Morgunblaðið - 11.10.2013, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
Þessi vara
er laus við:
Mjólk
Glúten
Sykur
Soja
Rotvarn-
arefni
10
0%
NÁ
TTÚRULEGT
100%
NÁTTÚRUL
EG
T
Fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.
I
S
UPPLIFÐUMUNINN!
Áhrifaríkur ASÍDÓFÍLUS ásamt
öðrum öflugum góðgerlum
Oft spurt?
Af hverju virka PRÓGASTRÓ DDS PLÚS 3 góð-
gerlarnir svona vel og fljótt á marga meltinga-
erfiðleika eins og hægðatregðu, niðurgang,
uppþembu, kandíta, sveppasýkingu ofl.
Svar?
Lykillinn er að allir góðgerlarnir í PRÓGASTRÓ
DDS PÚS 3 eru gall- og sýruþolnir og ná að lifa
ferðina af í gegnummagann niður í smáþarmana.
Auk þess er ASÍDÓFÍLUSINN DDS 1, sem hefur
þann hæfileika að fjölga sér og dvelja í þörmunum,
vinnusamur og stöðugur.
Notkun
2 hylki á morgnana á fastandi maga geta gert
kraftaverk fyrir meltinguna! Margir fullyrða að þeir
sem hafa góða meltingu séu hamingjusamari.
- Prófaðu og upplifðu muninn
Smáþing, stofnfundur „Litla Ís-
lands“, var haldið í gær og var afar
vel sótt. Litla Ísland er nýr vettvang-
ur á vegum Samtaka atvinnulífsins
(SA) fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
á Íslandi þar sem þau vinna saman
óháð atvinnugreinum.
Á Smáþingi var m.a. kynnt niður-
staða nýrrar könnunar Outcome á
því hvað lítil og meðalstór fyrirtæki á
Íslandi telja sig geta skapað mörg ný
störf á næstu þremur til fimm árum.
Þar kom m.a. fram að að lítil og
meðalstór fyrirtæki áætla að fjölga
starfsmönnum um 17.500 á næstu
þremur árum.
Tæplega 400 svöruðu
Í kynningu SA segir m.a.: „Sam-
tök atvinnulífsins gerðu könnun á
ráðningaráformum lítilla og meðal-
stórra félagsmanna sinna í septem-
ber 2013. Niðurstöðurnar byggja á
svörum tæplega 400 fyrirtækja.
Spurt var um hvort horfur væru á
fjölgun eða fækkun starfsmanna
næstu 3-5 ár.
Lítil og meðalstór fyrirtæki sjá al-
mennt fram fjölgun starfsmanna. Al-
gengast er að þau geri ráð fyrir
fjölgun um 2-4 starfsmenn (46%),
næst algengast um 5-9 starfsmenn
(20%) og þar á eftir 10-14 (16%)
starfsmenn.
Í heild áforma litlu og meðalstóru
fyrirtækin, sem þátt tóku í könnun-
inni, fjölgun starfa um 1.500, eða sem
nemur 15% á næstu þremur til fimm
árum. Lítil og meðalstór fyrirtæki á
Íslandi, sem hafa 2-249 starfsmenn,
eru samtals rúmlega 9 þúsund og
hafa 83 þúsund starfsmenn í vinnu.
Sé niðurstaða könnunarinnar um
áformaða 15% fjölgun starfsmanna
næstu þrjú til fimm árin yfirfærð yfir
á öll lítil og meðalstór fyrirtæki fæst
að fjölgun starfsmanna þeirra gæti
orðið 17.500 á þessu tímabili. Svo
mikil fjölgun er langt umfram nátt-
úrulega fjölgun á vinnumarkaði, sem
er um 1.500-2.000 árlega, þannig að
ef þessi áform ganga eftir mun full
atvinna nást innan fárra ára.“
Frekari upplýsingar má nálgast á
heimasíðu Samtaka atvinnulífsins,
www.sa.is
Áforma mikla fjölgun starfa
Lítil og meðalstór fyrirtæki á Smáþingi Litla Íslands í sóknarhug Áformuð
fjölgun starfa mest hjá örfyrirtækjum þar sem starfsmenn eru færri en tíu
Morgunblaðið/Golli
Smáþing Stofnfundur Litla Íslands, Smáþing, var haldinn í gær.
