Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2012, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2012
Bílar óskast
Babaria-snyrtivörur loksins á
Íslandi.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem er
unnin úr náttúrulegum hráefnum og
hentar þörfum allrar fjölskyldunnar
fyrir alla daglega umhirðu húðar.
Vörurnar fást í netversluninni
www.babaria.is
Verslun
Trúlofunar- og giftingarhringar í
úrvali. Auk gullhringa eigum við m.a.
titanium- og tungstenpör á fínu verði.
Sérsmíði, framleiðsla og viðgerða-
þjónusta. ERNA, Skipholti 3, sími
552 0775, www.erna.is
Hjólbarðar
Kebek-Nama-heilsársdekk
165 R 13 kr. 6.900
195/65 R 15 kr. 13.900
205/55 R 16 kr. 15.900
215/55 R 16 kr. 16.900
205/50 R 17 kr. 18.900
235/45 R 17 kr. 21.390
225/65 R 17 kr. 21.890
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 544 4333.
Húsnæði íboði
Stúdíóíbúð við Lokastíg
101 Reykjavík, til leigu. 30 fermetrar
með húsgögnum kr 90.000 á mánuði.
Tveir mánuðir fyrirfram plús 100.000.
trygging vegna skemmda. Laust .
osbotn@gmail.cm
Snyrting Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Húsviðhald
Laga ryðbletti á þökum,
hreinsa þakrennur og tek
að mér ýmis smærri verk-
efni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Ásgarður, heilsu- og meðferð-
argarður við barna- og ung-
lingageðdeild Landspítalans
við Dalbraut í Reykjavík, var
opnaður í gær. Það voru sex
nemendur í mastersnámi í
verkefnastjórnun við Háskól-
ann í Reykjavík sem tóku að
sér að leiða verkefnið frá hug-
myndastigi að framkvæmdum.
Var málið unnið í nánu sam-
starfi við stjórnendur geð-
deildarinnar og rekstrarsvið
Landspítalans. Leiðbeinandi
verkefnisins var dr. Helgi Þór
Ingason, dósent við HR.
Þrír bakhjarlar
Verkefnið fólst m.a. í því að
gera þarfagreiningu í sam-
vinnu við starfsfólk BUGL,
koma með tillögur að endur-
bótum, gera kostnaðaráætlun
og útvega peninga til fram-
kvæmda. Samhliða þessu voru
Einar E. Sæmundsen og
Kristbjörg Traustadóttir hjá
Landmótun kölluð til. Þess má
geta að Kristbjörg Trausta-
dóttir, sem er landslags-
arkitekt og nemi í umhverfis-
sálfræði, hannaði og teiknaði
garðinn góða.
Samhliða hönnunarvinnu
var leitað til seljenda leik-
tækja, búnaðar og efnis sem
hentaði garðinum og uppfyllti
allar kröfur og vottun um ör-
yggi. Þrjú styrktarfélög koma
að stuðningi við verkefnið;
Hringurinn kvenfélag, Kiw-
anisumdæmið Ísland – Fær-
eyjar og Heimilissjóður tauga-
veiklaðra barna. Þau studdu
verkefnið mjög myndarlega
svo ljóst var að hægt væri að
hefjast handa.
Holl og nærandi áhrif
Bakhjarl verkefnisins var
rekstrarsvið Landspítala og
Aðalsteinn Pálsson, deild-
arstjóri fasteignadeildar sem
tók við verkefninu fyrir hönd
LSH. Hönnun og útboðsgögn
voru unnin af Landmótun og
verkfræðistofunni Eflu. Lóða-
framkvæmdirnar voru boðnar
út og fékk skrúðgarðyrkjufyr-
irtækið Lóðalausnir verkið en
það rekur skrúðgarðyrkju-
meistarinn Ragnar Steinn
Guðmundsson.
