Morgunblaðið - 16.04.2013, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Framkvæmdir við Köldukvíslar-
virkjun á Tjörnesi eru langt
komnar og er stefnt að því að
hefja rafmagnsframleiðslu innan
skamms, að sögn Péturs Bjarna-
sonar hjá Köldukvísl ehf., sem á
virkjunina og stendur að fram-
kvæmdunum.
Í mars 2007 tilkynnti Kaldakvísl
ehf. byggingu allt að 2 MW virkj-
unar í Köldukvísl til Skipulags-
stofnunar. Hreppsnefnd sam-
þykkti deiliskipulag
virkjunarinnar og að samþykktum
breytingum verður virkjunin 2,8
MW. Inntakslónið verður 1,8 ha og
stíflan allt að 110 m breið. Um 450
m langur inntaksskurður safnar
vatni úr Fellslæk sem áður féll í
Köldukvísl neðan Köldukvíslarfoss.
Ekki umtalsverð
umhverfisáhrif
Í febrúar sl. barst Skipulags-
stofnun tilkynning um nokkrar
breytingar á virkjuninni sam-
kvæmt lögum um mat á umhverf-
isáhrifum. Á vef Skipulagsstofn-
unar kemur fram að í umsögnum
Tjörneshrepps, Fiskistofu og
Minjastofnunar Íslands sé ekki
talið að framkvæmdirnar skuli
háðar mati á umhverfisáhrifum.
Eins segir þar að Heilbrigðiseft-
irlit Norðurlands eystra, Orku-
stofnun og Umhverfisstofnun telji
ólíklegt að framkvæmdirnar hafi
umtalsverð umhverfisáhrif.
Á grundvelli gagna var það nið-
urstaða Skipulagsstofnunar að um-
ræddar breytingar væru ekki lík-
legar til þess að hafa umtalsverð
umhverfisáhrif og því skuli þær
ekki háðar mati á umhverfisáhrif-
um.
Köldukvíslarvirkjun nær tilbúin
Rafmagnsframleiðsla hefst á Tjörnesi áður en langt um líður
Breytingar á virkjuninni ekki líklegar til að hafa umhverfisáhrif
Köldukvíslarvirkjun
Loftmyndir ehf.
Húsavík
Tjörnes
Ásbyrgi
Kópasker
Virkjun
Kvíslarhóll
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Mikill tekjusamdráttur hjá Verk-
efnasjóði sjávarútvegsins (VS) olli
því að ekki var auglýst eftir umsókn-
um um styrki til sjávarrannsókna á
samkeppnissviði fyrir síðustu ára-
mót eins og venja hefur verið und-
anfarin ár. Venjulega hefur verið til-
kynnt um styrkveitingar hvers árs í
marsmánuði.
Samkvæmt upplýsingum frá at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðuneyt-
inu verður hægt að auglýsa eftir um-
sóknum um styrki upp á 20 milljónir
króna á þessu ári úr samkeppnis-
deild sjóðsins. Í fyrra voru veittir 27
styrkir til sjávarrannsókna á sam-
keppnissviði upp á samtals 150 millj-
ónir króna. Frá árinu 2008 og til árs-
ins í fyrra var veitt úr sjóðnum
samtals rúmlega 523 milljónir króna
til sjávarrannsókna á samkeppnis-
sviði á verðlagi hvers árs.
Styrkir úr samkeppnisdeild VS
geta að hámarki verið 50% af áætl-
uðum heildarkostnaði verkefna. Því
er ljóst að þessi deild sjóðsins stuðl-
aði að rannsóknum fyrir meira en
einn milljarð króna á árunum 2008-
2012.
Samdrátturinn í tekjum sjóðsins
mun einnig hafa áhrif til lækkunar á
úthlutanir úr almennri deild VS.
Peningar þaðan hafa runnið til op-
inberra stofnana og opinberra hluta-
félaga á borð við Hafrannsókna-
stofnunina, Fiskistofu, Veiðimála-
stofnun, AVS rannsóknasjóðinn og
Matís ohf. Styrkir úr almennu deild-
inni voru samtals rúmlega 655 millj-
ónir króna í fyrra. Þar af fékk Haf-
rannsóknastofnunin samtals 460
milljónir til fjórtán verkefna.
Lárus Ægir Guðmundsson, for-
maður stjórnar deildar VS um
sjávarrannsóknir á samkeppnissviði,
sagði tekjusamdráttinn valda sjóðs-
stjórninni miklum vanda. Hann
sagði t.d. að verkefni sem voru
styrkt í fyrra og voru til meira en
eins árs séu upp á 57 milljónir ein og
sér. Þótt engin kvöð sé um fram-
haldsstyrki nægi peningarnir nú
ekki nema fyrir þriðjungi af
þessum verkefnum og ekkert
sé til nýrra verkefna.
Lárus kvaðst hafa hugleitt
það með sjálfum sér, en ekki
rætt það við ráðuneytið,
hvort ekki fari best á því
að geyma þessa pen-
inga í von um að
meira verði til ráð-
stöfunar á næsta
ári.
Tómahljóð í verkefnasjóðnum
Mikill tekjusamdráttur hjá Verkefnasjóði sjávarútvegsins Ekki var auglýst eftir umsóknum á sam-
keppnissviði haustið 2012 eins og venja er 20 milljónir til skipta nú en 150 milljónum úthlutað í fyrra
Morgunblaðið/Ómar
Rannsóknir Skapa atvinnu.
„Um leið og at-
vinnuverkefnin
taka við sér í
Helguvík þá er
tiltölulega fljótt
verið að snúa við
blaðinu,“ segir
Árni Sigfússon,
bæjarstjóri
Reykjanesbæjar,
aðspurður út í tap
á rekstri sam-
stæðu en samkvæmt ársreikningi
Reykjanesbæjar fyrir 2012 er það
433 milljónir króna eftir afskriftir og
fjármagnsliði. Hinsvegar er afgang-
ur af almennum rekstri bæjarins 708
milljónir króna eftir afskriftir og
fjármagnsliði.
