Morgunblaðið - 16.04.2013, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Fáskrúðsfirði | Hoffell SU kom til Fáskrúðsfjarðar í
gærmorgun með 1280 tonn af kolmunna sem skipið
veiddi suður af Færeyjum. Fimm sólarhringar voru síð-
an skipið hélt til veiða, en siglingin tók tvo sólarhringa.
Veiðarnar gengu mjög vel að sögn Bergs Einarssonar
skipstjóra á skipinu. Kolmunninn fer í bræðslu hjá
Loðnuvinnslunni sem gerir skipið út. Í gær voru all-
mörg íslensk uppsjávarskip að kolmunnaveiðum suður
af Færeyjum.
Hákon EA kom til löndunar í Neskaupstað s.l. laug-
ardag, að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnsl-
unnar. Aflinn var um 750 tonn af frystum kolmunna
sem landað var í frystigeymslur Síldarvinnslunnar og
230 tonn sem fóru í mjöl- og lýsisvinnslu.
Allmörg íslensk uppsjávarskip á miðunum suður af Færeyjum
Morgunblaðið/Albert Kemp
Afli glæðist á kolmunnaveiðum
Björn Jóhann Björnsson
Þorsteinn Ásgrímsson
„Verkefnið er enn í fullum gangi.
Tengt þessu hefur sveitarfélagið
staðið að ýmsum undirbúningsverk-
efnum, eins og varðandi plast- og
trefjanám. Það er að rofa til í þessu
á heimsvísu og miklir möguleikar
framundan,“ segir Sigfús Ingi Sig-
fússon, verkefnisstjóri hjá Sveitar-
félaginu Skagafirði, um stöðu und-
irbúnings koltrefjaverksmiðju á
Sauðárkróki.
Sveitarfélagið kom að stofnun fé-
lagsins UB Koltrefjar vorið 2008
ásamt Kaupfélagi Skagfirðinga og
Gasfélaginu, sem er í eigu Bjarna
Ármannssonar. Hefur félagið unnið
að því að kanna rekstrarmöguleika
fyrir koltrefjaverksmiðju og reynt
að afla tengsla við framleiðendur á
koltrefjum erlendis. Bakslag kom í
verkefnið í hruninu 2008 en því hef-
ur verið haldið lifandi áfram.
Koltrefjar eru notaðar sem styrk-
ingarefni í iðnframleiðslu, m.a. við
framleiðslu á bílum og flugvélum,
og er ætlað sökum minni þyngdar
og mikils styrks að leysa af hólmi
ýmis þekkt efni á borð við ál og
stál. M.a. notaðist Boeing við
koltrefjar í framleiðslu á Dreaml-
iner.
Fríverslun við Kína mikilvæg
„Vonir okkar standa til þess að
bílaiðnaðurinn muni teyma þennan
markað áfram á næstu árum,“ segir
Sigfús Ingi en fram kom á fundi
Félags viðskipta- og hagfræðinga
fyrir helgi, í erindi Kristins Hafliða-
sonar hjá Íslandsstofu, að fram-
leiðsla þýska bílarisans BMW á bíl-
unum i3 og i8 gæti leitt til upp-
byggingar koltrefjaverksmiðju hér
á landi. Taldi Kristinn að mögu-
legur sparnaður framleiðenda
vegna uppsetningar verksmiðju hér
á landi gæti numið um 50 milljónum
dollara, jafnvirði um sex milljarða
króna. Nefndi Kristinn jafnframt að
fríverslunarsamningur Íslands við
Kína gæti reynst vel. Þar með yrði
hægt að selja tollfrjálst allar fram-
leiddar koltrefjar hérlendis til Kína.
Sigfús Ingi tekur undir með
Kristni. Mikil og vaxandi eftirspurn
sé eftir koltrefjum í Asíu og þar fel-
ist mörg tækifæri fyrir félag eins
og UB Koltrefjar. Einnig hafi fram-
leiðsla á basalttrefjum verið skoðuð.
