Morgunblaðið - 11.10.2013, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 11.10.2013, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra sagði á Alþingi í fyrradag að ástandið á Landspítalanum væri al- varlegt. Fyrri ríkisstjórn hefði skorið þar niður inn að beini en það væri ekki gert í fjárlagafrumvarpi næsta árs. „Það breytir því ekki að það er uppi alvarleg staða þar,“ sagði Bjarni og bætti við, að það yrði úrlausnarefni þingsins á komandi mánuðum og ár- um hvernig bætt yrði úr þessu. Þetta kom fram í óundirbúnum fyr- irspurnartíma á Alþingi. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinn- ar, beindi fyrirspurn til Bjarna og sagði m.a. að sú athyglisverða staða væri nú komin upp að fjárlagafrum- varpið virtist ekki njóta meirihluta- stuðnings á Alþingi, þar sem forsætis- ráðherra og nokkrir stjórnar- þingmenn hefðu tjáð sig opinberlega um málefni Landspítala og talað fyrir auknum fjárveitingum til spítalans. Þar hefðu verið nefndir 3-5 milljarðar króna. Þá spurði hann Bjarna hvort hann væri reiðubúinn að ræða við stjórn- arandstöðuna um að falla frá þeim áformum um að minnka álögur á þá sem best væru færir til að borga þannig að raunverulega sé hægt að mæta þörfum Landspítalans fyrir auknar fjárveitingar. Mikilvægt að örva vöxt Bjarni telur mikilvægt að hagkerf- ið verði örvað til frekari vaxtar og þannig megi skapa ríkinu frekari tekjur. „Ég sé ekki fyrir mér að við hverfum frá þeim skattalækkunum sem eru í þessu frumvarpi, þvert á móti vil ég frekar skoða aðrar leiðir,“ sagði Bjarni. Hann tók fram að frumvarpið hefði fengið góðan stuðning og undirtektir hjá báðum stjórnarflokkunum. „Það sem skilur þetta fjárlagafrumvarp frá fyrri fjárlagafrumvörpum er að sam- hliða því eru lagðar fram allar tekju- öflunarráðstafanir. Við sjáum því núna heildarmyndina og umræðan fer fram á grundvelli þess,“ sagði Bjarni. Mikilvægast væri að örva hagkerfið til frekari dáða og skapa þannig ríkinu meiri tekjur. Bjarni sagði síðar í umræðunni, að það væri rétt að ríkisstjórnin hefði þurft að taka margar erfiðar ákvarð- arnir við að koma fjárlagafrumvarp- inu saman. „Aðhaldsaðgerðir í frum- varpinu eru upp á 12 milljarða. Þær bitna þó ekki á Landspítalanum,“ sagði fjármálaráðherra. Hann bætti við unnið væri að gerð langtímaáætlunar um þörfina fyrir tækjakaup á Landspítalanum. „Við fáum það skjal vonandi inn í þingið á næstu vikum til að vinna með en mér þykir vænst um það, eftir að hafa far- ið í gegnum 1. umr. fjárlaga, að það er góður samhljómur í þinginu um það markmið að skila ekki fjárlögunum í halla.“ Morgunblaðið/Ómar Á Alþingi Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra í ræðustól á Alþingi. Aðhaldsaðgerðir bitna ekki á LSH  Mikilvægt að örva hagkerfið Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Rangárþing eystra auglýsti nýverið lausar til úthlutunar lóðir á Hvols- velli við nýja götu sem verið er að leggja. Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitar- stjóri Rangárþings eystra, segir að þrátt fyrir efnahagshrun hafi sem betur fer risið eitthvað af nýjum húsum í sveitarfélaginu. „Núna erum við að grafa fyrir götu og gerum ráð fyrir að þarna verði íbúðir fyrir 60 ára og eldri og fólk sem þarf hugsanlega á þjónustu annaðhvort heilsugæslunnar eða hjúkrunarheimilisins að halda,“ sagði Ísólfur Gylfi, en gatan liggur nærri bæði heilsugæslunni og hjúkr- unarheimilinu. Fimm íbúða raðhús og tvær parhúsalóðir við Sólbakka „Gatan mun heita Sólbakki,“ sagði Ísólfur Gylfi. Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði að jafnaði á bilinu 80 til 120 fermetrar að stærð. Lóðirnar sem um ræðir eru hugs- aðar undir 5 íbúða raðhús og tvær parhúsalóðir. Lóðirnar eru auglýstar lausar til úthlutunar til 16. október 2013. Morgunblaðið/Guðmundur Sv. Hermannsson Sólbakki á Hvolsvelli Byrjað var í síðustu viku að grafa fyrir nýrri götu á Hvolsvelli. Íbúðir við götuna eru hugsaðar fyrir fólk eldra en sextugt. Ný gata lögð og nýj- ar íbúðir á Hvolsvelli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.