Morgunblaðið - 16.04.2013, Page 20
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Mikill viðbúnaður er í Boston-borg í
Bandaríkjunum eftir að tvær
sprengjur sprungu rétt við marklín-
una í Boston-maraþoninu í gær-
kvöldi. Ríkislögreglan sem og þjóð-
varðlið Massachusett-ríkis voru
kölluð út í kjölfar sprenginganna.
Lögreglustjóri Boston-borgar hvatti í
gærkvöldi íbúa borgarinnar til að
halda sig innandyra og sagði að ferða-
menn ættu að halda sig inni á þeim
hótelum sem þeir gista á. Upphaflega
var tilkynnt um þriðju sprenginguna
á John F. Kennedy bókasafninu en
eftir því sem leið á kvöldið kom í ljós
að þar var um að ræða bruna ótengd-
an tilræðunum við marklínu mara-
þonsins.
Þá gáfu flugmálayfirvöld í Banda-
ríkjunum út flugbann yfir svæðið þar
sem sprengingarnar áttu sér stað en
bannað er að fljúga undir þrjú þús-
und feta hæð yfir svæðinu. Ekki ligg-
ur fyrir hvenær flugbanninu verður
aflétt.
Þjóðin stendur með Boston
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, sagði á blaðamannafundi í
Hvíta húsinu í gærkvöldi að enn væri
margt óljóst varðandi sprengingarn-
ar. Þar kom fram að ekki væri vitað
hverjir stæðu á bak við þessi voða-
verk og bað Obama fólk um að draga
ekki ályktanir fyrr en það væri komið
í ljós. Hann lagði hinsvegar áherslu á
að þeir sem stæðu að tilræðinu
myndu nást og yrðu dregnir til
ábyrgðar. Að sögn Obama höfðu for-
setahjónin beðið fyrir íbúum Boston-
borgar, þá sagði hann alla bandarísku
þjóðina standa að baki borgarbúum.
Í ávarpi Obama kom jafnframt
fram að öryggisráðstafanir yrðu
hertar í Bandaríkjunum í kjölfar
sprenginganna. Þá þakkaði forsetinn
borgaryfirvöldum, lögreglu og
sjúkraliðum fyrir það hversu hratt
brugðist var við tilræðinu. Auk þess
greindi forsetinn frá því að hann
hefði rætt við Tom Merino, borgar-
stjóra Boston-borgar, og Deval Pat-
rick, ríkisstjóra Massachusetts, og
boðið þeim aðstoð af hálfu alríkis-
stjórnarinnar.
Að minnsta kosti 23 slasaðir
Í ýmsum bandarískum fjölmiðlum
í gær var rætt um tilræðið sem
hryðjuverk en það hefur þó ekki
fengist staðfest af hálfu yfirvalda.
Hinsvegar hefur verið staðfest að
tveir létust í sprengingunum. Ein-
hverjir fjölmiðlar hafa greint frá því
annað fórnarlambið sé átta ára barn
en það hefur þó ekki fengist staðfest
af lögregluyfirvöldum. Þá slösuðust í
hið minnsta 23 í sprengingunum en
sumir fjölmiðlar telja þó að meira en
130 manns hafi þurft að leita sér
sjúkraaðstoðar. Þá hafði CNN í gær-
kvöldi eftir sjúkrahúsum í borginni
að 82 manns hefðu leitað sér lækn-
ishjálpar á sjúkrahúsum Boston.
Stórauknar öryggisráðstafanir
Þá hafa öryggisráðstafanir verið
auknar víða annars staðar í Banda-
ríkjunum. Jafnframt rannsakaði lög-
reglan í borginni í gærkvöldi hvort
fleiri sprengjur væru að finna annars
staðar í Boston-borg.
CNN hafði það eftir Michael
Bloomberg, borgarstjóra New York-
borgar, í gærkvöldi að um eitt þús-
und lögreglumenn í borginni hefðu
verið settir á sérstaka vakt til varnar
hryðjuverkum. Þá mun lögreglan í
Miami-borg í Flórídaríki í Banda-
ríkjunum hafa aukið öryggisráðstaf-
anir við mikilvægar samgöngubygg-
ingar. Jafnframt hefur lögreglan í
Los Angeles-borg óskað eftir því að
fólk tilkynni til lögreglu ef það verð-
ur vitni að einhverju grunsamlegu.
Þá hafa borgaryfirvöld í London
ákveðið að auka viðbúnað í borginni
vegna maraþon-hlaups sem þar fer
fram næstkomandi sunnudag.
Gríðarlegur viðbúnaðu
Obama segir að sökudólgarnir muni
nást og að þeir verði dregnir til ábyrgðar
AFP
Voðaverk Íbúar borgarinnar voru harmi lostnir í kjölfar sprenginganna
tveggja. Forsetinn sagði alla þjóðina standa með borgarbúum Boston.
Hvíta húsið Mikill viðbúnaður var við Hvíta húsið í Washington-borg í gær-
kvöldi og höfðu lögreglumenn lokað af svæðið í kringum húsið.
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Ta
kt
ik
/
38
79
/
no
v
12
Pöntunarsími: 535 1300
Allt fyrir verslanir
Draghálsi 4 - 110 Reykajvík
Sími: 535 1300 - Fax: 535 1305 - verslun@verslun.isFjöldi samsetningarmöguleika
æðáðöþ ðæð öáá æýð óð
ðáæð Grænmetishillur
Innkaupavagnar - ýmsar stærðir
Kæli- og frystitæki
Framstillingakælir - 5 stærðir.
Einn vinsælasti kælirinn í dag.
Kælir - 370 ltr. -
+2/+12 - LED lýsing -
Stærð 2015 x900 x
840
Lagervagn með körfu
Kæli- og frystiklefar
burðargeta 2,3 tonn
Verslunarhillur
Kassaborð
Kjöt- og fiskborð
Brettatjakkur
Tilboðsskilti
innkaupakörfur
Sprengingar í Boston