Miklir möguleikar taldir fyrir koltrefjaverksmiðju hér á landi Undirbún-
ingsfélag í Skagafirði enn að störfum Talið léttara og sterkara efni en ál
Bílar BMW notast við koltrefjar í
framleiðslu á i8 sportbílnum.
Undirbúningur á fullu í koltrefjunum
Akureyrarbær og félagið
Strokkur Energy undirrituðu
rammasamning í ársbyrjun
2010 um undirbúning koltrefja-
verksmiðju á Akureyri. Eyþór
Arnalds hjá Strokki segir sam-
komulagið ekki hafa verið fram-
lengt á meðan markaðs-
aðstæður séu þungar, verkefnið
sé í salti. „Framleiðsla á há-
gæða koltrefjum er engu að síð-
ur mjög áhugaverð viðbót við
iðnaðinn á Íslandi, enda orkurík
hátækniframleiðsla,“ segir Ey-
þór, sem vonast til að aðstæður
skapist í framtíðinni til að ráð-
ast í svona verkefni hér á landi.
Akureyri
í salti
STROKKUR ENERGY
Ingvar P. Guðbjörnsson
ipg@mbl.is
„Það er ekki komin nein niðurstaða
um það. Þetta mál er bara í umfjöll-
un hérna hjá sjóðnum og það er
ákveðin krafa sem fjármálaeftirlitið
gerir til þessara hluta. Við erum að
fara í gegnum þetta safn hjá okkur
og að bíða eftir viðbrögðum okkar
lögmanns. Síðan fer þetta til umfjöll-
unar hjá stjórn,“ segir Kristján Örn
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Sameinaða lífeyrissjóðsins um þær
hugmyndir að fara einskonar 110%
leið til lausnar á skuldavanda láns-
veðshóps hjá lífeyrissjóðunum.
Morgunblaðið hefur eftir heimild-
um að málið þyki viðkvæmt og vildu
fáir fulltrúar lífeyrissjóða tjá sig um
það í gær þegar eftir var leitað. Með-
al þess sem nefnt var er hið pólitíska
ástand, en nú eru einungis tæpar
tvær vikur til þingkosninga. Þá voru
ekki allir vissir um lögmætið.
„Það er það sem óvissan er með,
því það er alveg klárt að mönnum er
óheimilt að gefa eftir innheimtanleg-
ar kröfur. En síðan er það spurn-
ingin hvort aðgerðin sé þess eðlis að
hún geti talist lögleg. Þegar menn
fóru 110% leiðina þá töldu menn að
það væri verið að gefa eftir lán sem
væru komin út fyrir eðlilegan veð-
rétt. Þar af leiðandi væru ekki trygg-
ingar til staðar og krafan ekki inn-
heimtanleg,“ segir Kristján.
Samstaða allra nauðsynleg
Hann segir að hjá Sameinaða líf-
eyrissjóðnum séu sjóðsfélaga lán 8%
af eignum sjóðsins, en lánsveðin 15%
af þeim lánum eða 1,2% af eignum.
„Við áætlum að um helmingur af
lánsveðum sé vegna íbúðarkaupa eða
0,6% af eignum sjóðsins,“ segir
Kristján.
„Þetta byggist á því að allir sjóð-
irnir séu sammála í þessum aðgerð-
um,“ segir hann og að það taki tíma
að fara í gegnum allt lánasafnið eins
og Fjármálaeftirlitið mælist til.
Málið sagt á viðkvæmu stigi
Fáir fulltrúar lífeyrissjóða vilja tjá sig um 110% leiðina Óvissa um lögmætið
Tillögurnar eru nú til skoðunar og stjórnir taka afstöðu til þeirra á næstunni
Lánsveð lífeyrissjóða
» Lífeyrissjóðir sem eiga aðild
að Landsambandi lífeyrissjóða
skoða nú grundvöll fyrir leið-
réttingu veðlána eftir 110%
leiðinni svokölluðu.
