Morgunblaðið - 16.04.2013, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Allt á sinn tíma.
Á köldu vori ber-ast fréttir um
að svartþrösturinn,
nýbúinn snotri, sé
byrjaður að verpa.
Hrafninn, fuglFlóka, er fyrir
löngu farinn af stað.
Og nú er glanstíðþeirra sem kanna skoðanir.
Það er kraftur í þeirra varpi einsog hinna.
Ný könnun birtist næstum annanhvern dag.
Fjölmiðlungar horfa á þær einsog gestir á matseðil og velja
svo sinn rétt úr.
Ríkisstjórn landsins, fyrsta„hreina vinstristjórnin,“ hafði
stuðning meirihluta þingmanna,
þegar lagt var úr vör.
Síðasta skoðanakönnun MMR seg-ir að stjórnarflokkarnir tveir
hafi nú samanlagt 17,1 % fylgi.
Flokkur Steingríms er nú meðrúman helming fylgis Pírata,
sem er með svo svipað fylgi og Sam-
fylkingin að telst vera innan
skekkjumarka.
Af hverju spyr enginn hvort Sam-fylkingin hefði meira fylgi ef
Birgitta væri formaður hennar og
Árni Páll formaður Sjóræningjanna?
Væri ekki gott að upplýsa það?
Árni Páll
Árnason
Vinsamlega spurja
STAKSTEINAR
Birgitta
Jónsdóttir
Veður víða um heim 15.4., kl. 18.00
Reykjavík 6 léttskýjað
Bolungarvík -1 alskýjað
Akureyri 1 slydda
Kirkjubæjarkl. 9 léttskýjað
Vestmannaeyjar 6 heiðskírt
Nuuk 1 heiðskírt
Þórshöfn 8 þoka
Ósló 6 þoka
Kaupmannahöfn 11 heiðskírt
Stokkhólmur 6 skýjað
Helsinki 6 skúrir
Lúxemborg 21 heiðskírt
Brussel 16 léttskýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 12 skýjað
London 15 léttskýjað
París 18 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 17 heiðskírt
Berlín 22 heiðskírt
Vín 18 heiðskírt
Moskva 13 heiðskírt
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 25 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 21 heiðskírt
Róm 21 heiðskírt
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -2 snjókoma
Montreal 8 léttskýjað
New York 11 léttskýjað
Chicago 15 alskýjað
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:51 21:05
ÍSAFJÖRÐUR 5:47 21:19
SIGLUFJÖRÐUR 5:29 21:02
DJÚPIVOGUR 5:18 20:37
ALLT Á BAÐIÐ!
YFIR 30 GERÐIR INNRÉTTINGA Í SÝNINGARSAL
VERÐ FRÁ KR. 12.900
TIL AFGREIÐSLU AF LAGER!
WWW.I-T.IS
Baðhlutir í settum
frá kr. 3.900
Sturtustangarsett
frá kr. 1.900
Innbyggt WC með
öllu frá kr. 33.900
Sturtuhorn m. botni
frá kr. 21.900
Baldur Óskarsson, ljóðskáld, er lát-
inn, 81 árs að aldri.
Baldur fæddist í Hafnarfirði 28.
mars 1932, sonur hjónanna Óskars
Eyjólfssonar, verkamanns, og Ingi-
gerðar Þorsteinsdóttur. Fósturfor-
eldrar hans voru hjónin Þorsteinn
Þorsteinsson, bóndi á Ásmundar-
stöðum í Holtum, og Sigríður Ólafs-
dóttir, húsfreyja.
Baldur stundaði m.a. nám í
spænskum bókmenntum og lista-
sögu í Barcelona á Spáni. Hann var
blaðamaður á Tímanum 1957-64 og
starfaði síðar sem fréttamaður hjá
Ríkisútvarpinu. Hann var skóla-
stjóri Myndlistarskóla Reykjavíkur
1965-73.
Baldur sendi frá sér ljóðabækur,
skáldsögur og smásögur. Fyrsta
verk hans var smásagnasafnið Hita-
bylgja sem kom út árið 1960. Þrem-
ur árum síðar kom út eftir hann
skáldsagan Dagblað. Árið 1966 sendi
hann frá sér sína fyrstu ljóðabók
(Svefneyjar) og upp frá því einbeitti
hann sér að ljóðagerð. Síðast kom út
bókin Langtfrá öðrum grjótum, árið
2010.
Baldur fékkst einnig við ljóðaþýð-
ingar og þýddi m.a. ljóð eftir Fed-
erico García Lorca. Hann skrifaði
einnig talsvert um myndlist í bækur
og tímarit, t.d. um myndlistarmann-
inn Jón Engilberts. Baldur hlaut
verðlaun úr rithöfundasjóði Ríkis-
útvarpsins árið 2011.
Eiginkona Baldurs var Gunn-
hildur Kristjánsdóttir. Þau skildu.
Þau eignuðust þrjú börn, Sigrúnu,
Árna og Magnús.
Andlát
Baldur
Óskarsson