Morgunblaðið - 16.04.2013, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
✝ Lovísa HrundSvavarsdóttir
fæddist á Akranesi
5. október 1995.
Hún lést á Akra-
fjallsvegi aðfara-
nótt 6. apríl 2013.
Foreldrar
Lovísu Hrundar
eru Svavar Skarp-
héðinn Guðmunds-
son, f. 5. maí 1969,
og Hrönn Ásgeirs-
dóttir, f. 3. september 1963.
Systkini Lovísu Hrundar eru:
Ásgeir Sævarsson f. 26. desem-
ber 1979, sambýliskona hans er
Karen Lind Ólafsdóttir, f. 6.
apríl 1979. Börn þeirra eru
Ólafur Ingi, Almar Kári og Eva
Hrönn.
Heiður Sævarsdóttir f. 14.
júní 1982, eiginmaður hennar
er Ryan J. Karazija, f. 19. mars
1982. Barn Heiðar er Úlfur
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi, og var stefnan sett á
ljósmæðranám eða annað nám
tengt börnum. Hún var dugleg
að vinna fyrir sér með skól-
anum og byrjaði snemma að
vinna við afgreiðslu í versl-
uninni Krónunni. Næst lá leið
hennar til HB Granda þar sem
hún starfaði með skólanum og í
sumarvinnu árin 2011 og 2012.
Stefndi hún einnig á að vinna
þar í sumar. Síðastliðið ár vann
hún í versluninni Samkaup
Akranesi með skólanum. Sam-
hliða þeirri vinnu hafði hún ný-
hafið störf á veitingastaðnum
Argentínu Steikhús þar sem
henni líkaði mjög vel.
Lovísa Hrund var einnig
mjög dugleg að sinna áhuga-
málum sínum sem voru líkams-
rækt og heilbrigður lífsstíll.
Hún hafði mikinn áhuga á
bakstri og matargerð og sá
ekki sólina fyrir systkina-
börnum sínum sem hún hugs-
aði um sem sín eigin.
Útför Lovísu Hrundar fer
fram frá Akraneskirkju í dag,
16. apríl 2013, og hefst athöfn-
in kl. 14.
Esra Snorrason.
Engilbert Svav-
arsson, f. 27. jan-
úar 1992.
Foreldrar Svav-
ars eru Kristinn
Guðmundur Skarp-
héðinsson, f. 12.
ágúst 1945, og Ósk
Axelsdóttir, f. 8.
maí 1944. For-
eldrar Hrannar
eru Ásgeir Sam-
úelsson, f. 31. ágúst 1938, og
Hildigunnur Engilbertsdóttir, f.
10. janúar 1939, d. 15. mars
1999. Núverandi eiginkona Ás-
geirs er Halla Guðrún Hall-
varðsdóttir, f. 23. janúar 1953.
Lovísa Hrund ólst upp á
Akranesi alla sína tíð og gekk
fyrstu árin í Brekkubæjarskóla
og síðari hluta skólaskyldunnar
gekk hún í Grundaskóla.
Lovísa Hrund stundaði nám við
Elsku hjartans yndið okkar,
mikið skelfilega tekur það okkur
sárt að þú hafir verið tekin frá
okkur í blóma lífsins langt fyrir
aldur fram. Við sitjum hér saman
harmi slegin yfir þeirri skelfilegu
staðreynd að þú komir ekki aftur
heim, ástin okkar. Faðmir okkur
með þínu stóra fallega knúsi til að
segja hversu mikið þú elskaðir
okkur, eins og þú varst vön að
gera svo oft. Það eru ekki til nein
orð til að lýsa, því hversu góð og
hjartahlý þú varst, elskan. Ekkert
foreldri ætti að þurfa að horfa á
eftir barninu sínu láta líf sitt á eins
hræðilegan hátt. Þú gafst og
kenndir okkur um leið svo margt
um lífið á þinni stuttu ævi. Kær-
leikur þinn og útgeislun fór varla
framhjá neinni manneskju sem
varð á vegi þínum. Það var ómet-
anlegt fyrir okkur sem foreldra
hversu dugleg þú varst að segja
okkur að við værum bestu foreldr-
ar sem hægt væri að hugsa sér,
einnig hversu mikið þú elskaðir
okkur.
