Morgunblaðið - 16.04.2013, Page 41

Morgunblaðið - 16.04.2013, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2013 Kvikmyndin Óminni (Obli-vion) er veisla fyrir augaðþar sem íslenskt landslager í stóru hlutverki. Myndin gerir hins vegar sterka kröfu til þess að allri hugsun sé ýtt til hlið- ar, hvað þá gagnrýnni hugsun, því að vart stendur steinn yfir steini í söguþræðinum. Tom Cruise leikur Jack Harper, sem hefur verið falið tímabundið verkefni á jörðu niðri að gera við ómönnuð loftför. Jörðin er óbyggileg eftir kjarnorkustríð mannkyns við geimverur, sem hugðust leggja hana undir sig og höfðu kallað miklar nátt- úruhamfarir yfir jarðarbúa með því að sprengja tunglið. Mannkynið vann reyndar stríðið, en hefur nú flúið til Títans, eins af tunglum Satúrnusar, og sækir orku í vatnið á jörðunni. Ómönnuðu loftförin eiga að verja orkuverin fyrir skæruliðahópum geimvera, sem gera árásir að nóttu til. Harper til fulltingis er kona að nafni Victoria. Í upphafi kemur fram að minni þeirra hafi verið þurrkað út áður en þau voru send í verkefnið. Jack birt- ast þó draumsýnir þar sem hann allt- af hittir sömu konuna á útsýnispalli Empire State-byggingarinnar í New York sem fyrir tilviljun er á vakt- svæði viðgerðarmannsins. Í Jack blundar uppreisn, hann hef- ur gert sér afdrep á jörðu niðri þar sem hann hlustar á Procol Harum og les ljóð eftir Hóras, en Victoria, sem af einhverjum ástæðum er alltaf með þanin sjáöldur þegar myndavélin fer í návígi við hana þannig að hún lítur út eins og hún hafi verið forrituð, reynir að hemja hann. Brátt sækja hins veg- ar efasemdir á Jack um að allt sé sem sýnist. Gott og vel. Það er lúalegt að eyðileggja fléttur í kvikmyndum, þar sem óvæntar vendingar eiga að koma áhorfand- anum í opna skjöldu, og því skulu slík spellvirki ekki unnin hér, en ætti að telja upp allar mótsagnir og veikleika söguþráðarins yrði listinn ærið langur. Tom Cruise er einn af hæst laun- uðu leikurum Hollywood. Hann kann enn að leggja undir sig hvíta tjaldið með perluhvítu brosi sínu – ungæð- islegur þótt orðinn sé fimmtugur – og nýtur sín í hlutverki sínu í þessari geimhasarmynd. Tæknibrellurnar eru hinar æsilegustu og fer vel um framtíðartryllitæki myndarinnar í urð og grjóti íslensks hálendis, sem á að hylja háhýsin á Manhattan. Myndin er vel gerð og hægt að hafa gaman af sjónarspilinu, en til þess að njóta hennar fyrir alvöru er best að skilja skynsemi og gagnrýna hugsun eftir í fatahenginu. Óminni Tom Cruise og Olga Kurylenko í hlutverkum sínum í geimhasarmyndinni Oblivion með íslenskt landslag í bakgrunni. Myndin er mikið sjónarspil, en söguþráðurinn stenst hvorki nána skoðun né yfirlegu. Vísindaskáldskapur í íslenskri kjarnorkuauðn Óminni (Oblivion) bbmnn Leikarar: Tom Cruise, Olga Kurylenko, Andrea Riseborough, Morgan Freeman og Nicolaj Coster-Waldau. Leikstjóri: Jo- seph Kosinski. Handrit: Joseph Kosinski og Karl Gajdusek. Bandaríkin, 126 mín. KARL BLÖNDAL KVIKMYNDIR Eins og búast mátti við skaust Oblivion með Tom Cruise beint á toppinn eftir fyrstu sýningarhelgi hér á landi. Myndin er sýnd í átta sölum og sáu nánast þrisvar sinn- um fleiri hana um helgina en næstu mynd á aðsóknarlistanum. Margir hafa beðið spenntir eftir að sjá hvaða tökum íslenska víð- ernið væri tekið, og hversu mikið eyðisöndunum norðanlands væri breytt í framtíðarsýn sögunnar. Í breska dagblaðinu The Independ- ent fær myndin þrjár stjörnur, er sögð lítil saga að upplagi sem hafi verið blásin upp með þátttöku Tom Cruise í ævintýrinu. Útlit myndarinnar er sagt stórfenglegt, allt frá svörtum söndum Íslands til tærra tæknigaldranna sem líti út eins og Apple hafi staðið að þeim. Teiknimyndin Croods er í öðru sæti en hún hefur nú verið sýnd yfir þrjár helgar, og þá kemur að annari mynd sem er ný á lista, The Incredible Burt Wonderstone. Ófeigur snýr aftur, gamansaga Ágústs Guðmundssonar með Ladda í aðalhlutverki, er í fimmta sæti aðsóknarlistans en hátt á átt- unda þúsund manns hafa séð myndina sem gagnrýnandi Morg- unblaðsins gaf hin bestu meðmæli. Bíólistinn 12.-14. apríl 2013 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd Oblivion Croods The Incredible Burt Wonderstone G.I.Joe: Retaliation Ófeigur Gengur Aftur Side Effects Jagten (The Hunt) Safe Haven Admission Jack The Giant Slayer Ný 2 Ný 1 3 4 8 10 7 6 1 3 1 2 3 2 8 4 2 4 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Oblivion og Ísland vinsæl Kempulegur Tom Cruise er í aðalhlutverki útlitsfagurrar Oblivion. Bíóaðsókn helgarinnar Langtímaleiga www.avis.is 52.100 kr. á mánuði og allt innifalið nema bensín!* Hafðu endilega samband við okkur í síma 591 4000 eða kíktu á avis.is og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig. *Hyundai l10, árgerð 2011, í 36 mánaða leigu. Komdu í langtímaleigu Avisog láttu dæmið ganga upp! ÞRIÐJUDAGS TILBOÐ Í DAG GILDIR EKKI Á ÍSLENSKARMYNDIR KVIKMYNDAÚRVALIÐ ER Í SAMBÍÓUNUM ÁTOPPNUM Í ÁR KYNNTUÞÉRMÁLIÐ Á EGILSHÖLLÁLFABAKKA OLYMPUSHASFALLEN FORSÝNINGKL. 8 BURTWONDERSTONE KL.5:50-8-10:30 BURTWONDERSTONE VIP KL. 5:50 - 8 G.I. JOE:RETALIATION3D KL. 5:40 -8 -10:20 G.I. JOE:RETALIATION2D KL.5:40 SIDEEFFECTS KL.5:40-8-10:20 ÓFEIGURGENGURAFTUR KL.8-10:10 JACKTHEGIANTSLAYER3D KL.10:10 OZ:GREATANDPOWERFUL KL.5:20 KRINGLUNNI OBLIVION KL. 5:20 - 8 - 10:40 BURTWONDERSTONE KL. 5:50 - 8 - 10:10 SIDEEFFECTS KL. 8 -10:20 ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50 OBLIVION KL. 5:30 - 8 - 10:30 BURTWONDERSTONE KL. 5:50 - 8 - 10:20 G.I. JOE:RETALIATION3DKL. 8 -10:30 SIDEEFFECTS KL. 8 -10:20 ÓFEIGURGENGURAFTURKL.5:50 JACKTHEGIANTSLAYER2D KL.5:30 NÚMERUÐ SÆTI KEFLAVÍK OBLIVION KL. 8 - 10:30 BURTWONDERSTONE KL. 8 - 10:30 G.I.JOE:RETALIATION2D KL.5:40 THECROODS ÍSLTAL KL.5:50 AKUREYRI BURTWONDERSTONE KL.5:50-8-10:10 JACKTHEGIANT-SLAYER KL. 5:50 SIDEEFFECTS KL. 10:10 ÓFEIGURGENGURAFTUR KL. 8  H.S. - MBL THE NEW YORK TIMES LOS ANGELES TIME WALL STREET JOURNAL TIME NÝJASTA MYND STEVEN SODERBERGH FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA! EIN FLOTTASTA SPENNUMYND ÁRSINS T.V. - BÍÓVEFURINN   VJV, SVARTHÖFÐI STÓRMYNDIN SEM TEKIN VAR UPP Á ÍSLANDI  T.K., KVIKMYNDIR.IS MÖGNUÐ GRÍNMYND STEVE CARELL JIM CARREY FORSÝND ÞRIÐ JUDA GSTI LBOÐ ÞRIÐ JUDA GSTI LBOÐÞ RIÐJ UDAG STILB OÐ ÞRIÐ JUDA GSTI LBOÐ ÞRIÐ JUDA GSTI LBOÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.