Morgunblaðið - 18.07.2013, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 18.07.2013, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 2013 Harmonikkuball Ungmennaráð Seltjarnarness bauð eldri bæjarbúum á harmonikkuball í gær. Sólin skein í heiði og léttir nikkutónarnir glöddu viðstadda. Eggert Undanfarin ár hefur undirbúningur að flutningi öldr- unarþjónustu frá ríki til sveitarfélaga staðið yfir. Þrettán manna nefnd var skipuð í nóv- ember 2011 og hefur nefndin haldið 10 fundi. Þar að auki voru allnokkrar undir- nefndir skipaðar til að skoða afmarkaða þætti verkefn- isins. Margir sérfræðingar hafa unnið með nefndunum og sjálfsagt nemur kostnaður nú þegar allmörgum milljónum króna fyrir utan mjög mikla vinnu starfs- fólks velferðar- ráðuneytis og nefnd- armanna. Frá upphafi lá ljóst fyrir að til þess að öldrunarþjónustan gæti flust frá ríki til sveitarfélaga þyrfti að semja við hjúkr- unarheimili landsins um uppgjör á lífeyrisskuldbind- ingum vegna starfsmanna lífeyr- issjóðs LSR, b – deild og Lífeyr- issjóðs hjúkrunarfræðinga. Fjármálaráðuneytið dregur lappirnar Samningaviðræður á vegum Sam- taka fyrirtækja í velferðarþjónustu og fjármálaráðuneytisins hafa staðið yfir í rúmlega sjö ár og enn virðist langt í land. Samtökin hafa mætt af- ar litlum skilningi hjá yfirvöldum og samningsvilji virðist varla vera fyrir hendi. Dragbítur á málið frá fyrsta degi hefur verið fjármálaráðuneytið. Starfsfólk ráðuneytisins hefur slegið í og úr, lagt til lausnir sem eru síðan dregnar til baka nokkrum vikum síð- ar. Allt hið undarlegasta mál og svo sannarlega ekki til eftirbreytni. Engu að síður hafa fulltrúar sveitar- félaganna lagt ríka áherslu á að ljúka þessum samningaviðræðum og ganga frá fortíð og framtíð þessa áð- ur en öldrunarþjónustan flyst yfir til sveitarfélaganna. Komið í þrot Nú þykir ljóst að ekkert verður af þessum flutningi. Málið virðist ætla að stranda á þessum lífeyr- isskuldbindingum og leiða til þess að öldrunarþjónustan verði áfram hjá ríkinu. Ég hef reyndar talað per- sónulega fyrir því að svo verði, frá því að þessi yfirflutningsumræða hófst og sýnist mér á öllu að ég hafi haft rétt fyrir mér allan tímann. Eftir Gísla Pál Pálsson »Málið virðist ætla að stranda á þessum lífeyrisskuldbindingum og leiða til þess að öldr- unarþjónustan verði áfram hjá ríkinu. Gísli Páll Pálsson Höfundur er forstjóri og formaður Sam- taka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Öldrunarþjónustan áfram hjá ríkinu Það dylst fáum sem ferðast um landið þessa sumardaga hvílík stökkbreyting hefur orðið á fáum árum í út- breiðslu alaskalúpínu. Þessi ágenga tegund hefur þegar lagt undir sig stór landsvæði, ekki aðeins örfoka eða lítt gróið land, heldur einn- ig mólendi og lyng- brekkur, andstætt því sem lengi vel var fullyrt af þeim sem réttlættu dreifingu lúpínunnar. Augu almenn- ings fyrir þessari vá og af völdum fleiri ágengra innfluttra tegunda eins og skógarkerfils eru að opnast og stofnanir eins og Landgræðsla rík- isins viðurkenna nú þá miklu hættu sem við blasir í gróðurríki landsins af þessum sökum. Ég hef áður haldið því fram að hér sé á ferðinni alvarleg- asta ógn sem steðjar að gróðurríki Íslands þar sem lúpína muni að óbreyttu leggja undir sig mikinn hluta landsins fyrir lok þessarar ald- ar. Gjörbreytir eðli og ásýnd landsins Í bæklingi sem Stýrihópur um alaskalúpínu og skógarkerfil gaf ný- lega út og Náttúrufræðistofnun Ís- lands og Landgræðsla ríkisins eiga hlutdeild að, er bent á að breytingar á grónu landi af völdum þessara ágengu tegunda verði m.a. þær að fjölbreytni minnki, lyngtegundir hverfi og berjalönd rýrni að sama skapi. Vistkerfin breytist til fram- búðar og þar sem hér er um að ræða hávaxn- ar og stórgerðar plöntur verður land erf- itt yfirferðar og upp safnast mikill eldfimur lífmassi. Því sé um verulega aukna eld- hættu að ræða í og við lúpínubreiður. Jafn- framt breytist ásýnd landsins, jarðfræðifyr- irbæri svo sem jök- ulminjar og klettar hverfa og það innlenda blómskrúð sem gleður augu ferða- mannsins allt frá vegköntum til víð- erna. Sláandi er að sjá hvernig lúpína er þessi árin að koma sér fyrir í klettabeltum suður af Hofi í Öræfum þangað sem hún hefur borist út frá landgræðslusvæðum í landi Hofs- ness og Fagurhólsmýrar. Fyrir var þarna m.a. fágætur vaxtarstaður munkahettu. Fræ lúpínunnar dreif- ast um langa vegu með vindi og vatni. Í Skriðdal eystra blasir við hvernig lúpína berst frá skógræktarsvæði í meginár dalsins og leggur undir sig bakka þeirra og eyrar á leið til Lag- arfljóts. Þéttbýlisstaðir Austfjarða eru nú flestir að lenda í gíslingu þess- arar öflugu tegundar, svipað og lengi hefur blasað við á Húsavík. Sótt að Grenivík og nágrenni Fyrir skemmstu var greint frá áhyggjum sveitarstjórnar í Grýtu- bakkahreppi og fólks á Grenivík vegna ágengni lúpínu, m.a. í Þeng- ilshöfða sunnan þorpsins þangað sem margir leggja leið sína. Í kynningu á höfðanum stendur: „Þegar líður á sumarið er hægt að gleyma sér við bláber og krækiber á leiðinni.“ Í ný- legu blaðaviðtali segir Guðný Sverr- isdóttir sveitarstjóri (Fréttablaðið 28. júní sl.): „Það eru fimmtán til tuttugu ár síðan við ösnuðumst með dúsk af lúpínu þarna upp eftir, sem við áttum aldrei að hafa gert. Við er- um að spá í hvort það eigi að útrýma lúpínunni eða ekki. Ef það verður ákveðið þá tekur það tuttugu ár og við þurfum að leggja töluverða pen- inga í það. Annaðhvort byrjum við á næsta ári eða við hugsum ekki um þetta, því það verður alltaf erfiðara og erfiðara að útrýma lúpínunni eftir því sem hún breiðist út. Hún stoppar ekki.“ – Þeir eru margir sem standa í svipuðum sporum og fólk á Grenivík. Á vegum sveitarstjórnasambandsins Eyþings er nú starfandi sérstök Eftir Hjörleif Guttormsson » Við erum berskjald- aðri en nágranna- lönd okkar fyrir áhrif- um ágengra innfluttra tegunda. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Alaskalúpína að leggja undir sig landið Morgunblaðið/Ómar Lúpína „Þessi ágenga tegund [alaskalúpína] hefur þegar lagt undir sig stór landsvæði, ekki aðeins örfoka eða lítt gróið land, heldur einnig mólendi og lyngbrekkur,“ segir greinarhöfundur. nefnd sem fjallar um ágengar teg- undir og hefur sent frá sér athygl- isverða skýrslu. Reykjadalur og skógarkerfill Í liðinni viku ók ég fram hjá Laug- um í Reykjadal. Mér hnykkti við að líta heim á þetta menntasetur og sjá hvernig skógarkerfill er að leggja umhverfi þess undir sig. Eyfirðingar hafa undanfarið verið í fararbroddi í baráttu við þennan vágest, sem þek- ur tugi hektara lands í Eyjafirði og sækir víða á, þrátt fyrir mótaðgerðir. Athyglisvert er að lesa greinargerð frá nemendum 10. bekkjar skólans á Litlu-Laugum um þennan vágest. Þeir taka undir með Bjarna E. Guð- leifssyni náttúrufræðingi um að skógarkerfill sé víða orðinn plága og fólk þurfi að vera sér vel meðvitað um þetta vandamál. Kerfillinn var upphaflega fluttur í Lauga sem kryddjurt fyrir Húsmæðraskólann. Lokaorð ungmennanna eru: „Ef ekk- ert verður gert í þessum málum verður Reykjadalur fullur af kerfli eftir einhver ár“ (www.litlulauga- skóli.is). Allir þurfa að leggjast á eitt Það er góðs viti að almenningur, ungir sem aldnir, er að átta sig á þeirri alvarlegu vá sem tengist ágengum framandi tegundum. Hér er um vel þekkt alþjóðlegt vandamál að ræða sem víða er glímt við en birt- ist okkur Íslendingum af meiri þunga en annars staðar vegna þeirrar miklu röskunar sem íslenskt gróðurríki hefur orðið fyrir af völdum ofbeitar um aldir. Við erum því berskjaldaðri en nágrannalönd okkar fyrir áhrifum innfluttra ágengra tegunda. Þeim mun ríkari þörf er á að sýna varúð við innflutning og dreifingu plantna sem geta hegðað sér á óvæntan hátt í íslensku umhverfi. Til þess eru vítin að varast og ekkert annað en sam- ræmt og markvisst átak, tengt rann- sóknum, fræðslu og skipulegum að- gerðum, getur komið í veg fyrir þann ófarnað sem ella blasir við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.