Morgunblaðið - 11.03.2013, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 11.03.2013, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ívar Jónssonprófessorskrifar sláandi grein í Morg- unblaðið sl. laug- ardag um veigamik- inn þátt íslenskra stjórnmála um þessar mundir. Yfirskrift greinarinnar er „Sálu- messa félagshyggjunnar.“ Í upphafi hennar segir: „Síð- ustu fjögur ár, stjórnartíð hinnar „hreinu vinstristjórnar“, hafa verið samfelld röð afhjúpana á blekkingum og goðsögnum. Stjórnarárin hafa fært okkur sönnun þess hversu veru- leikafirrt hugmyndin um samein- ingu vinstriaflanna í pólitíkinni er orðin og hversu veruleikafirrt þau öfl eru orðin sem fremst standa í stafni á draugagaleiðu VG og Samfylkingar.“ Þá rekur Ívar í stuttu máli nokkur kennileiti í sögu íslenskr- ar félagshyggju og þeirra flokka sem helst hafa haldið merki hennar á lofti. Svo segir hann: „Um aldamótin síðustu var margt breytt frá 8. áratug síð- ustu aldar þegar flokkarnir sem kölluðu sig félagshyggjuflokka börðust gegn arðráni og kröfðust kinnroðalaust þjóðnýtingar helstu atvinnutækja og banka og barist var fyrir valddreifingu, fjórðungsþingum og samvinnu- rekstri. Samfylkingin umhverfð- ist á fáum árum í nýfrjáls- hyggjuflokk sem barist hefur streitulaust fyrir naívri markaðs- hyggju, alþjóðavæðingu og inn- göngu í Evrópusambandið. VG voru óþreytandi í baráttu sinni gegn nýfrjálshyggju og Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum (AGS), en að- gerðir VG í núverandi ríkisstjórn sýndu og sönnuðu að flokkurinn var jafnvel Don Quixote fremri í orrustum sínum gegn vindmyll- um. Flokkurinn varð harðasti málaliði AGS, Ice- save-aflanna og er- lendra hrægamma- sjóða á ögurstundu íslenskrar alþýðu. Það er auðvitað grátbroslegt að fylgjast með því hvernig fráfar- andi formenn þessara tveggja flokka lifa í veruleikafirrtum draumnum um sameiningu vinstrimanna og goðsögn um mátt „vinstristjórnar“ þegar annar flokkanna er harðasti markaðshyggjuflokkurinn í land- inu og hinn telur sig vera fyr- irmynd í innleiðingu nýfrjáls- hyggjustefnu AGS á alþjóðavísu. Það er auðvitað engin tilviljun að ríkisstjórnin varði ekki íslenska velferðarkerfið og reisti aldrei skjaldborg heimilanna.“ Grein Ívars Jónssonar lýkur með þessum orðum: „Tímabils núverandi ríkisstjórnar verður minnst sem kveðjustundar fé- lagshyggjunnar líkt og ærandi sálumessu frelsandi hug- myndafræði. Þegar á reyndi barðist hún ekki fyrir hefð- bundnum grundvallarmark- miðum vinstrimanna og vörn vel- ferðarkerfisins enda standa að baki henni flokkar sem snúið hafa baki við þessum mark- miðum og berjast í dag aðeins fyrir tvö markmið: náttúruvernd og inngöngu í Evrópusambandið. Flokkarnir snéru baki við þjóð- inni á ögurstundu og uppskera sögulegt fylgishrun og afneitun þjóðarinnar. Ríkisstjórnin hefur í raun verið útfararstjóri eigin jarðsetningar.“ Hvaða augum sem menn kunna að líta sjónarmið grein- arhöfundar og einstakar álykt- anir hans verðskuldar hin beitta grein um „Sálumessu fé- lagshyggjunnar“ eftirtekt og umræðu. Skarpur tónn og glögg greining ein- kennir nýlega grein Ívars Jónssonar} Útfararstjórar eigin jarðsetningar Belginn Paul DeGrauwe, pró- fessor í alþjóða- hagfræði við London School of Economics, var staddur hér á landi fyrir helgi og sagði þá í samtali við Morgunblaðið að hlutverk Evrópska seðlabankans væri of þröngt skilgreint. Hann þyrfti að geta staðið við bakið á evru- löndunum þegar á móti blési og að eftirfarandi væri mikilvægt: „Evran er gjaldmiðill án lands. Ef vilji er til að halda evrunni þarf að búa til land, annars á hún ekki framtíðina fyrir sér.“ Grauwe benti á að hagsveiflur hefðu ekki jafnast með evrunni, þvert á móti hefði hin sameigin- lega mynt magnað upp hag- sveiflurnar. Lausnin að hans mati er að líkja eftir Bandaríkj- unum, sem þýðir í raun að ríkja- sambandinu í Evr- ópu væri breytt í sambandsríki. Þessi skoðun er ráðandi meðal helstu leiðtoga í stjórnmálaheiminum innan ESB og meðal atkvæðamikilla fræði- manna enda er mikið til í því að evran fær ekki staðist nema með því að ríkin afsali sér enn meira af fullveldi sínu en þegar er orð- ið. Hafa íslensk stjórnvöld staðið fyrir umræðu um þetta í þeirri „upplýstu umræðu um kosti og galla“ Evrópusambandsins sem þau lofuðu að færi fram sam- hliða aðildarviðræðunum? Nei, þau hafa þvert á móti tekið upp- lýsta ákvörðun um að afneita þessari staðreynd og þegja um hana. Næsta skref í þróun evrunnar er að búa til ríki fyrir hana} „Evran er gjaldmiðill án lands“ K apphlaupið er að hefjast. Álits- gjafarnir ydda blýantana. Nýir flokkar leggja undir sig stafróf- ið. Net eru lögð fyrir lands- menn af könnunarfyrirtækjum. Brátt stíflast pósthólf og bréfalúgur. Og al- menningur veit varla hvaðan á sig stendur veðrið. En hvað skyldi það vera sem brennur helst á fólki. Þessum umtalaða almenningi sem allt snýst um. Þó að mikið fari fyrir umræðum um stjórnarskrána er óhætt að slá því föstu að breytingar á henni munu ekki hafa stór- vægileg áhrif á daglegt líf landsmanna. Og úr því sem komið er verður það mál ekki útkljáð fyrr en á næsta þingi. Evrópusambandið er einnig fyrirferðar- mikið í fjölmiðlum. Umræðan snýst þó ekki um að eftir fjögurra ára umsóknarferli er enn ekki búið að opna erfiðustu kaflana. Allt púðrið fer í að ræða áhrif orðalagsbreytingar á landsfundarályktun Sjálfstæð- isflokksins en þar segir nú að hætta beri umræðum en áður stóð að gera ætti hlé á þeim. Ólíklegt er að breyt- ingin breyti í raun nokkru því eftir sem áður mun flokk- urinn ekki hefja aðildarferlið að nýju nema að undan- genginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Og hvað sem orðalagi líður hafa skoðanakannanir ítrekað sýnt að meirihluti þjóðarinnar er andvígur aðild og næsta víst að framhald málsins mun ekki hafa afgerandi áhrif á daglegt líf fólks, að minnsta kosti ekki í bráð. En hvað skiptir þá almenning máli? Hvað hefur áhrif á daglega tilveru fólks? Hlýtur ekki umræðan smám saman að leita í þann farveg? Mig er að minnsta kosti farið að lengja eftir því. Lífsgrundvöllurinn í daglegri tilveru fólks hér á norðurhjaranum er sá sami og annars staðar í veröldinni, nefnilega atvinna. Og já, það þarf kraftmikið og burðugt atvinnulíf til að halda uppi lífsgæð- unum á Íslandi. Ef það tekst leiðir af því að við getum haldið uppi öflugu velferðarkerfi, framsæknu menntakerfi og blómlegu listalífi. Það er fyrst og fremst vegna þrenging- anna í atvinnulífinu sem almenningur er far- inn að finna fyrir niðurskurði á öllum víg- stöðvum. Tíminn sem tapast þar eru töpuð lífsgæði almennings. Í atvinnulífinu verður grunnurinn að viðreisninni óhjákvæmilega lagður. Eða ekki. Og þess vegna er ekkert mál mikil- vægara en að eyða óvissunni í atvinnulífinu, kalla fram kraftinn í einkaframtakinu – frumkvæðið sem býr í fólki, og leggja fram trúverðuga framtíðarsýn. Það er að minnsta kosti deginum ljósara að álögur á almenning verða ekki hækkaðar frekar. Undanfarin ár hefur sú leið verið farin og það hefur ekki vakið neinar sérstakar spurningar hjá fjölmiðlamönnum. En nú þeg- ar talað er um að lækka álögurnar er spurt hvaðan pen- ingarnir eigi að koma. Hefði ekki einmitt átt að spyrja þeirrar spurningar þegar álögurnar á almenning voru hækkaðar? pebl@mbl.is Pétur Blöndal Pistill Hvað skiptir máli? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Arnhildur Hálfdánardóttir arh31@hi.is Unga fólkið trúir því ekkiað það geti fengið hjarta-áfall en það er samt til ídæminu,“ segir Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir læknir. Endrum og eins berast fregnir af fólki sem fær kransæðastíflu fyrir fertugt. Davíð O. Arnar, yfirlæknir á Hjartagátt Landspítalans, segir það þó ekki tilfinningu sína að hjarta- og æðasjúkdómar hafi aukist meðal ungs fólks. „Svona mál eru samfélaginu jafnan mikið áfall og umræða um þau er áberandi á sam- félagsmiðlum. Ég skil það því vel að fólk fái á tilfinninguna að tilfellum hafi fjölgað,“ segir hann. Davíð segir það mjög sjaldgæft að fólk undir þrítugu fái hjartaáfall vegna kransæðastíflu. „Sá yngsti sem ég man eftir var 25 ára,“ segir hann og bætir við að það komi lækn- um minna á óvart þegar þetta gerist hjá fólki á milli þrítugs og fertugs. Algengasta banamein kvenna Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir læknir er í forsvari fyrir átakið „Go red“. Átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma. Þessir sjúkdómar eru algengasta dán- arorsök kvenna og karla á Íslandi en einkennin geta verið ólík eftir kyni. „Á alþjóðavísu reynum við að hafa áhrif á stefnumótun stjórnvalda og stuðla að því að þeir sem rannsaka hjarta- og æðasjúkdóma taki mið af konum líka,“ segir Þórdís. Hún segir það óalgengt að konur fái hjartaáfall fyrir fertugt en það sé þó ekki óþekkt. „Konur sem hafa fengið meðgöngusykursýki eða há- þrýsting á meðgöngunni þurfa að vera sérstaklega meðvitaðar þar sem slíkt eykur líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum síðar meir,“ segir hún. Þórdís mælir með því að konur fari í skoðun um fertugt og fyrr ef sterk ættarsaga um krans- æðasjúkdóma er til staðar. Vilmundur Guðnason, for- stöðumaður Hjartaverndar, segir reykingar oft koma við sögu þegar fólk fær hjartaáfall fyrir fertugt. Kókaínneysla getur líka valdið veru- legum skaða á hjarta- og æðakerf- inu. „Það veldur krampa í æðum, mjög örum hjartslætti og hjarta- drepi,“ segir Vilmundur. Hann nefnir einnig að fólk sem er með arfgenga blóðfituröskun geti fengið hjarta- og æðasjúkdóma ungt. „Fólk með slíka röskun getur fengið áfall ef það reynir of mikið á sig,“ segir hann. Einn af hverjum 500 Íslendingum er með arfgenga blóðfituröskun. „Þessir einstaklingar eru oft með kólesteról sem er þrefalt eða fjórfalt hærra en eðlilegt er,“ segir Vil- mundur og bætir við að blóðfita þessa fólks sé há frá blautu barns- beini en hjá öðrum byrji blóðfitan ekki að hækka fyrr en um og eftir þrítugt. „Líkami þessa fólks ræður ekki við fituna. Að vera með alltof hátt kólesteról í mörg ár getur sam- svarað því að hafa reykt pakka á dag í mörg ár,“ segir Vilmundur. Hann telur afar mikilvægt að með- höndla þá einstaklinga sem hafa ættgenga blóðfituröskun. „Það eru til mjög öflug lyf sem lækka blóðfituna og með því að taka þau hefur þetta fólk oft sömu lífs- líkur og aðrir,“ segir hann. Vilmund- ur ráðleggur fólki að leita læknis finni það verk í brjóstholi sem minn- ir á kransæðaverk. Aldur skipti þar ekki máli. Thor Aspelund, tölfræðingur hjá Hjartavernd, hefur rannsakað tíðni hjartaáfalla. Rannsókn sem hann gerði ásamt Vilmundi Guðnasyni og fleirum sýnir að á árunum 1981-2006 fækkaði dauðsföllum vegna hjarta- og æðasjúkdóma um 80 prósent hjá fólki á aldrinum 25-74 ára. Hjarta- áföllum fækkaði um 66 prósent á sama tíma. Thor segir að breyttur lífsstíll hafi haft langmest að segja. Vilmundur tekur undir það. „Tíðni dauðsfalla af völdum hjarta- og æða- sjúkdóma hefur fallið jafnhliða neyslu á feitum matvælum og trans- fitu,“ segir hann og tekur fram að það sé aldrei of seint að bæta lífsstíl- inn. „Jafnvel þótt fólk sé komið með kransæðasjúkdóm á byrjunarstigi er hægt að hægja á sjúkdómnum og þróunin getur jafnvel snúist við.“ Ekki bara sjúk- dómur eldra fólksins Morgunblaðið/Eggert Landspítali Kransæðavíkkanir með hjartaþræðingu hafa verið fram- kvæmdar á Íslandi í aldarfjórðung. Konur fá hjartaáföll rétt eins og karlar. Til er skrá yfir sjúkrahúss- innlagnir vegna hjarta- og æða- sjúkdóma og dauðsföll af völdum þeirra fram til ársins 2005. Skránni hefur þó ekki verið hald- ið við. Thor Aspelund segir það slæmt að ekki sé hægt að nálgast nýj- ustu upplýsingar og fylgjast með þróuninni. „Það er nýbúið að setja þetta í gang aftur en upp- lýsingarnar verða alltaf svolítið eftir á,“ segir hann. Skráningin er á ábyrgð landlæknisembættisins. Skránni ekki haldið við INNLAGNIR SJÚKLINGA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.