Morgunblaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Við bjóðum
góða þjónustu
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
9
2
6
Fundur um séreignarsparnað 12. mars
Íslandsbanki ogVÍB bjóða á fróðlegan fund um séreignarsparnað.
Fáðu yfirsýn yfir þær fjölmörgu ávöxtunarleiðir sem eru í boði og
vertu klár á réttindum þínum varðandi séreignarsparnað.
Meniga námskeið 14. mars
• Á ég rétt á launahækkun?
• Hver er munurinn á séreignar- og skyldusparnaði?
• Hvenær og hvernig má ég taka séreignina mína út?
• Hvernig er sparnaðurinn skattlagður?
• Hvaða ávöxtunarleiðir eru í boði?
Fundurinn er öllum opinn og verður haldinn í útibúi Íslandsbanka
á Kirkjusandi. Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Þriðjudaginn 12. mars kl. 16.30 - 17.30
Næsta námskeið verður í húsnæði Íslandsbanka á
Suðurlandsbraut 14, 3. hæð (inngangur á vesturgafli).
Boðið verður upp á samlokur og gos.
Nýttu þér ókeypis námskeið Íslandsbanka í Meniga
heimilisbókhaldinu.
Meniga heimilisbókhaldið, sem nú er hluti af Netbanka
Íslandsbanka, hjálpar þér að ná yfirsýn yfir fjármál
heimilisins og finna raunhæfar leiðir til sparnaðar.
Nánari upplýsingar og skráning
á islandsbanki.is/namskeid
Nánari upplýsingar og skráning
á islandsbanki.is/namskeid
Við bjóðum
námskeið
og fræðslu
Fimmtudaginn 14. mars. kl. 17.30 -19.30
Atkvæðagreiðslu félagsmanna um
nýjan formann Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga lýkur á hádegi í
dag. Sex frambjóðendur eru í kjöri.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, sem verið
hefur formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga undanfarin ár,
hættir á næsta aðalfundi og þá
verður kjöri nýs formanns til næsta
tveggja ára formlega lýst.
Á kjörskrá eru 3.686 félagsmenn
FÍH.
Þeir sex hjúkrunarfræðingar
sem bjóða sig fram til formanns eru
Herdís Gunnarsdóttir, Ólafur G.
Skúlason, Elín Hanna Jónsdóttir,
Vigdís Hallgrímsdóttir, Margrét
Guðjónsdóttir og Ragnheiður
Gunnarsdóttir.
Kjörið fer að mestu fram rafrænt
en einnig var unnt að senda at-
kvæði með pósti.
Kosningin hefur staðið frá há-
degi 1. mars og lýkur nákvæmlega
kl. 11.59 í dag.
Á vef Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga kemur fram að kjör-
nefnd tilkynni úrslitin þegar þau
liggja fyrir en þó ekki fyrr en 18.
mars, í fyrsta lagi.
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga er fag- og stéttarfélag hjúkr-
unarfræðinga. Stjórn þess skipa
átján einstaklingar, fulltrúar fag-
og svæðisdeilda og fulltrúar kjörnir
á aðalfundi, auk formanns sem kos-
inn er í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Kosningu
formanns
lýkur í dag
Sex vilja leiða
hjúkrunarfræðinga
Morgunblaðið/Golli
Á vakt Hjúkrunarfræðingar eru
fjölmennir á Landspítalanum.
„Þegar eitthvað bjátar á hjá ná-
granna hlaupa menn til að hjálpa.
Menn eru þá búnir að vinna sér inn
hjálp þegar eitthvað gerist hjá
þeim,“ segir Böðvar Jónsson í
Hraunbæ í Aðaldal. Böðvar var í
hópi bænda sem fóru í Klambrasel í
Reykjahverfi til að rýja fé bóndans
þar.
Gunnar Hallgrímsson í Klambra-
seli þarf að fara í aðgerð á sjúkra-
húsi og getur ekki unnið í nokkrar
vikur. Bjarni Eyjólfsson, formaður
Fjárræktarfélags Aðaldæla, vissi
hvernig á stóð og hringdi í nokkra
nágranna.
„Þetta tók enga stund, við byrj-
uðum klukkan tíu og vorum búnir
klukkan þrjú þótt við tækjum
klukkutíma matarpásu,“ segir
Böðvar. Tíu menn voru að störfum í
fjárhúsunum, þegar mest var. Rúið
var með fimm klippum og jafn
margir lagningsmenn. Ragnheiður
í Klambraseli veitti vel í hádeginu
og eftir rúning svo rúningsmenn
fóru heim vel haldnir.
Böðvar segir algengt að menn
komi nágrönnum sínum til hjálpar,
þegar eitthvað bjátar á.
Frétt um málið sem birtist á
fréttavefnum 641.is vakti athygli.
Þar birtist meðal annars meðfylgj-
andi mynd sem tekin var af hópn-
um, að loknu góðu dagsverki.
helgi@mbl.is
Vinna sér inn hjálp sveitunga
Ljósmynd/Böðvar Jónsson
Nokkrir bændur í Aðaldal tóku sig saman og rúðu fé
nágranna síns sem er frá vinnu vegna veikinda
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði
akstur 17 ára pilts eftir að bifreið
hans var mæld á 171 km hraða á
Reykjanesbraut í fyrrinótt.
Pilturinn var samstundis sviptur
ökuréttindum.
Þá var foreldrum piltsins og
barnaverndarnefnd gert viðvart um
málið sökum ungs aldurs ökumanns.
17 ára piltur
stöðvaður á
171 km hraða