Morgunblaðið - 16.04.2013, Page 29

Morgunblaðið - 16.04.2013, Page 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013 ✝ Jón Rafn Guð-mundsson fæddist í Reykjavík 19. apríl 1928. Hann andaðist á Hrafnistu í Hafnar- firði 7. apríl 2013. Foreldrar hans voru hjónin Guð- mundur Þorsteins- son, f. í Reykjavík 1893 og Guðrún Jónsdóttir, f. að Höfðabrekku í Mýrdal 1900. Systkini Jóns Rafns voru Viktor Gústaf Adolf (samfeðra), f. 1912, dáinn 1996, Sigríður, f. 1917, dá- in 2005, Guðrún, f. 1921, dáin 1998, Sólveig, f. 1922, dáin 2006, Óskar, f. 1925, Ólafur, f. 1930 og Kristrún, f. 1933, dáin 1983. Jón Rafn kvæntist æskuást- inni sinni, Kristínu Jóhanns- dóttur, f. 1928, hinn 15. okt. 1949. Hún er dóttir hjónanna Jó- hanns Gíslasonar og Ragnheið- ar Þórðardóttur. Börn Jóns Rafns og Kristínar eru 1) Guðrún, f. 1950, gift Lud- wig H. Gunnarssyni, f. 1945. Sonur þeirra er Guðmundur Geir, f. 1966 og dóttir þeirra er Þóra Kristín, f. 1982. Hún er gift Davíð Þór Marteinssyni og eiga þau tvær dætur. 2) Rannveig, f. Þau fjögur ár sem hann var í Verslunarskólanum vann hann með náminu sem sendill og fékk síðan skrifstofustarf hjá bókaút- gáfunni Norðra þegar hann lauk prófi. Árið 1947 var hann síðan ráðinn til Samvinnutrygg- inga og vann þar frá stofnun fé- lagsins sem deildarstjóri og síð- ar aðstoðarframkvæmdastjóri næstu áratugina. Frá 1983 vann hann síðan við tryggingaráðgjöf fyrst hjá SÍS og síðar á eigin vegum. Jón Rafn var félagslyndur, hafði mikinn áhuga á þjóð- málum og ferðaðist víða, bæði vegna vinnunnar og í frítíma sínum. Hann átti sér mörg áhugamál, m.a. lestur, spila- mennsku og fjallgöngur. Hann var frímúrari frá 1955 og einn af stofnendum stúkunnar Gimli. Hann starfaði mikið með Sam- bandi ungra framsóknarmanna og var m.a. formaður þess um tíma. Hann var einn af stofn- endum Varðbergs, félags ungra áhugamanna um vestræna sam- vinnu og sat í fyrstu stjórn þess. Eftir að hann komst á eftir- launaaldur fékk hann mikinn áhuga á heimspeki og sótti tíma í háskólanum til að fræðast meira. Einnig var hann í kór eldri borgara, en hann hafði alla tíð áhuga á söng. Útför Jóns Rafns fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 16. apríl 2013, og hefst athöfnin kl. 13. 1954, gift Þórði Óskarssyni, f. 1955. Dætur þeirra eru a) Ragnheiður Ósk, f. 1982. Sambýlis- maður hennar er Gunnar Páll Leifs- son og eiga þau tvö börn. b) Arna Vala, f. 1986, hún á einn son og c) Tinna Kristín, f. 1987. 3) Ragnar Jóhann, f. 1956, kvæntur Önnu Maríu Þórðardóttur f. 1956. Synir þeirra eru a) Þórður Rafn, f. 1976, hann er kvæntur Stein- unni Önnu Sigurjónsdóttur og eiga þau þrjú börn. b) Jón Rafn, f. 1979, sambýliskona hans er Ellen María Sveinbjörnsdóttir og eiga þau tvö börn. c) Atli Þór, f. 1983, kvæntur Ragnheiði Ragnarsdóttur og eiga þau einn son. Jón Rafn ólst upp í miðbæ Reykjavíkur, var góður náms- maður, gekk í Miðbæjarskólann og Austurbæjarskólann og lauk síðan skólagöngu sinni frá Verslunarskólanum 1946. Á sumrin fór hann í sveit í Mýrdal- inn og næstum hvert haust þeg- ar hann kom aftur í bæinn hafði fjölskyldan skipt um húsnæði. Það er eðlilegur gangur lífsins að horfa á eftir foreldrum sínum hverfa til austursins eilífa, en það er samt alltaf þungbært að kveðja eftir langa samveru á lífs- ins vegi. Minningar bernskunnar streyma fram. Minningar sem hafa mótað viðhorf, afstöðu og lífssýn og gert mann að betri manni en annars hefði orðið. Pabbi