Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2013, Qupperneq 16
Akureyri, höfuðstaður Norðurlands.
Morgunblaðið/Ómar
Búdapest.
Londonderry, N-Írlandi.
Porto.
S
tærsti útgefandi ferðabóka í heiminum, Lonely Planet, birti í vik-
unni lista yfir þá tíu staði í Evrópu sem fólk ætti helst að heim-
sækja á yfirstandandi ári. Að vonum vakti sú staðreynd að norður-
hluti Íslands er á listanum mesta athygli hér heima. Þá Paradís
þarf varla að kynna lesendum Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins og fyrir
vikið verður hér rýnt í hina staðina níu á listanum.
Porto og Douro-dalurinn (Portúgal). Í umsögn Lonely Planet segir að
Porto sé ekki lengur syfjuleg sjávarborg, heldur sé hún orðin mikilvæg
miðstöð listsköpunar. Þá blómstri vínmenningin sem aldrei fyrr í Douro-
dalnum sem er orðlagður fyrir fegurð.
Búdapest (Ungverjalandi). Gamalt verður nýtt í suðupottinum Búdapest.
Lonely Planet mælir ekki síst með vandaðri byggingarlist og frumlegum
ölstofum. Þá séu jarðhitaböðin engu lík.
Cinque Terre (Ítalíu). Fimm bæir í stórskornu landslagi Liguria-
strandlengjunnar. Flóð ollu gríðarlegu tjóni á svæðinu árið 2011 en að
dómi Lonely Planet hafa bændur og búalið unnið kraftaverk við endur-
uppbyggingu og gert Cinque Terre aðlaðandi á ný.
Moravia (Tékklandi). Vinsældir Prag og Bæheims aukast jafnt og þétt og
fyrir þá sem vilja kynnast rólegri og jafnvel ósviknari hlið á Tékklandi er
Moravia málið. Mælt er með geggjuðum vínekrum og hjólreiðum.
Bern (Sviss). Er Bern mögulega vanmetnasta höfuðborg álfunnar? All-
tént stendur hún gjarnan í skugga útivistarparadísarinnar sem er Berner
Oberland. Í Bern mætast fortíð og nútíð og Lonely Planet mælir sér-
staklega með miðbænum, ekki síst húsi Alberts gamla Einsteins.
Marseille (Frakklandi). Ímynd þessarar fornfrægu hafnarborgar hefur
tekið stakkaskiptum á aðeins áratug. Hrörnun og glæpir hafa vikið fyrir
markvissri uppbyggingu og iðandi mannlífi. Ekki skemmir fyrir að Mar-
seille er Menningarborg Evrópu í ár.
Króatía. Um langt skeið hafa öll vötn fallið til Króatíu og ekkert lát er á
vinsældunum. Lonely Planet hvetur ferðalanga þó til að halda sig ekki
bara við strandlengjuna, sveitir og borgir inn til landsins hafi líka upp á
margt og mikið að bjóða.
Norður-Írland. Eftir áratuga skálmöld er allt á uppleið í Norður-Írlandi.
Friður og fegurð. Lonely Planet mælir sérstaklega með Derry/Lond-
onderry, einu borginni á Írlandi sem ennþá er innmúruð.
Kaupmannahöfn (Danmörku). „Svalasta höfuðborg á Norðurlöndum,“ að
dómi Lonely Planet. Umhverfisvernd er óvíða lengra komin og Kaup-
mannahöfn er löngu víðfræg fyrir vistvænar samgöngur, það er hjólreiðar.
TÍU STAÐIR TIL AÐ SÆKJA HEIM 2013
Hvert skal
haldið?
EINS OG FRAM HEFUR KOMIÐ ER NORÐURLAND Á LISTA
LONELY PLANET YFIR TÍU STAÐI Í EVRÓPU SEM FÓLK ÆTTI
HELST AÐ HEIMSÆKJA Á ÁRINU 2013. EN HVERJIR ERU
HINIR STAÐIRNIR NÍU Á LISTANUM GÓÐA?
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
*Hver sagði að Vínarborg væri bara fyrir menningarvita? Hjólaferðir eru vinsælar í borginni »18Ferðalög og flakk
Við Ashlan giftum okkur í júlí 2011 en byrjuðum á að vera í fjar-
búð veturinn 2011-2012, ég í Chicago og hún í Arizona, en síð-
asta árið höfum við búið saman í Chicago. Ég útskrifaðist í maí
með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðiskerfa frá Rush Univers-
ity, þar sem ég hef verið við nám og störf síðustu tvö árin. Eftir
að Ashlan kláraði meistaranám sitt í mannfræði og safnafræði
við Arizona State University 2012 flutti hún einnig til Chicago.
Til viðbótar við nám og störf hefur Chicago upp á margt
skemmtilegt að bjóða. Við höfum notið þess að fara á söfn, fara
með vinum út að borða og út á lífið og síðast en ekki síst að ganga
saman um borgina með hundinum okkar, honum Rex.
Bestu kveðjur frá Chicago! Sveinn Sigurðsson.
Sveinn Sigurðsson og Ashlan Falletta-Cowden, eiginkona hans, í Chicago. Rush-háskóli þar sem Sveinn nam.
Margt skemmtilegt í boði
Nóg er af háhýsum í miðborginni.
PÓSTKORT F
RÁ CHICAGO
Marseille. Bern.
Cinque Terre.
Moravia.
Kaupmannahöfn.Zagreb, Króatíu.