Morgunblaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 17
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
Gegn krabbameini í körlum
Nicotinell er
samstarfsaðili
Krabbameinsfélagsins
®
Nicotinell Fruit lyfjatyggigúmmí, inniheldur 2 eða 4 mg . nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur
úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja,
að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Ekki má
nota Nicotinell Fruit ef þú reykir ekki og ekki má reykja samhliða notkun Nicotinell Fruit. Ráðlagður
skammtur fer eftir því hversu háð/-ur þú ert reykingum. Þú skalt nota Nicotinell Fruit 4 mg ef þú ert með
mikla nikótínþörf, reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring eða ef þér hefur ekki tekist að hætta að reykja
með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Annars skaltu nota Nicotinell Fruit 2 mg ef reykt er minna en 20
sígarettur á sólarhring. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins skaltu íhuga minni skammt
í staðinn. Tyggið hægt þar til finnst sterkt bragð, látið tyggigúmmíið hvíla á milli kinnar og tannholds,
tyggið aftur þegar bragðið dofnar, endurtakið í um 30 mínútur. Ekki má kyngja lyfjatyggigúmmíinu. Í
upphafi meðferðar skaltu venjulega nota eitt stk á 1 2 klst. fresti þegar þú finnur fyrir reykingaþörf.
Venjuleg notkun er 8-12 stk í á sólarhring. Þú mátt ekki nota fleiri en 25 af 2 mg eða meira en 15 af 4 mg
lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Lengd meðferðar er einstaklingsbundin en varir yfirleitt í a.m.k. 3 mánuði, þá
skal draga úr fjölda stk. smám saman. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 stk á
sólarhring og er ekki mælt með notkun lengur en í 1ár. Sumt reykingafólk gæti þó þurft lengri meðferð til
þess að forðast að byrja aftur að reykja. Leitaðu faglegrar ráðgjafar hjá lækni eða lyfjafræðingi ef þú getur
ekki hætt að nota lyfið eftir eitt ár eða ef þér tekst ekki að fækka fjölda reyktra sígaretta eftir 6 vikur.
Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er tilbúinn til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða
meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð.
Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing áður en þú notar Nicotinell því ekki er víst þú megir nota lyfið ef
þú hefur: ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefna lyfsins,fengið einhverja hjarta eða æðasjúkdóma, sykursýki,
ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, ert með alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi, með magasár eða
gervitennur. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í
fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur
valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A.
Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
N
IC
13
01
02
Í mars renna 100 kr. af hverjum
seldum pakka af Nicotinell beint
til átaksins Mottumars.
Mundu að það eru bláu pakkarnir
frá Nicotinell sem styrkja gott
málefni.
100 KRÓNUR
Eingöngu selt á hársnyrtistofum
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Heimsókn Chucks Hagels, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, féll í
skuggann af tveimur sjálfmorðstil-
ræðum og ræðu Hamids Karzai, for-
seta Afganistans, þar sem Karzai
gagnrýndi Bandaríkjamenn harð-
lega. Þá þurfti að aflýsa sameiginleg-
um fréttamannafundi þeirra Hagels
og Karzai af öryggisástæðum en
fundurinn átti að vera hátindur
heimsóknarinnar.
Harðorð ræða Karzai
Samskipti Karzai við Bandarík-
in og Atlantshafsbandalagið hafa
verið erfið að undanförnu en Karzai
hefur gagnrýnt loftárásir bandalags-
ins hart að undanförnu. Í sjónvarps-
ávarpi sínu í gær sakaði Karzai talib-
ana og Atlantshafsbandalagið um að
vinna saman til þess að tryggja
áframhaldandi veru þess síðar-
nefnda í Afganistan. „Þeir vilja
hræða okkur til þess að trúa því að ef
Bandaríkin eru ekki hér verði okkar
fólk drepið,“ sagði Karzai meðal ann-
ars.
Joseph Dunford, yfirmaður her-
afla bandalagsins í Afganistan, hafn-
aði því og gagnrýndi ræðu Karzai.
Sagði hann það alrangt að Banda-
ríkjamenn ættu í samstarfi við talib-
ana. Stefnt hefur verið að því að allt
herlið bandalagsins verði horfið úr
landinu fyrir árslok 2014.
AFP
Liðsskoðun Chuck Hagel, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna (annar frá
vinstri), heimsækir hér þjálfunarbúðir fyrir liðsforingja í afganska hernum.
Heimsóknin gekk illa
Nýráðinn varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sótti Afgan-
istan heim í fyrsta sinn Þurfti að aflýsa fréttamannafundi
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Íbúar Falklandseyja gengu í gær að
kjörborðinu til þess að taka þátt í
tveggja daga þjóðaratkvæðagreiðslu
um það hvort þeir vilji tilheyra Bret-
landi áfram. Úrslitin verða tilkynnt í
nótt. 1.672 manns eru á kjörskrá og
er talið að mikill meirihluti þeirra
styðji áframhaldandi tengsl við
Bretland.
Tilgangur atkvæðagreiðslunnar
er því ekki síst sá að senda skýr
skilaboð til umheimsins um að íbúar
Falklandseyja líti á sig sem breska
þegna og að þeir vilji vera það
áfram. Argentínumenn hafa á móti
sagt að atkvæðagreiðslan sé merk-
ingarlaus og breyti engu um kröfur
þeirra um yfirráð yfir eyjunum.
Bretar hafa ráðið yfir Falk-
landseyjum frá árinu 1833 en Arg-
entínumenn segja að eyjarnar séu
undir hernámi Breta. Árið 1982 yfir-
tóku Argentínumenn eyjarnar með
hervaldi. Bretar sendu þá herlið til
eyjanna og unnu þær aftur á sitt
vald. Deilan komst í hámæli aftur í
kjölfar þess að olía fannst í land-
grunni Falklandseyja árið 2010.
Cristina Kirchner, forseti Argent-
ínu, hefur lagt mikla áherslu á að
landið fái yfirráð yfir eyjunum. Hafa
íbúar eyjanna ásakað Kirchner um
að nota deiluna til þess að breiða yfir
efnahagsvanda Argentínu.
Senda skýr skilaboð
Þjóðaratkvæðagreiðslu á Falklandseyjum lýkur í dag
Líklegt að mikill meirihluti vilji tilheyra Bretlandi áfram
Falklandseyjadeilan
» Bretar ná yfirráðum yfir
eyjunum árið 1833.
» Nær allir íbúar eyjanna
eru komnir af breskum inn-
flytjendum.
» Argentínumenn tóku eyj-
arnar með hervaldi 1982.