minn var geðgóður maður og hafði mikið jafnaðargeð. Það var alltaf auðvelt að leita eftir góðum ráðum, aðstoð og stuðn- ingi þegar á þurfti að halda, hvort sem það var við nám, starf eða leik. Hann var alltaf til stað- ar þegar á reyndi. Án foreldra minna væri ég örugglega ekki það sem ég þó er. Pabbi minn var jafnaðar- og samvinnumaður og áhugamaður um vestræna samvinnu. Lengst af vann hann hjá Samvinnu- tryggingum, félagi í eigu trygg- ingatakanna sjálfra. Þar var jafnaðar- og samvinnuhugsjónin í sinni einföldustu mynd grund- völlur starfseminnar. Menn söfnuðu í sameiginlega sjóði með það að markmiði að jafna fjár- hagsleg áföll sín á milli. Þetta er okkur framandi hugsun á fyrri hluta 21. aldar, þar sem slík starfsemi hefur ímynd harðra viðskipta og sameiginlegir sjóðir og eignir tryggingatakanna hafa verið lagðar undir í áhættusamri græðgisvæðingu. Pabbi minn hafði dálæti á náttúru og ekki síður hrikalegri fegurð landsins. Hann hafði gaman af að ferðast, hvort sem það var innanlands eða erlendis, þó hann væri ekki útivistamaður í þeim skilningi. Hann lagði sig fram um að sýna erlendum gest- um helstu perlurnar og þær voru ekki ófáar ferðirnar sem við systkinin fórum með foreldr- um okkar um landið, sveitir þess og til útlanda. Síðar bættust tengdabörnin, barnabörnin og barnabarnabörnin í hópinn, sem hann hafði mikið dálæti á og naut mikið, ekki síst ef sest var niður eftir góðan dag og/eða góða máltíð og jafnvel tekið í spil með tilheyrandi skemmtun og léttleika. Íslensk tunga var hon- um ávallt hugleikin og þó það væri ekki mín sterka hlið þá lærðist manni að bera virðingu fyrir henni og leggja sig fram við að vanda mál sitt. Pabbi minn átti við heilabilun að stríða síðustu árin. Sjúkdóm sem tekur á, bæði fyrir sjúkling- inn og aðstandendur. Þetta hef- ur reynt verulega á mömmu og ekki alltaf verið auðvelt, þrátt fyrir æðruleysi og jafnaðargeð pabba. Sjúklingurinn fjarlægist mann hægt en bítandi með tím- anum, óöryggið vex, kveðju- stundin tekur langan tíma og hin endanlega kveðjustund verður manni óljós. Mamma sér nú á eftir lífsföru- naut sínum til 67 ára. Þrátt fyrir langan og fyrirsjáanlegan að- draganda er ljóst að þetta er henni erfið stund. Hvíld hans eftir erfið og langvinn veikindi er okkur hins vegar bæði hugg- un og styrkur. Fyrir hönd aðstandenda vil ég þakka öllum starfsmönnum, bæði dagvistunar Hafnarfjarðar og Hrafnistu í Hafnarfirði, sem annast hafa pabba undanfarin misseri og ár, fyrir góða og hlýja umönnun við erfiðar aðstæður og þröngan kost. Við Anna kveðjum pabba með söknuði, þakklæti og kærleika. Hvíli hann í friði og megi góður Guð gæta hans og minning hans vera okkur styrkur í sorg okkar og söknuði. Ragnar Jóhann. Tengdafaðir minn, Jón Rafn Guðmundsson, er fallinn frá tæplega 85 ára gamall. Við leið- arlokin er bundinn endi á nær 30 ára kynni sem alla tíð einkennd- ust af hlýhug og virðingu og bar aldrei neinn skugga þar á. Í minningunni eru fyrstu kynni um rólyndan og virðuleg- an mann. Með tíð og tíma varð myndin skýrari. Í ljós kom mað- ur sem var spurull, forvitinn og íhugull. Orðabókin og ýmsar handbækur voru gjarnan innan seilingar því að spurningar þurftu svör. Hann var áhuga- samur um tungumálið, las tölu- vert; hann strikaði gjarnan und- ir það sem honum þótti athyglisvert og skrifaði athuga- semdir á spássíur. Einnig fékkst hann við, að minnsta kosti um skeið, að þýða texta úr ensku sér til dægrastyttingar. Þá hafði hann gaman af alls kyns glímum við tungumálið, svo sem að ráða krossgátur og að smíða ný orð fyrir málið sem var honum kært. Hann fékkst einnig eitthvað við skriftir. Fyrir nokkru rakst ég á smásögu sem nefnist Veðmálið en hana skrifaði hann 23 ára gamall og birtist hún í Samvinn- unni í upphafi sjötta áratugar- ins. Einnig er mér kunnugt um að hann skrifaði um ýmislegt sem tengdist tryggingum sem lengstum voru hans helstu við- fangsefni á starfsævinni. Á efri árum sótti hann námskeið í ljóðagerð. Í kveri sem nefnist Gjábakkaþulur og er frá árinu 2001 má finna þetta litla prósa- ljóð eftir Jón, en það nefnist Draumur: „Í morgundraumnum mínum hitti ég fyrir hamingjuna og hún sagðist vera í önnum en hélt að veðráttan og mann- kynið væru henni ekki hagstæð. Hún sagði mér prívat að þeir sem hún settist að hjá væru þeir sem tekst oft- ast að gera eitthvað fyrir aðra og þeir sem hafa eitthvað til að hlakka til.“ Ungviðið kom hann fram við sem jafningja og hafði ávallt tíma til að spjalla, spila og tefla. Sérlega hafði Jón mikið yndi af að spila. Alltaf var tekið í spil, gjarnan spiluð kanasta hvort sem var í heimsóknum eða sum- arbústaðaferðum. Jafnan beið hann óþreyjufullur eftir að spila- mennska gæti hafist. Ekki var fengist um þó að gerðar væru skyssur í spilamennskunni. Áhuginn hélst meðan kraftar leyfðu. Í heimsóknum Jóns og Krist- ínar til okkar Rannveigar minnt- ist hann yfirleitt alltaf á hve ein- stakt útsýnið út um stofugluggana væri, Elliðavatnið og fjallasýnin. En svo kom að því að athyglin fyrir umhverfinu dofnaði og Jón varð hljóður og hann hætti að minnast á hið ein- staka útsýni. Það var ljóst í hvað stefndi. Síðustu æviárin lifði hann í skugga óminnis sem að lokum náði algjörri yfirhönd. Síðasta handartakið var inni- legt; hann tók þéttingsfast með báðum höndum um hönd mína þegar ég kvaddi hann. Þrátt fyr- ir að spurnin í augunum gæfi til kynna að hann þekkti mig ekki þegar ég heilsaði honum við komuna benti kveðjan til annars. Í mínum huga núna var þannig komið að hann skynjaði sjálfur að brátt væri komið að leiðarlok- um. Kristínu tengdamóður minni, börnum þeirra Jóns og öðrum aðstandendum votta ég samúð mína. Megi minningin um vænan mann vaka í hugum okkar. Þórður Óskarsson. Frá því að ég fékk minn fyrsta GSM-síma í lok síðustu aldar hefur afi Jón alltaf verið fremstur í símaskránni og þegar ég fékk símann á mínum há- skólaárum leitaði ég mikið til hans, sérstaklega þar sem hann hafði alltaf mikinn áhuga á ís- lensku máli og gat þar hjálpað mér talsvert. Þegar ég vann að minni kandídatsritgerð við Há- skóla Íslands las hann þá löngu lesningu spjaldanna á milli fyrir mig og voru þær ófáar komm- urnar sem ég skráði eftir hans yfirlestur. Afi Jón var mjög ná- kvæmur og gott að vinna með honum. Hann var mikill grúsk- ari og það var ósjaldan sem hann greip í alfræðiorðabókina hans föður míns þegar hann var í heimsókn fyrir norðan. Foreldrar mínir skírðu mig Jón Rafn eftir afa Jóni og hef ég alltaf verið mjög stoltur af því að vera nafni hans og litið upp til hans. Okkur hefur ósjaldan ver- ið líkt saman, bæði í gamni og al- vöru og mér þykir afar vænt um það. Mínar fyrstu minningar um hann afa minn eru þegar hann og amma bjuggu í Asparlundi í Garðabæ og í minningunni var ég alltaf að fara út á Keflavík- urvöll að sækja ömmu og afa þar sem þau voru að koma frá út- löndum. Líklega var það nú ekki eins oft og minnið