Barngóð varstu með eindæm-
um og áttir þú þann heiður að vera
„bestasta“ frænka sem frænd-
systkini þín áttu. Sé litið yfir þína
stuttu ævi, elsku Lovísa Hrund,
getum við ekki annað en verið
stolt af því að hafa verið partur af
lífi þínu.
Það verður sárt að missa eins
góðan vin og þú varst, elskulegi
demanturinn okkar. Okkur langar
með þessum fáu orðum að láta all-
an heiminn vita hversu stolt við
vorum af þér, elsku hjartans eng-
illinn. Við elskum þig óendanlega
mikið og við munum varðveita
minningu um dásamlegustu
stúlku sem foreldrar geta hugsað
sér í okkar hjörtum þar til við hitt-
umst á ný.
Góða nótt, elsku demantur, og
hvíl þú í friði. „We love you most.“
Kveðjustundin komin er
kæra dóttir okkar.
Lovísa litla horfin hér
og hennar ljósu lokkar.
Sú sorgarstund er þung sem blý
við söknum þín svo heitt
en drottins höndin styrk og hlý
þig hefur burtu leitt.
Sem engill meðal engla nú
ertu barnið kæra
en í sálu okkar sefur þú
sem ástarstjarnan skæra.
(Ásta Svendsen)
Kveðja
mamma og pabbi.
Elsku hjartans gullið mitt. Aldr-
ei hefði ég trúað því að ég sæti hér
að hripa niður orð sem mér finnst
svo innantóm og ekki tímabær til
þín, elsku Lobban mín. Mikið sem
mér finnst lífið ósanngjarnt núna.
Sama hvað ég reyni að skilja hver
tilgangurinn með þessum atburði
er, þá get ég ekki skilið það.
Ég er reið yfir hvernig sögu
okkar hefur verið breytt án þess að
nokkur hafi beðið um leyfi eða gef-
ið mér tíma til að faðma þig í hinsta
sinn eða gefa þér koss á silkimjúka
kinnina. Þetta er svo sárt, og við
erum öll harmi slegin, Lovísa mín.
Við reynum að trúa því að þú hafir
átt mikilvægari tilgang fjarri okk-
ur, en mikið er það erfitt að vera
sáttur og trúa að þetta hafi verið
vilji æðri máttar, ef eitthvað þann-
ig er til, þegar ískaldur veruleikinn
blasir við okkur.
Takk, ástin mín, fyrir allt sem
við áttum saman. Takk fyrir sam-
fylgdina þó að hún hafi verið stutt.
Þú gafst mér svo mikið og ég var
svo montin af þér, elsku systir.
Við hefðum átt að drífa okkur í
mæðgnaferðina til Reykjavíkur
sem við ákváðum fyrir páskana.
Núna verður hún að bíða betri
tíma … þar til við hittumst á ný.
Úlfur saknar þín og vill ná í tímavél
til að sækja þig. Hann segir að það
sé vél sem breytir öllu í eins og það
var, þar sem allir eru glaðir og þú
værir komin aftur. Ég sé þig fyrir
mér hlæja og segja „ææ krúttið“,
eins og þú sagðir alltaf þegar þér
fannst hann gera eitthvað sætt.
Mikið sem við eigum eftir að sakna
þín, elsku hjartað mitt.
Umhyggjusemin sem þú sýndir
Úlfinum okkar er ómetanleg og
mig langar svo að þakka þér fyrir
allt sem þú gerðir fyrir mig fyrst
þegar hann fæddist. Því mun ég
aldrei gleyma og mér hefur alltaf
þótt svo vænt um það.
