Morgunblaðið - 06.08.2013, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Raðauglýsingar
Smáauglýsingar 569 1100
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
N.P. þjónusta. Tek að mér bókhald-,
endurútreikninga og uppgjör.
Uppl. í s. 861 6164.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Teg. 2211303: Þægilegir og fallegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Litir: rautt og svart. Stærðir: 36 - 41.
Verð: 14.875.
Teg. 7305: Sérlega mjúkir og
þægilegir dömuskór úr leðri,
skinnfóðraðir. Stærðir: 36 - 42.
Verð: 14.685.
Teg. 6037: Sérlega mjúkir og þægi-
legir dömuskór úr leðri, fóðraðir.
Stærðir: 36 - 42. Verð: 14.685.
Teg. I 16: Mjúkar og þægilegar
dömumokkasíur úr leðri, skinn-
fóðraðar. Stærðir: 36 - 42.
Verð: 14.685.
Teg. 162: Mjúkar og þægilegar
dömumokkasíur úr leðri, skinn-
fóðraðar. Stærðir: 36 - 42.
Verð: 14.685.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - föst. 10 - 18.
Lokað laugardaga í sumar.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Vélar & tæki
Einstaklega skilvirkir
sópar
á margar gerðirvinnuvéla.
Gott verð
Orkuver ehf . sími 534 3435
www.orkuver.is
Bílar
Hópferðabílar til leigu
Fast verð eða tilboð.
Plútó ehf
sími: 892 1525.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Kerrur
Samanbrjótanlegar
fólksbílakerrur.
Verð aðeins. 149.000 kr
Orkuver ehf . sími 534 3435
www.orkuver.is
Rómantíkin blómstar í kreppunni
Auk gullhringa eigum við m.a. titan-
íum- og tungsten-trúlofunarhringa á
fínu verði. Sérsmíði, framleiðsla og
viðgerðaþjónusta. ERNA, Skipholti 3,
s. 552 0775, www.erna.is
Verslun
Félagsstarf eldri borgara
!"#$%
& '
(
&
)
"#
*
+
( , ---
!" #$ % & .
#
"
"
"#
' ( )
/"#
!
!0
1
) * 2
3 ! 4 ! 2
5 " +
"# 6 '
%
&
"$%
& ! &
"$% 7
Látin er á elliheimilinu Grund í
hárri elli mikil sómakona og góður
vinur, hún móðirsystir mín Peta,
eins og hún var kölluð í daglegu
tali. Það eru margar minningarn-
ar sem rifjast upp þegar við
kveðjum hana Petu. Ég sem þetta
skrifa kynntist Petu fyrir rúmum
55 árum. Það er margs að minnast
og það sem kemur fyrst upp í
huga minn hversu mikil sögu-
manneskja hún var. Það voru ekki
ófáar sögurnar sem hún sagði
manni og hver annarri betri. Eitt
af því sem stendur uppúr þegar
hún og fjölskylda hennar komu í
heimsókn til Ólafsvíkur var að þá
farið alltaf í berjamó og voru það
skemmtilegar ferðir. Einnig man
ég eftir skemmtilegu atviki sem
gerðist á mínum yngri árum. Það
Petrína Jóna
Elíasdóttir
✝ Petrína JónaElíasdóttir
fæddist í Skógum í
Mosdal, Arnarfirði
27. ágúst 1914. Hún
lést á dvalar- og
hjúkrunarheim-
ilinu Grund 20. júlí
2013.
Útför Petrínu
fór fram frá Há-
teigskirkju 1. ágúst
2013.
var þannig að við
Halla, dóttir Petu,
brugðum undir okk-
ur betri fætinum á
17. júní, fórum við í
strætó úr Kópavog-
inum niður á Lækj-
artorg í Reykjavík
og urðum við við-
skila í mannfjöldan-
um. En þetta endaði
nú allt vel og við skil-
uðum okkur heim.
Þá var fólk orðið hálfóttaslegið yf-
ir þessum ósköpum og þá sagði
Peta, eigum við ekki frekar að
gleðjast yfir því að þau skulu hafa
skilað sér heim. Svona var hún
Peta í hnotuskurn.
