Morgunblaðið - 11.09.2013, Side 38

Morgunblaðið - 11.09.2013, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 VETUR – SUMAR – VOR – HAUST Fáanlegar með þremur mismunandi gerðum af húsum. Avant liðléttingurinn er tilvalinn í hausthreinsun, snjóhreinsun, jarðvegsvinnu, alls konar verktakavinnu trjáfellingar og margt fleira. LIPUR GRIPUR AVANT – FJÖLHÆFUR ALLT ÁRIÐ UM KRING Fjöldi viðtækja fáanlegur. Setning Bókmenntahátíðar í Reykjavík fer fram í Norræna húsinu í dag kl. 10. Á sama stað milli kl. 11:30-13:30 fara fram við- töl við erlenda höfunda Bók- menntahátíðar. Meðal þeirra sem þar taka þátt eru Herman Koch, Georgi Gospodinov, Ewa Lipska og Jenny Erpenbeck. Klukkan 14 munu Áslaug Jónsdóttir og Nuka K. Godt- fredsen kynna bækur sínar sem eru meðal fjór- tán bóka sem tilnefndar eru til barna- og unglingabókmennta- verðlauna Norðurlandaráðs sem afhent verða í næsta mánuði. Í Flóa í Hörpu verður boðið upp á sameiginlega dagskrá Bók- menntahátíðar og PEN, alþjóða- samtaka rithöfunda frá kl. 14 og fram á kvöld. Kl. 14 verður rætt við þrjá unga höfunda sem tilnefndir eru til New Voices Award, sem eru ný verðlaun á vegum PEN, en verð- launin sjálf verða afhent í Eldborg í kvöld. Kl. 15 fara fram umræður um hvort varð- veisla tungumála sé mannréttinda- mál og tekur Vigdís Finn- bogadóttir þar þátt. Kl. 16 verður hatursáróður og birtingarmyndir hans á Norðurlöndum til umræðu. Kl. 20 hefst upplestrarkvöld Bókmenntahátíðar og PEN sam- takanna sem fram fer í Eldborg- arsal Hörpu. Þar koma m.a. fram Antonio Skár- meta, Þorsteinn frá Hamri, Gerð- ur Kristný og John Ralston Saul, forseti PEN Inter- national. Bóka- barinn verður öllum opinn í Iðnó. Dagskrá dagsins Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Alþjóðleg bókmenntahátíð í Reykja- vík verður sett í 11. sinn í Norræna húsinu í dag kl. 10. Þar flytja ávörp þeir Max Dager, forstjóri Norræna hússins, og rithöfundarnir Einar Kárason og Alain Mabanckou. Há- tíðin stendur til sunnudags og verð- ur á næstu dögum boðið upp á mik- inn fjölda viðburða víðs vegar um borgina. Samhliða Bókmenntahátíð stendur sem hæst 79. heimsþing PEN samtakanna þar sem þátt taka um 200 höfundar frá 70 þjóðlöndum. „Það var frábært tækifæri að geta haldið heimsþingið samhliða Bók- menntahátíð,“ segir Sjón sem er forseti íslenska PEN, og leggur áherslu á að hvort styðji annað með mikilvægum hætti. „PEN samtökin eru alþjóða- samtök rithöfunda sem stofnuð voru 1921 sem viðbragð við hryllingi fyrri heimsstyrjaldar og byggja á trúnni á hið ritaða mál og ritaða tjáningu sem leið til að hafa frið- vænlegt hér á jörðinni. Með því að vinna með Bókmenntahátíðinni er PEN þingið að minna sig á þessar rætur sínar, þ.e. að á endanum snýst þetta alltaf um það að hér er fólk sem trúir því að það að tjá sig í rituðu máli sé ein af grunnstoðum mannlegs lífs. Hins vegar minnir PEN þingið Bókmenntahátíðina á að það er ekkert sjálfsagt mál að til séu bókmenntir yfirleitt,“ segir Sjón og vísar þar m.a. til þess að um 800 rithöfundar eru fangelsaðir í heim- inum í dag. Málfrelsið í hættu? Að sögn Sjón brennur öryggi rit- höfunda á þátttakendum PEN þingsins. „Því miður er það að verða æ algengara að rithöfundar séu myrtir frekar en fangelsaðir,“ segir Sjón og bendir í því samhengi á Mexíkó, sem er hættulegasti staður í heiminum í dag til að vera rithöf- undur. „Eitt af stóru málunum á þinginu er málfrelsi á tímum staf- rænnar tækni, annars vegar hvern- ig tæknin hefur áhrif á minni tungu- mál og hins vegar öryggi og frelsi fólks á netinu,“ segir Sjón og bendir á að þetta hafi m.a. verið rætt á nefndarfundum samtakanna fyrr í vikunni. Fjórar fastanefndir starfa á vegum PEN, en þær eru nefnd