Morgunblaðið - 22.11.2013, Qupperneq 29
29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2013
Hafnarfjarðarbrandara þarf ekki að
kynna fyrir nokkrum Íslendingi.
Brandararnir ganga út á að láta
Hafnfirðinga líta út sem einstaklega
vitlausa og einfalda, með því að saka þá
um að læðast framhjá apótekinu til að
vekja ekki svefntöflurnar, eða um að
Hafnfirðingur hafi hringt í lögguna og
beðið um að koma í snatri, því búið væri
að stela stýrinu, bensíngjöfinni, kúp-
lingunni, gírkassanum og bremsunni.
Nokkru síðar hringdi hann aftur og
sagði að allt væri í lagi.
Hann hefði sest aftur í.
gunnardofri@mbl.is
Læðast Hafnfirðingar
framhjá apótekinu?
Hafnarfjarðarbrandarar lifa góðu lífi í Hafnarfirði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafnarfjörður Löngum hafa háðfuglar stært sig af því að kunna marga brandara um Hafnfirðinga. Brandararnir
eru flestir einfaldir orðaleikir, þar sem grínið er gert á kostnað Hafnfirðinga. Grínið er þó yfirleitt góðlegt.
Af hverju borða
Hafnfirðingar ekki
kleinuhringi?
Af því þeir vita
ekki hvað þeir
eiga að gera við
gatið í miðjunni.
ERNA LUNDBERG KRISTJÁNSDÓTTIR
Af hverju taka
Hafnfirðingar allt-
af hurðina af hjör-
unum þegar þeir
fara á klósettið?
Svo enginn geti
kíkt gegnum skrá-
argatið.
JÓN SÆVAR KRISTINSSON
Af hverju taka
Hafnfirðingar
alltaf með sér
stiga þegar þeir
fara út í búð?
Af því verðið
er svo hátt.
SUNNA JÓHANNSDÓTTIR
Af hverju klifr-
aði Hafnfirð-
ingurinn yfir
glervegginn?
Til að sjá
hvað væri hin-
um megin.
EINAR JÓHANN LÁRUSSON
Af hverju setja
Hafnfirðingar
alltaf stól út á
svalir á kvöld-
in?
Svo sólin
geti sest.
RÍKEY MAGNÚSDÓTTIR
Skannaðu kóðann til
að skoða myndskeið
um Hafnarfjarðar-
brandara.
Ég kann engan
Hafnarfjarðar-
brandara, en þegar
ég flutti einu sinni í
Hafnarfjörðinn,
1985 að mig minnir,
þá keyrði ég í bæinn
í mikilli rigningu til
að skoða húsnæði
sem ég ætlaði að
leigja, þá voru allir á
gangi með stóra sófa
á hausnum. Það hélt
ég að væri Hafnar-
fjarðarbrandari.
Ársæll Guðmundsson,
skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði
20% afsláttur
af öllum skóm fimmtudag til mánudags
Músík og Sport | Reykjavíkurvegi 60 | 220 Hafnarfirði
S: 555-2887 | musikogsport.is | musikogsport@hive.is