Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Page 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Page 12
„Ég er að ljúka við að setja saman hráfæðisbók með eft- irréttum sem kemur út síð- ar í haust,“ segir Sólveig Eiríksdóttir, heilsu- og hrá- fæðiskokkur, betur þekkt sem Solla á Gló. „Bókin hef- ur að geyma uppskriftir að ómótstæðilegum desertum, orkukúlum, bökum og ekta hnallþórum, útbúnum eftir raw-matreiðsluaðferðinni. Það þarf auðvitað engan bakaraofn; bara blandara, matvinnsluvél eða hrærivél. Hún bætir við, til útskýr- ingar: „Hráfæði eða raw- food er aðferð til að mat- reiða grænmeti, ávexti, hnetur, fræ, þara og spírur á fjölbreyttan hátt. Hráfæði er aldrei hitað upp fyrir 47 gráður, til að skemma ekki ensímin í matvælunum, og inniheldur hvorki mjólk- urvörur né unninn mat.“ Hrátt í Hafnarborg Solla heillaðist af hráfæði þegar hún sótti námskeið á Púertó Ríkó fyrir 16 árum. Þegar hún tók ásamt manni sínum, Elíasi Guðmunds- syni, við rekstrinum á heilsustaðnum Gló í List- húsinu í Laugardal í árs- byrjun 2010 var strax ákveðið að þar yrði hráfæði í aðalhlutverki. „Gló hefur gengið ótrú- lega vel frá upphafi. Við byrjuðum fljótlega að velta fyrir okkur möguleikanum á að færa út kvíarnar og tækifærið kom óvænt upp í hendur okkar þegar okkur bauðst að taka yfir veit- ingasöluna í Hafnarborg í Hafnarfirði. Við opnuðum þar nýja Gló síðastliðið vor og höfum fengið frábærar viðtökur.“ Hún segist finna fyrir sí- vaxandi áhuga Íslendinga á heilsusamlegum mat, bæði grænmetis- og hráfæði. „Það tekur fólk auðvitað ekki langan tíma að komast að því hvað slíkur matur veitir mikla vellíðan, bæði líkamlega og andlega. Jafn- vel hörðustu kjötætur koma hingað og uppgötva nýja tegund matar; hráfæði sem margir hefðu aldrei getað ímyndað sér að þeir ættu eftir að láta ofan í sig eða verða saddir af.“ Chlorella með lucuma Solla hefur óbilandi trú á hinu næringarríka of- urfæði, superfood, og blandar því út í alla rétti, bæði á Gló og heima fyrir. Ofurfæði verður enda æ meira áberandi í heilsuvö- rulínu hennar Himneskt, sem þekkist af appels- ínugulu umbúðunum – og hjartanu. „Það er skemmst frá því að segja að ofurfæðislínan hefur slegið í gegn,“ segir Solla. „Margir eru orðnir mjög sólgnir í hráfæði á borð við hampfræ, maca, lucuma, chlorella og kakón- ibbur svo eitthvað sé nefnt. Úrvalið í vörulínunni er allt- af að aukast og áður en langt um líður mun ég kynna nýjustu viðbótina; blómafræfla, mórber, hveiti- grasduft, hrátt kakóduft, baobab, sem er þurrkaður súrsætur ávöxtur, og as- hwaganda, oft kallað ind- verskt ginseng.“ David með námskeið Von er á David Wolfe, einum vinsælasta fyrirles- ara heims á sviði heilsu- og hráfæðis, til landsins í lok október. „David hefur kom- ið nokkrum sinnum áður og haldið fyrirlestra í Gló en nú ætlar hann að bjóða upp á kvöldnámskeið og kenna þátttakendum að útbúa heilsubætandi drykki og elixíra. Þetta eru nokkurs konar super-smoothies og ég er svo heppin að fá að vera aðstoðarkona.“ beggo@mbl.is Beðið eftir baobab  Sólveig Eiríksdóttir heilsukokkur sendir frá sér hráfæðiseftirréttabók  Bætir í himnesku of- urfæðuflóruna nýjungum á borð við ashwaganda Morgunblaðið/Árni Sæberg Ofurfæði „Margir eru orðnir mjög sólgnir í hráfæði á borð við hampfræ, maca, lucuma og chlorella,“ segir Sólveig Eiríksdóttir. 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2012 RR Hótel ehf. hefur fest kaup á húsinu Hverfisgötu 21 í Reykjavík og hyggst breyta því í íbúðahótel. Innréttaðar verða tíu íbúðir á fjórum hæðum; sjö tveggja herbergja og þrjár stúdíóíbúðir. Byggingafulltrúinn í Reykjavík hefur samþykkt umsókn um framkvæmdir sem hefjast í októberbyrjun og lýkur snemma á næsta ári. Halda í sögu og list „Þetta er krefjandi og skemmtilegt viðfangsefni en við höfum ágæta reynslu af því að gera upp eldri virðuleg hús þar sem leitast er við að halda í söguna og byggingarlistina,“ segir Þórður B. Bogason, framkvæmdastjóri RR Hótela. Hann vístar þar til þess að á sl. ári var Hverfisgötu 45, sem