Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2012 Hjúkrunarheimilið Skógarbær félags- og tómstundastarf Húsvörður Staða húsvarðar er laus til umsóknar. Húsvörður annast eftirlit og viðhald hús- eignar, að utan sem innan, umhirðu lóðar, sér um viðhald tækja og búnaðar og sinnir öryggismálum heimilisins. Æskilegt er að umsækjandi sé með iðnmenntun eða hafi þekkingu til að sinna eðlilegu viðhaldi húseignar og tækjabúnaðar. Lögð er áhersla á hæfileika í samskiptum og samvinnu. Í Skógarbæ eru 6 deildir á 3 hæðum með samtals 81 hjúkrunarrými. Staðan er laus f.o.m. 1. desember n.k., umsóknarfrestur er til og með 10. október n.k. Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri, Hrefna Sigurðardóttir, hrefna@skogar.is , sími 510-2100. Lagermaður Skaginn hf. óskar eftir að ráða lagermann. Leitað er að einstaklingi sem getur tekið við sem lagerstjóri fyrirtækisins á næsta ári þegar núverandi lagerstjóri lætur af störfum. Við leitum að einstaklingi sem er drífandi, á auðvelt með að vinna undir álagi og á gott með að eiga samskipti við fólk. Æskilegt er að viðkomandi aðili hafi eftirtalið til brunns að bera:  Hafi reynslu af störfum í málmiðnaði.  Hafi þekkingu á Navision.  Tali og skrifi ensku og norðurlandamál. Umsóknum um starfið skal skila fyrir kl. 17,00 miðvikudaginn 17. október nk. til Þorgeirs Jósefssonar, framleiðslu- og þjónustustjóra, sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. Netfangið er thorgeir@skaginn.is og símanúmerið er 430 2000. Skaginn hf. er leiðandi fyrirtæki í hönnun og þróun ýmissa framleiðslutækja fyrir matvælaiðnað. Rætur fyrirtækisins liggja í fiskiðnaðinum en það vinnur einnig í kjöt- og kjúklingaiðnaðinum. Ýmsir áhugaverðir atburðir eru fram- undan á næstunni í tilefni af Alþjóða geð- heilbrigðisdeginum, sem venju sam- kvæmt er 10. október. Í hádeginu næsta þriðjudag verður hádegisfundur hjá Geð- hjálp um hlutverk og markmið rétt- indagæslumanna fatlaðra. Á miðvikudag verður opið hús á bráðamóttöku geðsviðs Landspítalans við Hringbraut í Reykja- vík þar sem Engilbert Sigurðsson geð- læknir mun fjalla um þunglyndi og birt- ingarmyndir þess. Þungur og dýr sjúkdómur Í ár er sjónum sértaklega beint að þunglyndi. Í fréttatilkynningu segir að þetta sé einn þyngsti og dýrasti sjúkdóm- ur sem heimurinn þurfi að mæta. Það sé jafnt í þróuðum ríkjum sem í þróun- arlöndum, vegna takmarkaðra lífsgæða og glataðra vinnudaga. Meira en 350 milljónir manna um allan heim glími við sjúkdóminn sem oft sé þó læknanlegur. Í sumum þróunarlöndum fái þó innan við 10% viðeigandi meðferð. „Efnahagskreppan sem ríður yfir heiminn með tilheyrandi atvinnuleysi, auknum skuldum og auknu óöryggi hefur enn aukið á vandann. Talið er að um 12-15 þúsund Íslendingar séu þunglyndir á hverjum tíma. Þótt þunglyndi sé svo al- gengt, gera margir sér litla grein fyrir eðli sjúkdómsins eða misskilja birt- ingamyndir hans. Þunglyndi er ekki merki um dugleysi, ekki fremur en syk- ursýki eða of hár blóðþrýstingur,“ segja þeir sem að viðburðum næstu daga standa. Dregur úr lífsgleði og framtaki Þunglyndi hefur margvísleg einkenni. Öll hafa þau í för með sér að draga úr lífs- gleði og framtaki sem og þreki ein- staklings til að sinna daglegum skyldum, rækta fjölskyldu og vini og fleira. „Ef þunglyndið greinist ekki leiðir það til þjáninga og viðvarandi röskunar á starfsgetu og lífsnautn. Þegar verst lætur getur þunglyndið stefnt lífi fólks í óefni, jafnvel sjálfsvígshættu. Því er mikilvægt að opna augun fyrir einkennum sjúk- dómsins,“ segir í tilkynningu. Mismunandi er milli svæða í heiminum hverjir eru í áhættuhópum þunglyndis. Konur eru körlum margfalt líklegri til þess að veikjast. Fátækt og lítil menntun getur verið orsakaþáttur og sömuleiðis erfðir; það er ef einhver nákominn er þunglyndur er fólk blóðtengt viðkomandi tvisvar til þrisvar sinnum líklegra en aðrir til að þróa með sér þunglyndi. Ofbeldi getur einnig verið ráðandi þáttur sem og sambandsslit eða hjónaskilnaður. Það á sérstaklega við um karlmenn. „Á alþjóðageðheilbrigðisdaginn 2012 verða stjórnvöld og almenningur um heim allan hvött til þess að ræða um þunglyndi sem útbreiddan sjúkdóm sem hefur áhrif á einstaklinga, fjölskyldur þeirra og sam- ferðafólk, og gera sér grein fyrir að að- stoð sé fyrir hendi. Við ættum öll að vera meðvituð um fyrstu merki um þunglyndi – það getur haft áhrif á alla, bæði unga sem aldna,“ segja aðstandendur Alþjóða geðheilbrigðisdagsins á Íslandi. Sjónum beint að þunglyndi Morgunblaðið/Ómar Mannlíf Útivera er góð fyrir sálarheill. Barátta við þunglyndi er mörgum erfið. Ekki er þó annað í stöðunni en komast yfir hindrunina og klifra upp.  Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn haldinn í næstu viku  Erfðir, ofbeldi og skilnaðir algengir orsakaþættir veikinda Þjóðkirkjan opnaði í vikunni upp- lýsingavef varðandi þriðju spurn- inguna í væntanlegri þjóðarat- kvæðagreiðslu um stjórnarskrár- mál. Þar er spurt: Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóð- kirkju á Íslandi? Á vefsetrinu nýja er fjallað er um þýðingu ákvæðis um þjóðkirkju í stjórnarskrá, áhrif þess að segja já eða nei, samband kirkju og ríkis og fjármálaleg tengsl útskýrð auk þess sem sagt er frá fyrirkomulagi sam- skipta ríkis og kirkju í nágranna- löndum okkar. Á vefsetrinu er og grein eftir Agnesi M. Sigurðardóttur biskup Íslands. Þar er kynnt ályktun kirkjuþings og kirkjuráðs um málið. Af vefnum er vísað í greinaskrif sem tengjast efninu og flest hafa verið birt á vefnum tru.is auk þess sem lög um stöðu, stjórn og starfs- hætti kirkjunnar eru aðgengileg með tengli af vefnum, svo og stjórn- arskráin og fleiri tengd skjöl. www.kirkjan.is/stjornarskra Kirkjan opnar stjórnar- skrárvef  Staða, stjórn og starfshættir útskýrðir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Guðshús Kirkjan á Fáskrúðarbakka á sunnanverðu Snæfellsnesi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.