Morgunblaðið - 16.04.2013, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Augu margra beinast að Vestur-
Skaftafellssýslu þegar rætt er um
sjóbirtinga og menn eru að veiða
víðar en í Tungulæk. Ágætlega hef-
ur gengið í Tungufljóti í Skaft-
ártungu og sem dæmi fékk holl fyr-
ir helgi nítján sjóbirtinga og þar á
meðal einn sem var mældur 92 cm
langur. Aðallega veiðist við Syðri-
Hólma og Flögubakka, eins og al-
gengt er á vorin.
„Nú er frábært veiðiveður, sól,
logn og dúndrandi hiti,“ sagði
Ragnar Johansen í Hörgslandi
seinnipartinn í gær, enda voru
veiðimennirnir hjá honum í Vatna-
mótunum þá að veiða vel, rétt eins
og á sunnudag. Dagana þar á undan
gekk heldur verr, enda gátu menn
vart kastað vegna íshröngls. „En
það er fiskur víða á svæðinu og sum
hollin hafa þrælveitt, þriðja hollið
fékk sem dæmi hátt í áttatíu sjó-
birtinga,“ sagði Ragnar.
Um 500 skráðir úr Litluá
Veiðin fór frábærlega vel af stað í
Litluá í Kelduhverfi byrjun mán-
aðarins og veiðst hefur vel áfram,
þótt Sturla Sigtryggsson í Keldu-
nesi segi að aðstæður hafi verið eins
og um hávetur.
„Nú er krapastórhríð og hefur
verið í tvo daga. Samt eru hér þrír
Bretar að reyna að veiða og þeir
fengu einhverja í morgun.
En þótt veðrið hafi verið leið-
inlegt hefur veiðst vel og um 500
fiskar hafa verið færðir til bókar,“
sagði Sturla.
Morgunblaðið/Einar Falur
Vænir „Það hefur verið mjög kalt en samt veiðist vel“, segir Þórarinn Krist-
insson sem hampar hér vænum sjóbirtingi úr Tungulæk í Landbroti.
Vorveiðin áfram
góð í Tungulæk
Veitt í krapastórhríð við Litluá
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Nú hafa veiðst 302 birtingar í fjórum
og hálfu holli. Það kalla ég mjög
gott,“ sagði Þórarinn Kristinsson,
eigandi Tungulækjar í Landbroti, í
gær. Eins og greint hefur verið frá
hófst veiðin með látum þar fyrsta
apríl síðastliðinn og áfram hefur
veiðst vel, þrátt fyrir kuldatíð und-
anfarið.
„Já, það hefur verið mjög kalt en
samt veiðist vel,“ segir Þórarinn og
nefnir sem dæmi að hollið sem lauk
veiðum í fyrrakvöld hafi fengið 27
fiska og þeir hafi verið „um allt. Uppi
í á og úti í skilunum í Skaftá.“ Þá
voru frekar óvanir veiðimenn í holl-
inu þar á undan en þeir fengu engu
að síður nítján.
Sum hollin hafa þrælveitt
Vorið er óviss tími í veiði og apríl
getur verið grimmur, eins og skáldið
orti um. Frost og hret geta komið í
veg fyrir veiði, eins og í Kjósinni þar
sem svokallaður sjóbirtingstími hófst
10. apríl. Á föstudag hafði veiðistað-
ina á frísvæðinu lagt og daginn eftir
var hörkugaddur í dalnum, lítil von
því um veiði. Á sunnudag var hlýtt og
þá var hann farinn að taka og nokkr-
um birtingum var landað. Að sögn
Jóns Þór Júlíussonar hjá Hreggnasa
hefur einnig verið „kropp“ á sjóbirt-
ingsslóð neðst í Grímsá og hafa um
þrjátíu fiskar verið færðir til bókar.
Byggingav
örur - byg
gingatækn
i
I I
Gylfaflöt 3 | 112 Reykjavík | Sími 533 1600 | aseta@aseta.is
Konur til áhrifa
Leiðtoganámskeið á vegum Landssambands sjálfstæðiskvenna
Sjálfstæðisflokkurinn XD.IS
Dagskrá:
Jarþrúður Ásmundsdóttir,
formaður LS:
Virkjum kraftinn
Elínrós Líndal,
forstjóri ELLU:
Leiðtogar 21. aldarinnar
Hanna Birna Kristjánsdóttir,
varaformaður Sjálfstæðisflokksins:
Konur til áhrifa
Hlé
Örnámskeið:
Elín Hirst,
fjölmiðla- og sagnfræðingur:
Konur og fjölmiðlar
Þórey Vilhjálmsdóttir,
viðskiptafræðingur:
Hraðtengsl
Sigríður Klingenberg:
Skapaðu þér skemmtilegra líf
› Veislusalur Þróttar í Laugardalnummiðvikudag 17. apríl kl. 20.00
Léttar veitingar - Allar konur velkomnar!
Forstjóri Hrafnistu og velferðarráðherra undirrituðu í gær samkomulag um
tilraunaverkefni, sem hefur að markmiði að gera hjónum kleift að búa saman
á Hrafnistu enda þótt einungis annað hjóna þurfi af heilsufarsástæðum að
búa á hjúkrunarheimili en hitt ekki. Verkefnið fer fram á Hrafnistu í Kópa-
vogi og geta í upphafi fern hjón nýtt sér úrræðið á sama tíma, segir á heima-
síðu Hrafnistu. Páll Bergþórsson, fyrrv. veðurstofustjóri, og Hulda Bald-
ursdóttir, íbúi á Hrafnistu í Reykjavík, voru viðstödd undirritunina, en þau
vöktu fyrir nokkrum mánuðum athygli á vandanum.
Verkefnið á að mæta þörfum hjóna sem búa aðskilin og mun standa yfir til
loka árs 2014. Núverandi reglur um búsetu á hjúkrunarheimilum leyfa að-
eins þeim að búa á hjúkrunarheimilum, sem hafa vottað færni- og heilsumat.
Nýtt búsetuúrræði
fyrir hjón á Hrafnistu
Morgunblaðið/Rósa Braga
Undirritun Páll Bergþórsson fylgdist með er Pétur Magnússon og Guð-
bjartur Hannesson undirrituðu samkomulag um búsetuúrræði fyrir hjón.
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga