Morgunblaðið - 16.04.2013, Side 19
Stiklað á stóru í aðildarferlinu
28. maí 2009
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
leggur fram þingsályktunartillögu á Alþingi
um að Íslandi sæki um aðild að ESB.
17. apríl 2009
Umsókn um aðild að ESB er helsta
kosningamál Samfylkingarinnar. Árni Páll
Árnason boðaði hraðferð inn í sambandið.
Þannig sagði hann 17. apríl 2009: „Verði
umsókn send strax í maí, viðræður við ESB
hefjist í byrjun júní í ár og samningar takist
á stysta tíma sem hægt er að hugsa sér eða
innan við 12 mánuðum þá myndi samningur
liggja fyrir snemma sumars 2010.“ Nokkrum
dögum síðar hafði Jóhanna Sigurðardóttir
eftir „forsvarsmönnum Evrópusambandsins“
að „innan árs, kannski 18 mánaða,
mundum við geta orðið fullgildir aðilar að
Evrópusambandinu“.
23. júlí 2009
Össur afhendir Carl Bildt, utanríkisráðherra
Svíþjóðar og þáverandi formanni ráðherraráðs
ESB, umsókn Íslands að ESB.
27. júlí 2009
Ráðherraráð ESB, sem í eiga sæti
utanríkisráðherrar aðildarríkjanna,
samþykkir að vísa umsókn Íslands til
framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
22. október 2009
Íslensk stjórnvöld skila inn svörum við
spurningalista framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins.
2. og 4. nóvember 2009
Utanríkisráðherra felur Stefáni Hauki
Jóhannessyni sendiherra að vera
aðalsamningamaður Íslands.
Ráðherra skipar samninganefnd Íslands
tveim dögum síðar.
9. desember 2009
Samningahópar Íslands skipaðir.
24. febrúar 2010
Framkvæmdastjórn ESB gefur út álit um
aðildarumsókn Íslands að ESB.
17. júní 2010
Leiðtogaráð ESB samþykkir að hefja viðræður.
Mbl.is ræðir við Össur og ítrekaði hann við
það tilefni að ESB-umsóknin og Icesave-
deilan væru aðskildir hlutir. Daginn eftir
ræddi Morgunblaðið við blaðamann hjá EU
Observer sem hafði það gagnstæða eftir
áhrifamönnum í Brussel.
27. júní 2010
Ríkjaráðstefna ESB og Íslands í Brussel
markar upphaf aðildarviðræðna. Þáverandi
stækkunarstjóri sambandsins, Stefan Füle,
segir ekki hægt að veita neinar varanlegar
undanþágur frá lögum sambandsins. Hvorki
utanríkisráðherra Íslands né fulltrúar
Evrópusambandsins vildu gefa neitt út um
það hvenær aðildarviðræðum gæti lokið.
15. nóvember 2010
Rýnivinna Íslands og ESB hefst með
rýnifundum íslenskra sérfræðinga og
sérfræðinga framkvæmdastjórnar ESB til
undirbúnings samningaviðræðum um aðild
Íslands að ESB.
15. desember 2010
Hinn 15. desember 2010 taldi Össur
hugsanlegt að makríldeilan myndi „virka eins
og möl á gangvirkið“ í aðildarviðræðunum við
ESB. Það væri þó ekki víst.
22. maí 2011
Össur segir að hugsanlega verði hægt að
ljúka viðræðunum seint á árinu 2012 og því
ekki hægt að útiloka að hægt yrði að halda
þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn í lok
árs 2012. Raunhæfara væri þó að sú kosning
færi fram síðar eða á árinu 2013.
Júní 2011
Össur segir á blaðamannafundi í Brussel að
stefnt sé að því að ljúka viðræðum árið 2012
en hann var þar í tilefni af upphafi formlegra
aðildarviðræðna við ESB.
22. júní 2011
Rýnivinnu lýkur. Sérfræðingar frá Íslandi
og ESB hafa borið saman löggjöf í þeim 33
efnisköflum sem aðildarviðræðurnar munu
snúast um. Á vef utanríkisráðuneytisins segir
að fyrir liggi að Ísland hafi þegar tekið upp
Evrópulöggjöf að öllu eða mestu leyti í 21 kafla
í gegnum þátttöku sína í EES-samstarfinu.
27. júní 2011
Efnislegar samningaviðræður hefjast. Tekin er
ákvörðun um að hefja viðræður í fjórum fyrstu
samningsköflunum.
28. júní 2011
Össur segir í samtali við Euronews að
erfitt sé að segja til um hvenær viðræðum
við ESB ljúki. Allt muni þetta velta á
viðræðum um sjávarútvegsmál. Hann telur
mögulegt að viðræðum ljúki 2012 og að
þjóðaratkvæðagreiðsla um samning fari fram
fyrir lok ársins.
7. nóvember 2011
Össur skipar formann og varaformenn
samráðshóps í tengslum við
samningaviðræður við ESB.
12. desember 2011
Þriðja ríkjaráðstefna Íslands og
Evrópusambandsins fór fram í Brussel. Össur
tekur þátt í henni fyrir hönd Íslands. Þar
var fjallað um fimm samningskafla og lauk
viðræðum um fjóra þeirra.
21. janúar 2012
Evrópustofa opnuð á Suðurgötu.
25. janúar 2012
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og
nýsköpunarráðherra, heldur til Brussel.
Steingrímur fundar þar með fulltrúum úr
framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Hitti
hann m.a. Stefan Füle, framkvæmdastjóra
stækkunarmála sambandsins, Mariu
Damanaki, framkvæmdastjóra
sjávarútvegsmála, sem og Dacian Ciolos,
framkvæmdastjóra landbúnaðarmála.
14. mars 2012
Evrópuþingið samþykkir ályktun sem
snýr að samþykkt þingsins á skýrslu
framkvæmdastjórnar ESB um framvindu
samningaviðræðna Íslands og ESB um aðild
að sambandinu. Þar með lýkur umræðu um
framvinduskýrsluna.
30. mars 2012
Samningaviðræður hefjast um fjóra
samningskafla í viðræðunum á ríkjaráðstefnu
í Brussel. Viðræðum lauk samdægurs um
tvo þeirra, þ.e. um utanríkis-, öryggis-
og varnarmál, og um neytendamál og
heilsuvernd. Hinir kaflarnir fjalla um
samkeppnismál og orkumál.
8. júní 2012
Opnunarviðmið í byggðamálum uppfyllt.
10. október 2012
Opnunarviðmið í landbúnaðarmálum uppfyllt
af hálfu íslenskra stjórnvalda.
14. apríl 2013
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar,
telur að viðræðum geti lokið fyrir árslok 2014.
16. júlí 2009
Meirihluti þingmanna áAlþingi samþykkir
að leggja fram umsókn um aðild að ESB.
Fimm þingmennVG sögðu nei í atkvæða-
greiðslunni; Atli Gíslason,Jón Bjarnason,
Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ásmundur Einar
Daðason og Þuríður Backman.Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir sat hjá.Allir 20 þingmenn
Samfylkingar sögðu já. Fimm þingmenn í
stjórnarandstöðunni sögðu já; Ragnheiður
Ríkharðsdóttir, Sjálfstæðisflokki, Guðmundur
Steingrímsson, Siv Friðleifsdóttir og Birkir
Jón Jónsson, öll Framsóknarflokki, og Þráinn
Bertelsson í Borgarahreyfingunni. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, Sjálfstæðisflokki, sat hjá.
Alls sögðu 33 þingmenn já, 28 nei og 2 sátu hjá.
7. maí 2012
Timo Summa,
sendiherra
ESB á Íslandi,
opnar útibú frá
Evrópustofu á
Akureyri. Efnt
er til sýningar á
veggspjöldum
frá ESB af þessu
tilefni í höfuðstað
Norðurlands.
31. desember 2011
Jón Bjarnason hættir sem sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra. Hann tengir brotthvarfið
við óánægju ESBmeð störf hans.
9. september 2009
Spurningalisti ESB
afhentur íslenskum
stjórnvöldum. Olli
Rehn, þáverandi
stækkunarstjóri
sambandsins, afhendir
Jóhönnu Sigurðardóttur
lista með 2.500
spurningum.
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Á fallegum og notalegum stað
á 5. hæð Perlunnar
Aðeins 2.150 kr. á mann
Næg bílastæði
ERFIDRYKKJUR
Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is
Pantanir
í síma
562 0200