Morgunblaðið - 06.08.2013, Page 27

Morgunblaðið - 06.08.2013, Page 27
fátæku í stað þess að efla fólk að völdum í eigin lífi. Þannig mótast ölmusumenning sem viðheldur vandanum í stað þess að við þróum með okkur þátttökumenningu þar sem horft er til almennra mannrétt- inda og valdefling og félagsauður fá að blómstra.“ Fjölskylda Bjarni kvæntist 25.9. 1982 fyrri konu sinni, Rósu Kristínu Bald- ursdóttur, f. 28.1. 1963, kennara. Þau skildu 1984. Sonur þeirra er Andri, f. 13.4. 1983, sálfræðingur við þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða hjá Reykjavíkurborg, en kona hans er Unnur Guðmundsdóttir sjúkraþjálfi og er dóttir þeirra Bergþóra Hildur, f. 4.5. 2009. Bjarni kvæntist 29.8. 1987 Jónu Hrönn Bolladóttur, f. 21.7. 1964, sóknarpresti í Garðaprestakalli. Hún er dóttir Bolla Þóris Gúst- avssonar, f. 17.11. 1935, d. 27.3. 2008, vígslubiskups á Hólum í Hjaltadal, og k.h., Matthildar Jóns- dóttur, f. 2.1. 1936, hárgreiðslu- meistara. Börn Bjarna og Jónu Hrannar eru Matthildur, f. 8.5. 1988, guð- fræðingur að hefja MA-nám í trúar- brögðafræði við Kaupmannahafn- arháskóla en maður hennar er Daði Guðjónsson, nemi í kennslufræði; Bolli Már, f. 13.3. 1992 sem er að ljúka menntaskólanámi. Bræður Bjarna eru Flosi Karls- son, f. 26.3. 1960, læknir í Hafnar- firði; Hróbjartur Darri Karlsson, f. 18.9. 1961, læknir í Reykjavík, og Árni Heiðar Karlsson, f. 6.7. 1975, píanóleikari í Reykjavík. Foreldrar Bjarna eru Karl Sævar Benediktsson, f. 23.2. 1934, sérkenn- ari og fyrrv. skólastjóri í Reykjavík, og Helga Steinunn Hróbjartsdóttir, f. 30.9. 1936, sérkennari og náms- ráðgjafi. Hjónin Bjarni og Jóna Hrönn. Úr frændgarði Bjarna Karlssonar Bjarni Karlsson Helga Einarsdóttir húsfr. í Langholti Ingibjörg Þorsteinsdóttir húsfr. í Rvík Hróbjartur Árnason forstjóri í Rvík Helga Steinunn Hróbjartsdóttir sérkennari Ólafía Hjálmrós Ólafsdóttir húsfreyja Stefán Jóhannesson húsm. í Efrihlíð í Helgafellssveit Aðalheiður Kristný Stefánsdóttir húsfr. í San Diego í Bandaríkjunum Benedikt G.V. Guðmundsson skipstj. í Hafnarfirði Karl Sævar Benediktsson fyrrv. skólastjóri Jóna Benediktsdóttir húsfr. í Bolungarvík Guðmundur Gestsson smiður í Bolungarvík Margrét Hróbjartsdóttir húsfr. á Áshóli Jórunn Eyjörð húsfr. í Rvík Ingibjörg Jónasd. Eyfjörð húsfr. í Rvík Hjalti Guðmundss. dómkirkju- prestur Jón Dalbú Hróbjartsson pr. í Hallgrímskirkju Árni Runólfsson b. á Áshóli Ingigerður Runólfsdóttir húsfr. á Berustöðum Jóhann Þorsteinsson forstj. í Hafnarfirði Kjartan Jóhannsson fyrrv. ráðherra Arndís Þorsteinsdóttir ljósmóðir á Syðri-Hömrum Ingveldur Ástgeirsd. húsfr. á Brúnastöðum Guðni Ágústsson fyrrv. ráðherra Þorsteinn Sigurðsson b. í Langholti í Flóa Ingibjörg Sigurðardóttir húsfr. á Byggðarhorni Stefanía Gissurardóttir biskupsfrú á Selfossi Sigurður Sigurðarson vígslubiskup í Skálholti Gunnar Stefánsson útgerðarm. í Grundarfirði Illugi Guðmundsson skipstjóri í Hafnarfirði Ína Illugadóttir fyrrv. fulltr. í Hafnarfirði Illugi Gunnarsson menntamálaráðh. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. ÁGÚST 2013 Séra Róbert Jack fæddist 5.ágúst 1913 í Glasgow í Skot-landi. Foreldrar hans voru Robert John Jack og Mary Louis Vennard. Róbert starfaði nær alla sína ævi á Íslandi. Hann kom upphaflega hingað til lands árið 1936 sem knatt- spyrnuþjálfari Vals. Hann nam guð- fræði við Háskóla Íslands og útskrif- aðist þaðan árið 1944. Að lokinni vígslu gerðist hann sóknarprestur að Heydölum í Breiðdal, síðar í Grímsey, í Íslendingabyggðum Manitoba í Kanada og loks á Tjörn á Vatnsnesi en þar var hann um þrjá- tíu ára skeið sóknarprestur og síðar einnig prófastur Húnavatnsprófast- dæmis. Róbert hafði geysilegan áhuga á knattspyrnu alla tíð og var m.a. heið- ursfélagi í Celtic og góðvinur Sir Matt Busby hjá Manchester United, en þeir voru skólabræður. Margar sögur eru til af Róbert. Ein sú út- breiddasta mun vera auglýsing hans þegar hann var prestur í Heydölum. „Messa næstkomandi sunnudag, takið fótboltaskóna með.