Morgunblaðið - 16.04.2013, Page 31

Morgunblaðið - 16.04.2013, Page 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013 sem lífið getur verið ósanngjarnt. Gleymi aldrei fallega brosinu þínu og krúttlega hlátrinum. Á svo góða og fallegar minningar um þig sem munu fylgja mér alla ævi og ég mun aldrei gleyma þeim, þú munt vera í hjarta mínu alla ævi, elsku dúllan mín. Ólýsanlegt hvað ég á eftir að sakna þín mikið. Hugsa til þín alla daga alltaf. Þú verður elsk- uð þarna uppi og verður fallegasti engillinn minn. Hvíldu í friði og sofðu rótt, elsku hjartans gullið mitt, Peta frænka elskar þig. Petrea Hjartardóttir. Fallega, fallega frænka okkar. Þvílíkur harmur sem andlát þitt er. Við þökkum fyrir þau ár sem við höfðum þig í lífi fjölskyldunnar og geymum þær minningar í hjört- um okkar. Líf allra sem unnu þér heitt verður aldrei samt á ný. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Megi góður Guð varðveita þig um eilífð alla. Við biðjum góðan Guð að blessa og styrkja alla ást- vini þína. Blessuð sé minning þín, Lovísa Hrund. Þínar frænkur, Kristín Ósk og Sylvía og fjölskyldur þeirra. Elsku fallega Lovísa mín, mig langaði að skrifa nokkur orð til minningar um þig. Það er svo sárt að kveðja þig, elsku hjartað mitt, að ég get ekki sett það í orð, þú varst mér svo mikið og áttir svo stóran sess í hjarta mínu og munt alltaf gera. Spurningarnar eru svo margar. Af hverju þú? Hvernig getur svona gerst? Þetta eru spurningar sem ég mun aldrei fá svar við því fram- tíðin er óskrifuð bók og þínum lífs- kafla lauk 6. apríl meðal okkar en ég trúi ekki öðru en þú sért að hefja nýjan kafla umvafin kær- leika og ást. Það voru forréttindi fyrir mig að fá að fylgja þér þína stuttu ævi sem stóra frænka og góð vinkona, ég fékk að hlæja með þér, gráta, rífast, sættast og elska þig allt á sama tíma. Mér finnst ég eiga stóran part í þér þar sem ég skipti mér af þínum málum ófá skiptin. Við áttum einstakt sam- band og það verður aldrei af okkur tekið. Við gátum aldeilis skamm- ast hvor í annarri, en þegar eitt- hvað bjátaði á vorum við eins og klettar hvor fyrir aðra. Ég er svo þakklát fyrir stundina sem við átt- um fyrir svo ekki löngu þegar þú dróst mig inn á bað í skólanum og knúsaðir mig bara að því þig lang- aði í knús frá mér. Á þinni stuttu ævi snertir þú svo mörg hjörtu og áttir svo marga að sem finna svo til að þú skulir hafa þurft að fara frá okkur í þessum flýti því þú varst engri lík og alveg einstök mann- eskja og þú verður alltaf í hjarta mínu og huga. Ég trúi því að þér hafi verið ætlað stærra og mikil- vægara hlutverk þarna uppi og Guð hafi vantað verndarengil í sitt lið. Elsku besta Lollí mín, núna mun ég kveðja þig í hinsta sinn sama hversu óraunverulegt það er. Þetta líf sem við lifum er ekki alltaf sanngjarnt, en það eitt að hafa fengið að þekkja þig og elska kenndi mér það að við getum aldr- ei tekið lífinu sem sjálfsögðum hlut. Takk fyrir knúsið sem þú gafst mér um daginn og takk fyrir að „kveðja“ mig án þess að vita hversu langt þú værir að fara frá mér. Ég elska þig, Lollí mín, og mun alltaf gera, sama hvað. Kveðja, þín Ósk. Elsku litla ljúfan mín, nú kveð ég þig í hinsta sinn með þvílíkri sorg og söknuði að orð fá aldrei lýst. Yndislega fallega og hjarta- hreina litla vinkona. Ég trúi ekki að þú sért farin. Það sem lífið get- ur verið óréttlátt er óskiljanlegt