„Garðurinn er sá fyrsti sem
gerður er sem heilsu- og með-
ferðargarður fyrir börn og
unglinga á Íslandi. Þar er lögð
rík áhersla á að móta umhverfi
í samræmi við heilsu og getu
einstaklinga þannig að það
hafi holl og nærandi áhrif á
þann sem nýtur, bæði andlega
og líkamlega. Garðurinn býður
m.a upp á margbreytilega
hreyfingu, frjálsa leiki og
boltaleiki. Dvalarsvæði er fyr-
ir samstarf, kyrrðarlundi og
samverustaði bæði fyrir ein-
staklinga og í meðferð stærri
hópa,“ segir í frétt frá Land-
spítalanum.
Umhverfið miðast við heilsu og getu
Gleði Leikjagarðurinn við BUGL við Dalbrautina í Reykjavík er góður og býður upp á marg-
víslega möguleika fyrir þroskandi starf sem börnum í sálarháska er svo mikilvægt.
Leikgarður við BUGL Arkitektúr og öryggi
Möguleikar fyrir allskonar hreyfingu og leiki
„Yfirleitt batnar atvinnu-
ástandið frá ágúst til septem-
ber sem einna helst má rekja
til hefðbundinnar árstíðar-
sveiflu,“ segir Íslandsbanki
sem telur líklegt að nú aukist
atvinnuleysi aftur. Hefð sé
þannig og flestir séu án vinnu
febrúar og mars ár hvert.
„Þó gæti raunin orðið önnur
að þessu sinni ef bráðabirgða-
ákvæðið um rétt einstaklinga
til atvinnuleysisbóta í fjögur
ár í stað þriggja verður ekki
framlengt um næstu áramót,
en ekki er gert ráð fyrir fram-
lengingu þess í fjárlagafrum-
varpi 2013 sem lá fyrir í síð-
ustu viku. Gæti því
atvinnuleysi samkvæmt
skráningu Vinnumálastofnun-
ar snarminnkað á milli desem-
ber og janúar af þessum sök-
um, en þess má geta að alls
höfðu um 1.700 einstaklingar
verið á atvinnuleysisskrá í tvö
ár eða lengur í lok ágúst sl. og
m.v. að hátt í fjögur ár eru lið-
in frá hruni kæmi ekki á óvart
að stór hluti þeirra komi til
með að missa rétt sinn til at-
vinnuleysisbóta,“ segir Ís-
landsbanki.
sbs@mbl.is
Dregið hefur mun hraðar úr
skráðu atvinnuleysi á árinu en
almennt hefur verið reiknað
með. Þetta segir í nýlegum
pistli frá greiningardeild Ís-
landsbanka. Að mati bankans
má þetta að hluta til rekja til
tímabundinna verkefna á veg-
um Vinnumálastofnunar á
fyrri hluta árs en með þeim
tókst að útvega mörgum
vinnu.
Fækkaði um 172
Skráð atvinnuleysi í ágúst
sl. mældist 4,8% og var 0,1%
meira en í júlí samkvæmt töl-
um sem Vinnumálastofnun
birti á dögunum. Þrátt fyrir
þetta fækkaði atvinnulausum
að jafnaði um 172 einstaklinga
á milli júlí og ágúst. Er hér um
hefðbundin árstíðaráhrif að
ræða og má rekja þessa hækk-
un til þess að áætlað framboð
vinnuafls var minna í ágúst en
í júlí.
Íslandsbanki spáði því í júní
sl. að atvinnuleysi í ár yrði
6,0%, 5,5% á næsta ári og 5,0%
árið 2014. Hér hefur bankinn
hins vegar reynst hafa farið of
bratt í málin – enda hafa fleiri
vinnu en gert var ráð fyrir.
Fleiri nú með vinnu en spáð var
Morgunblaðið/Ómar
Fiskur Aðstæður í hagkerfinu eru sjávarútvegi hagstæðar. Þar er nóg að gera og vinnufúsra handa er þörf á ýmsum sviðum.
Vinnumarkaður umfram vonir
Átaksverkefni eru að skila sér