Morgunblaðið - 11.03.2013, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Golli.
Vinkonur Þórdís V. Þórhallsdóttir og Hjördís Lára Hreinsdóttir eru í forsvari fyrir Kvenfélagið Silfur.
fóstra Konukot og
gefa fisk reglu-
lega.“
Á síðasta
bingókvöldi
var gríðarlega
góð mæting og
fólk þurfti jafn-
vel að sitja á gólf-
inu vegna pláss-
leysis. Þá söfnuðust um
300.000 krónur sem félagið gaf
Lífi, styrktarfélagi Kvennadeildar
Landspítalans, og fór ágóðinn upp
í þrívíddarsónartæki sem er gríð-
arlega dýrt. Þær eru þó við öllu
búnar í þetta sinn og ætla að bæta
töluverðu við af stólum og borðum.
„Við verðum líka með mun fleiri
bingóspjöld, en þau seldust upp í
fyrra.“
Kvenfélagið Silfur var stofnað
fyrir þremur árum af vinkonuhópi
úr Kvennaskólanum í Reykjavík.
„Markmið félagsins er að standa
að fjáröflunum sem varða konur
og börn, skemmta sér og fræðast,“
segir Þórdís en hún, ásamt Hjör-
dísi Láru Hreinsdóttur, er formað-
ur félagsins og ætla þær stöllur nú
að rífa það upp af krafti en félagið
hefur legið í dvala um árabil. Öll-
um er frjálst að mæta en bingóið
hefst kl. 20 og húsið opnað 19:15.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
Árið 2010 hannaði Kristín Ragna
Gunnarsdóttir myndlistarkona sýn-
inguna Ormurinn ógnarlangi að beiðni
Gerðubergs og vakti sýningin mikla
lukku meðal sýningargesta og sló að-
sóknarmet. Kristín Ragna setti upp
listsmiðjur með börnunum og starfs-
fólk sótti námskeið hjá henni þar sem
hugað var að því hvernig nýta má efni-
við goðafræðinnar í starfinu með þeim
börnum og unglingum sem dvelja á
BUGL hverju sinni.
Nú fær sýningin ný heimkynni en
hún var opnuð í húsnæði barna- og
unglingageðdeildar Landspítalans
við Dalbraut síðastliðinn fimmtu-
dag. Hönnun sýningarinnar gengur út
á að láta sýningargripi og aðra um-
gjörð falla að daglegu vinnu- og leik-
umhverfi barna, foreldra og starfs-
fólks á BUGL. Þau geta hreiðrað um
sig á afmörkuðum svæðum, leikið sér
og lifað sig inn í sögurnar sem vísað er
í. Goðafræðin er óþrjótandi efniviður
fyrir starfsfólk að vinna með börn-
unum á skapandi og skemmtilegan
hátt auk þess sem sýningin
skapar hlýleika og stemningu í um-
hverfi spítalans.
Ormurinn ógnarlangi
Morgunblaðið/Ernir
Ormurinn Sýningin flytur á BUGL.
Ormurinn á
nýjum stað
Þórdís segir að það sé gott að styðja við málefni sem ekki
er oft á vörum fólks. Hún segist finna fyrir mikilli sam-
kennd í samfélaginu og allir séu af vilja gerðir þegar
kvenfélagið ber á dyr. „Ég bjóst ekki við þessu,“ segir
Þórdís, ánægð með viðbrögðin. Nokkur fyrirtæki höfðu
samband að fyrra bragði eftir að hafa frétt af viðburð-
inum og vildu ólm leggja sitt af mörkum.
Bingóstjóri verður Edda Hermannsdóttir Gettu betur-
spyrill og dæmi um vinninga er t.d. leikhúsferð fyrir tvo, út að
borða á fína veitingastaði, spa-meðferðir, gjafabréf í búðum á borð við
Kormák og Skjöld og fleira.
Finnur fyrir samkennd
GOTT MÁLEFNI
Mörkum stefnuna...
Iðnþing 2013
Iðnþing Samtaka iðnaðarins verður haldið á Hilton
Reykjavík Nordica fimmtudaginn 14. mars kl. 13–16.
Á Iðnþingi verður fjallað um þau efnahagslegu tækifæri og
ógnanir sem Ísland stendur frammi fyrir á næstu árum.
FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN
Skráning á www.si.is
Dagskrá:
Erlendir fyrirlestrar verða túlkaðir á íslensku
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
–
13
-0
13
8
Pallborðsumræður
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson,
formaður
Framsóknarflokksins
Bjarni Benediktsson,
formaður
Sjálfstæðisflokksins
Árni Páll Árnason,
formaður
Samfylkingarinnar
Katrín Jakobsdóttir,
formaður Vinstri
hreyfingarinnar –
græns framboðs
Svana Helen
Björnsdóttir, formaður
Samtaka iðnaðarins
Brad Burnham,
Managing Partner
hjá Union Square
Ventures
Guðmundur
Steingrímsson,
formaður Bjartrar
framtíðar
Orri Hauksson,
framkvæmdastjóri SI,
stýrir umræðum
Fundarstjóri er
Guðbjörg Edda
Eggertsdóttir,
forstjóri Actavis
Dr. Laurence C. Smith,
prófessor í jarð- og
geimvísindum við UCLA
Matthias Krämer,
framkvæmdastjóri
hjá BDI, Samtökum
iðnaðarins
í Þýskalandi