og ég fæ aldrei skilið. Ég er svo sérstaklega þakklát fyrir síðasta árið þar sem við áttum svo marg- ar góðar stundir saman og öll gullkornin sem flugu. Aldrei grunaði mig hversu ómetanlegir morguntímarnir með þér yrðu síðar, þar sem þú varst alltaf svo jákvæð, hughreystir og hrósaðir með fallegum orðum. Það geta ekki allir verið „gordjöss“ en það varst þú svo sannarlega á allan hátt og þín verður alltaf sárt sakn- að. Þú varst einstök, gafst lífinu lit og lýstir upp allt í kringum þig, elsku gullmoli. Hvíldu í friði, elsku fallega Lovísa Hrund. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Rebekka Helen Karlsdóttir. Í hjörtum okkar ríkir mikil sorg þegar þú, yndislega blóma- rós, ert tekin skyndilega úr vina- hópi okkar. Í rúm 17 ár höfum við fengið að fylgjast með þér vaxa og dafna og verða að þeirri fallegu, hlýju og hæfileikaríku stúlku sem þú varst. Margar góðar minning- ar streyma nú fram í hugann. Ekki varst þú há í loftinu þegar í ljós kom hversu þroskuð, um- hyggjusöm og blíð þú varst við alla sem í kringum þig voru. Ým- islegt brölluðum við saman í ár- legum útilegum, grillveislum og öllum skemmtilegu samveru- stundum okkar. Einlægni þín var engu lík, þú sagðir allt beint frá hjartanu og náðir alltaf að orða hlutina á svo fallegan hátt. Okkur er minnisstætt þegar þú settist oft hjá okkur í stutta stund í saumaklúbb hjá mömmu þinni og við spjölluðum saman eins og þú værir ein af okkur kellunum, stundum hafðir þú bakað eftir- réttinn og vildir fá álit okkar á af- rakstrinum, sem var alltaf jafn gómsætur rétt eins og hjá mömmu þinni, við sáum hvert hæfileikar þínir stefndu, þú hefðir orðið svo góð húsmóðir og mamma, enda varstu barngóð með eindæmum og öll börn hænd- ust að þér. Elsku hjartans Lovísa okkar, við gætum endalaust hald- ið áfram að rifja upp fallegar og skemmtilegar minningar um þig. Þessar ljúfu minningar hjálpa okkur í gegnum þessa erfiðu tíma og við trúum því að þú sért komin í faðm ömmu Vaddýjar. Ástkæru vinir okkar, Hrönn, Svavar, Ásgeir, Heiður, Berti og fjölskyldur. Hugur okkar er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Megið þið finna ykkar styrk og von til þess að komast í gegnum þessa miklu sorg, elsku vinir. Yndisleg varstu að utan sem innan þú ljúfa fallega blómarós. Fallegust varstu yndið okkar megi ömmu faðmur geyma þig. Soffía, Valey, Lára, Stefanía og fjölskyldur. Það hefði aldrei hvarflað að okkur við ættum eftir að sitja saman og skrifa minningargrein um þig, elsku Lovísa. Að fá fréttir af því sem henti þig var hræðilegt. Hversu óréttlátt það er að þú sért farin frá okkur og án þín verður lífið aldrei eins og það var. Þú varst svo ótrúlega falleg og lífsglöð. Minningin um þig er gleðin, fallega brosið þitt og hlát- urinn sem smitaði alla sem í kringum þig voru. Þú varst vin- kona sem stóð með manni í gegn- um allt. Það er ekki hægt að minnast þín án þess að hugsa um allar þær skemmtilegu stundir sem við átt- um saman frá því að við kynnt- umst fyrst þar til nú. Það var svo ótrúlega margt skemmtilegt sem við gerðum saman, allar ferðirn- ar okkar í bæinn, rúnturinn, partíin og böllin, Akureyrarferð- in, kósýkvöldin og svo margt, margt fleira. Öll plönin sem við vorum búnar að gera og það sem við ætluðum okkur, við gerðum ráð fyrir að verða gamlar saman. Elsku Lovísa okkar, við viljum að lokum þakka þér fyrir