna nýverið og áttu þeir allir að baki langan feril hjá fyrirtækinu. Minna Hlífarmenn á að eldri starfsmenn hafi á síðari hluta ferils síns hjá fyrirtækinu gjarnan verið fengið hlutverk í málum er snúa að heilbrigðis- og öryggisþáttum hjá Alcan. „Sérstaklega er gagnrýnt að ekki hafi verið leitað til fulltrúa stéttarfélaga starfsmanna eða trúnaðarmanna þeirra um það hvernig skuli taka á þeim vanda sem nú er uppi er varðar fjárhags- lega stöðu fyrirtækisins og þannig freistað að hafa hag starfsmanna í huga við þessar aðstæður,“ segir í ályktun Hlífar. Mildari leiðir Harmað er að ekki hefðu verið farnar mildar leiðir þegar um- ræddum mönnum var sagt upp. Krafan sé að stjórnendur láti af þeirri ómannúðlegu stefnu að segja upp mönnum án ástæðu, án undangenginna aðvarana og án þess að þess sé freistað að hafa samráð um það við fulltrúa þeirra hvernig megi skuli að uppsögnum þannig að þær valdi sem minnstum sársauka hjá starfsmönnum. Því er nú spurt hver sé stefna fyrirtæk- isins varðandi mannauð, fjölskyldu og jafnréttismál. sbs@mbl.is Harma uppsagnir í Straumsvík Morgunblaðið/Árni Sæberg Straumsvík Uppsagnir starfsmanna í álveri Alcan eru umdeildar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.