sem starfar að málefnum fangels- aðra rithöfunda, nefnd sem starfar að málefnum skrifandi kvenna með sérstaka áherslu á þriðja heiminn, nefnd um þýðingar og réttinn til tungumála og nefnd sem nefnist höfundar fyrir friði. Höfundar framtíðarinnar Seinustu daga hafa rithöfundar af PEN þinginu tekið þátt í upp- lestrum víðsvegar um borgina og næstu tvo daga verður fjöldi við- burða í samstarfi við Bók- menntahátíð. Í dag kl. 14 verður rætt við þrjá unga höfunda sem til- nefndir eru til New Voices Award, sem eru ný alþjóðleg verðlaun sem PEN samtökin hafa stofnað til, en verðlaunin sjálf verða afhent í Eld- borg í kvöld kl. 20. „Þetta eru merkileg og óvenjuleg verðlaun að því leyti að þetta er tilraun til að uppgötva höfunda framtíðarinnar. Allt eru þetta ungir höfundar sem hafa ekki gefið út bækur áður,“ seg- ir Sjón og tekur fram að um 80 höf- undar frá 40 löndum heims hafi ver- ið tilnefndir til verðlaunanna. Valið stendur nú milli þriggja höfunda, en þeir eru Masande Ntshanga frá Suður-Afríku, José Pablo Salas frá Mexíkó og Claire Battershill frá Kanada. „Þetta eru frábærir ungir höfundar sem umbreyta persónu- legri reynslu í grípandi frásögn samhliða því sem þeir miðla því sem gengur á í samfélögum þeirra,“ seg- ir Sjón. Af öðrum viðburðum á vegum PEN má nefna pallborðsumræður um hatursáróður og birtingar- myndir hans á Norðurlöndum sem fram fara í Hörpu í dag milli kl. 16- 16.45. „Við viljum gjarnan gleyma því að málfrelsið er ekki bara eitt- hvað sem á undir högg að sækja á fjarlægum slóðum, heldur standa þessi mál okkur nær. Þarna er verið að ræða annars vegar beinan hat- ursáróður, m.a. á netinu, og hins vegar það haturstal sem fólk sem tjáir sig á netinu verður fyrir. Við þekkjum ýmis dæmi þess héðan frá okkur, þar sem fólki er hótað öllu illu af nafnlausum aðilum á netinu þegar það reynir að taka þátt í eðli- legri borgaralegri umræðu.“ Einnig nefnir Sjón spennandi pallborðsviðtal við hvít-rússneska rithöfundinn og blaðakonuna Svet- lönu Alexievitch, sem fram fer í Hörpu á morgun kl. 14. „Fyrir utan að vera höfundur á Nóbels- mælikvarða er hún mjög góður mál- svari fólks sem skrifar bækur undir mikilli harðstjórn,“ segir Sjón. Öryggi rithöfunda í brennidepli Morgunblaðið/Kristinn Skáld Sjón segir fara vel á því að halda heimsþing PEN samhliða alþjóðlegri bókmenntahátíð í Reykjavík.  Telja tjáningu í rituðu máli vera eina af grunnstoð- um mannlegs lífs „Ferðast á slóðum bókmennta“ nefnist málþing um bókmenntir og ferðaþjónustu sem fram fer í Iðnó í dag. Það er Samstarfsnet nor- rænna bókmenntasafna sem efnir til málþingsins í samstarfi við Bók- menntahátíð og Reykjavík bók- menntaborg UNESCO. Málþingið, sem fer fram á ensku, er opið öll- um sem hafa áhuga á hvernig bók- menntir og ferðaþjónusta tengjast. Þátttökugjald er 5.000 kr. Málþingið hefst kl. 9 með opn- unarávarpi mennta- og menningar- málaráðherra. Því lýkur síðan með pallborðsumræðum um hádegisbil þar sem gestum gefst kostur á að spyrja spurninga. Í erindum verð- ur fjallað um aðdráttarafl bók- mennta á ferðamenn, allt frá Ís- lendingasögum til Astrid Lindgren. Opnunarerindi mál- þingsins flytur Hans Christian Andersen, prófessor í markaðs- fræðum ferðamála og ferðaþjón- ustustjórnun við háskólann í Northumbria í Englandi. Aðrir frummælendur eru Rögnvaldur Guðmundsson, Svanhildur Kon- ráðsdóttir, Kjell-Åke Hansson, Jo- hannes Nørregaard Frandsen og Solveig Røvik. Ferðalangar Fjöldi ferðamanna leggja árlega leið sína í söfn til heiðurs rit- höfundunum Astrid Lindgren og Hans Christian Andersen. Bókmenntirnar heilla ferðamenn  Sex frummælendur á málþingi í Iðnó Bókmenntahátíð í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.