þær stundir sem við fengum að vera með þér í þessu lífi, við söknum þín og þökkum þér fyrir að fá að vera vinir þínir í þann tíma sem við fengum saman, en vildum óska að það hefði getað verið lengur. Allri fjölskyldunni sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðju. Elka Sól Björgvinsdóttir og Guðjón Reynir Guðjónsson. Þegar fregnir af andláti Lovísu Hrundar báru að garði stöðvaðist í mörgum hjartað. Við vorum lengi að átta okkur á at- burðinum og fannst alltaf ein- hvern veginn eins og við myndum sjá andlit hennar í skólanum aft- ur. En staðreyndin blasti við okk- ur og nú er kveðjustundin runnin upp. Þegar horfið er yfir farinn veg er margs að minnast. Lovísa tók mjög virkan þátt í félagslífi og var mjög dugleg við að sækja við- burði á vegum nemendafélagsins. Lovísa var vinamörg og það var ætíð mikið líf og fjör í kringum hana. Við kynntumst Lovísu Hrund í gegnum félagslíf skólans og þurftum ekki að vera lengi í návist hennar til að átta okkur á að hún hafði góða nærveru og var glaðlynd stelpa. Hún sýndi ást og umhyggju í garð þeirra sem hana umgengust hvort sem það voru fjölskyldumeðlimir, vinir eða aðr- ir skólafélagar. Minninguna um hjartahlýju, lífsglöðu og skemmtilegu Lovísu Hrund munum við ætíð geyma í hjörtum okkar. Við kveðjum þig með miklum söknuði en vitum þó að þú ert komin á góðan stað á meðal horf- inna ættingja og ástvina sem ef- laust hafa tekið vel á móti þér. Megi englarnir vaka yfir þér, elsku Lovísa. Guð geymi þig. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherj- ardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Fyrir hönd stjórnar nemenda- félags Fjölbrautaskóla Vestur- lands á Akranesi, Sólveig Rún Samúelsdóttir. Um næstsíðustu helgi barst okkur sú skelfilega frétt að sautján ára nemandi við Fjöl- brautaskóla Vesturlands og dótt- ir eins af starfsmönnum skólans hefði látist í bílslysi. Við vorum döpur þegar við hittumst á sal skólans á mánudagsmorgni. Þar var þögn og fram eftir degi var fólk þögult á göngum. Allmargir sátu saman inni í matsal í stað þess að mæta í kennslustundir. Vinir og jafnaldrar Lovísu reyndu að hughreysta hver ann- an. Það logaði á kertum úti fyrir. Á borði stóð ljósmynd og blómvönd- ur og við fundum það betur en fyrr hvað lífið er dýrmætt. Við fundum líka að „huggun er manni mönn- um að“ en hefðum viljað læra það eftir öðrum leiðum. Lovísa Hrund Svavarsdóttir hóf nám til stúdentsprófs við Fjöl- brautaskóla Vesturlands haustið 2011. Hún var prúðmenni í fram- göngu, hæglát í fasi, einlæg, traust, glaðvær og hjartahlý og eftir því mikils metin af skóla- félögum sínum. Við kveðjum Lovísu með sökn- uði. Fyrir hönd starfsmanna við Fjölbrautaskóla Vesturlands sendi ég foreldrum hennar, systk- inum, ættingjum og vinum inni- legar samúðarkveðjur. Atli Harðarson skólameistari. Elsku Lovísa okkar. Við sökn- um þín meira en orð fá lýst, það var ómetanlegt að fá að kynnast þér. Við viljum þakka þér fyrir all- ar þær ótalmörgu minningar sem eru okkur svo dýrmætar og munu lifa með okkur. Þegar við hugsum um þig kem- ur fyrst upp í hugann hversu ein- læg og hjartahlý þú varst, alltaf til staðar og lífsgleðin ljómaði af þér. Hlátur þinn var svo yndislegur og smitandi, að ekki var annað hægt en að brosa og hlæja með þér. Við gátum alltaf treyst á þig og við fundum hversu vænt þér þótti um okkur. Ávallt í hjarta okkar. Þínar vinkonur Ída, Freyja Kristjana, Aníta Eir, Rut Hrafns, Elva Björk, Stella Eyrún, Karen Sól, Adda Malín, Heiðrún Ósk, Kristrún, Margrét Helga, Una Rakel, Viktoría Rós, Heiðrún Lára, Salome, Sara Ýr, Eyrún og Júlía Björk. Lovísa Hrund Svavarsdóttir, fyrrverandi nemandi Grunda- skóla, lést í bílslysi aðfaranótt síð- astliðins laugardags. Enn og aftur erum við minnt á hverfulleika lífs- ins, hve skammt er á milli lífs og dauða, gleði og sorgar. Lovísa tilheyrði stórum ár- gangi glaðværra og duglegra ung- menna sem stóðu sig vel. Hún var vinsæl í hópnum enda sérlega elskuleg stúlka. Það fór ekki mikið fyrir Lovísu en samt tók maður alltaf eftir henni. Fallega brosið hennar og þægileg nærveran fór ekki fram hjá neinum. Hún vildi standa sig vel, var dugleg og ósér- hlífin. Við erum sorgmædd og hrygg vegna andláts Lovísu. Engin orð megna að líkna á þessari stundu. Það eiga margir um sárt að binda. Fyrir hönd nemenda og starfs- fólks Grundaskóla vottum við for- eldrum, systkinum og fjölskyldu Lovísu Hrundar innilega samúð. Hrönn Ríkharðsdóttir og Sigurður Arnar Sigurðsson. Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Þegar andlát ber að höndum REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Blómasmiðjan Grímsbæ v/Bústaðaveg S: 588 1230 Samúðarskreytingar Útfaraskreytingar ✝ Okkar ástkæri, INGVAR INGVARSSON frá Múlastöðum, Smáraflöt 10, Akranesi, lést fimmtudaginn 11. apríl. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 19. apríl kl. 14.00. Guðrún Sigurðardóttir, Inga Sigríður Ingvarsdóttir, Helgi Þröstur Guðbjartsson, Barbara G. Davis, Þórir Guðnason, Daníel L. Davis og afabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu minningu ÁRNA VILHJÁLMSSONAR fyrrverandi prófessors virðingu og okkur hlýhug og samúð við fráfall hans og jarðarför. Ingibjörg Björnsdóttir, Ásdís Helga Árnadóttir, Guðmundur F. Jónsson, Birna Björk Árnadóttir, Sigurður Tómas Björgvinsson, Auður Kristín Árnadóttir, Einar Þór Harðarson og barnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, KRISTÍN GUNNLAUGSDÓTTIR, Reynihólum 9, Dalvík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 9. apríl. Útför hennar fer fram frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 19. apríl kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Björgunarsveitina á Dalvík. Ottó Jakobsson, Ester Ottósdóttir, Valur Júlíusson, Svanur Ottósson, Sigrún Júlíusdóttir, Ottó Biering Ottósson, Hugrún Hermannsdóttir, barnabörn og langömmubarn. ✝ Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar minnar ástkæru eiginkonu, BEÖTU RYBAK ANDRÉSSON, Nýbýlavegi 62, Kópavogi. Þorsteinn Andrésson og fjölskylda. Okkar ástkæra, LILJA GUNNARSDÓTTIR, Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 6. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Margrét Jónsdóttir, Páll Þorsteinsson, Valþór Söring Jónsson, Halldóra Lúthersdóttir, Guðný Jónsdóttir Avery, Terry Avery, Arnoddur Jónsson, Guðfinna Arnbjörnsdóttir, Rannveig Jónsdóttir Sigurjón Óskarsson. ✝ Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, BALDUR ÓSKARSSON ljóðskáld, Framnesvegi 21, lést á heimili sínu að morgni sunnudagsins 14. apríl. Sigrún Baldursdóttir, Gunnbjörn Marinósson, Árni Þ. Baldursson, Valgerður Fjóla Baldursdóttir, Magnús Baldursson, Áslaug Arna Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.