Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 36
 Kammerkór Reykjavíkur flytur trúarleg verk frá ýmsum löndum, m.a. eftir Franz Liszt, Anton Bruckner og Jón Leifs, á tónleikum í Laugar- neskirkju annað kvöld. Ókeypis að- gangur er á tónleikana. Sama efnis- skrá verður flutt á Ítalíu, en kórnum hefur verið boðið að halda tónleika á tónlistarhátíð á Ítalíu um miðjan mánuðinn. Heldur tónleika á erlendri listahátíð ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 218. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Alvarlegt flugslys á Akureyri 2. Tveir fórust í flugslysinu 3. Tvær pólskar stúlkur létust 4. Flugvélin var á leið úr sjúkraflugi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Í kvöld hefst söguganga í miðborg Reykjavíkur um staði sem tengjast lífi lesbía og homma í Reykjavík. Fjallað verður um líf og menningu samkyn- hneigðra Reykvíkinga allt frá lokum 19. aldar og fram undir okkar dag. Gangan er fyrsti viðburðurinn í fjölbreyttri Há- tíð hinsegin daga. Aðgangur er ókeypis undir leiðsögn á íslensku. Morgunblaðið/Eggert Söguganga um slóðir samkynhneigðra  Flautuleikarinn Áshildur Haralds- dóttir og Kristinn H. Árnason gít- arleikari, munu flytja tónverk sem voru skrifuð fyrir eða voru í uppáhaldi hjá tónlistarmanninum og mynd- höggvaranum Bertil Thorvaldsen á Listasafni Sig- urjóns Ólafs- sonar í kvöld. Á milli flutn- ings munu þau spjalla um tónverkin. Flytja eftirlætis tón- verk Thorvaldsens Á miðvikudag Sunnan 5-10 m/s, lítils háttar súld eða rigning á Vesturlandi. Hiti 9-16 stig. Á fimmtudag austan 8-15 m/s. Rigning með köflum en þurrt á Norður- og Vesturlandi. Hiti 10-17 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skýjað um mestallt land og lítils háttar væta fyrir norðan og austan. Bjartviðri, en skýjað á Norður- og Austur- landi fram eftir degi. Hiti 4-16 stig, hlýjast á sunnanlands. VEÐUR „Þetta er einn af mínum betri samningum á ferlinum og það er gaman að fá svona samning orðinn 31 árs. Það lýsir því hvað félagið hefur mikla trú á mér og vonandi að ég geti gefið til baka með einhverjum mörkum,“ segir Gunnar Heiðar Þorvaldsson meðal annars við Morg- unblaðið en hann samdi í gær við tyrkneska félagið Konyaspor. » 1 Tyrkirnir hafa trú á Gunnari Heiðari „Við vorum vel undirbúin fyrir leikinn og gæslan var mun öflugri en áður. En það reyndi ekki mikið á gæsluna á leiknum því áhorfendur voru til fyrir- myndar,“ sagði Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnuráðs ÍBV, með- al annars við Morgunblaðið um leik ÍBV og FH í Vest- mannaeyjum um versl- unarmannahelg- ina. »4 Áhorfendur í Eyjum voru til fyrirmyndar Hrafnhildur Lúthersdóttir úr Sund- félagi Hafnarfjarðar náði bestum ár- angri íslenska sundfólksins á HM í Barcelona sem lauk á sunnudaginn. Hrafnhildur tvíbætti eigið Íslandsmet í 50 metra bringusundi, komst í und- anúrslit og hafnaði að lokum í 13. sæti. Morgunblaðið tók hana tali og sagðist hún vera mjög ánægð með sinn hlut. »2 Hrafnhildur átti besta árangurinn í Barcelona ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is ,,Yfirleitt hefur þetta gengið vel hjá okkur en há- tíðin hefur aldrei heppnast eins vel og nú,“ segir Curtis Olafson, formaður Íslendingafélagsins í Norður-Dakóta í Bandaríkjunum, en hátíðin Deuce of August Icelandic Celebration fór fram í Mountain í 114. sinn um helgina. Íslendingar settust fyrst að á svæðinu í kringum Mountain skömmu fyrir aldamótin 1900 og íbúar eru nú innan við 