Morgunblaðið - 11.03.2013, Side 21

Morgunblaðið - 11.03.2013, Side 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013 Eitt helsta áhuga- mál Samfylkingar er að afnema lýðveldi/ þjóðveldi á Íslandi og formfesta höfð- ingjaveldi í þess stað, til að þóknast hags- munum evrópskra nýlenduvelda. Þessir kjölturakkar Evrópu- sambandsins virða hvorki lög landsins né almennar siða- reglur í samskiptum manna. Sam- fylkingin hefur komið þessu áhugamáli það langt áleiðis að fyr- ir Alþingi liggur lagafrumvarp um nýja stjórnarskrá, sem er svo illa unnið að er flutningsmönnum til háðungar. Það er þó miklu verra að þessi drög að nýrri stjórn- arskrá formfesta höfðingjaveldi í landinu og gera þannig ráð fyrir að almenningur afsali sér fullveld- isréttindum sínum. Þótt Charles-Louis Montesquieu (1689-1755) sé tvisvar nefndur á nafn í greinargerð með laga- frumvarpinu, er ljóst að hans er einungis getið til að varpa ryki í auga almennings. Raunar er mik- ilvægum þáttum lýðveldisins varp- að fyrir róða með tali um „að sam- félagið hafi þróast mjög mikið frá dögum Montesquieu og fjölmiðlar um árabil verið nefndir fjórða valdið, auk þess sem fjármagni fylgi einnig óneitanlegt vald.“ Svona umræða um stjórnarform ríkisins bendir annað hvort til geðveilu flutningsmanna, eða ein- dregins vilja til að afvegaleiða um- ræðuna. Varla hefur hið ólöglega stjórnlagaráð hugleitt að fjöl- miðlum og fjármagnseigendum væri veitt stjórnarskrárbundin að- koma að ríkisvaldinu. Hugmyndir um þingræði eru ógn við fullveldisréttindi þjóðarinnar Annars er Samfylkingin ekkert að fela fyrirætlanir sínar, um að koma á höfðingjaveldi. Í grein- argerðinni kemur orðið „þingræði“ fyrir 90 sinnum, en eins og menn vita er þetta dulnefni notað fyrir höfðingjaveldi. Lykórgos, sem samdi stjórnarskrá Spörtu fyrir um 2.900 árum, hefði gefið þessu frumvarpi lága einkunn. Höfð- ingjaveldi (óligarxía) var stærsta ógnin við hugsjónir Spartverja um jafnrétti og lýð- ræði. Þetta skildu líka þeir sem sömdu stjórnarskrár Banda- ríkjanna 1787 og Frakklands 1792. Þeim sem beygðu sig í duftið fyrir Icesave- kúguninni, er auðvitað trúandi til allra óþrifaverka. Sú umræða sem farið hefur fram um frumvarpið, gefur al- menningi innsýn í fátæklegan hug- arheim Samfylkingarinnar. Stjórn- arskrá er fyrst og síðast forskrift að stjórnkerfi ríkisins, fyrirmæli um það hvaða stofnanir fara með löggjafarvald, framkvæmdavald og dómsvald. Mikilvægast er þó að skýrt komi fram hver fer með full- veldi ríkisins og varla getur það farið fram hjá nokkrum manni, að í lýðveldi fer almenningur með fullveldisréttinn, hvorki einvaldur né einhver hópur höfðingja. Stjórnarskrá lýðveldis verður einnig að svara því, hvaða fullveld- isréttindi almenningur ætlar að fara með sjálfur og hvaða réttindi eru af hagkvæmni-ástæðum falin öðrum aðilum. Stjórnarskrá Samfylkingar er atlaga að lýðveldi á Íslandi Yfirstandandi atlaga að lýðveld- inu hófst á árinu 2010 með svo- nefndum þjóðfundi. Á fundinum leituðust handvaldir fulltrúar við að skilja handvalin hugtök í ís- lenskri tungu. Þetta starf gekk al- veg bærilega, nema hvað þau hug- tök sem varða mismunandi stjórnarform ríkja voru ekki til umræðu. Þrjú þúsund ára saga lýðvelda og annarra stjórnarforma var ekki til umræðu og þá ekki heldur tilurð og þróun lýðvelda síðustu 200 