Að leiðarlokum viljum ég og
fjölskylda mín þakka Petu af al-
hug fyrir sérstaklega góð kynni
og biðja henni Guðs blessunar yfir
móðuna miklu. Öllum ástvinum
hennar sendum við innilegustu
samúðarkveðjur.
Margt ég vildi þakka þér
og þess er gott að minnast
að þú ert ein af þeim sem mér
þótti gott að kynnast.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Hvíldu í friði, kæri vinur.
Jóhann Steinsson og
fjölskylda.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Góð vinkona mín Anna Magn-
úsdóttir er látin, en hún hefur átt
við mjög erfið veikindi að stríða í
rúm þrjú ár.
Anna var fædd í Hvammi, Vest-
ur-Eyjafjöllum, og þar ólst hún
upp við ástríki og umhyggju góðra
foreldra í stórum systkinahóp.
Anna var góðum gáfum gædd.
Ung að árum lærði hún að leika á
orgel, held ég að hún hafi verið um
fermingu eða jafnvel yngri, þegar
hún fór að spila við messur.
Ég kynntist ekki Önnu fyrr en
hún var uppkomin. Okkar sam-
skipti voru mikil í sambandi við
kirkjukór Oddakirkju sem þá var,
en Anna var organisti hjá okkur í
mörg ár. Kóræfingar voru um
lengri tíma heima hjá mér og voru
því margar góðar samverustund-
ir. Anna bar með sér sumar og sól
í sínu fallega brosi og ljúfa við-
móti.
Við Anna höfum líka átt góðar
stundir saman sl. þrjú ár, ég hef
alltaf farið ríkari af góðum minn-
ingum af hennar fundi, þrátt fyrir
hennar miklu veikindi.
Með þessum fáu línum vil ég
þakka henni góð kynni og sam-
skipti liðin ár.
Börnum hennar, systkinum og
fjölskyldum sendi ég samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Guðríður Bjarnadóttir.
Anna
Magnúsdóttir
✝ Anna Magn-úsdóttir fædd-
ist í Hvammi í Vest-
ur-Eyjafjallahreppi
6. maí 1944. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Lundi á Hellu 23.
júlí 2013.
Útför Önnu fór
fram frá Odda-
kirkju 1. ágúst
2013.
Lokið er kafla í lífsins
miklu bók.
Við lútum höfði í bæn
á kveðjustund.
Biðjum þann Guð,
sem gaf þitt líf og
tók
græðandi hendi að
milda sorgarstund.
(Vigdís
Runólfsdóttir.)
Látin er okkar
kæra systir, Anna Magnúsdótt-
ir, langt um aldur fram.
Anna gekk til liðs við Oddfel-
lowregluna er hún gekk inn í
Rebekkustúkuna nr. 9 Þóru á
Selfossi árið 1999. Hún var góð-
ur liðsauki í starf okkar og
gegndi hún starfi orgelleikara af
trúmennsku og samviskusemi
allt þar til hún varð fyrir alvar-
legum veikindum fyrir um
þremur árum. Anna tók virkan
þátt í starfi okkar, hlý og glað-
sinna kona. Í veikindum hennar
var hugur hennar hjá okkur
systrum og fylgdist hún vel með
öllu starfi okkar og spurði alltaf
frétta hvað við værum að gera
og hvernig gengi.
Í vorferð okkar systra fyrir
tveimur árum um Suðurland
komum við til hennar að Lundi á
Hellu þar sem hún dvaldi síð-
ustu æviárin. Var það henni
óvæntur fagnaðarfundur að
hitta hópinn og eiga góða stund
með okkur. Minntist hún oft á
þessa heimsókn í samtölum okk-
ar síðar.
Hennar ósk var að komast á
fund og geta leikið á orgelið og
með hjálp fjölskyldu sinnar náði
hún að vera með okkur örfá
skipti og er síðasta skiptið okkur
systrum sérstaklega minnis-
stætt er hún mætti á lokafund
fyrir ári. Að loknum fundi settist
hún við flygilinn í veislusal og
spilaði undir fjöldasöng systra,
það geislaði af henni gleðin og
þannig munum við minnast
hennar.
Við kveðjum kæra systur
okkar með þakklæti og virðingu.
Vottum fjölskyldu hennar
innilega samúð.
Fh. Þórusystra,
Þórunn D. Oddsdóttir.