“ Þetta bar árangur því Breiðdælingar urðu Austfjarðameistarar undir hans stjórn. Það var ávallt ríkt í Róbert að kynna Ísland. Hann var alla tíð þakklátur fyrir hvernig „landinn“ eins og hann orðaði það, tók honum opnum örmum þegar hann settist hér að. Hann skrifaði fjölda greina um íslenskt samfélag sem birtust í erlendum blöðum, einnig hélt hann fyrirlestra um landið „sitt“ Ísland í mörgum bandarískum háskólum. Eftir Róbert liggja þrjár bækur um ævi hans og störf. Hann var tví- kvæntur. Fyrri eiginkona hans var Sigurlína Guðjónsdóttir, en hún and- aðist 2.3. 1952. Þau eignuðust fjögur börn. Eftirlifandi eiginkona er Guð- munda Vigdís Jack. Þau eignuðust fimm börn en hún átti einn dreng fyrir. Sr. Róbert var einbirni og þess má geta að skyldmenni hans í Skot- landi eignuðust fáa afkomendur, því er það svo að í dag er „Jack-ættin“ orðin stærri á Íslandi en í Skotlandi. Beinir afkomendur hans eru nú 66 talsins. Róbert andaðist 11.2. 1990 að heimili sínu í Kópavogi. Merkir Íslendingar Róbert Jack 100 ára Lára Jónsdóttir 85 ára Katrín Eyjólfsdóttir Sigurlaug M. Árnadóttir 80 ára Dóra Guðleifsdóttir Hrefna Einarsdóttir Ingibjörg Sveinsdóttir Jón Gunnar Jóhannsson 75 ára Alda Sigurðardóttir Auður Hákonardóttir Erna Sigurjónsdóttir Jónas Jóhannsson Örn Engilbertsson 70 ára Bjartey Friðriksdóttir Gísli Guðmundsson Gylfi Guðmundsson Kristín Þorbjörg Gísladóttir Sesselja Áslaug Her- mannsdóttir Sigurbjörn T. Vilhjálmsson Völundur Jónsson Þorsteinn V. Þórðarson 60 ára Aðalbjörg Hlín Brynjólfsdóttir Arnþrúður Soffía Ólafsdóttir Helga Einarsdóttir Kristján Finnbogi Ólafsson Logi Vilberg Gunnarsson Sigurður A. Guðmundsson Þór Magnússon 50 ára Ágúst Ólafsson Ingvaldur Línberg Gúst- afsson Jóhanna Gunnlaugsdóttir Margrét Lilliendahl Móna Steinsdóttir Pétur Marías Pétursson Ragnar Björnsson Rannveig Ólafsdóttir Sigfús Jónas Guðnason Þóra Sjöfn Kristinsdóttir 40 ára Anna Kristín Gunnarsdóttir Björn Kjartansson Friðbergur Jón Þor- steinsson Gauti Árnason Gunnar Torfason Hildigunnur Georgsdóttir Járnbrá Hrund Gylfadóttir Marina Aleksandersdóttir Oddgeir Ágúst Ottesen Sigvaldi Vilmar Böðvarsson Tatjana Jovanovic 30 ára Aldís Snorradóttir Brynjólfur Jóhann Þorsteinsson Dorota Karolina Rybak Einar Jóhann Sigurðsson Erling Daði Emilsson Hildigunnur Sigvarðsdóttir Sigríður Jóh. Sigurbjörnsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Steinunn ólst upp í Þolákshöfn, lauk prófum frá Iðnskólanum í Reykja- vík og býr á Ísafirði. Systkini: Óskar Gíslason, f. 1980; Arnar Jónsson, f. 1989; Margrét Jónsdóttir, f. 1994; Helgi Jónsson, f. 1999, og Sigurður Jóns- son, f. 1999. Foreldrar: Jón M. Ara- son, f. 1960, sjómaður í Þorláksh., og Pálína Krist- ín Garðarsdóttir, f. 1963, húsfeyja á Vopnafirði. Steinunn Jónsdóttir 30 ára Olga ólst upp í Grundarfirði, lauk MSc- prófi í rafmagnsverkfræði frá Boston University og er sérfræðingur í áhættu- stýringu hjá MP banka. Maki: Garðar Hauksson, f. 1982, rafmagnsverkfr. hjá Nox Medical. Dóttir: Auður Lóa, f. 2011. Foreldrar: Ólafía Þ. Gunn- arsdóttir, f. 1955, náms- ráðgjafi, og Stefán Ólafs- son, f. 1953, vélstjóri. Guðrún Olga Stefánsdóttir 30 ára Kristján ólst upp í Reykjavík, lauk stúdents- prófi frá MS og atvinnu- flugmannsprófi frá Flug- skóla Íslands 2003 og er flugmaður hjá Icelandair. Maki: Guðrún Tóm- asdóttir, f. 1986, flug- maður. Foreldrar: Guðbjartur Rúnarsson, f. 1958, flug- maður hjá Icvelandair, og Sara T. Rúnarsdóttir, f. 1955, bókbindari. Þau búa í Reykjavík. Kristján Guðbjartsson „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18 MIKIÐ ÚRVAL AF UMGJÖRÐUM SJÓNMÆLINGAR– LINSUMÁTANIR TRAUS T OG GÓ Ð ÞJÓNU STA Í YFIR 1 6 ÁR S Ó LG L E R - AU G U N FÆRÐU HJÁ OKKUR MEÐ EÐA ÁN STYRKLEIKA NÝ SENDING SÓLGLERAUGU OG UMGJARÐIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.