Ég elska þig svo mikið, litla
systir, og ég er svo þakklát fyrir
tímann sem við áttum saman. Þú
varst svo góð við alla í kringum
þig, dugleg og þakklát fyrir það
sem þú áttir. Ég mun ávallt taka
þig mér til fyrirmyndar. Ást að ei-
lífu hjartað mitt.
Gefðu mér aftur
aðkenningu
að hjartslætti
hamingjunnar
vegna stúlku
með rauða rós
í hárinu
og geisla í augum
einsog
á vordegi
væntinga minna.
(Hafsteinn Engilbertsson.)
Þín systir
Heiður.
Elsku hjartans Lovísa okkar.
Aldrei hefði okkur grunað að þú
yrðir sú næsta í fjölskyldunni sem
myndi kveðja þennan heim.
Okkur svíður af sársauka yfir
að fá ekki að sjá þig aftur, finna
ilminn af þér, sjá fallega brosið og
heyra skemmtilega hláturinn
þinn. Fá þig ekki aftur á heimili
okkar að passa, fíflast með strák-
unum og dúllast með Hrönnsluna
þína eins og þú sagðir svo oft. Fá
ekki sms um kaffiboð og eitthvað
nýbakað. Fá ekki að spjalla við þig
um allt sem er hollt og heilsusam-
legt. Það er sárt að fá ekki að eld-
ast með þér og fylgjast með þér
blómstra, eignast börn og mennta
þig. Þig sem langaði að læra svo
margt.
Þú varst einstaklega ljúf og
góðhjörtuð. Þótt þú ættir þínar
gelgjustundir eins og við hin
varstu alltaf tilbúin að hjálpa þeim
sem áttu erfitt, varst sjúk í börn
frá því þú hafðir vit á. Þú spáðir
mikið í hár og tísku og hafðir
næmt auga fyrir fallegum fötum
og skóm, hárgreiðslunám var á
tímabili þér efst í huga enda elsk-
aðir þú að dúllast í hári.
Þú varst alltaf að spá í nýjar og
nýjar uppskriftir sem yfirleitt
voru heilsuuppskiptir. Þú lést
okkur líka alveg vita þegar fötin í
skúffunni hennar Evu voru orðin
of lítil. Þú hélst okkur eiginlega al-
veg við efnið. Öll þessi litlu atriði
og ótal mörg fleiri sýna hversu
þroskuð þú varst í hugsun og
hversu yndisleg þú varst.
Það var svo margt skemmtilegt
framundan hjá okkur. Óli að fara
að fermast og þú ætlaðir að hugsa
um Evu Hrönn í veislunni. Svo
varstu alltaf að minna okkur á
hvað það væru margir dagar í
Spánarferðina okkar og núna síð-
ast á föstudaginn og þá voru bara
67 dagar. Þú sem varst búin að
kaupa nýjan sundbol handa Evu
Hrönn og varst svo spennt að
klæða hana í hann úti.
Það hefur verið svo yndislegt
að fylgjast með þér og Evu
Hrönn. Þið áttuð sérstakt sam-
band. Við höfum alltaf talað um að
hún ætti tvær mömmur og þegar
við vorum báðar með hana þá vildi
sú litla frekar vera hjá þér en
mömmu sinni og okkur fannst það
alltaf svo fyndið og yndislegt.
Þegar við fórum síðastliðið haust
til útlanda yfir helgi sáuð þið
mæðgur um börnin okkar og þú
tókst þetta algerlega í þínar hend-
ur. Á kvöldin fórst þú svo heim
með þau og settir alla í rúmið og
svafst með Evu Hrönn sem þá var
aðeins 10 mánaða í okkar rúmi.
Það var svo yndislegt að vita af
þeim í góðum höndum.
Ég, Karen, var svo heppin að
hafa verið ökukennarinn þinn, það
var eitthvað sérstakt við að sitja
með þér í bíl, svo þægilegt og
öruggt. Þú varst áhugasöm og
lagðir þig alla fram við að læra all-
ar reglur vel. Þú vildir ná bóklega
prófinu í fyrstu atrennu sem þú
gerðir með glans og fórst síðan
villulaust í gegnum verklega próf-
ið sem er einstakt. Við vorum svo
stolt af þér.
Skrítið hversu litlar og hvers-
dagslegar stundir verða allt í einu
eins og dýrmætur demantur í
höndunum á manni. Við varðveit-
um ótalmargar yndislegar minn-
ingar um þig um alla tíð og verð-
um dugleg að segja Evu Hrönn,
Ólafi Inga, Almari Kára og Úlfi
Esra hversu yndisleg frænka
þeirra var.
Takk fyrir allt.
Hvíldu í friði, elsku systir og
mágkona.
Ásgeir Sævarsson
Karen Lind Ólafsdóttir.
Elsku hjartans gullið mitt,
Lovísa Hrund. Ég vil byrja á því
að segja þér hvað mér þykir of-
boðslega vænt um þig. Ég skil
ekki hvernig hægt er að hrifsa
svona frá manni allt það sem
manni þykir vænt um á svip-
stundu. Þú sem varst svo falleg,
hlý og góð. Með breiðasta brosið
og fallegustu varir sem ég hef séð.
Bara ef allir hefðu þann eiginleika
að geta brosað eins fallega og þú,
þá væri þessi heimur okkar svo
sannarlega betri. Allar okkar
stundir saman sem systkin og vin-
ir eru mér ómetanlegar og mun
ég geyma þær og varðveita á
minni lífsleið svo lengi sem ég lifi.
Ég hlakkaði svo til að fá að verða
fullorðinn maður með þig mér við
hlið. Fylgjast með litlu systur
minni verða móðir og eiginkona,
því þú varst alltaf svo hjartahlý og
falleg að innan sem utan. Það er
svo erfitt að kyngja því, að átta sig
á því hvað maður átti þegar mað-
ur hefur misst það. Ég sakna þín
svo rosalega. Eitt máttu vita,
elsku hjartans systir, að ég hræð-
ist dauðann ekki lengur. Það verð-
ur gott að hitta þig og taka utan
um þig þegar ég fæ útkallið. Fyrst
og fremst vil ég þakka þér fyrir
þessi rúm sautján ár sem við feng-
um saman. Lífið verður ekki samt
án þín, og ég ætla að vera sterkur
fyrir þig, litla snúlla. Elsku Lovísa
Hrund, minning þín mun lifa með
okkur. Guð geymi þig.
Hverfur margt
huganum förlast sýn
þó er bjart
þegar ég minnist þín.
Allt er geymt
allt er á vísum stað
engu gleymt,
ekkert er fullþakkað.
(Oddný Kristjánsdóttir.)
Þinn bróðir,
Engilbert.
Aðfaranótt 6. apríl hringdi son-
ur okkar utan af sjó til að færa
okkur þær nístandi fréttir að
einkadóttir hans hefði farist í
grimmu og hörmulegu bílslysi.
Allt stoppar, stendur í stað, svo
skelfileg sorgin sem rífur mann
og tætir, grátur sem getur ekki
hætt.
Hvernig er hægt að meðtaka
þau hræðilegu örlög sem urðu til
þess að taka ástkæru Lovísu okk-
ar frá sínum elskandi foreldrum
og systkinum, okkur sem elskuð-
um hana svo heitt? Aldrei mun
fjölskyldan verða eins. Nú vantar
fallegu, blíðu og góðu stúlkuna
okkar. Hún var fögur sem nýút-
sprungin rós og hennar hjarta-
hlýja var mikil, alltaf knús og
kossar sem hún umvafði ömmu og
afa með.
