Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013 Fæst einnig í veFverslun stoðar 31ár 1982-2013 Trönuhrauni 8 | 220Hafnarfirði | Sími 565 2885 Opið kl. 8 - 16 virka daga | stod@stod.is | www.stod.is Þar sem sérFræðingar aðstoðaÞig viðvalá hlíFum Við styðjum þig STOÐ P O R T hö nn un Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Þónokkur sendiráð Bandaríkjanna í Norður-Afríku og Mið-Austur- löndum verða lokuð fram á laug- ardag. 21 sendiráði Bandaríkjanna var lokað skyndilega síðastliðinn sunnudag vegna hryðjuverka- hættu. Þjóðaröryggisstofnun Banda- ríkjanna hafði komist yfir upplýs- ingar sem sýndu að verið væri að skipuleggja hryðjuverkaárás. Hef- ur Þjóðaröryggisstofnuninni verið hrósað fyrir árveknina en stofn- unin hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarnar vikur þegar ljóstrað var upp um umfangsmiklar persónunjósnir hennar. Flestum er í fersku minni þegar ráðist var á sendiráð Bandaríkj- anna í Benghazi í Líbíu í fyrra og sendiherrann sjálfur drepinn auk þriggja annarra Bandaríkjamanna. Þótt það hafi ekki verið gert opinbert hver ógnin væri hafa þeir þingmenn sem Þjóðaröryggis- stofnunin hefur kynnt málið, verið sammála um að ógnin sé með þeim alvarlegri sem hafi komið upp und- anfarin ár. Allt hafi bent til stórrar árásar sem hefði átt að eiga sér stað við lok Ramadan-hátíðarinnar í lok þessarar viku. Opna aftur í Bagdad og Kabúl Sendiráðin í Bagdad, Kabúl og í Alsír voru opnuð aftur í gær en 19 önnur sendiráð verða lokuð fram að helgi. Margar evrópskar þjóðir hafa varað þegna sína við ferðum í Jem- en og breska sendiráðið þar í landi verður lokað í það minnsta fram á fimmtudag. Breska utanríkisráðu- neytið mælir með því að Bretar komi sér frá landinu og að hættan á hryðjuverkaárás og mannránum frá vopnuðum hópum sé mikil. Sendiráð Bandaríkjanna lokuð fram á laugardag AFP Öryggi Jemenskur hermaður á verði í gær við götuna þar sem bandaríska sendiráðið er í Sanaa. Öryggismál voru hert í kringum sendiráðið í gær. Tyrkneski hershöfðinginn Ilker Basburg var í gær dæmdur í lífs- tíðarfangelsi fyrir aðild sína að ráðabruggi við að steypa stjórn Tayyps Erdogans af stóli. 21 mað- ur hefur verið sýknaður og 40 fengið dóma í þessum réttar- höldum sem hafa verið í gangi frá 2008. Lögregla skaut táragasi á mót- mælendur fyrir utan dómshúsið í bæ nærri Istanbúl þegar dómurinn í þessu umdeilda máli var kveðinn upp. Gagnrýnendur ríkisstjórn- arinnar segja réttarhöldin vera pólitísk og tilraun Erdogans og stuðningsmanna hans til að þagga niður í pólitískum andstæðingum sínum. Frá stofnun tyrkneska lýðveldis- ins árið 1923 hefur herinn þrisvar sinnum steypt stjórnvöldum af stóli, árin 1960, 1971 og 1980. Þá er talið að herinn hafi staðið að baki stjórnarbyltingu árið 1993. Árið 1997 sendi herinn enn- fremur frá sér minnisblað til stjórnvalda þar sem farið var fram á skýrari aðskilnað ríkis og trúar í landinu, en sending minnisblaðsins leiddi til stjórnarskipta. Þá var Recep Tayyp Erdogan, núverandi forsætisráðherra en þá- verandi borgarstjóri Istanbúl, dæmdur í fangelsi og bönnuð þátt- taka í stjórnmálum ævilangt. Þrátt fyrir það stofnaði hann Réttlætis- og framfaraflokkinn síðar og hóf aftur þátttöku í stjórnmálum. Hershöfðingjarnir sem stóðu að minnisblaðasendingunni 1997 voru handteknir í apríl 2012. Ævilangt fangelsi AFP Fangi Einn fanganna teygir út hönd sína úr brynvarða bílnum í gær.  Tyrkneskur hershöfðingi dæmdur í gær Silvio Berlusconi, fyrrverandi for- sætisráðherra Ítalíu, sem í síðustu viku var dæmdur fyrir skattsvik, reynir nú að róa stuðningsmenn sína. Mikill fjöldi þeirra safnaðist saman fyrir framan eitt af lúx- ushúsum Berlusconis um helgina til að sýna honum stuðning. Enginn af þeim fimm ráðherrum sem flokkur Berlusconis hefur í ríkisstjórn lands- ins mætti á stuðningsfundinn. Ber- lusconi var klæddur í svört föt þegar hann talaði til fólksins á sunnudag- inn og hélt stutta ræðu þar sem hann lýsti yfir sakleysi sínu. Stuðn- ingsmenn hans töldu að um 25.000 manns hefðu mætt en fjölmiðlamenn töldu að talan væri nær 2.000 manns. Tekur væntanlega út dóm sinn í einni lúxusvillu sinni Silvio Berlusconi var dæmdur í fjögurra ára fangelsi sem var strax minnkað niður í eitt ár. En hann er kominn vel á áttræðisaldur og vegna ítalskra laga sem eiga að létta á yf- irfullum fangelsum Ítalíu er ólíklegt að hann muni þurfa að dúsa í fang- elsi yfirhöfuð. Líklegt er að hann verði settur í stofufangelsi og þá hef- ur hann úr nokkrum lúxushúsum sínum að velja. Stuðningsmenn Berlusconi vilja að hann verði náðaður AFP Mótmæli Berlusconi reyndi að róa stuðningsmenn sína um helgina.  Mótmæli stuðningsmanna Berlus- conis voru hávær um helgina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.