Morgunblaðið - 16.04.2013, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 16.04.2013, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013 Guðmundur Steingrímsson Katrín Jakobsdóttir Orri Hauksson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Bjarni Benediktsson Björgólfur Jóhannsson Árni Páll Árnason SKRÁNING Á WWW.SA.IS HVERNIG ÆTLA ÞAU AÐ ÖRVA ATVINNULÍFIÐ? MORGUNVERÐARFUNDUR Í SILFURBERGI HÖRPU FIMMTUDAGINN 18. APRÍL KL. 8.30-10 Formenn Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Framsóknarflokks ræða um mikilvægustu mál samfélagsins. Björgólfur Jóhannsson, formaður SA, setur fundinn Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI, stýrir umræðum Bein útsending á vef SA. Kraftmikið kaffi frá kl. 8. 90 MÍNÚTUR STÖÐUGLEIKI SKATTAR FJÁRFESTINGAR GJALDEYRISHÖFT Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Aðgerðir Valitors á kortamarkaði á árunum 2007-2009 voru að mati Sam- keppniseftirlitsins til þess fallnar að raska samkeppni með alvarlegum hætti. Telur eftirlitið að brotin hafi verið framin af ásetningi og teljist al- varleg. „Undirverðlagning Valitors vann þannig gegn því að keppinautar gætu veitt meira samkeppnislegt aðhald á markaði. Hefur sú staðreynd að að- gerðum var hrint í framkvæmd áhrif á viðurlög,“ segir m.a. í úrskurði Samkeppniseftirlitsins, sem hefur sektað Valitor um 500 milljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum. Eins og fram kom í Morgunblaðinu um helgina hyggst Valitor áfrýja úr- skurðinum til áfrýjunarnefndar sam- keppnismála. Fram kom einnig að kærandi í málinu, Kortaþjónustan, íhugar lögsókn til að fara fram á skaðabætur fyrir endurtekin lögbrot af hálfu keppinautar á kortamark- aðnum. Undirverðlagning stunduð Samkeppniseftirlitið telur Valitor hafa stundað undirverðlagningu á færsluhirðingu fyrir kreditkort og um leið brotið gegn skilyrðum sem fyrirtækið hafði áður skuldbundið sig til að virða. Eftirlitið telur að Valitor hafi framið brotin af ásetningi. Í sam- keppnisrétti sé talað um brot af ásetningi þegar viðkomandi aðila megi vera ljóst að aðgerðum hans hafi verið ætlað að raska samkeppni. „Að mati Samkeppniseftirlitsins getur Valitor ekki borið fyrir sig reynslu- og þekkingarleysi. Fyrir- tækið hefur áður sætt afskiptum samkeppnisyfirvalda og ætti því að þekkja vel inntak samkeppnislaga,“ segir í úrskurði Samkeppniseftirlits- ins, sem telur að Valitor hafi mátt vera ljóst að undirverðlagning bryti gegn samkeppnislögum og EES- samningnum. „Draga verður því þá ályktun að Valitor hafi haft ásetning til að raska samkeppni og verja þar með markaðsráðandi stöðu sína með ólögmætum hætti. Horfir þetta til þyngingar viðurlaga.“ Í úrskurðinum segir einnig að lýs- ing á markaðsaðgerðum Valitors í formi tilboða og/eða samninga undir- striki og staðfesti það mat Sam- keppniseftirlitsins að Valitor hafi beitt umfangsmikilli undirverðlagn- ingu við færsluhirðingu debetkorta hjá íslenskum söluaðilum á árunum 2007 og 2008. „Einnig verður að líta svo á að Val- itor hafi, í einstökum tilfellum þegar um daglegar útborganir var að ræða, beitt undirverðlagningu fyrir færslu- hirðingu þar sem kreditkort voru notuð í viðskiptum. Má af gögnum ráða að starfsmenn Valitors hafi gert sér fulla grein fyrir þessari stöðu. Gefur þetta vísbendingu um að brotin hafi verið framin af ásetningi í skiln- ingi samkeppnislaga,“ segir í úr- skurðinum og er vísað þar m.a. til tölvupósta sem bárust þáverandi for- stjóra, Höskuldi H. Ólafssyni, og fleiri stjórnendum frá fjármálasviði Valitors varðandi færsluhirðingu kreditkorta hjá einstökum fyrirtækj- um. Bera fullt traust til Höskuldar Valitor er dótturfélag Arionbanka. Ekki fengust svör frá Höskuldi í gær við þeirri spurningu hvort hann teldi viðeigandi að hann gegndi störfum áfram í bankanum, í ljósi niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins. Hins vegar barst eftirfarandi svar frá stjórnar- formanni Arionbanka, Monicu Cane- man: „Málið snýr að fyrirtækinu Valitor og er á forræði þess. Valitor er að meirihluta til í eigu Arion banka en að félaginu koma fleiri hluthafar og hef- ur það sjálfstæða stjórn sem fer með málið. Ágreiningur er um ákvörðun Samkeppniseftirlitsins og hefur Valitor ákveðið að skjóta henni til áfrýjunarnefndar sam- keppnismála. Stjórn Arion banka hefur frá því í að- draganda ráðningar Höskuldar H. Ólafssonar til bankans verið upp- lýst um málið og fram- gang þess og ber stjórn bankans fullt traust til Höskuldar og hans starfa fyrir bankann.“ Alvarleg brot af ásetningi  Samkeppniseftirlitið telur Valitor hafa vitað vel að fyrirtækið væri að brjóta samkeppnislög  Brot framin af ásetningi þyngdu viðurlögin  500 milljóna sekt  Valitor áfrýjar úrskurðinum Morgunblaðið/Árni Sæberg Kort Samkeppniseftirlitið telur Valitor hafa misnotað markaðsráðandi stöðu með undirverðlagningu í færsluhirðingu korta og posaleigu. „Ég er ekki sammála Sam- keppniseftirlitinu, sem mér finnst ganga hart fram, og játa ég að niðurstaðan kemur mér á óvart. Ég hafna öllu tali um ásetning sem og brot á sátt,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, forstjóri Arion banka, í tölvu- pósti til Morgunblaðsins, spurð- ur um viðbrögð við niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins (SE) en Höskuldur var forstjóri Valitor á árunum 2006-2010. „Í kjölfar og í tengslum við sátt Valitor við SE árið 2008 var gengið í margvíslegar breyt- ingar á umbrotatímum. Málið er flókið og hefur tekið lang- an tíma í meðförum SE sem og hefur málatilbúnaður all- ur tekið miklum breytingum frá því það kom fram. Ég tel ekki rétt að tjá mig frekar þar sem málið er í ágreinings- farvegi,“ segir Höskuldur enn- fremur í svarinu til blaðsins. Hafnar tali um ásetning FV. FORSTJÓRI VALITOR Höskuldur H. Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.