árin. Sannast sagna var þjóðfundurinn 2010 gagnlaus samkvæmisleikur. Sú frumvinna sem breyting stjórnarskrár krefst, hefur ekki ennþá verið fram- kvæmd. Þjóðfundurinn var þó einungis inngangur að leikhúsi fáránleik- ans. Á árinu 2010 var einnig kosið til svonefnds Stjórnlagaþings. Ágallar á skipulagi og framkvæmd kosninganna voru slíkir að Hæsti- réttur taldi þær ógildar. Auk þeirra atriða sem kærð voru til Hæstiréttar, var jafnréttisákvæði stjórnarskrárinnar (65. grein) einnig brotið og ólýðræðislega staðið að kosningunni, því að Sam- fylkingin rak kosningabaráttu eins og um listakosningu væri að ræða. Á daginn kom, að nær allir sem hlutu kosningu voru stuðnings- menn Samfylkingarinnar. Forseti lýðveldisins og fræðimenn fordæmda tilraun Samfylkingar Til að bíta höfuðið af skömm- inni, var niðurstaða Hæstaréttar að engu virt, heldur skipaði Sam- fylkingin sitt fólk í svonefnt Stjórnlagaráð, með atkvæðum minnihluta alþingismanna. Fræði- menn hafa fordæmt þau óvönduðu vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við samningu fyrirliggjandi stjórn- arskrár Samfylkingarinnar. Þetta aumkunarverða plagg mun hljóta sinn sess á ruslahaug sögunnar. Í nýársávarpi sínu fjallaði for- seti lýðveldisins um frumvarp Samfylkingar að nýrri stjórn- arskrá. Þar benti hann á, að frum- varpið myndi skapa „allt annað stjórnkerfi en við höfum búið að frá lýðveldisstofnun; yrði tilraun um stjórnkerfi sem ætti sér engan líka á Vesturlöndum.“ Þetta er rétt mat hjá forsetanum. Samfylk- ingin er vitfirrtur flokkur, sem ekki er á vetur setjandi. Samfylk- ingin lagðist hundflöt fyrir Ice- save-kúgun nýlenduveldanna og hefur forgöngu um að Ísland verði innlimað í Evrópusambandið. All- ur ferill Samfylkingar og forvera hennar, Alþýðuflokks, er varðaður þjóðsvikum. Eftir Loft Altice Þorsteinsson Loftur Altice Þorsteinsson » Sannast sagna var þjóðfundurinn 2010 gagnslaus samkvæmis- leikur. Sú frumvinna sem breyting stjórnar- skrár krefst hefur ekki ennþá verið fram- kvæmd. Höfundur er verkfræðingur og stjórnarmaður í félaginu Samstaða þjóðar. Vilja Íslendingar stjórnarform „sem ekki ætti sinn líka á Vesturlöndum“ mbl.is alltaf - allstaðar fi p y j g p C p i ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lam Villibráðar-paté prikmeð pa Bruchetta tarsmeð tvíreyktu hangikjöti, balsamrauðlauk og piparró Bruchetta með hráskinku, balsam nmog grill uðu Miðjarðarhafsgræ - salat skufer ðbo arðameð Miðj kjRisa-ræ með peppadew iluS ajónmeð japönsku m het Hörpuskeljar má, 3 s Frönsk súkkulaðikaka skum/rjóma og fer Vanillufylltar vatnsdeigsbollur arbSúkkulaðiskeljar með jarð Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Teryaki-lamb á spjóti R ahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúp á spjóti mSími 511 8090 • www.yndisauki.is Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá, fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Markmið okkar er alltaf það sama, glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð. Persónuleg og góð þjónusta. PAPPÍR • POKAR • RÚLLUR Sérprentanir í minni eða stærri upplögum! PAPPÍR HF • Kaplahrauni 13 • 220 Hafnarfirði • Sími 565 2217 • pappir@pappir.is • www.pappir.is Íslensk framleiðsla Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morg- unblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.