Mikill er söknuðurinn alls stað-
ar. Ég veit að hún er svo nálæg
þótt ég geti ekki snert hana. Ég
heyri hennar ljúfu rödd hljóma og
sé hana allsstaðar. Lovísa okkar
var strax sem lítil stúlka eins og
lítil kona. Hún umvafði öll litlu
börnin og naut þess svo innilega.
Hún bara elskaði litlu börnin í
fjölskyldum okkar eins og um
mömmu væri að ræða. Svo fljótt
fór þessi elska að vilja elda og
baka og allt fór henni vel úr hendi.
Alltaf fannst mér svo notalegt
er hún kom til að leita ráða ef
mamma hennar var ekki við. Hún
sat og við töluðum um svo margt
sem lá á hennar hjarta, þær
stundir eru mér dýrmætar minn-
ingar.
Fallegi púðinn sem þú gerðir
fyrir afa og ömmu verður alla tíð
vel varðveittur. Það er gott að
halda á honum, manni finnst eins
og mjúkar hendur þínar gefi
knús.
Allar okkar ævistundir saman
voru okkur mikil gleði, ást og
hlýja. Hjartkæra barnið okkar,
yndislega, blíða, við þökkum af al-
hug þann tíma sem okkur var gef-
inn með þér.
Hugann nístir harmur sár
hjörtun fyllast sorg og trega
falla munu tíðum tár
tekin stúlkan yndislega.
Þú varst okkur öllum afar kær
þín ævi var skemmtileg saga
en minningar lifa og líkn eru þær
og lífga upp ókomna daga.
(BF)
Alvaldsfaðir þig geymi og hlúi
að þér í faðmi sínum. Mikil verður
sú gleði þegar okkar tími kemur.
Fá yndislegt faðmlag frá þér,
koss, hjartans Lovísa okkar.
Sofðu rótt elsku barnið góða.
Ósk amma og Guðmundur
(Mummi) afi.
Elsku Lovísa, ég sakna þín
rosa rosa mikið. Bara láta þig vita
af nokkru ef þú gætir séð þetta
sem engill eða þannig slíkt. Ég
elskaði þig rosa mikið þó að við
höfum rifist. Þú varst mér eins og
systir og varst alltaf svo dugleg að
passa mig, Almar og Evu. Það var
alltaf jafn gaman þegar þú varst
að koma passa okkur og við vor-
um að fíflast. Það var langoftast
gaman í kringum þig vinkona. Þú
varst, ert, ég segi ert vegna þess
að þú ert ekki farin frá okkur þó
að þú sért ekki á lífi. En þú ert
besta frænka sem ég myndi telja
að hægt væri að eiga. Ég vildi
bara koma þessum orðum til þín,
Lovísa. Ef þú getur lesið þetta,
elska ég þig. Við sjáumst síðan
eftir nokkra tugi vonandi. Ég ætla
að vera duglegur að koma í
kirkjugarðinn að heilsa upp á þig
og ömmu Vaddý. Bæ LU.
„Þegar þú ert sorgmæddur,
skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú
munt sjá, að þú grætur vegna
þess, sem var gleði þín.“ Þetta er
ástæðan fyrir því að við grátum.
Elska þig.
Ólafur Ingi Ásgeirsson.
Elsku yndislega Lovísa Hrund.
Það sem ég á erfitt með að
sætta mig við það að þú hafir verið
tekin frá okkur svona hræðilega
fljótt. Mikið ósköp getur lífið verið
ósanngjarnt.
Þú með þitt fallega bros, ynd-
islegu nærveru þína, hlátur, hrein-
skilni og hlýja hjartað þitt gerði líf
mitt svo miklu betra. Þú varst mér
eins og litla systir mín og við pöss-
uðum alltaf svo vel hvor upp á
aðra. Ég reyndi að vernda þig fyr-
ir öllu og við héldumst þétt í hend-
ur þau sautján ár sem við áttum
saman.
