Morgunblaðið - 16.04.2013, Page 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Hryðjuverkamenn í Írak efndu til árása á mörgum stöð-
um í Írak í gærmorgun og virtust þær hafa verið sam-
ræmdar, að sögn Wall Street Journal. Vitað var um 37
fallna eftir fjölda sprengjutilræða í Bagdað og fleiri borg-
um, vel á þriðja hundrað særðist. Víst þykir að öfl á veg-
um al-Qaeda hafi verið á bak við árásirnar og þær tengist
héraðs- og sveitarstjórnarkosningum í 12 af 18 héruðum
Íraks á laugardaginn.
Tuttugu bílsprengjur sprungu á háannatíma þegar fólk
var á leið til vinnu. Markmiðið er að trufla kosningarnar
og jafnvel ýta undir svo mikinn óstöðugleika og ótta að
ekkert verði úr þeim. Kosningarnar verða þær fyrstu eft-
ir að bandaríski herinn yfirgaf endanlega landið og ljóst
að reyna mun á það hvort stjórn Nuri al-Malikis forsætis-
ráðherra getur tryggt öryggi almennings á kjörstöðum.
Árásir og tilræði hafa að undanförnu orðið fjórtán fram-
bjóðendum að bana í landinu.
Nokkur tilræðanna voru í Kirkuk og Tuz Khurmatu
sem eru á svæði er teygir sig frá landamærunum að Íran
að Sýrlandi að vestanverðu. Það er auðugt af olíu og að
miklu leyti byggt Kúrdum sem eru um 20% þjóðarinnar
en sjía-arabar eru ráðandi í ríkisstjórninni í Bagdað. Sjít-
arnir er rösklega helmingur allra íbúa Íraks, aðrir eru
flestir súnnítar. Bæði Kúrdar og ríkisstjórnin gera tilkall
til olíunnar á svæðinu og hafa ekki náðst samningar um
skiptingu teknanna. Deilan er oft talin vera hættulegri en
allur annar ágreiningur í Írak og sögð geta klofið landið.
Samræmdar árásir í Írak
Herskáir íslamistar reyna að trufla fyrirhugaðar kosningar á laugardag
Samstarf yfir landamæri
» Írösk stjórnvöld eiga sam-
starf við stjórn Bashars al-
Assad Sýrlandsforseta en sjít-
ar eru tengdir alavítum, trú-
flokki Assads.
» Embættismenn í Bagdað
segja liðsmenn al-Qaeda eiga
samstarf við íslamista í Sýr-
landi er berjast gegn Assad.
Embættismenn í Rússlandi hóta að
banna ferðir járnbrautarlesta með
svefnklefum frá Tadsjikistan í Mið-
Asíu til landsins. Ástæðan er sögð
hrikalegur óþrifnaður um borð í
lestunum en einnig fíkniefnasmygl.
Dmítrí Rogozín aðstoðarforsæt-
isráðherra var harðorður eftir að
hafa skoðað eina lestina, að sögn It-
ar-Tass-fréttastofunnar. Hann
sagði að ástandið í hreinlæt-
ismálum væri þannig að lestin væri
ógn við heilbrigði þjóðarinnar.
„Það er ekki hægt að leyfa ferðir af
þessu tagi til siðaðra landa,“ sagði
hann. kjon@mbl.is
Burt með skítugar
lestir Tadsjika!
RÚSSLAND
Ný könnun í
Bretlandi sýnir
að tveim af
hverjum þrem
börnum finnst að
þrýst sé á sig um
að svindla í
íþróttum til að
sigra, að sögn
BBC. Allt snúist
um að vinna,
hvað sem það kosti. Þriðjungur
sagðist ekki skammast sín fyrir að
sigra með sviksamlegum hætti.
kjon@mbl.is
Börnin svindla á
íþróttavellinum
Barist í ruðningi.
