Morgunblaðið - 13.01.2014, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 13.01.2014, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Tónlistarviðburður í Útskálakirkju Hin fransk-ameríska Naomi Greene, Yasuyo Iso frá Japan og Grænlending- urinn Georg Olsen notuðu nýstárlegar aðferðir við tónlistarflutning í kirkju Garðmanna. og einum listamanni frjálst að vinna með það þema. Í Garði er af víðáttu nóg og það er einmitt samfélags- gerðin sem gerir staðsetninguna fyrir listaverkefnið í Garði svo ákjósanlega. Það vissi Mireya strax í upphafi og undir það tekur Akureyr- ar-listamaðurinn Hlynur Hallsson sem blaðamaður beindi tali sínu að í samkomuhúsinu, þar sem sam- verustundir listamannanna og kynn- ingar eru haldnar. „Hér er ekkert sem glepur, en samt allt til alls. Mér finnst skipta máli að hafa þetta verkefni á svona litlum stað eins og Garði.“ Hlynur er að taka þátt í listaverkefninu í fyrsta sinn, þó að honum hafi verið boðið áður. Sá tími hafði hins vegar ekki hentað lista- manninum en nú tók hann þátttök- unni fegins hendi. „Það er mjög áhugavert að hitta svona marga listamenn frá svo mörgum þjóð- löndum á sama stað. Þetta er mjög fjölþjóðleg menningarverkefni og áhugavert fyrir þær sakir.“ Fjöl- menningin mun ekki síður skila sér í verkum Hlyns, því nú bætir hann við tveimur tungumálum í texta sína, frönsku og japönsku. Ég hef verið að vinna með texta á undanförnum árum, spreyja á hina ýmsu staði og slíkt mun ég einnig gera hér, bæði í vitanum og á fiskvinnsluhús í eigu Nesfisks. Auk íslensku, þýsku og ensku, verður nú franska og jap- anska í fyrsta sinn í verkum mínum. Ég mun vinna með ferska vinda,“ sagði Hlynur, aðspurður hvernig hann myndi vinna úr þátttöku sinni í verkefni þar sem víðátta væri þem- að. Einn af fáum sem vinna með deyjandi listgrein Margir listamannanna munu á líkan hátt og Hlynur skilja eftir sig listaverk í samfélaginu og það hefur alltaf verið raunin í listaveislunni Ferskum vindum. Áfram er unnið í Skúlptúrgarðinn við íþrótta- og sundmiðstöðina og þótt margir lista- mannanna séu nú að vinna úr reynslu sinni af þátttöku í verkefn- inu, hefur eitt risamálverk litið dagsins ljós og Garðmenn velta vöngum yfir hvar þeir eigi að stað- setja það, að sögn Mireyu. „Þetta er átta metra langt og tveggja metra hátt listaverk eftir japanska lista- manninn Oz. Hann er einn af fimm svo kölluðum „EMA culture“ meist- urum í Japan. Það er deyjandi list- grein sem tengist Sinto trú, er notað við bænir og þakkir í hofum og við grafreiti. Það eru sem sagt bara fimm eftir í landinu sem hafa mast- erað þetta listform, þó að stóra verk- ið hans sé ekki unnið með þessari tækni.“ Og líkt og listaverkefnið Ferskir vindar vekur athygli Garð- manna og nærsveitunga á hinum ýmsu listamönnum vekur það áhuga fjölmiðlafólks í Evrópu og þar er samfélagið sjálft engin undantekn- ing. „Ég lofaði Ásmundi Friðriks- syni, sem var bæjarstjóri þegar fyrsta verkefnið hófst og hefur alltaf verið mjög áhugasamur um það, að koma Garði á kortið með Ferskum vindum. Við höfum til að mynda ver- ið valin af menningarsjónvarpsstöð- inni „Arte, cultural actions“, sem eitt það áhugaverðasta sem er að gerast í Evrópu um þessar mundir. Arte veitir verkefninu sértaka at- hygli á öllum sínum miðlum og mun verða hér á opnunarhátíðinni 18. janúar nk. Það er líka að koma fólk frá útvarpsstöð í Suður-Frakklandi að gera hátíðinni og samfélaginu hér sérstök skil.“ Veturinn mótar Íslendinga Hinn grænlenski Georg Olsson kom fram á menningardagskrá í Út- skálakirkju 5. janúar sl. sem var fyrsta opinbera dagskrá Ferskra vinda, utan reglubundinna kynninga á listamönnunum í samkomuhúsinu. Hann er rithöfundur, málari og tón- listarmaður og tók þátt í tónlistar- atriði í kirkjunni. Hann sagði þessa dvöl sína á Íslandi vera mjög hvetj- andi fyrir sig sem listamann og tók í sama streng og Hlynur, að mjög áhugavert væri að hitta svona marga listamenn frá mörgum þjóð- löndum á þessum stað. Og þó að vetrarmyrkrið sé honum ekki fram- andi er það ásamt kuldanum það sem gerir veturinn ákjósanlegri en sumarið fyrir listaverkefnið, sem tvisvar hefur verið haldið á þessum ártíma og einu sinni að sumri. „Það er veturinn sem mótar okkur Íslend- inga, ekki sumarið,“ sagði Mireya að lokum. Tengill:www.fresh-winds.com Eitt risamálverk hefur litið dagsins ljós og Garðmenn velta vöng- um yfir hvar eigi að staðsetja það. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 2014 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður Sérfræðingar í líkamstjónarétti Átt þú rétt á slysabótum? Leiklistarskólinn Opnar dyr býður upp á sérstök leiklistarnámskeið ætl- uð fullorðnum. Námskeiðin eru byggð upp með það í huga að fólk geti skemmt sér vel um leið og það losar um hömlur og fær útrás fyrir sköp- unargleðina í spuna og leik. Skólinn segir í viðburðarlýsingu á Facebook að „fullorðið fólk hafi mikla þörf fyrir að þroska leikræna hæfi- leika sína og þannig fær fólk tækifæri til að þroska sjálfsvitund sína, fé- lagsþroska og sjálfsöryggi á skap- andi hátt“. Námskeiðin sem boðið er upp á hefjast í lok mánaðarins og standa yfir í 8 vikur, alltaf á miðvikudags- kvöldum. Hvað hömlurnar snertir er miðað að því að leiklistin sé notuð sem skapandi í afl í þessum tilgangi og einnig til að hjálpa fólki að opna fyrir sköpunarflæði og ímyndunarafl með líflegum og skemmtilegum æf- ingum. Allar nánari upplýsingar er að finna á vefnum www.leiklist.org. Leikur Námskeiðin eru fyrir fullorðna. Engar hömlur Leiklist fyrir fullorðna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.