Ég man svo vel eftir því þegar
við vorum litlar hvað litla skrudd-
an mín vildi alltaf vera með stóru
frænku sinni. Ég reyndi að vernda
þig fyrir öllu og hélt fast í höndina
þína. Við eigum svo mikið af fal-
legum og góðum minningum sam-
an að erfitt er fyrir mig að velja úr
vegna þess að þær eru hver ann-
arri yndislegri. Við gátum grátið,
rifist, hlegið og fíflast saman, mik-
ið sem ég á eftir að sakna þess.
Það var svo yndisleg stund sem
við áttum um daginn þegar þú
komst til mín og við eyddum sam-
an heilum degi. Það sem við gát-
um talað, við gátum talað um allt
milli himins og jarðar. Mikið sem
var gott að sofa þér við hlið og við
kúrðum saman, nærvera þín var
svo yndisleg. Það var alltaf svo
mikil ró yfir þér, elsku blómið
mitt. Útilegurnar með fjölskyld-
unni sitja mjög ofarlega í huga
mér, fjallgangan okkar seinasta
sumar, afmælið mitt núna í febr-
úar, Langisandur þegar við vorum
litlar og allar hinar stundirnar
sem við áttum saman sem eru
óteljandi.
Þú varst svo mikil félagsvera og
vinamörg, það dáðu þig allir og
elskuðu. Þú varst svo barngóð, öll
börnin í fjölskyldunni dáðu þig, þú
varst alltaf svo góð við allt og alla
með ljúfmennsku þinni.
Alltaf fannst mér jafn gott að
koma heim til ykkar og setjast
niður með þér og mömmu þinni,
þær stundir eru mér svo kærar,
við gátum talað um allt við frænk-
urnar. Þú varst yfirleitt alltaf búin
að baka þínar dýrindis kökur og
alltaf voru þær jafn fallegar hjá
þér, þú varst algjör snillingur í
eldhúsinu.
Mikið sem það verður sárt að
hafa þig ekki mér við hlið í gegn-
um lífið, elsku Lovísa mín.
Ég veit að amma Vaddý, sem
við elskuðum svo heitt, kom og tók
á móti þér. Ég veit að þér er ætlað
gera einhverja stórkostlega hluti í
þessum nýja heimi sem þú lifir nú
í og heillar alla upp úr skónum
með yndislegri nærveru þinni.
Stór hluti úr mínu hjarta var tek-
inn frá mér og mikið sem mér
finnst það sárt og óbærilegt að
meðtaka.
Við eigum svo dýrmætar perlur
sem samverustundirnar okkar
voru, þessi sautján ár. Og nú þeg-
ar söknuðurinn er svo sár og
skarðið sem þú skilur eftir þig svo
ógnarstórt, eru minningarnar sem
við eigum svo mikils virði. Ég
þakka þér fyrir allt, elsku stelpan
mín og sofðu rótt.
Þú stýrir vorsins veldi
og verndar hverja rós.
Frá þínum ástareldi
fá allir heimar ljós.
(Davíð Stéfánsson)
Hvíldu í friði.
Þín
Hildigunnur.
Ég veit eiginlega ekki hvað ég á
að segja eða hvar ég á að byrja, af-
hverju þú? Þetta er allt svo óraun-
verulegt að elsku fallega litla
Lovísa mín sé farin er mér óbæri-
legt að meðtaka. Ég er svo ofboðs-
lega fegin að hafa hitt þig á átt
góða stund með þér áður en þú
kvaddir okkur, elskan mín. Mikið
Lovísa Hrund
Svavarsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku Lovísa Hrund, þú
ert besta frænkan mín.
Þú varst stórkostleg við
okkur. Þú varst hjálpsöm
og vildir alltaf gera eitt-
hvað skemmtilegt með mér
og Óla bróður mínum.
Við munum alltaf eftir
þér.
Þinn frændi
Almar Kári Ásgeirsson.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn