Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2013, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.6. 2013
Matur og drykkir
G
estirnir fengu þau skilaboð að það yrði borðað utandyra,
hvernig sem viðraði. Veðrið leit vel út um eftirmiðdaginn
og sólin lét sjá sig en þung ský færðust nær. Hafdís
Harðardóttir, sem er kennari í Landakotsskóla, var lengi
að nostra við borðið á pallinum. Blóm voru sett í krukkur, kveikt á
kertum og lagt á borð. „Okkur Jóa finnst dásamlegt að halda mat-
arboð,“ segir Hafdís, en þau gera mikið að því að bjóða fjölskyldu og
vinum í mat. Kokkurinn Jóhann Jónsson, var löngu búinn að undirbúa
matinn fyrir kvöldið. „Þetta er það skemmtilegasta sem hann gerir,
stundum kemur hann þreyttur heim eftir langan dag í vinnunni, þar
sem hann er búinn að elda allan daginn, og fer beint í eldhúsið að
elda!“ segir Hafdís, sem er alsæl að vera gift kokki. „Ég fæ alltaf
eitthvað gott.“
Tilbúin með regnkápur
Dimmur skýjabakki færðist yfir bæinn og tók að hellirigna og leit út
fyrir blautt borðhald. Gestirnir, sumir hverjir, klæddu sig í föðurland
og ullarsokka og voru tilbúnir með regnkápur. En þegar líða fór að
matartíma var sem skrúfað væri fyrir krana og sólin braust fram úr
skýjunum nákvæmlega á hárréttum tímapunkti. Þegar búið var að
þurrka bleytuna af diskum og stólum var sest að snæðingi og sólin
skein skært á þessu fallega júníkvöldi.
Best geymda leyndarmálið
Jói er eigandi Ostabúðarinnar á Skólavörðustíg. Það leikur allt í hönd-
unum á honum og töfrar hann fram gómsæta rétti fyrirhafnarlaust,
að því virðist. Í Ostabúðinni er lítill hádegisveitingastaður í kjallara
sem er alltaf með einn fiskrétt á boðstólum og segja sumir að stað-
urinn sé eitt best geymda leyndarmál borgarinnar. Þó vita greinilega
margir af honum, því smekkfullt er þar á hverjum degi og oft beðið í
röð eftir borði. „Fiskur er í uppáhaldi hjá mér að elda, hann krefst
meiri natni en kjöt,“ segir Jói.
Jói, sem er vanur að elda ofan í hundrað manns í einu, átti ekki
erfitt með að galdra fram máltíð fyrir fjölskylduna og gesti. Hann
segist ekki fá leið á eldamennsku. „Mér finnst alltaf gaman að elda,
annars væri ég löngu hættur þessu,“ segir hann. Að þessu sinni var
boðið upp á uppáhaldsmatinn hennar Hafdísar, grillaðan lax, risotto og
ferskt sumarsalat.
Hafdís leggur sitt af mörkum þegar kemur að borðskreytingum.
Jói er á heimavelli í eldhúsinu sínu í Garðabænum.
MATARBOÐ Í KVÖLDSÓL
Nostrað við borðið
*„Það er dásamlegtað vera giftkokki, ég fæ alltaf eitt-
hvað gott!“
Soffía, Bragi, Andri Már, Hafdís, Logi, Jói,
Sindri, Arnar Bragi og Ágúst Ingi nutu sín vel í
fyrsta sólarmatarboði sumarsins.
SUMARIÐ LÉT LOKS SJÁ SIG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
ÞEGAR HAFDÍS OG JÓI ÁKVÁÐU AÐ BJÓÐA TIL VEISLU Á
PALLINUM HJÁ SÉR. GESTIRNIR VORU TILBÚNIR MEÐ REGN-
KÁPUR TIL VONAR OG VARA.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
iceberg
klettasalat
lambhagasalat
tómatar
paprika
mosarella
gruyer-ostur
parmesan-ostur
fetaostur
ferskar fíkjur
þurrristaðar furuhnetur
basil-olía
estra lagerað balsamic
hráskinkusneiðar
Salatið hentar vel eitt og sér eða
með aðalréttinum.
Sumarsalat