Morgunblaðið - 16.04.2013, Síða 9
FRÉTTIR 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Innlent
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Hugmyndir um að taka upp milli-
dómstig hér á landi hafa verið kynnt-
ar dómurum við Hæstarétt, sem
hafa sýnt þeim áhuga. Þetta kemur
m.a. fram í svari
Markúsar Sigur-
björnssonar, for-
seta Hæstaréttar,
við spurningum
Morgunblaðsins
um viðbrögð við
því sem fram
kemur í ritgerð
Jóns Steinars
Gunnlaugssonar,
fv. hæstaréttar-
dómara, um
brýna nauðsyn þess að stofna milli-
dómstig þegar í stað.
Þau svör fengust ennfremur að
Hæstiréttur myndi ekki tjá sig um
þá gagnrýni sem Jón Steinar setur
fram á störf dómara við Hæstarétt
né hvernig varadómarar og dómarar
eru valdir til réttarins.
Fjölgun dómara gefist vel
Jón Steinar bendir einnig í sinni
ritgerð á aukið álag á Hæstarétti.
Árið 2003 hafi fjöldi mála verið 497
og dómar 440 en árið 2012 hafi 770
mál borist réttinum og 710 dómar
verið kveðnir upp. Um þetta atriði
segir Markús í sínu svari:
„Tölulegar upplýsingar um fjölda
innkominna og afgreiddra mála bera
að sjálfsögðu með sér að álag á
Hæstarétti er mikið, en rétturinn
hefur staðið það vel af sér í störfum
sínum. Við auknu álagi hefur m.a.
verið brugðist með því að dómurum
var fjölgað úr níu í tólf á árinu 2011
og hefur þetta gefið góða raun, en sú
ráðstöfun er þó aðeins tímabundin.
Mér er kunnugt um að unnið hefur
verið í réttarfarsnefnd og innanríkis-
ráðuneytinu að stefnumörkun í þess-
um efnum til lengri tíma, þar á meðal
með tilliti til hugmynda um að taka
hér upp millidómstig.“
Hjörtur O. Aðalsteinsson, héraðs-
dómari og formaður Dómarafélags
Íslands, segist persónulega vera
hlynntur því að komið verði á fót
millidómstigi og að Hæstiréttur
dæmi í þýðingarmestu málunum.
„Ég held að þetta sé almenn skoðun
meðal dómara,“ segir Hjörtur.
Jón Steinar segir í ritgerð sinni að
heimild í dómstólalögum til að skipa
varadómara í Hæstarétt hafi verið
meira notuð en ráð var fyrir gert.
Gagnrýnir hann að varadómarar hafi
haft ríka tilhneigingu til að fylgja
meirihluta dómaranna sem fyrir eru
að málum.
„Ég hef aldrei verið kallaður inn
sem varadómari í Hæstarétti og veit
ekkert um það hvernig þeir eru vald-
ir eða um störf þeirra þar að öðru
leyti,“ segir Hjörtur.
Brugðist við auknu álagi
Hann tekur hins vegar undir með
Jóni Steinari um að álag á dómstól-
ana sé gífurlegt en nú sé verið að
leita leiða til að bregðast við því. Vís-
ar Hjörtur þar til vinnu sem staðið
hefur yfir í innanríkisráðuneytinu og
hjá réttarfarsnefnd.
Ekki náðist í innanríkisráðherra í
gær, til að bera undir hann það sem
kemur fram hjá Jóni Steinari og var
tíundað ítarlega í blaðinu sl. laugar-
dag í tilefni af útkomu ritgerðar
hans, Veikburða Hæstiréttur – veru-
legra úrbóta er þörf.
Dómarar sýna milli-
dómstiginu áhuga
Formaður Dómarafélagsins tekur undir með Jóni Steinari
Morgunblaðið/Sverrir
Hæstiréttur Fjöldi mála hefur nær
tvöfaldast frá árinu 2003.
Markús
Sigurbjörnsson
Rubi verkfæri á tilboði
3. flokkur, henta vel utanhúss, á
svalirnar, sameignir, bílskúr, geymsluna,
iðnaðarhúsnæðið og nánast hvar sem er.
Stærðir 20x20, 30x30, 30x60.
Af hverju lenda flísar í 3. flokki?
Flísarnar hugsanlega hornskakkar.
Eitthvað að yfirborði flísanna.
Litatónar etv. ekki alveg réttir.
Kannski aðeins kvarnað úr hornum.
Afgangar af framleiðslu frá 1. og 2. flokk.
ATH! 3. flokkur er aðeins seldur í í heilum pakkningum og
ekki er hægt að skila afgöngum.
Allar stærðir og áferðir
í 3. flokki á sama verði
2.290 kr pr m2
Rubi flísaskeri basic-60
nr 25956
Tilboðsverð
6.900
Rubi sög mb 180
nr 25925
Tilboðsverð
18.800
Tilboðsverð
9.990
Rubi slípirokkur BLA 115
nr 25950
Tilboðsverð
12.900
Rubi flísasög ND 180 smart
nr 24976
Tilboðsverð
26.900
Rubimix-9-plus hrærari
1600W
nr 24960
Tilboðsverð
10.990
Verkfærakista
Tilboðsverð
23.900
Rubimix-9 hrærari
nr 25940
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Tilboðsverð
10.900
Rubi flísasög
Happy Cutman
nr 10970
Mjög ÓDÝRAR flísar
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
GALLABUXUR
HÁAR Í MITTIÐ
Verð kr. 10.900
3 síddi
r
Laugavegi 63 • S: 551 4422
GARDEUR
GALLABUXUR
margir litir, mörg snið
laxdal.is
Vertu
vinur
á
Svartar
klassískar
Tilboðsverð
17.900
Flugstjórinn var
kvæntur
Í frásögn af Hrímfaxaslysinu 14.
apríl 1963, sem var í Morgunblaðinu
á laugardaginn var, láðist að geta
þess að Jón Jónsson, flugstjóri flug-
vélarinnar, var kvæntur. Hann lét
því eftir sig eiginkonu og dóttur.
Beðist er afsökunar á þessum mis-
tökum.
LEIÐRÉTT
mbl.is