Morgunblaðið - 11.10.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
100% made in Italy
www.natuzzi.com
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi. Staður þar sem fólki líður vel.
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið Natuzzi gallerýið okkar
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Hannes Sigurðsson, forstöðumað-
ur Sjónlistamiðstöðvarinnar á Akur-
eyri, hefur sagt starfi sínu lausu.
Hann hefur verið 14 ár í Listagilinu;
fyrst sem forstöðumaður Listasafns-
ins á Akureyri og síðan stýrt Sjón-
listamiðstöðinni frá því hún var sett
á stofn í byrjun árs 2012.
Hannes fylgir sýningum þessa
árs til enda, lýkur skipulagningu fyr-
ir næsta sýningarár og ritstýrir dag-
skrárbæklingi Sjónlistamiðstöðvar-
innar fyrir næsta ár. Hann mun
jafnframt verða sýningarstjóri sum-
arsýningar miðstöðvarinnar 2014
þótt hann muni þá hafa látið af störf-
um sem forstöðumaður.
Stefnt er að því að útrýma kyn-
bundnum launamun hjá Akureyrar-
bæ sem fyrst. Jöfnuði var náð fyrir
nokkrum árum, eða því sem næst, en
nú eru karlar aftur komnir um 3,9%
fram úr konum skv. úttekt Rann-
sókna- og þróunarmiðstöðvar
Háskólans á Akureyri.
Þá er átt við heildarlaun en „óút-
skýrður launamunur karla og
kvenna var 1,5% í dagvinnulaunum
starfsfólks uppreiknuð miðað við
fulla stöðu þegar búið var að taka til-
lit til menntunarálags, starfs, deild-
ar, aldurs, starfsaldurs og vinnu-
tíma, körlum í vil,“ segir í
tilkynningu frá bænum.
Sýningin MATUR-INN 2013
hefst í Íþróttahöllinni á Akureyri í
dag kl. 13 og stendur í tvo daga. Sýn-
endur eru um 30, allt frá smáfram-
leiðendum upp í stór fyrirtæki. Sýn-
ingin, sem nú er haldin í sjötta sinn,
er á tveggja ára fresti. Síðast
sóttu hana hátt í 15 þúsund
manns. Aðgangur er ókeypis.
Þungamiðjan í sýningunni er norð-
lensk matarmenning og matreiðsla.
Grófin, geðverndarmiðstöð var
formlega opnuð á Akureyri í gær við
göngugötuna; á fjórðu hæð Hafnar-
strætis 95. Markmiðið með starf-
seminni er að skapa tækifæri fyrir
þá sem glíma við geðraskanir að
vinna í sínum bata eftir hugmynda-
fræði valdeflingar; að hjálpa sér
sjálft, sem sagt. Mikil gleði ríkti í
Grófinni í gær.
Allir eru velkomnir í Grófina; þeir
sem glíma við geðraskanir, aðstand-
endur, fagfólk eða áhugamenn um
framfarir í geðheilbrigðismálum.
Það er Geðverndarfélag Akureyrar
og nágrennis sem stendur að opnun
Grófarinnar, en fyrirmynd og hvatn-
ing er sótt til 10 ára farsæls starfs
Hugarafls í Reykjavík.
Fjöldi fólks kemur til Akureyrar
um hverja helgi, í ýmsum erinda-
gjörðum, en óvenju margir verða á
ferðinni um helgina. Flugfélag Ís-
lands býður venjulega upp á níu
ferðir á milli höfuðborgar Íslands og
nyrstu borgar landsins á föstudög-
um, en í dag verða þær tólf.
Dömulegir dekurdagar standa
yfir um helgina og eru orðnir býsna
vinsælir. Einhverjir koma einmitt
fljúgandi til bæjarins vegna þeirra.
Ótalmargt er á döfinni á dekurdög-
unum og einfaldast að benda dömum
og öðrum áhugamönnum á vefsíðuna
www.visitakureyri.is.
Eiríkur Hauksson stelur senunni
á Græna hattinum í kvöld. Á morgun
flytja Páll Rósinkranz og fleiri góðir
tónlistarmenn lög Erics Claptons á
sama stað.
Af geði, dekri og
launamun kynjanna
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Haust Tréð stendur kviknakið þegar laufin hverfa á braut. Þau fara að vísu ekki langt strax í norðlenska logninu.
Grófin Brynjólfur Ingvarsson, form. Geðverndarfélags Ak., Geir Kristinn
Aðalsteinsson, forseti bæjarstjórnar, og Höskuldur Stefánsson frá Kiwanis.