Morgunblaðið - 16.04.2013, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Hildur Björgvinsdóttir mannfræðingur og menningarmiðlarier þrítug í dag. Af því tilefni hyggst hún bjóða nánustu ífranska kjötsúpu í „rúmlega“ fokheldu húsinu sem hún er
að gera upp við Njálsgötu en hún segist almennt fyllast barnslegri
eftirvæntingu þegar afmælisdagurinn nálgast. „Ég er rosalegt af-
mælisbarn og tilkynni öllum það með löngum fyrirvara að ég eigi
bráðum afmæli,“ segir hún. „Ég veit ekki af hverju, mér finnst bara
öll afmælisbörn svolítið sérstök. Afmælið er tilefni til að fagna því
að maður er árinu eldri; hefur upplifað heilt ár í viðbót. Kynnst nýju
fólki og upplifað nýja hluti.“
Hildur er sjálfstætt starfandi menningarmiðlari en menningar-
miðlun segir hún ekki ólíka blaða- og fréttamennsku, nema í stað
þess að miðla fréttum snúist hún um að miðla menningu í gegnum
hina ýmsu miðla og á ýmsum vettvangi. „Þetta er mjög skemmtilegt
og fjölbreytt og þverfaglegt þannig að maður getur leitað verkefna
víða. En það eru vissulega breyttir tímar frá því sem áður var, þeg-
ar maður gat fengið styrki fyrir alls konar hugmyndum. Núna eru
gríðarlega margir um hvern styrk,“ segir hún.
Drjúgur skerfur af frítíma Hildar fer í húsbygginguna en þar að
auki fer hún í leikhús, á tónleika eða klífur fjöll. Að hennar sögn
kemst þó aðeins eitt að um þessar mundir: að safna klappstólum og
súpuskálum fyrir afmælisveisluna. holmfridur@mbl.is
Hildur Björgvinsdóttir er 30 ára í dag
Útivist Hildur er mikið afmælisbarn en myndin var tekin þegar hún
var á „léttri vetrargöngu“ með móður sinni við Hafravatn í vetur.
Býður í franska
kjötsúpu í fokheldu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Reykjavík Patrekur Alex fæddist 31.
júlí kl. 16.20. Hann vó 3.910 g og var
52 cm langur. Foreldrar hans eru
Björk Ben Ölversdóttir og Ívar Jóns-
son.
Nýir borgarar
Hafnarfjörður Rakel Máney fæddist
10. júlí kl. 5.32. Hún vó 3.810 g og var
52 cm löng. Foreldrar hennar eru
María Rós Baldursdóttir og Rúnar
Pétur Þorgeirsson.
H
elgi fæddist á Akranesi
og ólst þar upp. Hann
lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla
Akraness 1950, stund-
aði prentnám í Ísafoldarprentsmiðju
og lauk þaðan prófi í ársbyrjun 1957.
Þá lauk hann prófi frá Lögregluskóla
ríkisins 1967.
Helgi var starfsmaður Akraness-
kaupstaðar og ÍA 1956-58 og starfs-
maður Sementsverksmiðju ríkisins
1958-64. Hann gerðist lögreglumaður
á Akranesi 1964, var skipaður varð-
stjóri þar 1966, varð rannsóknarlög-
reglumaður hjá Sakadómi Reykjavík-
ur 1972 og skipaður deildarstjóri þar
1976, varð rannsóknarlögreglumaður
hjá RLR 1977, skipaður lögreglu-
fulltrúi þar sama ár og skipaður yf-
irlögregluþjónn RLR 1984.
Helgi er í hópi þekktustu knatt-
spyrnumarkmanna hér á landi, lék
knattspyrnu með liðum Skagamanna
og Vals um árabil og 25 landsleiki.
Hann varð Íslandsmeistari með ÍA
1957, 1958 og 1960. Leikmaður knatt-
spyrnufélagsins Kára um árabil, var
formaður þess og síðar heiðursfélagi,
sat í stjórn ÍA og í ýmsum nefndum á
vegum þess, sat um skeið í stjórn
knattspyrnufélagsins Vals, í stjórn
KSÍ 1969-84, varaformaður þess
Helgi Daníelsson, fyrrv. yfirlögregluþjónn – 80 ára
Á Melavellinum 1960 Helgi og Steindóra, ásamt sonunum, Helga Val, Friðþjófi Arnari og Steini Mar.
Landsliðsmarkmaður
og lögga af Skaganum
Yfirlögregluþjónn Helgi Dan er hann tók við af Nirði Snæhólm hjá RLR 1984.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.iswww.gilbert.is