áður hýsti m.a. sendiráð Noregs og Söngskólann í Reykjavík, breytt í 15 íbúða hótel. Það hús var endurbætt í bak og fyrir og hið sama verður nú gert við Hverfisgötu 21, þó svo að breytingum þar verði fleiri skorður settar. Í húsinu á Hverfisgötu, sem byggt var árið 1912, bjuggu fyrsta hálfan ann- an áratuginn Jón Magnússon, bæjarfóg- eti og síðar forsætisráðherra, og kona hans, Þóra Jónsdóttir. Hið íslenska prentarafélag eignaðist félagið á stríðs- árunum og hafa höfuðstöðvar félaga prentara og bókagerðarmanna verið þar æ síðan. Þar var einnig til húsa um ára- bil Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóð- vinafélagsins. Íbúðir tileinkaðar Kristjáni X Starfsfólk teiknistofu Erlings G. Ped- ersen hefur umsjón með endurgerð hússins. Að sögn Þórðar Bogasonar stendur meðal annars til að tvær hót- elíbúðir í húsinu verði tileinkaðar minn- ingunni um konungsheimsóknina árið 1926. Það ár komu Kristján X Danakon- ungur og Alexandrína drottning í op- inbera heimsókn til Íslands og var feng- in gisting á heimili forsætisráðherra – og segir nokkuð um glæsileika hússins að það þótti konungi hæfa. sbs@mbl.is Íbúðahótel Hverfisgata 21 er eitt af glæsilegri húsum borg- arinnar sem nú fær nýtt hlutverk sem góður gististaður. Konungshús verður hótel  Prentarar selja fasteign  Hverf- isgötuhús fær nýtt hlutverk  Tíu íbúðir á fjórum hæðum  Íbúðir tileinkaðar konungskomunni 1926 Kóngur Kristján X yfirgefur Hverfisgötuna í heimsókn 1926. 2 ½ dl kasjúhnetur, sem búnar eru að liggja í bleyti í 2 klst 3 ¼ dl heslihnet- umjólk ¾ dl hlynsýróp ¾ dl kakóduft 2 msk vanilla, duft eða dropar ½ dl kókosolía, fljót- andi ¼ tsk sjávarsalt Byrjið á að setja kasjúhnetur, hesli- hnetumjólk, hlynsý- róp, kakóduft og vanillu í blandarann og blandið vel, best að láta þetta verða alveg silkimjúkt. Bætið kókosolíunni og saltinu út í og blandið smá stund til viðbótar. Setjið annað hvort í ísvél (og fylgið leiðbeiningunum á vélinni) eða í sílikon- form og frystið. Ef þið notið sílikon- form er gott að hræra í blöndunni annað veifið á með- an hún er að harðna. Einnig er þetta upp- lögð blanda til að setja í íspinnaform. beggo@mbl.is Súkku- laðiís frá Sollu Ingimar Jónsson hefur verið ráðinn for- stjóri Pennans á Íslandi. Starfi þessu gegndi hann raunar fyrir rúmum áratug en þá var hann forstöðumaður smásölusviðs og síðar framkvæmdastjóri. Að uppruna er Ingimar Skagfirðingur, viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og var á árunum 1988-1996 fjármálastjóri FISK-Seafood á Sauðárkróki. Þá fór hann til Pennans – og frá 2001 til 003 var for- stjóri Kaupáss. Frá 2004 hefur Ingimar sinnt eigin fjárfestingum en er nú kominn í hring og aftur til Pennans. Ingimar aftur til Pennans Ingimar Jónsson Ólga er meðal bakara vegna fyrirætlana stjórnvalda um hækkun vörugjalda á mat- væli. Landssamband bakara- meistara, þar sem Jóhannes Felixsson gegnir formennsku, ályktaði á dögunum á móti þessum ráðagerðum en nái þær fram að ganga eiga þær að skila ríkissjóði 800 millj. kr. á ári í auknum tekjum. Vörugjöldin eiga að beinast að sykri í matvælum og eru réttlætt með manneldissjón- armiðum og aðgerðum gegn offitu, segja bakarar. Þeir telja þó litlar líkur á að hærri vörugjöld á sykruðum vörum hafi áhrif á heilsu eða holdafar landsmanna. Ríkisstjórnin geri enda ekki ráð fyrir breyttri neysluhegðun heldur miði við óbreytt innkaupa- mynstur. „Auknar álögur á matvæli um 800 milljónir á ári koma hart niður bæði á fyrirtækjum og neytendum. Hækkun vöru- gjalda hlýtur óhjákvæmilega að hækka vöruverð, sem aftur eykur verðbólgu og þar með greiðslubyrði af lánum, bæði heimila og fyrirtækja,“ segja bakarar sem vilja að hug- myndir um sykurskatt verði látnar niður falla og vöru- gjaldamálin skoðuð heild- stætt. sbs@mbl.is Vilja ekki sykurskatt Morgunblaðið/Árni Sæberg Nostur Bakarar sætta sig illa við hærri vörugjöld sem leggjast á sykraðar vörur.  Bakarar mót- mæla vörugjöld- um  Fer út í vöruverð og hækkar lánin

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.