Robert Lord,
breskur lög-
fræðingur og
regluvörður,
flytur fyr-
irlestur í hátíða-
sal Háskóla Ís-
lands í dag kl.
12, þar sem
hann fjallar um
nýja tilskipun Evrópusambandsins
um starfsemi verðbréfasjóða.
Viðskiptafræðideild Háskóla Ís-
lands og Samtök fjárfesta standa
fyrir komu Lords til landsins og
verður fyrirlesturinn opinn öllum.
Í kynningu kemur fram að eitt
af því sem tilskipunin feli í sér sé
aukin upplýsingagjöf verðbréfa-
sjóða og þar með gagnsæi fyrir
þá sem festa fé sitt í slíkum sjóð-
um. Með tilskipuninni sé reynt að
samræma reglur um starfsemi
sjóða á evrópska efnahagssvæðinu
(EES).
Tilskipun
um verð-
bréfasjóði
Robert Lord
STUTTAR FRÉTTIR
● Nýsköpunarhádegi Klak Innovit eru
haldin í hádeginu á þriðjudögum í frum-
kvöðlasetrinu Innovation House. Hvert
hádegi hefur þema sem tengist nýsköp-
un, atvinnusköpun og verðmætasköpun
á Íslandi, segir í fréttatilkynningu.
Nýsköpunarhádegi eru samstarfs-
verkefni Klak Innovit og Landsbank-
ans. Þá koma háskólarnir og fjöldi fé-
lagasamtaka að samstarfinu.
Næstkomandi þriðjudag verður fjallað
um markaðsstarf sprota á erlendum
mörkuðum. Frummælendur verða Hilm-
ar Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri
RemakeElectric og Andri Marteinsson,
forstöðumaður hjá Íslandsstofu.
Nýsköpunarhádegi um
markaðsstarf sprota
● Um síðustu áramót voru óinnleystar
ávísanir vegna endurgreiðslu frá rík-
isskattstjóra tæplega 142 milljónir
króna. Á árinu hafa aðeins verið inn-
leystar 1,4 milljónir og því standa rúm-
lega 140 milljónir óinnleystar í dag.
Þetta kemur fram í svari Fjársýslu rík-
isins við fyrirspurn mbl.is.
Ríkisskattstjóri hætti að senda út
ávísanir um mitt ár 2011, en ennþá er
töluvert óútgreitt vegna þessarar að-
ferðar. Nánar á mbl.is.
Óinnleystar ávísanir
upp á 140 milljónir
Morgunblaðið/Golli
!"# $% " &'( )* '$*
+,+-./
+01-,1
++.-+0
,,-2./
,2-+30
+/-.2+
+33-.1
+-,11
+/4-50
+41-.,
+,,-2.
+01-.+
++.-53
,,-+13
,2-+0/
+/-.54
+31-++
+-,1.4
+/.-+5
+45-+/
,,2-533/
+,,-34
+05-+/
++.-/.
,,-,2/
,2-,5.
+/-/++
+31-1/
+-,5+,
+/.-.+
+45-41
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Kortaþjónustan varð fyrir skömmu
fullgildur aðili að alþjóðlegu greiðslu-
kortafyrirtækjunum VISA Europe og
Mastercard International. Það gerir
Kortaþjónustunni kleift að annast bæði
debet- og kreditkortauppgjör alfarið hér
á Íslandi, en áður fór kortauppgjör
Kortaþjónustunnar fram í gegnum
danska fyrirtækið Teller. Í tilkynningu
segir að með þessum breytingum verði
öll kortauppgjör nú í nafni fyrirtækisins.
Kortauppgjör til Íslands