Stór atvinnutækifæri bíða
„Það er sterk EBITDA í sam-
stæðu, um 2,8 milljarðar eða um 20%
af tekjum. Þetta eru sterkar tölur
sem koma inn í samstæðuna en
breytast hins vegar þegar horft er til
Helguvíkur sem tapar um 670 millj-
ónum,“ segir Árni og bætir við:
„Eina leiðin, og sú sem er mjög fær,
er að það fari nú að birta til í þessum
málum og við náum að nýta þau
stóru atvinnutækifæri sem hér
bíða.“
Að sögn Árna hefur bæjarfélagið
leitað eftir stuðningi við þessi verk-
efni. Bendir hann á að gefið hafi ver-
ið í skyn að jafnræði skuli gilda í
stuðningi við annars vegar Helguvík
og hins vegar Bakka. „Ef það væri
jafnræði þá væri þetta mál leyst í eitt
skiptið fyrir öll,“ segir Árni og bætir
við að bæjarbúar treysti á að það
komi ríkisstjórn sem fylgi þessu máli
fastar eftir og ljúki verkefninu með
bæjarbúum.
Aðspurður hvernig sveitarfélagið
ráði við þennan kostnað núna, þ.e.
hvort tekið verði á þessu með nið-
urskurði annars staðar eða með lán-
töku segir Árni að einungis sé um að
ræða reiknaða liði og því sé ekki eins
og sveitarfélagið þurfi að greiða
þetta út á næstu dögum. „Til lengri
tíma litið þarf þessi tala að verða já-
kvæð eins og aðrar og við teljum
okkur ekki þurfa að leita frekari
lánafyrirgreiðslna.“ skulih@mbl.is
Tæplega
700 millj-
óna tap
Árni
Sigfússon
Vilja nýta
atvinnutækifæri
Skelrækt, samtök skelræktenda, fékk 7,6 milljóna kr. styrk úr Verk-
efnasjóði sjávarútvegsins, samkeppnisdeild, í fyrra. Verkefnið, sem er til
þriggja ára, snýst um greiningu hrygningar og lirfusets hjá kræklingi við
strendur Íslands. Jón Páll Baldvinsson líffræðingur er verkefnisstjóri.
Hann sagði óvissuna um frekari úthlutanir valda mörgum erfiðleikum.
„Við fengum þau svör í ráðuneytinu að það væru því miður engir pen-
ingar til í sjóðnum. Þau verkefni sem sett voru upp til þriggja ára eru líka
stopp,“ sagði Jón Páll. Honum var sagt að fengjust peningar þá yrðu
langtímaverkefnin sett í forgang. „Menn vona að það verði eitthvað gert
til að laga stöðuna og vonandi verður hægt að koma þessum verkefnum
sem fengu styrk úr sjóðnum aftur í gang.“
Jón Páll sagði fyrsta ár verkefnisins hafa snúist um lirfumælingar og
gengið mjög vel. Að því komu starfsmenn fjögurra rannsóknarsetra
sem eru í Sandgerði, Bolungarvík, Skagaströnd og á Eskifirði. Mælt
var á ellefu svæðum hringinn í kringum landið og tekin 18 sýni á
hverjum stað. Jón Páll taldi þetta vera eitt mikilvægasta verk-
efnið í frekari þróun kræklingaræktar við Ísland.
Vonar að hægt verði að koma
verkefnunum aftur í gang
ÓVISSA UM FRAMHALD ÞRIGGJA ÁRA RANNSÓKNARVERKEFNIS
Jón Páll
Baldvinsson
Mývatnssveit | Kór Menntaskólans við Hamrahlíð
var hér á ferð um helgina og gladdi Mývetninga
verulega með frábærum söng. Fyrst við messu í
Reykjahlíðarkirkju þar sem kórinn sá um allan
tónlistarflutning, með sóknarpresti okkar, sr.
Örnólfi J. Ólafssyni. Um kvöldið hélt kórinn síðan
tónleika í Skjólbrekku þar sem hann flutti viða-
mikla og bráðskemmtilega dagskrá með ein-
söngvurum, kammersveit og leikrænum tilþrifum
í bland. Að sjálfsögðu var allt undir styrkri stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur og með fulltingi rekt-
ors, Lárusar H. Bjarnasonar, sem fyrir löngu var
rannsóknamaður við Kröflu eitt sumar.
Þessi heimsókn kórs MH mun vera sú fimmta
sem Þorgerður Ingólfsdóttir leiðir kórinn sinn
frábæra í til að gleðja Mývetninga með heimsókn
í Sjólbrekku. Þorgerður gat þess sérstaklega að
sóknarprestur okkar, sr. Örnólfur J. Ólafsson,
söng með kórnum fyrir meir en 30 árum, einnig
að hún sjálf og Jón Stefánsson organisti stund-
uðu saman kantornám fyrir löngu. Loks sagði
hún félagsheimilið Skjólbrekku framúrskarandi
tónleikahús þar sem ætíð væri gaman að syngja.
Fjölmenni var á tónleikunum og rífandi stemmn-
ing. Að morgni mánudags lauk síðan þessari
góðu heimsókn með því að kórinn kom við í
grunnskólanum í Reykjahlíð þar sem sungið var
fyrir nemendur og sveitin þar með kvödd. Hafi
þau öll úr Hamrahlíðinni kæra þökk fyrir kom-
una.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Hamrahlíðarkórinn gladdi Mývetninga
Fjölmenni og rífandi stemmning á tónleikum í Skjólbrekku