Morgunblaðið - 16.04.2013, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Í dag ættir þú að skoða hvernig þú
tjáir þig við aðra. Síðan skaltu hafa það
huggulegt með fjölskyldunni. Ekki lána pen-
inga eða persónulega hluti í dag.
20. apríl - 20. maí
Naut Systkini þín gætu látið orð falla sem
koma þér úr jafnvægi. Kynntu þér gang mála
og þú munt sjá margt sem nýtist þér núna
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sjötta skilningarvit tvíburans er í
góðu lagi í dag. Hugsaðu þig vandlega um áð-
ur en þú velur fjárfestingarkost. Tækifærið
býður handan hornsins en vandaðu val þitt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Búðu þig undir að til einhvers orða-
skaks komi á vinnustað. Eitt og annað hefur
verið látið reka á reiðanum en nú verður ekki
undan því vikist að koma skikki á öll mál.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Spilaðu rétt úr þeim spilum sem lífið
hefur gefið þér. Þú ert einbeitt/ur og tilbú-
in/n til að hella þér út í vinnu í dag, þá get-
urðu líka staðið á þínu, og það geta aðrir líka.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er til einskis að reyna að snúa upp
á handleggina á samstarfsmönnum sínum til
þess að fá aðstoð þeirra. Líttu í eigin barm og
reyndu að koma jafnvægi á líf þitt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Kepptu við sjálfa/n þig og þú munt nýta
alla þína hæfileika. Gefðu sköpunarkrafti þín-
um lausan tauminn og njóttu þess sem þú ert
að gera og skapa.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú gengur með margar djarfar
hugmyndir í maganum og getur ekki lengur
vikist undan því að hafa frumkvæði að lausn
mála. Dagurinn er kjörinn til samningagerðar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Enginn er fullkominn á öllum
sviðum og aðalmálið er að þú sért ánægður
með sjálfan þig. Með réttu hugarfari er allt
mögulegt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Ósamlyndi í vinnunni eykur lík-
urnar á því að steingeitin verði fyrir óhappi.
Tilfinningarnar eiga það til að hlaupa með þig
í gönur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Farðu varlega í öllum viðskiptum
og þá sérstaklega fasteignaviðskiptum. Farðu
endilega í ferðalag, ef tækifæri gefst á næst-
unni. Einbeittu þér að styrkleikum þínum, þú
býrð yfir mörgum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Heimili, fasteignir og málefni fjöl-
skyldunnar eru efst á baugi á þessu ári. Líttu
málin raunsönnum augum og þá sést að flest
er í lagi.
Mætur hagyrðingur ÓlafurHalldórsson er fallinn frá.
Kristján Eiríksson rifjar upp vísu
sem Ólafur ætlaði að senda Þór-
bergi Þórðarsyni þegar haldið
var upp á áttræðisafmæli hans 12.
mars 1969, en varð of seinn að
koma henni til hans.
Fögur er sól við fjallabrún.
Á ferli er eldgamall raftur
og hleypur um æskunnar Halatún
að hitta sjálfan sig aftur.
Fyrr á þessu ári sendi Ólafur
vísnagátu á Leirinn, póstlista
hagyrðinga, sem var svohljóð-
andi:
Það sem tengir bát og bað
og breytir ull í vaðal,
findu þetta, fest er það
framan á langan kaðal.
Það er aldrei lognmolla í kring-
um Sigrúnu Haraldsdóttur. En
óhætt er að segja að veðrið hafi
látið óvenjuilla er hún var í
gönguferð á dögunum og orti:
Norðanbál mér gerði grikk,
er glöð var úti að flakka,
fésið allt með feikna rykk
fauk aftur á hnakka.
Friðrik Steingrímsson prjónaði
við vísu Sigrúnar:
Sigrún engin sýndi grið
sénsinn vildi taka,
sneri sér í snatri við
og snjáldrið fauk til baka.
Ármann Þorgrímsson kastar
fram:
Langar eru leiðirnar
liggja upp í móti
vegirnir til velsældar
varðaðir með grjóti.
Einar Jónsson frá Litlu Drag-
eyri í Skorradal gekkst undir að-
gerð á sjúkrahúsi og var vel frá
öllu gengið áður en aðgerð hófst:
Sjúkrahússtúlkunum seint mun
ég gleyma,
svolítið fór mig að langa í geim.
Þær tjóðruðu Grána í túninu heima
til þess hann færi ekki í blettinn
hjá þeim.
Páll Imsland bregður á leik í
limru:
Hún Dísa var dálagleg hánta
sem dreymdi’ um allt annað
en skáta.
Í kinnum svo rjóð
hún kyrjaði’ af móð:
„Það er draumur að vera með dáta.“
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af vísnagátu, snjáldri og
æskunnar Halatúni
Í klípu
„Ó, AFSAKIÐ! VITLAUST NÚMER!“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„SVONA, ÉG HEF EKKI ALLAN DAGINN.
KOMDU ÚT ÚR SKÁPNUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... brennandi heit.
ÉG KEYPTI NÝ GLUGGA-
TJÖLD, GRETTIR.
ÞAU ERU FYRIR FÓLK
SEM Á GÆLUDÝR.
FOR-
RIFIN.
ÉG SÉ
NÚ EKKI
GAMANIÐ
VIÐ ÞAÐ.
HVAÐA STJÓRNSKIPU-
LAG TELUR ÞÚ VERA
BEST, HRÓLFUR?
EINRÆÐISRÍKI SEM ER
STJÓRNAÐ ÚR EINUM
KASTALA SEM ER Í
ALFARALEIÐ.
AF
HVERJU?
ÞVÍ ÞAÐ ER AUÐVELT
OG ÁBATASAMT AÐ
RÆNA ÞÁ.
Víkverji hefur nokkrum sinnumkíkt á Slippbarinn og líkað vel,
a.m.k. hafa ljúfar veitingar í fljótandi
formi runnið ljúflega niður kverk-
arnar að kvöldlagi um helgar. Víkverji
hefur hins vegar ekki fengið sér að
borða á Slippbarnum og eftir að hafa
heyrt raunasögu eins kunningja er
ekkert víst að leiðin liggi þangað aft-
ur.
x x x
Þannig er að kunningi Víkverja fórút að borða ásamt nokkrum
vinnufélögum þar sem verið var að
kveðja einn úr hópnum sem var að
hætta störfum. Eftir kvöldverðinn
kom að því að gera upp og var óskað
eftir því að skipta greiðslu fyrir einn
réttinn niður á hina. Það var auðsótt
mál og gengu allir glaðir í burtu, eða
þar til einn í hópnum fór að kíkja á
kvittunina. Þá kom í ljós að allir höfðu
verið ofrukkaðir sem munaði sam-
anlagt um eina máltíð.
x x x
Kunningi Víkverja tók að sér að fáþetta leiðrétt og fór við fyrsta
tækifæri á vettvang til að fá upphæð-
ina endurgreidda. Þá var það ekki
hægt beint yfir borðið, heldur varð að
gefa upp reikningsnúmer til að leggja
inn á. Voru fögur loforð gefin um að
ganga frá þessu sem fyrst. Síðan eru
liðnar tvær vikur og ekkert gerst enn,
þrátt fyrir að kunningi Víkverja hafi í
tvígang hringt á Slippbarinn og ýtt á
eftir greiðslu.
x x x
Ekki er um neina risafjárhæð aðræða en kunningi Víkverja er
prinsippmaður með sjálfsagða og eðli-
lega kröfu á fyrirtæki sem ofrukkaði
sína viðskiptavini. Víkverji hefur enga
lyst á að versla við Slippbarinn frekar
ef þetta er þjónustan sem boðið er
upp á. Í þessu tilviki fór umræddur
kunningjahópur glaður frá borði en
það hefur breyst til hins verra.
x x x
Þetta litla dæmi virðist sýna hversuauðvelt er að ofrukka við-
skiptavini og vonandi stunda veitinga-
hús það ekki þegar komið er fram á
nótt að ofrukka fólk með mismikla
meðvitund. Margur neytandinn er
nógu slyppur og snauður til að ekki sé
bætt þar í. víkverji@mbl.is
Víkverji
Yður er í dag frelsari fæddur, sem er
Kristur Drottinn, í borg Davíðs.
(Lúkasarguðspjall 2:11)
www.nortek.is Sími 455 2000
Nortek sérhæfir sig í öryggislausnum sem þú
getur treyst hvort heldur er að degi eða nóttu,
miklir möguleikar bæði fyrir lítil og stór fyrirtæki.
Meira en 16 ára reynsla í sölu og þjónustu á
öryggiskerfum.
Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík
Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is
FYRIRTÆKJAÖRYGGI
• Aðgangsstýring
• Brunakerfi
• Myndavélakerfi
• Innbrotakerfi
• Slökkvikerfi / Slökkvitæki
• Öryggisgirðingar / Hlið / Bómur
• Áfengismælar / fíkniefnapróf