Morgunblaðið - 06.08.2013, Page 20
20 UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013
viðarparket
Verðdæmi:
Eik 3ja stafa kr. 4.590 m2
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Nýtt
2-lock
endalæsing
www.nortek.is Sími 455 2000
ÖRYGGISLAUSNIR FYRIR
ÖLL HEIMILI
Nortek er með mikið af einföldum notenda-
vænum lausnum fyrir heimili og sumarbústaði.
Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík
Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is
HEIMILISÖRYGGI
• Innbrotakerfi
• Myndavélakerfi
• Brunakerfi
• Slökkvikerfi
• Slökkvitæki
• Reykskynjarar
Nú eru tveir fýsi-
legir bitar, að sumum
finnst, á borði okkar
Íslendinga. Það er að
leggja straumkapal til
Evrópu og einnig að
bora eftir olíu á
Drekasvæðinu. Sama
er hvorn eða báða bit-
ana við veljum. Þeir
munu báðir standa í
okkur og breiða óham-
ingju yfir íslenska byggð. Við eig-
um gjöful fiskimið og fagurt land,
sem margan útlendinginn dreymir
um að heimsækja. En mikið vill
meira!
Straumkapallinn til Evrópu á að
gefa ógrynni peninga
af sér. Um þetta er
rætt þrátt fyrir að vit-
að sé að jöklarnir eru
að hverfa og verða lík-
lega alveg horfnir eftir
50 ár. Segjum að út í
þetta glapræði verði
farið og vatnið lækki
hægt og hægt í uppi-
stöðulónunum og
straumurinn minnki
hægt og hægt á kapl-
inum. Þá getum við
sagt: „Guð sé oss
næstur.“ Því ef ekki
verður nógur straumur á kaplinum
verður blessuð fjallkonan að láta af
hendi gersemar sínar, Gullfoss,
Dettifoss og Aldeyjarfoss og fleiri
fossa til virkjunar til að standa í
skilum með strauminn til Evrópu.
Ef allt þrýtur, hvar á þá að stinga
kaplinum í samband?
Svo er það þetta með olíuna. Nú
hefur komið í ljós að ekki er hægt
að reiða sig á orð vísindamanna
sem oft eru slegnir sömu blindu og
ævintýramennirnir. Þeir segja:
„Það er allt í lagi að bora, þetta
verður allt í lagi.“ Þetta segja þeir,
þrátt fyrir lekavandræðin sem urðu
á Mexíkóflóa hér um árið og langan
tíma tók að stoppa. Helst er að
reiða sig á orð vísindamanna sem
hættir eru störfum vegna aldurs.
Ég held að þetta með olíuleiðsluna
verði eins ótryggt og garðslangan
hjá mér þegar ég vökva garðinn;
stundum fer stúturinn framan af
slöngunni en alltaf lekur við inn-
takið.
Forspá: Fréttir 30. júní 2025:
Landsmenn og einnig erlendir fisk-
kaupmenn kvarta yfir olíubragði af
fiskinum. Olíubormenn segja að
þetta hafi ekkert með borunina á
Drekasvæðinu að gera.
Fréttir 3. júlí 2025: Í nótt um
þrjúleytið varð vart við mikinn ol-
íuleka við olíuinntakið á íslenska
borsvæðinu. Olíuflekkurinn dreifist
mjög hratt út með norðurströnd
landsins og vísindamenn hafa gefist
upp við að stoppa lekann, vegna
óveðursins sem nú geisar á svæð-
inu og búist er við að olíu-
flekkurinn nái um allar strendur
landsins innan mánaðar, ef ekki
tekst að stoppa lekann.
Erlendir fiskkaupendur hafa aft-
urkallað allar pantanir á fiski frá
Íslandi, vegna olíumengunar við
strendur landsins. Í upphafi skal
endinn skoða, stendur í góðri bók.