bendir til, en það var ávallt hátíð þegar þau komu tilbaka úr sínum ferðum. Ég man líka vel eftir því þegar ég sat á gólfinu í Asparlundi og skoðaði heimsins flottustu tafl- menn sem hann afi átti ofan í skúffu. Það voru nokkurs konar Napóleons-taflmenn og sá mað- ur fyrir sér ýmis ævintýri áður en maður fór að nota þá í sínum eiginlega tilgangi. Afi Jón hafði mjög gaman af því að spila og tefla og við bræðurnir vorum ekki orðnir mjög gamlir þegar við vorum farnir að taka þátt í spilum á kvöldin með foreldrum okkar og afa Jóni og ömmu Stínu. Það var alltaf mjög gaman á slíkum kvöldum og oft haldið áfram langt inn í nóttina og mik- ið hlegið. Ég geymi góðar minningar um hann afa Jón minn en hann var mikið veikur síðustu ár ævi sinnar. Sjúkdómur hans læddist smám saman upp að manni og vegna hans veikinda fjarlægðist hann okkur hægt og hljótt. Börnin mín náðu því miður ekki að kynnast honum eins og ég kynntist honum. Mér fannst allt- af notalegt að sjá gleðisvipinn á afa þegar við komum í heimsókn til hans og ömmu síðustu árin. Nú er elsku amma Stína orðin ein eftir en 23.185 sinnum kom sólin upp og settist á þeim tíma sem þau voru hjón. Það eru því eflaust margar minningar sem standa eftir allan þennan tíma. Megi góður Guð styrkja þig, amma mín, en afi hvílir nú í friði og ég veit að hjá Guði líður afa mínum vel. Jón Rafn Ragnarsson. Okkur systurnar langar að skrifa nokkur orð til að minnast þín, elsku afi. Við eigum mikið af góðum minningum um þig, sér- staklega úr æsku. Allar sum- arbústaðaferðirnar með mömmu, pabba, þér og ömmu, hvað það var alltaf miklu skemmtilegra að fara með ykkur í bíl en mömmu og pabba. Í þess- um bílferðum gerðir þú margar heiðarlegar tilraunir til að kenna okkur systrum nöfnin á öllum fjöllum, hólum og þúfum lands- ins, þó það hafi kannski ekki mikið síast inn. Þegar þú spilaðir pool með Örnu og Tinnu í einni sumarbústaðaferðinni og sýndir snilldartakta, svo mikla snilldar- takta að þú veltir næstum því pool-borðinu. Hvað þú varst mikill spilakarl og tókst spilin alltaf af fúlustu alvöru, og alltaf tókstu bunkann í kanöstu, sama hversu lítill hann var. Öll jólin og áramótin sem við eyddum sam- an, þar standa upp úr minning- arnar um þig og afa Óskari að taka lagið saman á gamlárs- kvöld. Svo voru það selabauk- arnir sem þú safnaðir í fyrir okk- ur systurnar þegar við vorum litlar og munum við vel eftir því þegar við fengum að kaupa okk- ur hjól fyrir peninginn. Þegar þú spurðir Örnu hvort hún spáði aldrei í skýjunum, en þá varstu að skrifa um hreyfingar skýjanna í eina af glósubókunum þínum. Munum þegar við rædd- um um Guð og drauma. Það var alltaf gott að koma í Hafnarfjörðinn í heimsókn til þín og ömmu. Manni leið svo vel þar. Amma búin að baka eitt- hvert góðgæti, svo var alltaf spilað og jafnvel farið í slæðu- leikinn með öllum fínu slæðun- um hennar ömmu. Síðustu árin var alzheimers- sjúkdómurinn farinn að setja mark á þig, en við eigum alltaf minningarnar um þig, hvað þú varst fróður maður, góður og hafðir sérstaklega góðan húmor og hve orðheppinn þú varst. Við vonum að þú sért kominn á betri stað núna, afi, þar sem þú ert aftur þú sjálfur og líður vel. Vonum að þú fylgist með okkur sem eftir lifum við og við. Ragnheiður, Arna og Tinna. Vinir koma og vinir fara, það er ein af staðreyndum lífsins, stundum skilur leiðir einfaldlega af breytingum á lífsmynstri manna og utanaðkomandi ástæðum og tilviljunum, en