Morgunblaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ættir að kaupa inn til heimilisins
því ættingjar þínir munu líklega kíkja í heim-
sókn. Dragirðu þig í hlé núna muntu iðrast
sáran síðar.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er auðvelt að fyllast bjartsýni í
vinnunni í dag. Undirmeðvitundin er á fullu að
leysa vandamálin. Láttu það ekki trufla þig,
því í raun liggur ekkert á.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú þarf að hefja viðræður og kom-
ast að samkomulagi. Mundu að kærleikurinn
felst meðal annars í viljanum til að gefa og
þiggja. Gefðu þér tíma til að sinna sjálfum þér
líka.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ættir að leita ráða hjá þér eldra
fólki sem hefur meiri reynslu á ákveðnu sviði.
Gakktu samt ekki fram af sjálfri/um þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ekkert virðist of brjálað til að þú hafir
ekki áhuga á því. Það er engin ástæða til að
láta sem himinn og jörð séu að farast þótt all-
ir hlutir gangi ekki upp.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú er komið að því að þú uppskerð
laun erfiðis þíns og samvinna við aðra ætti
einnig að skila góðum árangri. Þú átt auðvelt
með að vekja hrifningu annarra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að hafa alla hluti á hreinu áður
en þú tekur ákvörðun í veigamiklum málum.
Auðveldaðu vinum og fjölskyldu að koma
með tillögur og bjóða þér aðstoð.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt nútíminn sé nærtækastur
er alltaf viturlegt að horfa fram á veginn og
mönnum er hollt að hyggja að fortíðinni. Nú
er rétti tíminn til að finna réttu lausnirnar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt þú standir þína plikt, virðist
öðrum sem kíkja á, að þú skemmtir þér stór-
kostlega. Það er ekki alltaf svo að besta
lausnin sé sú sem liggur í augum uppi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Leyfðu ástvinum að eiga í sínum
átökum. Reyndu að vinna sem mest ein/n og
láttu félagslífið aðeins bíða. Ekki kaupa eitt-
hvað sem þig vantar alls ekki.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu ekki hugfallast þótt endar
nái ekki saman heldur farðu yfir öll reiknings-
yfirlit og þá sérðu hvert peningarnir hafa far-
ið. Haltu þig við þinn eigin sannleika.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er upplagt að eyða smá tíma í
það að sýna sig og sjá aðra. Einhver nákom-
inn þarf virkilega á þér að halda. Sýndu skiln-
ing á annarra axarsköftum.
Guðmundur Arnfinnsson skrifarmér:
„Þakka leiðréttinguna. Sá í
Vísnahorninu að góðkunningi þinn,
karlinn á Laugaveginum, kveið
mjög fyrir vistinni í Hveragerði ef
hann fengi þar kjöt af brúkunar-
klár með kálinu í stað nautakjöts.
Mér datt í hug limra af líkum toga:
Krydd var ekkert í kökunni
og kjöt var ekkert í bökunni,
ekkert var
eins og vera bar
samkvæmt sýnatökunni.
Og svo kemur limra af öðru til-
efni:
Ég heyrði um heimspeki rugla
þrjá háskólamenntaða fugla,
einn var mjög klár
en annar blár,
sá þriðji var útskorin ugla.“
Ég þakka Guðmundi góð bréf.
Veðurofsinn kallar á að rifjaðar
séu upp nokkrar vetrarvísur og
þykir mér vel við hæfi að fletta upp
í Snót, hvað þar sé að finna. Jón
Þorláksson á Bægisá orti:
Margur fengi mettan kvið,
má því nærri geta,
yrði fólkið vanið við
vind og snjó að eta.
Í Snót er þessi staka sögð eftir
Jón Þorláksson prest en Sveinbjörn
Beinteinsson telur hana eftir Látra-
Björgu og skýrir „Ýmisbúkur =
jörðin:
Æðir fjúk á Ýmisbúk,
ekki er sjúkra veður.
Klæðir hnjúka hríð ómjúk,
hvítum dúki meður.
Gestur Bjarnason (Glímu-Gestur)
orti:
Hjalla fyllir, fenna dý,
falla vill ei kári,
valla grillir Ennið í;
alla hryllir menn við því.
Kveðið í harðindum:
Hvað er að frétta? Harðindin.
Hvað er starfað? Skorið.
Hvað er dýrast? Heybjörgin.
Hvað um bætir? Vorið.
Sveinbjörn Egilsson orti:
Þó landnyrðingur ljótur sé
og lemji hús og fold;
þó bresti hljóð og braki tré,
og beri snæ sem mold,
mitt skal ei hræðast hold,
því blíðviðrið á byljavængjum hvílir.
Gunnar Gunnarsson orti:
Þorrahríðin enduð er,
ei stóð þessi lengi,
þurfum kvíða varla vér
verði messa engi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kjöt var ekkert í bökunni
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VIÐ STARFSFÓLKIÐ SKIPTUM ÞJÓRFÉNU
JAFNT. HVAÐ ER 50 KALL DEILT MEÐ 27?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar skynsamur
tvíburi lætur stjórnast
af tilfinningum.
HUNDAGARÐUR
VINSAMLEGAST
HAFIÐ EIGEND-
UR ALLTAF Í
TAUMI.
MAÐUR VINN-
UR SEX DAGA
VIKUNNAR ...
... OG HVERJU
SKILAR ÞAÐ
MANNI?
RÉTTINUM TIL AÐ BYRJA
AFTUR Á MÁNUDEGI?
SVO ÞIÐ GRETTIR ERUÐ
MEÐ ÁTVEISLU?
ÞIÐ ERUÐ SAMT EKKERT Í
RÓMVERSKUM SKIKKJUM?
HA? MEIRI
VÍNBER!Víkverji horfir sjaldan á beinar út-sendingar frá íslenskum íþrótta-
leikjum. Honum er samt ljóst að
beinar útsendingar eru erfiðar í
framkvæmd og mega í raun teljast
tæknilegt kraftaverk ef vel tekst til.
Að minnsta kosti þegar ríkisfjölmið-
illinn á í hlut.
Víkverji hafði samt ekki gert sér
grein fyrir því hversu næmt auga
stjórnendur slíkra útsendinga þurfa
að hafa fyrir fallegu fólki. Þannig
kom það upp í gær að ljósmyndurum
var bannað að fara inn á íþróttavelli
eftir að handboltaleikjum lauk, því
enn var verið að senda út.
Framkvæmdastjóri HSÍ segist
reyndar ekki sjá að þetta valdi nein-
um vandkvæðum, þrátt fyrir að um
úrslitaleiki hafi verið að ræða. Hann
telur eðlilegt að ljósmyndarar megi
ekki koma nær til að taka myndir af
fagnaðarlátum, og að myndir af
verðlaunaafhendingum séu alveg
nógu góðar. Mikilvægast sé að
tryggja „ákveðið vinnuumhverfi“
eftir óskum RÚV.
Víkverji þykist sjá á þeim orðum
að framkvæmdastjóri HSÍ er ekki
vanur fjölmiðlamaður, og því ekkert
skrítið að hann sjái ekki hvar vand-
inn liggur. Því er nærtækast að líta
til RÚV eftir skýringum. Getur verið
að ljósmyndarar séu almennt slíkar
ómyndir að það fæli áhorfendur og
auglýsendur frá ríkismiðlinum ef
þeir sjást í beinni útsendingu sinna
vinnunni sinni?
x x x
Víkverji hefur reyndar aldreistarfað við beinar útsendingar
en hann þykist þó hafa brúklegt fag-
urfræðiauga og getur vottað það hér
með að ljósmyndarar Morgunblaðs-
ins og mbl.is eru allir yfir meðallagi
myndarlegir, eða „fótógenískir“ eins
og það heitir víst í þeirra heimi.
Því leggur Víkverji til að RÚV
veiti undanþágu frá þessu banni sínu
fyrir fyrrnefnda ljósmyndara, enda
gæti vera þeirra á skjánum aukið
áhorf, frekar en hitt.
Um ljósmyndara annarra fjöl-
miðla skal ekki fullyrt hér, en Vík-
verji býður hér með RÚV fram að-
stoð sína við gerð staðals eða prófa
til að skera úr um hvort ljósmynd-
arar teljist nógu fagrir til að koma
fyrir í sjónvarpi eða ekki.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn er ber byrðar vor-
ar dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort.
(Sálmarnir 68:20)