Hlaup eftir þessum villuljósum
minna á þegar hundarnir í sveitinni
hér í gamla daga hlupu á eftir bíl-
unum. Ef illa fer þá segjum við Ís-
lendingar vonandi ekki, eins og
maðurinn sem hafði týnst á grasa-
fjalli og verið þar í þrjú ár og var
spurður, á hvern hann tryði og
hann svaraði: „Ég trúi á trunt,
trunt og tröllin í fjöllunum.“
Guð blessi Ísland.
Tvö villuljós á himni – Ei veldur sá er varar
Eftir Eyþór
Heiðberg » Við eigum gjöful
fiskimið og fagurt
land, sem margan út-
lendinginn dreymir um
að heimsækja. En mikið
vill meira!
Eyþór
Heiðberg
Höfundur er athafnamaður.
Á mbl.is birtist merkileg frétt 16.
júlí sl.1).
Sagt var frá því að um 500.000
manns heimsæki Þingvelli á ári
hverju og þiggi þar ókeypis máltíð
en maturinn dugi ekki fyrir alla. Því
var sótt um í Framkvæmdasjóð
ferðamannastaða til að bjóða öllum
áfram upp á ókeypis mat en um-
sókninni var hafnað. Lausnin hjá
þjóðgarðinum er að óska eftir fjár-
veitingu frá ríkisstjórninni af fjár-
aukalögum til að hægt sé að bjóða
öllum ókeypis að borða áfram.
Gestir ættu að borga
sjálfir fyrir matinn
Ég er með miklu einfaldari lausn á
málinu. Láta fólkið sem kemur
þarna borga sjálft fyrir matinn sem
það borðar. Stjórnvöld ættu að reka
af sér slyðruorðið og rukka gesti fyr-
ir veitta þjónustu í þjóðgarðinum á
Þingvöllum. Það á ekki að senda
þennan reikning á almenning.
Ókeypis fyrir notandann en
greitt af samfélaginu
Glöggir lesendur átta sig því að mál-
tíðir og matur er hér notað í staðinn
fyrir bílastæði. Af einhverjum
óskýrðum ástæðum hafa bílastæði
orðið að sjálfkrafa gæðum sem öllum
er boðið uppá ókeypis og að því er
virðist í takmarkalausu magni. Það
eru ekki stjórnarskrárvarinn rétt-
indi að fá ókeypis bílastæði, né held-
ur stendur það í lögum.2) Upphæð
gjalds fyrir bíla-
stæði á Þingvöll-
um getur verið
jafngildi ódýrrar
máltíðar á
skyndibitastað og
hversvegna ætti
það að vera
ókeypis?
Fyrirkomulag
gjaldtöku
Til að koma á gjaldskyldum stæðum
á Þingvöllum þarf að banna bíla-
stöðu nema í merktum stæðum t.d. í
lögum um þjóðgarðinn. Gjaldtaka
fyrir bílastæði á Þingvöllum ætti að
vera í samræmi við eftirspurn, þ.e.
ókeypis í malarstæðum fjærst vin-
sælustu stöðunum en dýrast við vin-
sælustu staðina. Tímagjald mætti
lækka með lengri stöðu bíls t.d. við
tjaldstæði. Taka ætti hátt auka-
stöðugjald til að koma í veg fyrir
ólöglega lagningu bíla utan merktra
stæða. Gjaldtaka fyrir bílastæði ætti
að lágmarki að standa undir gerð og
viðhaldi bílastæða í þjóðgarðinum en
mætti vera hærra til að standa undir
öðrum framkvæmdum eins og stíga-
gerð. Margskonar tæknibúnað er
hægt að nota við gjaldtökuna sem er
öruggur og þægilegur í notkun.
1)
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/07/16/
bilastaedaskortur_a_thingvollum/
2)
http://tiny.cc/hhgd0w, http://tiny.cc/qigd0w
ÁRNI DAVÍÐSSON,
líffræðingur.
Augljós lausn
á Þingvöllum
Frá Árna Davíðssyni
Árni
Davíðsson
Móttaka að-
sendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn "Senda inn grein" er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið.