Morgunblaðið - 11.03.2013, Qupperneq 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013
Ingibjörg Guðný Friðriksdóttir
ingibjörg10@lhi.is
„Við erum með þessari sýningu að
kynna það allra besta í norrænni
hönnun í dag,“ segir Harpa Þórs-
dóttir, safnstjóri Hönnunarsafn Ís-
lands, um sýninguna Norræn hönnun
í dag sem sendiherra Svíðþjóðar,
Anders Ljunggren, mun opna á mið-
vikudaginn kl. 18. Sýningin kemur frá
Röhsska hönnunarsafni Svía og er
framlag Hönnunarsafnsins til Hönn-
unarMars. Safnið hefur tekið þátt í
HönnunarMars frá upphafi. Eftir að
það var opnað á Garðatorgi hafa
HönnunarMarssýningar Hönn-
unarsafnsins verið opnaðar daginn
fyrir sjálfa opnunarhátíðina en hátíð-
in byrjar formlega á fimmtudaginn
og mun standa fram á sunnudag.
Sýningin mun þó standa í Hönn-
unarsafninu til 26. maí en þaðan fer
hún til Berlínar.
Ein virtustu
hönnunarverðlaun heims
Sýningin er samsýning sex hönn-
uða sem eiga það sameiginlegt að
hafa hlotið hin virtu Torsten och
Wanja Söderberg-verðlaun. Tveir af
sex hönnuðum eru Íslendingar, þau
Steinunn Sigurðardóttir fatahönn-
uður og Sigurður Gústafsson hús-
gagnahönnuður. Einnig eru sýnd
verk sænska hönnunarteymisins
Front, finnska vöruhönnuðarins
Harri Koskinen, danska fatahönn-
uðarins Henrik Vibskov og norska
skartgripahönnuðarins Sigurd Bron-
ger. Sá síðastnefndi er núverandi
verðlaunahafi en hann mun einnig
flytja erindi í Norræna húsinu um
verk sín.
Að hljóta Söderberg-verðlaunin er
mikill heiður en þau eru talin ein virt-
ustu hönnunarverðlaun samtímans.
„Söderberg-fjölskyldan er mjög
þekkt í Svíþjóð en hún var áður fyrr í
stáliðnaði og styðja nú rausnarlega
við menningu og vísindi,“ segir
Harpa. Sjálf situr hún í dómnefnd
sjóðsins ásamt hönnunarsafnstjórum
hinna norrænu þjóðanna. „Í stað þess
að verðlaunin væru aðeins fyrir
sænska hönnuði ákvað Söderberg-
fjölskyldan að gera norræn verðlaun
en það finnst mér mikið örlæti.“ Það
að verðlaunin séu norræn hefur ekki
aðeins jákvæð áhrif fyrir hönnuði
heldur einnig safnstjóra hönn-
unarsafnanna. „Þetta gerir okkur
safnstjórunum kleift að hittast og
kynna okkur hvað er nýjast í hönnun
hvers lands fyrir sig. Við erum því
alltaf í endurmenntun. Við vinnum
hvert fyrir annað og bendum hvert
öðru á áhugaverða hönnun til þess að
fylgjast með í hverju landi fyrir sig,“
segir Harpa.
Verðlaunin eru ekki af verri end-
anum en handhafi þeirra hlýtur pen-
ingaverðlaun upp á eina milljón
sænskra króna sem samsvarar um 20
milljónum íslenskra króna í dag. Síð-
asti íslenski verðlaunahafinn var
Steinunn Sigurðardóttir fatahönn-
uður en hún hlaut þau árið 2008.
Harpa útskýrir að Steinunn sé fyrsti
fatahönnuðurinn til þess að fá þessi
verðlaun. „Það þótti undrum sæta að
fatahönnuður skyldi hljóta verðlaunin
en hún breytti ákveðnu viðhorfi.
Steinunn er fatahönnuður sem er á
jaðri listsköpunar í hönnun sinni. Hún
sækir innblástur sinn á mjög djúpan
hátt en í verðlaunalínunni var inn-
blásturinn sóttur til íslenskrar nátt-
úru.“ Á sýningunni verður frumsýnd
ný lína eftir Steinunni.
Líkt og Steinunn Sigurðardóttir er
danski fatahönnuðurinn Henrik Vibs-
kov á jaðri fatahönnunar og listsköp-
unar. Vibskov byrjaði að hanna föt fyr-
ir karlmenn en hannar nú fyrir bæði
kynin. Hann nálgast hönnun sína á
frumlegan hátt en meðal annars skírir
hann fatalínurnar sérstökum nöfnum.
Línan sem verið er að setja upp í
Hönnunarsafninu heitir Eat. „Henrik
Vibskov sýnir ekki fatnaðinn á hefð-
bundinn hátt heldur samtvinnar fata-
línuna við sviðsmynd. Það er mikil
upplifun að fylgjast með þegar lín-
urnar hans eru frumsýndar. Fyrirsæt-
urnar verða hluti af sviðsmyndinni og
einhverskonar leikverki.“
Stál dansar tangó við tré
Sigurður Gústafsson er hinn Ís-
lendingurinn á sýningunni. „Af því
að sýningin er á Íslandi ákváðum við
að hafa ekki aðeins síðustu fimm
verðlaunahafa heldur bættum við
Sigurði við,“ útskýrir Harpa en hún
segir kynningartækifæri fólgið í sýn-
ingunni fyrir íslenska hönnun þar
sem sýningin fer frá Íslandi til Berl-
ínar og jafnvel síðar á fleiri staði.
„Sigurður er arkitekt og tengir
hönnunina við hugmyndafræði um
byggingarlist. Hann hefur kafað of-
an í listasöguna, sérstaklega þann
hluta sem tengist byggingu.“ Þekkt-
asta hönnun Sigurðar er stóll sem
heitir Tango en stóllinn hefur gert
garðinn frægan meira að segja á ís-
Tango og töfrakommóða
Sýningin Norræn hönnun í dag verður opnuð í Hönnunarsafni Íslands á miðvikudaginn
Samsýning sex hönnuða sem hafa hlotið hin virtu Torsten och Wanja Söderberg-verðlaun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hestur Christoffer Blom, sýningarstjóri frá Röhsska hönnunarsafninu í Gautaborg og Harpa Þórsdóttir með hestalampa Front-teymisins sér við hlið.
HönnunarMars er haldinn í fimmta skipti í ár. Hátíðin hefst fimmtudaginn
14. mars en lýkur á sunnudaginn 17. mars. HönnunarMars er einn stærsti
viðburður á sviði hönnunar á Íslandi. Hátíðin býður upp á ýmsa viðburði,
innsetningar og sýningar. Meðal viðburða í ár eru sýningin Hringrás, þar
sem veggir kaffihússins Mokka er myndskreyttir, og Flétta, en það er
samsýning margra hönnuða í Þjóðminjasafninu.
Líkt og fyrri ár hefst hátíðin á fyrirlestradegi. Í ár kallast dagurinn Um
sköpunarkraftinn, en þar flytja fjórir fyrirlesarar erindi. Þema fyrir-
lestradagsins í ár er sköpunarkrafturinn og þeir galdrar sem í honum fel-
ast. Fyrirlestradagurinn er haldinn í Þjóðleikhúsinu og hefst klukkan 10.
Fyrsta erindið flytur grafíski hönnuðurinn Inge Druckrey. Inge leggur
áherslu á töfra augans, að nýta sjónina betur í hversdagslífinu og njóta
þannig meiri fegurðar. Maja Kuzmanovich, stofnandi FoAM, flytur annan
fyrirlestur dagsins. Leiðarljós FoAm er að rækta menninguna til að næra
samfélag framtíðarinnar. Eftir hádegið mun Juliet Kinchin, sýningarstjóri
í hönnunar- og arkitektúrdeild MoMA, flytja erindi en hún hefur skrifað
um hlutverk nútímahönnunar í félagslegu og pólitísku samhengi. Síðasta
fyrirlestur dagsins flytur Eley Kishimoto, annar af tveimur hönnuðum á
bak við fatamerkið Eley Kishimoto. Fyrirlestradagurinn er opinn öllum
hönnunaraðdáendum en nálgast má miða á heimasíðunni miði.is.
HönnunarMars veitir innblástur og býður áhugasömum að vera þátt-
takendur í sköpunarkraftinum sem ríkir innan hönnunarsamfélagsins.
Frekari upplýsingar um dagskrá HönnunarMars má finna á heimasíðu há-
tíðarinnar, honnunarmars.is.
Einn stærsti hönnunar-
viðburður ársins
HÖNNUNARMARS
Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) • Kópavogi • sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 • www.rumgott.is
ÞÉR
ER BOÐIÐ
Í FRÍA LEGU-
GREININGU
Rúmgott er eini aðilinn á Íslandi
sem býður upp á legugreiningu.
ÍS
LE
N
SK GÆ
I60
ÁR