ein- hvern veginn er það nú samt svo að gömul vinátta og samskipti gleymast ekki, sérstaklega ekki hinir góðu partar þeirra við- kynna. Það eru nú rétt tæp 59 ár síð- an við Jón Rafn Guðmundsson hittumst í fyrsta sinni, þeim kynnum fylgdu mörg góð ár vin- skapar og samskipta okkar Jó- hönnu og þeirra Kristínar auk nánustu fjölskyldna okkar og var enda næsta eðlileg fram- vinda samstarfs okkar þau árin, en eins og mál þróuðust hurfu almenn og dagleg samskipti og þá eru menn gjarnan svo bundn- ir eigin umhverfi og umsvifum að gagnvirkar leiðir strjálast og detta jafnvel alveg niður. Jón var glaðlyndur maður að eðlisfari og kátur félagi, bæði í starfi og leik. Hann var klár og dugmikill starfsmaður og fag- maður á sínu sviði, sem trygg- ingamaður og sanngjarn upp- gjörsmaður tjóna og áfalla. Hann átti nokkurt kyn til að geta orðið þykkjuþungur þeim sem hann taldi sína mótgangs- menn eða viðsemjendur þætti honum þeim ekki fara svo sem honum þótti hæfa hverju sinni, en vel veit ég að hann dugði oft vel frænda sínum Erlendi Ein- arssyni sem var hans yfirboðari í oft vandasömu og erilsömu starfi við stjórn þá ungs og ört vaxandi tryggingafélags. Jón var sannarlega vel liðinn starfsfélagi og mikill hvatamað- ur öflugs félagslífs meðal sam- starfsmannanna enda þátttak- andi í þeirri viðleitni. Hann var og mjög hlynntur kynnum á milli fólks sem starfaði að hinum ýmsu sviðum tryggingamála og var alla þá tíð sem við vorum samtíða mjög vel virtur í því samfélagi og viðskiptaumhverfi. Það er stundum sagt að lífið sé eins og skáktafl og öllum nauðsynlegt að ganga hægt um gleðinnar dyr, vanda sig og reyna að komast hjá afleikjum, sem þó auðvitað engum tekst al- veg. Sumir menn gjalda að fullu jafnvel smæstu afleikja, aðrir ná að smokra sér undan hverju sem er, Jón galt að fullu, en við suma þá sem þá lögðu honum illt til vona ég að ég eða aðrir nái að koma á framfæri áminningu vegna seinni örlaga þeirrar arf- leifðar trygginganna, sem nú er „saga ein“. Jón var á sinni tíð a.m.k. ekki að vinna að eigin ábata. Öll eigum við einhverja sögu, hverja með sínum hætti nokkuð. Saga Jóns var saga glaðsinna atorkumanns sem fyrir eigin dugnað náði menntun og starfs- frama sem hæfði hans innsta ágætismanni og löngum vini vina sinna. Atvik höguðu því svo að hin síðari ár varð nokkur vík milli vina og lítil samskipti, en alltaf heyrðum við þó hvor af öðrum, líka þegar Jón færðist til heims óminnisins nú skömmu fyrir andlát sitt, og þá er að kveðja og þakka gömul kynni og ánægju- leg um leið og ég óska Jóni góðr- ar heimkomu í samræmi við trú okkar beggja. Kristínu og öðrum ástvinum Jóns sendum við Jóhanna sam- úðarkveðjur og óskum þeim guðsblessunar. Einar B. Birnir. Jón Rafn Guðmundsson VirðingReynsla & Þjónusta Allan sólarhringinn www.kvedja.is 571 8222 82o 3939 svafar 82o 3938 hermann ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR HAFSTEINS KONRÁÐSSONAR skriftvélameistara/- rafeindavirkjameistara, Sólheimum 32, Reykjavík, sem andaðist sunnudaginn 24. mars og jarðsettur fimmtudaginn 4. apríl. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítala Landakots, deildar L-4 og starfsfólks Fríðuhúss, Austurbrún 5, fyrir einstaka hjúkrun, alúð og umhyggju. Stella Þórdís Guðjónsdóttir, Ómar Sigurðsson, Sigurbjörg Karlsdóttir, Bára Sigurðardóttir, Kristján O. Þorgeirsson, Erla Sigurðardóttir, Jón Arnar Sverrisson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.