100 en hátíðin dregur marga að og áætlar Curtis að um 7.000 gestir hafi mætt að þessu sinni. Þetta er helsta hátíð þjóðarbrots í Norður-Dakóta og ein sú fjölmennasta á vegum fólks af íslenskum ættum í Bandaríkjunum. Þó að bærinn sé lítill eru íbúarnir stórir í hugsun og boðið er upp á viðamikla dagskrá. Félagsheimili var vígt í fyrra og í ávarpi sínu þakkaði Curtis Ís- lendingum fyrir veittan stuðning. „Við erum fá en saman getum við gert góða hluti,“ sagði hann. „Þetta er ótrúleg upplifun,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, en hann var heiðursgestur. Með í för er eiginkona hans, Anna Sigurlaug Pálsdóttir. Sigmundur sagði í ræðu sinni að heimsóknin hefði styrkt hann enn frekar til góðra verka. ,,Þetta er einn af bestu dög- um lífs míns,“ sagði hann og bætti um betur á Gimli í Kanada í gær þegar hann sagði að heim- sóknin til Vesturheims hefði verið frábær, nokkrir af bestu dögum sem hann hefði upplifað. Flugið lykilatriði „Þetta var gaman,“ sagði John H. Johnson, sem hefur búið í Görðum, rétt sunnan við Mountain, alla tíð, en hann fór fyrir ökutækjalest á hátíðinni á laugardag. Hann talar góða íslensku, ,,en þegar kemur að því að lesa íslensku þá er ég lélegur,“ segir hann. „Móðir mín og pabbi minn töluðu alltaf íslensku saman og það töluðu allir íslensku þegar ég var ungur.“ John er 78 ára gamall bóndi og var með naut- gripi sína í landi Stephans G. Stephanssonar. Sigurbjörg, langamma Johns, var systir Guð- mundar, föður skáldsins, og Helga, eiginkona Stephans, var systir afa Johns. „Ég hef kynnt mér vel söguna og veit mikið um Stephan en ljóðin hans eru of þung fyrir mig. Hins vegar er minnisvarðinn um hann er of þungur til að færa hann,“ bætir hann við og áréttar að sagan sé miklu aðgengilegri eftir að hann var reistur. Minnisvarðinn var reistur fyrir tíu árum og vegna íslenskukunnáttunnar hef- ur John sagt mörgum Íslendingum frá Stephani og reyndar verið leiðsögumaður á svæðinu hjá mörg- um. „Áður sagði ég fólki frá Stephani bara í gras- inu hérna en þetta er allt annað líf núna.“ Darlene, eiginkona hans, er líka frá Norður- Dakóta en hún á ættir að rekja til Þýskalands, Danmerkur og Írlands. Þær eru ekki margar hátíðirnar sem John hefur misst af en hann var fjarri góðu gamni í fyrra. „Ég var á spítala. Bakið mitt var svo sárt. Það var eitt- hvað að mér og við urðum að vinna úr því. Ég fékk sprautu og er góður núna.“ John hefur alltaf búið á sama stað og segir að hann hafi varla farið úr sveitinni. „Við kölluðum fé- lagsheimilið í Görðum alltaf bæinn en þar sem við lifðum kölluðum við Garðurinn.“ Hann hefur verið virkur í Íslendingafélaginu alla tíð og heldur tryggð við gamla landið, sem hann hefur þó aðeins einu sinni heimsótt, árið 2001. ,,Þetta var búið hérna um tíma, en starfið lifnaði við á 100 ára afmælinu og hefur eflst til muna á hverju ári eftir það. Við höfum fengið marga hópa frá Íslandi í heimsókn og það hjálpar mikið að fá menn eins og forsætisráðherra til okk- ar. Þetta helst í hendur við aukið flug Icelandair til Bandaríkjanna og Kanada. Flugið er lykilatriði.“ »12 Besta hátíðin í Mountain  Sigmundur Davíð Gunnlaugsson heiðurs- gestur á hátíðinni Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Foringi John H. Johnson fór fyrir ökutækjalestinni í Mountain og eiginkonan Darlene var honum við hlið. Leiði Káins Forsætisráðherrahjónin hella brennivíni yfir leiðið, sem er orðin hefð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.