Morgunblaðið - 11.03.2013, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.03.2013, Qupperneq 12
Morgunblaðið/RAX Blaðamannaverðlaun Hlýnun jarðar er farin að segja til sín á Grænlandsjökli. Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Ís- lands og verðlaun Blaðaljósmyndarafélags Íslands voru afhent í Gerðarsafni í fyrradag og hlutu þrír starfsmenn Morgunblaðsins verðlaun, ljósmyndararnir Ragnar Axels- son (RAX), Kjartan Þorbjörnsson (Golli) og Ómar Óskarsson. Ragnar hlaut blaða- mannaverðlaun ársins fyrir umfjöllun sína, í máli og myndum, um áhrif hlýnunar jarðar á Grænlandsjökul. Golli hlaut þrenn verð- laun; fyrir mynd ársins, myndröð ársins og íþróttamynd ársins og Ómar verðlaun fyrir ljósmynd í flokknum Daglegt líf. Sunna Valgerðardóttir, blaðamaður á Fréttablaðinu, hlaut verðlaun fyrir bestu umfjöllun ársins fyrir röð fréttaskýringa um stöðu geðfatlaðra. Jóhann Bjarni Kol- beinsson, fréttamaður RÚV, hlaut verðlaun fyrir rannsóknarblaðamennsku ársins fyrir umfjöllun um kadmíum í áburði annars veg- ar og notkun iðnaðarsalts í matvælum hins vegar. Sigmar Guðmundsson, ritstjóri Kastljóss á RÚV, hlaut svo verðlaun fyrir viðtal ársins, viðtal við Eirík Inga Jóhanns- son sjómann sem komst lífs af þegar togar- inn Hallgrímur fórst. Morgunblaðið/Ómar Daglegt líf Verðlaunamyndina tók Ómar á Barnamenningarhátíð í Laugardalslaug í fyrrasumar. Morgunblaðið/Eggert Margverðlaunaður Kjartan Þorbjörnsson verðlaunum og blómum hlaðinn í Gerðarsafni. Morgunblaðið/Eggert Verðlaunahafar RAX, Sigmar Guðmundsson, Sunna Valgerðardóttir og Jóhann Bjarni Kolbeinsson.  RAX hlaut blaðamannaverðlaun ársins og Ómar Óskarsson fyrir líflega sumarmynd Golli hlaut þrenn ljósmyndaverðlaun Morgunblaðið/Golli Mynd ársins Frá setningu Alþingis haustið 2012, Steingrímur J. Sigfússon atvinnuveg- aráðherra sést hér með gleraugum forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013 Við bjóðum upp á ALHLIÐA LAUSNIR Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Kerfisveggir frá DEKO• Felliveggir• Stofnanahurðir• Skrifstofuhúsgögn• Alhliða sérsmíði• fyrir fyrirtæki Einar Lárusson fékk afhent menn- ingarverðlaun Grindavíkurbæjar fyrir árið 2013 við setningu menn- ingarviku Grindavíkur í fyrradag. Frístunda- og mennningarnefnd veitti Einari verðlaunin fyrir fram- tak og framlag hans til lista- og menningarlífs í bænum. Auk eigin sköpunar á listasviðinu hefur Einar unnið að varðveislu og miðlun gam- alla muna sem tengjast sjávar- útvegs- og verslunarsögu bæjarins. Menningar- verðlaun veitt Ljósmynd/Grindavíkurbær Afhending Róbert Ragnarsson bæj- arstjóri, Einar Lárusson og Jóna Rut Jónsdóttir úr menningarnefnd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.