BRETLAND
Enn er mikill ís víða á Eystrasalti
og fólk hefur sums staðar lent í
hættu þegar það fer út á jaka sem
rekur burt. Á sunnudaginn rak
maður augun í hund á ísjaka langt
utan við smábátahöfn í Öregrund á
austurströnd Svíþjóðar, að sögn
Dagens Nyheter. Hvutti lagði ekki í
að synda til lands enda mikið ís-
hröngl á leiðinni. Maðurinn hringdi
í björgunarmenn. Þegar þeir nálg-
uðust stökk hundurinn í sjóinn en
var bjargað. Í ljós að hann hafði
verið týndur í nærri viku.
kjon@mbl.is
Hundur með níu líf
eins og kötturinn?
SVÍÞJÓÐ
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Íslamistar ofsækja nú kristin þjóð-
arbrot víða í Mið-Austurlöndum og
segja heimildarmenn að þróunin sé
ískyggileg. Fréttamaður danska
blaðsins Berlingske Tidende segir
að talið sé að um 75% allra þeirra
sem ofsóttir eru núna vegna trúar
sinnar í heiminum séu kristnir og í
Jyllandsposten kemur fram að
mörg þúsund láti lífið ár hvert.
Kristnir voru víðast meirihluti
íbúa arabaríkja áður en íslam kom
til sögunnar á sjöundu öld. Um
milljón kristinna bjó í Írak 2003 en
tveir af hverjum þremur hafa flúið
eftir fall Saddams Husseins. Sama
þróun er í Líbanon og Sýrlandi þar
sem búa milljónir kristinna og
Egyptalandi, þar eru þeir um átta
milljónir.
Gleymdu áhrifum trúarbragða
Peter Lodberg, lektor í guðfræði
við Árósaháskóla, segir ástandið
sérlega slæmt í Egyptalandi og
Nígeríu og er svartsýnn. Menn hafi
vonað að nóg væri að steypa alræð-
isstjórnum, þá myndi lýðræði vaxa
og dafna eins og gerðist í V-Þýska-
landi eftir stríð. „En þetta gerist
alls ekki í Mið-Austurlöndum,“ seg-
ir Lodberg. „Þetta var rangt af því
að menn tóku ekki tillit til þess
hlutverks sem trúin gegnir í stjórn-
málunum.“
Villy Søvndal, utanríkisráðherra
Danmerkur, segir stöðu kristinna í
Egyptalandi, Írak og Sýrlandi mjög
slæma. Virði ráðamenn ekki mann-
réttindi vill hann láta skera niður
aðstoð til umræddra ríkja.
Vaxandi ofsóknir
gegn kristnum
Milljónir þeirra
hafa flúið Írak og
fleiri arabalönd
Þjóðarbrot Kristnir Egyptar, kopt-
ar, mótmæla ofsóknum og morðum.
Norður-Kóreumenn minntust þess í
gær að 101 ár var lið frá fæðingu
stofnanda kommúnistaríkisins, Kim
Il-sungs. Götur Pjongjang voru
skrýddar fánum og áróðursspjöldum
og persónudýrkun leiðtoganna var í
algleymingi, að sögn erlendra frétta-
ritara.
Heilaþvottinum sem börn í land-
inu verða fyrir er lýst í frétt CNN.
Daniel Choi, sem ólst upp í N-Kóreu,
segir að í skólanum hafi þau verið
látin kasta steinum sem áttu að
tákna handsprengjur, ímynduð skot-
mörk voru bandarískir hermenn.
Sungin voru hetjuljóð um kraftaverk
leiðtoganna og börnin látin hneigja
sig fyrir styttum af þeim. Ættingjar
barna sem neituðu voru sendir á
samyrkjubú á köldum svæðum.
Miklar vangaveltur hafa verið um
að N-Kóreumenn myndu skjóta á
loft meðaldrægri eldflaug í tilefni af-
mælisins en þeir hafa síðustu vikurn-
ar hótað S-Kóreu, Japan og Banda-
ríkjunum kjarnorkuárás. Ekki sáust
þó nein merki um það síðdegis í gær
að af því yrði. kjon@mbl.is
Afmæli Kim Il-sungs fagnað
Engin merki um að
skotið yrði upp eld-
flaug í tilraunaskyni
AFP
Andúð S-Kóreumenn brenna brúðumyndir af leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong-un, föður hans og afa á útifundi í
Seoul í gær. Herinn er í viðbragðsstöðu vegna ítrekaðra hótana norðanmanna síðustu vikurnar um kjarnorkuárás.