» Óvíst er hvort slíkt er lög-
legt þar sem sjóðunum eru
settar þröngar skorður varð-
andi afskriftir.
» Málið þykir á viðkvæmu stigi
og menn vilja forðast að gefa
of miklar vonir.
» Mestur kostnaður vegna af-
skrifta mun falla á ríkissjóð
gangi þessi leið eftir.
Morgunblaðið/Golli
Veðlán Lífeyrissjóðir skoða nú hug-
myndir um 110% leið með veðlán.
MMR kannaði
fylgi stjórn-
málaflokka og
stuðning við
ríkisstjórnina
á tímabilinu
11. til 14. apríl.
Fylgi Framsóknarflokksins mæld-
ist nú 32,7%, borið saman við 30,2%
í síðustu mælingu. Sjálfstæðisflokk-
urinn bætir við sig fylgi og mælist
hann nú 22,9% borið saman við
21,2% í síðustu mælingu.
Pírataflokkurinn eykur fylgi sitt
og mælist nú 9,0%, borið saman við
7,8% í síðustu mælingu. Dögun bæt-
ir einnig við sig fylgi og mælist nú
3,6%, borið saman við 1,9% í síðustu
mælingu. Fylgi Vinstri grænna
dregst nokkuð saman og mælist nú
6,7% borið saman við 8,1% í síðustu
mælingu. Stuðningur við önnur
framboð ýmist stóð í stað eða
breyttist lítillega. Samfylkingin
mælist með 10,4% fylgi. Stuðningur
við ríkisstjórnina mælist nú 24,6%.
Aukið fylgi Sjálf-
stæðisflokksins
í könnun MMR
Skannaðu kóðann
til að sjá viðtal við
Kristinn Hafliðason.
Gunnar Dofri Ólafsson
Skúli Hansen
„Eins og þetta kemur við mér þá
finnst mér þetta vera svona almanna-
tengslagjörningur hjá ASÍ. Það koma
hér fimm aðilar; tveir lögfræðingar,
einn ljósmyndari og tveir menn með
möppur,“ segir Jón Gerald Sullenber-
ger, eigandi matvöruverslunarinnar
Kosts, en hann reyndi í gær að meina
starfsfólki verðlagseftirlits ASÍ að
framkvæma verðkönnun í versluninni
og krafðist þess að fólkið yfirgæfi
verslunina.
Jón Gerald segir alla aðila á mat-
vörumarkaði ósátta við vinnubrögð
verðlagseftirlitsins. „Ég er búinn að
óska eftir því að þeir geri ekki verð-
könnun hérna hjá okkur. Ég vil ekki
taka þátt í þessu af því að ég tel að það
sé verið að fara með röng skilaboð út
á markaðinn,“ segir Jón Gerald.
Hann bendir á að þegar verið sé að
gera þessar kannanir þá séu sömu
vörurnar ekki bornar saman, þá sé oft
á tíðum ekki sama verð skrifað á raf-
rænum merkingum uppi í hillum og á
kassa.
„Mér finnst að ef þeir ætla sér að
gera hér verðkannanir þá sé lág-
markskurteisi að þeir hafi nú sam-
band við okkur og við reynum að
finna einhverja heilbrigða og eðlilega
leið til að gera þessar kannanir,“ segir
Jón Gerald.
Í tilkynningu sem ASÍ sendi frá sér
í gær kemur m.a. fram að Jón Gerald
hafi óskað eftir aðstoð lögreglu til að
vísa verðlagsfulltrúunum á dyr. Lög-
reglan hafi mætt á staðinn en ekki tal-
ið ástæðu til að aðhafast neitt. Þá hafi
Jón Gerald hrifsað gögn eins fulltrú-
ans, hindrað för þeirra og haft í
frammi ógnandi tilburði.
Hindraði för
verðlagseftirlits
Jón Gerald segir könnun virka eins
og almannatengslagjörning af hálfu ASÍ
Kostur Jón Gerald kallaði til lög-
reglu í gær vegna verðlagseftirlits.